Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989
Fjármagnstekjur;
Nýir flokkar spari-
skírteina skattlagðir
VAXTATEKJUR af nýjum flokkum spariskírteina ríkissjóðs verða
skattlagðir með sama hætti og aðrar vaxtatekjur, verði tillögnr
fjárrnagnsskattanefndar að veruleika. Nefhdin teíur hins vegar
ekki réttlætanlegt að skattleggja vaxtatekjur af þegar útgefhum
spariskírteinaflokkum.
I áfangaskýrslu nefndarinnar
segir að hafa verði í huga að
stjórnvöld hafi lýst því yfir að þau
spariskírteini sem þegar hafa verið
seld séu skattfijáls. „Það mundu
sjálfsagt teljast brigð, ef vaxta-
tekjur af þeim yrðu nú skattlagð-
ar, þótt það væri í samræmi við
lög,“ segir í skýrslu nefndarinnar.
Því leggur nefndin til að þegar
útgefin skírteini verði skattfijáls.
Hins vegar er lagt til að nýir
flokkar spariskírteina verði skatt-
lagðir. í skýrslunni segir: „Vextir
og önnur kjör á þessum flokkum
hafa ekki verið ákveðin og munu
taka tillit til þess hvort um skatt-
lagningu eða ekki verður að ræða.
Það getur einnig beinlínis verið
ríkinu í hag sem seljanda spari-
skírteina að vaxtatekjur af þeim
verði skattlagðar vegna skattfrels-
is sumra fjármag-nseigenda. Því
vill nefndin leggja það til að vaxta-
tekjur á nýjum spariskírteina-
flokkum verði skattlagðar með
sama hætti og aðrar vaxtatekjur.
Sama á við um húsbréf."
Samhliða skattlagningu vaxta-
tekna leggur nefndin til að formi
vaxtabóta verði breytt til sam-
ræmis. Þannig verði aðeins raun-
vextir, það er vextir og verðbætur
á þá, frádráttarbærir. Sama kerfi
verði notað við ákvörðun þeirra
og notað verði til að ákvarða
vaxtatekjur. í skýrslunni segir:
„Nefndin vill að lokum benda á í
þessu sambandi, að bráðnauðsyn-
legt er að breyta því að aðilar
geti stóraukið frádráttarbæra
vexti vegna húsnæðisnota með því
einu að borga upp lán ogtaka ný.“
Heildartekjur ríkissjóðs vegna
skattlagningar fjármagnstekna
einstaklinga og lífeyrissjóða eru
áætlaðar munu nema 3,2 milljörð-
um króna, en á móti þeim eiga
að koma endurgreiðslur og lækkun
eignaskatts, þótt ekki sé á þessu
stigi ljóst um hvaða upphæðir er
þar að ræða.
60 flótta-
menn koma
frá Asíu
RÍKISSTJÓRNIN hefur
ákveðið, að tillögu utanríkis-
ráðherra, að taka við 60
flóttamönnum frá Suðaust-
ur-Asíu á næstu 3 árum.
Flóttamenn þessir verða úr
flóttamannabúðum þar sem
neyðin er hvað sárust, flestir
frá Víetnam.
Bjöm Friðfinnsson formað-
ur flóttamannanefndar Rauða
krossins segir að upphaf þessa
máls megi rekja til heimsóknar
Ole Wolfings forstöðumanns
Norðurlandadeildar Flótta-
mannahjálpar SÞ hingað til
lands fyrir skömmu. Hann átti
fundi með bæði dómsmálaráð-
herra og utanríkisráðherra og
fór þess á leit að íslendingar
tækju þátt í, að taka við tölu-
verðum fjölda flóttamanna frá
búðum þar sem ástandið er
nú skelfilegt.
Fyrsti leikur ínýju íþróttahúsi
Morgunblaðið/Júlíus
Fyrsti leikurinn í nýju glæsilegu íþróttahúsi í Garðabæ var háður í gærkvöldi. íslenzka handknattleikslands-
liðið lék gegn því austur-þýzka og tapaði 29:26. Heiðursgestur leiksins var þýzki handknattleiksmaðurinn
Joachim Deckarm, sem slasaðist alvarlega í leik fyrir fjölda ára og hefur verið fatlaður síðan. Hann var
sæmdur heiðursmerki HSÍ. Hér sést hann heilsa íslenzku landsliðsmönnunum.
Ný ríkisstjórn á sunnudag:
Framsókn samþykkir
inngöngu Borgaraflokks
Bæjarstjórn Eskifiarðar:
Hörpu RE-342 fagnað
*
Atelur vinnubrögð Fiskveiðasjóðs og
blaðamanna Morgunblaðsins
Júlíus Sólnes verður hagstofuráðherra
RÍKISRÁÐ, það er ríkisstjóm ásamt forseta, hefúr verið boðað
til tveggja fúnda næstkomandi sunnudag. Á fyrri fúndinum mun
Steingrímur Hermannsson biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt,
en á þeim síðari kynnir hann nýtt ráðuneyti, sem mun inni-
halda, auk gömlu ráðherranna, Óla Þ. Guðbjartsson dómsmála-
ráðherra og Júlíus Sólnes, sem fara mun með uppstokkun sljóm-
arráðsins, mótun atvinnustefinu og samstarfsmál Norðurlanda.
Hefúr yerið ákveðið að Júlíus verði tengdur formlega við Hag-
stofú Islands. Miðstjóm Framsóknarflokksins kom saman til
fúndar í gærkvöldi og samþykkti þá að Borgaraflokkurinn kæmi
inn í ríkisstjórnina.
Bæjarstjórn EskiQarðar hef-
ur ályktað um málefni Eskfirð-
ings hf. Bæjarstjórain fagnar
komu nótaveiðiskipsins Hörpu
RE-342, en átelur jafiiframt
vinnubrögð Fiskveiðasjóðs og
blaðamanna Morgunblaðsins í
þessu máli. Það var Hrafnkell
A. Jónsson forseti bæjarstjómar
sem flutti tillöguna og var hún
samþykkt samhljóma.
Orðrétt hljóðar ályktunin svo:
„Bæjarstjóm Eskiíjarðar fagnar
því að nýtt nótaveiðiskip, Harpa
RE-342, hefur bæst í flota Esk-
firðinga og lýsir yfir ánægju með
það framtak og þá bjartsýni sem
lýsir sér í áformum forráðamanna
Eskfirðings hf. um smíði á nýju
skipi, sem koma á í stað Eskfirð-
ings SU-9, Hörpu RE-342 og fjög-
urra smærri báta sem keyptir hafa
verið til úreldingar.
Bæjarstjóm Eskiijarðar lýsir
yfir undmn og vanþóknun á vinnu-
brögðum stjómar Fiskveiðasjóðs
sem einkennst hafa af annarlegum
sjónarmiðum í garð Eskfirðings hf.
Bæjarstjóm Eskifjarðar telur
ámælisvert að jafn víðlesið blað
og Morgunblaðið skuli skrifa af
jafnmiklu þekkingarleysi um mik-
ilvæg atvinnumál ■ einstakra
byggðarlaga og birst hafa í blað-
inu að undanfömu. Jafnframt
skorar bæjarstjórn Eskiijarðar á
blaðamenn Morgunblaðsins að
kynna sér betur en þeir virðast
hafa gert málefni fyrirtækja á
landsbyggðinni eins og Eskfirð-
ings hf. á Eskifírði."
Forsætisráðherra hafði áður
lýst því yfir að bráðabirgðalog
þyrfti að setja til þess að ráðherra
án ráðuneytis gæti setið í stjóm-
inni. Nú hefur hins vegar verið,
ákveðið að sleppa slíkri lagasetn-
ingu, en gera Júlíus Sólnes þess í
stað ráðherra Hagstofunnar, sem
samkvæmt stjórnarráðslögunum
telst sérstakt ráðuneyti, en heyrir
undir forsætisráðherra. Júlíus mun
því fara með Hagstofuna fram að
áramótum, auk sérverkefna sinna,
en þá á hann að verða umhverfis-
málaráðherra og forsætisráðherra
fær Hagstofuna aftur.
í fjölmiðlum hefur verið greint
frá því að til stæði að Borgara-
flokkur hlyti embætti forseta neðri
deildar. Óli Þ. Guðbjartsson segir
svo ekki vera. Þetta embætti hafi
ekki verið samningsatriði og um
það aldrei neitt samið.
Miðstjórnarfundur Alþýðu-
bandalagsins mun ijalla um stjórn-
arsamstarfið í dag og á morgun.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins hitt-
ist í fyrramálið. Búizt er við að á
þessum fundum verði ráðahagur
ríkisstjómar og Borgaraflokks
samþykktur, þrátt fyrir óánægju
einstakra þingmanna.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að málefna-
samningur hinnar nýju ríkisstjóm-
ar væri frágenginn en hann yrði
ekki birtur fyrr en að afloknum
miðstjómarfundum flokkanna.
Guðrún Lárusdóttir framkvæmdastjóri Stálskips:
Ætla að færa Patreksfirð-
ingnm lí fsbj örgina að nýju
GUÐRÚN Lámsdóttir, framkvæmdastjóri Stálskips hf., segir megin-
ástæðuna fyrir því að fyrirtækið féll frá tilboði sínu í togarann Sig-
urey vera að aðstandendur Stálskips töldu sig vera að fóma of miklu
fyrir of lítið. „Við höfúm þurft að liggja undir þeim ásökunum að
vera að eyðileggja byggðastefiiuna, kvótakerfið og taka lifsbjörgina
frá Patreksfirðingum. Mér var bara ekki ljóst að svo væri,“ sagði
Guðrún. „Nú er hins vegar búið að upplýsa mig rækilega um það á
síðustu dögum og því færi ég Patreksfirðingum lífsbjörgina á ný í
þorpið."
Sigurey var slegin Stálskipi hf. á
257,5 m.kr. á nauðungaruppboði á
eignum Hraðfrystihúss Patreksíjarð-
ar þann 30. ágúst sl. Næst hæsta
boð í Sigurey, 257 m.kr., átti fyrir-
tækið Stapar hf. sem helstu aðilar í
sjávarútvegi á Patreksfirði og Pat-
rekshreppur stofnuðu í þeim tilgangi
að halda togaranum á staðnum.
Guðrún Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stálskips, sendi
Stefáni Skarphéðinssyni, sýslumanni
á Patreksfirði, símskeyti á miðviku-
dag, þar sem fyrirtækið féll frá til-
boði sínu í Sigurey. Kemur fram í
skeytinu að vanskil áhvílandi lána á
skipinu hafi verið meiri en eigendur
Stálskips gerðu sér grein fyrir í byij-
un og að ekki hafi tekist að semja
við veðhafa um greiðslur á þessum
lánum.
Guðrún Lárusdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að samskipti
Stálskips við Landsbanka og Fisk-
veiðasjóð hefðu ávallt verið mjög góð
og hefði hún ekkert út á þau að
setja. Þetta væru viðskiptastofnanir
sem þyrftu að vernda sína hags-
muni. Hins vegar hefði framkoma
Byggðastofnunar í málinu verið mjög
ruddaleg og óréttlát. Hefði nánast
legið fyrir af hálfu stofnunarinnar
að enginn annar mætti bjóða í skipið
en Patreksfirðingar.
„Ég hef ekkert heyrt frá Stálskipi
eftir kaup þeirra á Sigurey enda
ekkert að semja um við fyrirtækið,"
sagði Guðmundur Malmqvist, for-
stjóri Byggðastofnunar. „A uppboð-
inu kom skýrt fram, áður en boðin
hófust, að 40 milljóna króna lán okk-
ar yrði gjaldfellt ef togarinn færi frá
Patreksfirði. Fari Sigurey aftur til
Patreksfjarðar munum við veita nýj-
um eignaraðilum þar þessar 40 millj-
ónir sem Ián.“
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
Landsbanka, sagði ekki hafa staðið
á þeim í Landsbankanum í þessu
máli. „Við ætluðum ekki að segja
upp lánum okkar en eins og jafnan
er þegar eigendaskipti af þessu tagi
fara fram þá gerðum við kröfu um
að vanskil væru gerð upp.“ Sverrir
sagði vanskil á lánum hafa verið um
28 m.kr. og um 90 m.kr. til viðbótar
væru áhvílandi með góðum veðum.
Alls væri því um að ræða 120 m.kr.
Svavar Ármannsson, aðstoðarfor-
stjóri Fiskveiðasjóðs, sagði Fisk-
veiðasjóð eiga veð fyrir 40-50 m.kr.
í Sigurey. Overulegur hluti þeirrar
upphæðar, u.þ.b. 1,5 m.kr., væri í
vanskilum. „Fulltrúar Stálskips
ræddu við okkur strax eftir uppboðið
um það hvort lánin mættu standa
að öðru leyti en því að vanskilin yrðu
greidd. Þau fengu að vísu ekki fulln-
aðarsvar, en við gerðum enga kröfu,
umfram það, að vanskilin yrðu
greidd,“ sagði Svavar.
Málið er nú höndum uppboðs-
haldara, Stefáns Skarphéðinssonar,
sýslumanns á Patreksfirði, sem sker
úr um það hvort gengið verði að
næsta tilboði, tilboði Stapa, eða hald-
ið nýtt uppboð. Á mánudag verður
haldinn fundur með helstu veðhöfum
og rætt um framhald málsins. Mun
sýslumaður taka ákvörðun sína í
framhaldi af því.