Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 27 Minning: Anna Sölvadóttir I dag er Anna Sölvadóttir jarð- sungin í Fossvogskirkju. Hún fæddist 14. ágúst 1909 á Litla-Árskógssandi í Eyjafirði. For- eldrar hennar voru hjónin Sölvi Magnússon og Borghildur Gísladótt- ir. Hún var hið sjöunda í aldursröð af átta börnum þeirra sem öll náðu fullorðinsaldri. Þau Sölvi og Borghildur voru bæði eyfirsk að uppruna, hann fædd- ur í Ólafsfirði en hún á Upsaströnd. Eftir að þau giftust 1894 voru þau á Litla-Árskógssandi eða nágrenni og þar ólust börn þeirra upp. Þegar Anná hafði náð fullorðins- aldri lá leið hennar til Reykjavíkur. Þar varð hún seinni kona Guðjóns verkamanns Gunnlaugssonar. llann var Suðurnesjamaður að uppruna, fæddur 6. febrúar 1885. Þeim Önnu fæddust 7 börn á árunum 1939- 1948. Eitt þeirra misstu þau í bernsku en hin eru enn á lífi. Þessi sambýlisár urðu að ýmsu leyti erfið. Guðjón missti heilsu og varð raunar fyrir slysi sem gerði hann rúmfastan. llann dó 21 maí 1949. Anna bjó líka við nokkra van- heilsu um skeið. Þessu fylgdi sú dap- urlega staðreynd að hún varð að láta börn sín frá sér að mestu leyti og þau ólust upp annars staðar. Seinna birti þó yfir og síðustu 20 árin átti hún sér heimili í Ilatúni 10 þar sem börn hennar og barnabörn gátu kom- ið til hennar. Þannig verður nú þjóð- félagið íslenska mörgum öldruðum ómetanleg ellistoð og ber vissulega að meta það svo sem vert væri. ■ Börn þeirra Önnu og Guðjóns eru þessi: Borghildur, húsfrú í Kópavogi; Sólveig, liúsfrú í Hveragerði; Sigurð- ur, verkamaður í Reykjavík; Kolbrún, húsfrú í Sandgerði; Ársæll smiður í Neskaupstað og Sigríður Eyrún, hús- frú í Grindavík. Seinna eignaðist Anna dóttur, Árnýju Sigríði Benediktsdóttur hús- frú í Kópavogi. Barnabörn Önnu eru 19 og barna- barnabörnin 8. H.Kr. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHAIMIMA JÓHAIMIMSDÓTTIR, Seljavegi 21, Reykjavík, lést 30. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinn- ar látnu. Jóhann Kristján Ragnarsson.Guðný S. Þorleifsdóttir, IMína Björg Ragnarsdóttir, Halldór Jóhannsson, Gunnar Ragnarsson, Margrét Ingvarsdóttir, Auður Ragnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Ragnheiður Jónasdóttir, Jón Ragnarsson, Guðrún Guðmundsdóttir og barnabörn. t Ástkær dóttir mín, eiginkona, móðir,-tengdamóðir og amma, HANNA E. G. PÁLSDÓTTIR, Grettisgötu 96, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 8. sept- ember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á kvennadeild Rauða kross íslands. Einara Ingimundardóttir, Halldór Þorgrímsson, Margret A. Pálmadóttir, Hreinn M. Björnsson, Gyða S. Halldórsdóttir, Sigurjón Bjarnason, Hanna E. Halldórsdóttir, Páll E. Halldórsson, Bára M. Sigurgisladóttir, Gunnar S. Halldórsson, Björg Baldursdóttir og barnabörn. I / Allar gerðir Fiskars skæra og hnífa. I VERZLUNIN ^ Laugavegi29. Símar 24320 — 24321 — 24322 NÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST - TAKMARKAÐUR FJÖLDI Dag-kvöld-og helgarsímar 621066 - 10004 Aimenn tungumaianamsKeio Þú mætir 2svar í viku 2 tíma í senn í 12 vikur - Við tryggjum að þú takir upp þráðinn þar sem kunnáttunni sleppir. ÞÝSKA, FRANSKA, ITALSKA, SPÆNSKA, SÆNSKA, DANSKA, ENSKA, JAPANSKA, KÍNVERSKA, PORTÚGALSKA og [SLENSKA fyrir útlendinga. Verð: kr. 16.900,- Viðskiptaenska Viðskiptaþýska ViðskiptafranSka Námskeið fyrir fólk sem horfir til fram- tíðar í viðskiptum. 10 vikna námskeið, 2 kvöld í viku, 2 tíma í senn. Verð: kr. 19.100,- 20 vikna námskeið Verð: kr. 39.600,- Enska fyrir böm 12 vikur, 1 sinni í viku. Verð frá kr. 8.600,- íslensk réttritun Verð 14.100,- - 10 vikur. Alþjóðleg próf Undibúningur undir TOEFL GMAT, GRE, Cambridge og Pitman. Fjarkennsla Málaskólinn Mímir sér um fjarkennslu í ensku í samvinnu við Rás 2. Símsvörun á erlendu tungumáli Stutt hnitmiðuð námskeið fyrir þjónustufyrirtæki. Fyrsta símtal getur haft úrslitaáhrif um viðskipti við útlönd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.