Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 23 ins. Ómar Smári Ármannsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn, sagði að þarna hefðu aðstæður verið stór- hættulegar. Skrifstofu- og ritara- skólinn: 15. starfsárið að heflast FIMMTÁNDA starfsár Skrif- stofii- og ritaraskólans á mánu- dag í húsakynnum Stjórnunarfé- lags Islands sem rekur skólann. Skólinn býður tvö sjálfstæð námsár. Fyrra árið útskrifast nem- endur með almennt skrifstofupróf, en framhaldsárið með sérhæft skrifstofupróf. Þar er hægt að velja um 2 námsbrautir. Það nýmæli er nú að nemendur taka starfsþjálfun sem eina námsgrein. Viðeyjarferð Haftiarflarðar- sóknar KVENFÉLAG Hafnarijarðar- kirkju og salnaðarstjórn stendur fyrir safnaðarferð, sunnudaginn 10. september út í Viðey. Farið verður með rútu frá Hafn- arfjarðarkirkju klukkan 12.15 og ekið til Sundahafnar. í Viðey mun séra Þórir Stephensen taka á móti gestum og leiða helgistund í Við- eyjarkirkju, rekja sögu staðarins og fara með hópnum um nágrenn- ið. Kaffiveitingar verða seldar- „Tveir á ferð“ opnuð á morgun TVEIR á ferð nefnist sýning feðginanna Margrétar Jónsdótt- ur og Jóns Benediktssonar, sem opnuð verður klukkan 16 á morgun í FÍM-salnum, Garða- stræti 6. Margrét sýnir olíumál- verk og Jón höggmyndir í eir. Margrét hefur verið starfandi myndlistarmaður í 15 ár og tekið þátt í fjölda sýninga. Jón hefur verið starfandi myndiistarmaður í yfir 40 ár og var einn af þekktari myndhöggvurum þjóðarinnar. Undanfarin ár hefur hann haft hljótt um sig, en byijaði að vinna aftur að fullu þegar FÍM-salurinn tók til starfa sem gallerí. Bókaútgáfa Orðs lífsins gefur út tvær bækur BÓKAÚTGÁFA Orðs lífsins hef- ur gefið út tvær nýjar bækur. Hin fyrri heitir „Þú getur brotið niður sterk vígi“ eftir Bandaríkja- manninn John Osteen. Þýðandi er Hrafn Haraldsson. Seinni bókin heitir „Blóðsáttmál- inn“ og ér eftir Svíann Sten Nils- son. Sú bók er 180 blaðsíður og fjallar um þann blóðsáttmála sem Guð gerði við manninn. Þýðandi er Guðni Þorvaldsson. Bækur þessar eru til sölu hjá versluninni Jötu og Kirkjuhúsinu v/Klapparstíg. (Úr fréttatilkynningu) Morgunblaðið/Jón Svavars Bílliun vó salt á brún grunnsins, sem var ómerktur. Ómerktur hús- grunnur olli óhappi LÖGREGLAN I Reykjavík lét á sunnudagskvöld merkja hús- grunn, sem byrjað er að gi-afa við Skipholt. Grunnurinn, sem er þar sem áður voru bílastæði, var ómerktur og lýsing við hann engin. Á sunnudagskvöld varð það óhapp, að bíl var ekið fram af brún grunnsins. Engin meiðsli urðu á ökumanni og bíllinn var talinn lítt eða ekki skemmdur. Ökumaður lítils fólksbíls ók á litlum hraða inn á bílastæðið og stöðvaðist bíliinn þegar framhjólin voru komin fram af brún grunns- Morgunblaðið/Einar Falur Þátttakendur í Reykjalundarhlaupinu voru á öllura aldri. 300 í Reykja- lundar- hlaupinu Reykjalundarhlaupið var haldið á laugardag. Um 300 manns á öllum aldri tóku þátt í því og gekk það mjög vel. Fjórar leiðir voru farnar — 2 km hjólastólaakstur, 3 km hlaup/ganga, 6 km hlaup/ganga og 14 km hlaup. Þeir sem komu fyrstir í mark fengu ekki verðlaun heldur var dregið úr númerum þeirra sem tóku þátt. Nokkur fyrir- tæki og verslanir gáfu vinninga, sem voru ýmsar úttektir. Aðalbjörg Guðgeirsdóttir kom fyrst í mark á hjólastól en hún fór 2 km á 11 mínútum og 20 sekúnd- um. Besti tími í 3ja km hlaupi var 12 mínútur og 9 sekúndur en vegna mistaka er ekki vitað hver á hann. Snorri Dal Sveinsson sigraði 6 km hlaupið á 23 mínútum og_8 sekúnd- um og Kristján Skúli Ásgeirsson kom fyrstur í mark eftir 14 km hlaup á 50 mín. og 57 sek. Rokktónlist í Holly wood Hljómsveitin Loðna rQttan mun leika í Hollywood á föstudags- og laugardagskvöldum á næstunni. Sveitina skipa Sigurður Gröndal, Richard Scobie, Halldór Hauksson, Ingólfur Guðjónsson og Jóhann Ásmundsson. Loðna rottan leikur fyrst og fremst rokktónlist. Happdrætti Félags- heimilis Tónlistar- manna: Aukavinningur dreginn út 1. september var dreginn út aukavinningur í happdrætti Fé- lagsheimilis tónlistarmanna. Vinningurinn, ferðavinningur frá Evrópuferðum, að verðmæti krónur 80.000, kom á miða 669. Vinningshafi getur vitjað vinn- ings hjá Evrópuferðum, Klapp- arstíg 25-27 Reykjavík. í undirbúningi eru frekari uppá- komur til að vekja athygli á happ- drætti Félagsheimilisins, sem dreg- ið verður í 23. október nk. (Úr frcttatilkynningu) Bítlavinafélagið í Glæsibæ Bítlavinafélagið mun halda dansleik i Danghúsinu í Glæsibæ, laugardaginn 9. september. Bítlavinafélagið hefur leikið á dansleikjum um land allt í sumar. Húsið verður opnað klukkan 22 og dansað verður fram á nótt. „Tveir á ferð“ nefnist sýning þeirra feðgina Margrétar Jónsdóttur og Jóns Benediktssonar sem opnuð verður á morgun laugardaginn 9. september. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 7. september FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 64,50 20,00 62,34 18,908 1.178.663 Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,040 800 Ýsa 108,00 25,00 95,95 5,001 488.264 Karfi 34,00 31,00 32,39 3,253 105.369 Ufsi 30,00 20,00 29,39 4,158 122.220 Steinbítur 52,00 38,00 49,97 2,993 149.527 Langa 20,00 20,00 20,00 0,247 4.940 Lúða 265,00 150,00 224,45 0,410 92.025 Koli 67,00 32,00 32,47 1,419 46.073 Keila 15,00 15,00 15,00 1,047 15.705 Kinnar 88,00 88,00 88,00 0,033 2.904 Gellur 250,00 250,00 250,00 0,015 3.750 Samtals 58,71 37,737 2.215.675 1 dag verða meðal annars seld 20 tonn af þorski, 54 tonn af karfa, 96 tonn af ufsa og 1,8 tonn af blönduðum afla úr Víði HF, 8,5 tonn af ýsu og 2,5 tonn af ufsa úr Hjalteyrinni EA og 3 tonn af steinbít frá Hraðfrystihúsi Breiðdælinga hf. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 67,00 45,00 53,69 154,364 8.288.021 Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 1,626 24.390 Ýsa 97,00 58,00 90,44 6,984 631.682 Ýsa(umál) 26,00 26,00 26,00 0,026 676 Karfi 33,50 32,00 32,96 30,228 996.348 Ufsi 31,00 25,00 29,56 12,743 376.741 Hlýri+steinb. 51,00 15,00 50,49 3,431 173.216 Hlýri 44,00 44,00 44,00; 0,418 18.392 Blálanga 39,00 37,00 37,14 1,558 57.879 - Lúða(stór) 290,00 200,00 209,80 0,147 30.840 Lúða(smá) 200,00 140,00 143,68 0,228 32.760 Grálúða 43,00 42,00 42,30 6,534 276.394 Skarkoli 54,00 54,00 54,00 0,111 5.994 Hnísa 20,00 20,00 20,00 0,042 840 Samtals 49,97 218,502 10.917.603 Selt var úr Engey RE, Gylli ÍS, Drangey SK og fleirum. i dag verður selt óákveðið magn úr Skagaröst KE og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 65,00 41,00 56,87 8,651 492.018 Þorskur(umál) 21,00 21,00 21,00 0,079 1.659 Ýsa 97,00 30,00 81,70 4,035 329.657 Karfi 39,00 15,00 29,27 11,275 330.054 Ufsi 40,00 15,00 22,14 1,548 34.270 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,150 2.250 Langa 25,00 15,00 20,16 0,422 8.506 Blálanga 39,50 32,00 34,27 0,717 24.572 Lúða 100,00 90,00 99,17 0,024 2.380 Sólkoli 58,00 58,00 58,00 0,031 1.798 Skarkoli 37,00 35,00 36,70 0,047 1.725 Keila 22,00 5,00 8,36 0,374 3.128 Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,164 2.460 Samtals 44,86 27,517 1.234.477 i dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum. Laugarásbíó sýnir „Cohen og Tate“ LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýninga myndina „Cohen og Tate“. Leikstjóri er Eric Red en með aðalhlutverk fara Roy Scheider og Adain Baldwin. Lítil fjölskylda, Jeff og Marta Knight, fer huldu höfði ásamt Trav- is,-9 ára, á afskekktum bóndabæ í Bandaríkjunum. Hjá þeim eru þrír lögreglumenn, sem eiga að vernda þau fyrir útsendurum glæpasamtaka í Texas. Jeff Knight hafði verið í hópi glæpamannanna, en snúið baki við þeim og það táknar í þeirra augum að hann sé réttdræpur hvar sem til hans náist. Úr myndinni „Cohen og Tate“ sem Laugarásbíó sýnir. Haftiarflörður; Vetrarstarfið hjá Hraunbúum hefst Skátafélagið Hraunbúar í Hafharfirði hefur vetrarstarf sitt með formlegum hætti á morgun, laugardag. Sérstök innritun verður fyrir eldri félaga og nýja og hefst hún klukkan 14. Sam- hliða henni verða myndasýningar og kaffiveit- ingar. Skátar munu vera að starfi allan daginn og klukk- an 17.30 verður kveikt á útigrillinu og þar grilla gestir mat sinn, en Hraunbúar leggja til drykkjar- föng. Um kvöldið er kvöldvaka með skemmtiatriðum og afhendingu skipunarbréfa og viðurkenninga. (Fréttatilkynningj

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.