Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 13
MOKGUNBLAUIÐ, FÖSTUDAGyR 8. SEPTEMBER 1989(13
„Dýrmætt er lífið, þá dauðinn
kallar“, segir gamall íslenskur
málsháttur. Þessi orð eiga misjafn-
lega vel við, eftir því hvort dauðinn
kemur sem líknandi hönd eða með
hastarlegum hætti eins og átti sér
stað, þá vinur minn og einn nán-
asti samstarfsmaður Jón Ingimars-
son, lögfræðingur, féll frá fyrir
skömmu. Á stundum sem þessum
gerir maður sér fyrst grein fyrir
því hversu lífið er dýrmætt og leið-
ir hugann að fallvaltleika þess. Ég
átti ekki von á öðru en að Jón Ingi-
marsson yrði allra karla elstur, því
til þess hafði hann allar forsendur,
ef mið er tekið af þeim kenningum,
sem lærðir menn hafa sett fram
um leiðina til langlífis.
Jón var að komast á það ævi-
skeið að hyllti undir náðugri daga,
sem ég vissi að hann hlakkaði tii í
aðra röndina, enda að nógu að
hverfa, því áhugamálin voru mörg
og hæfileikar voru honum ríkulega
gefnir, þótt alls ekki flíkaði hann
þeim. Jón minnti mig manna mest
á þá manngerð, sem ég hefi stund-
um ímyndað mér að gæti kallast
hinp „klassíski" menntamaður.
Ég kynntist Jóni fyrst árið 1973,
er ég hóf störf í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, en
hann starfaði þar sem skrifstofu-
stjóri. Heyrt hafði ég Jóns að góðu
getið áður og eins og margir íslend-
ingar þekkti ég nokkuð til foreldra
hans, sem voru hinn stórmerki
skólamaður sr. Ingimar Jónsson og
Elínborg Lárusdóttir, rithöfundur.
Allt frá upphafi störfuðum við náið
saman og bar aldrei skugga á þau
samskipti. Réð þar mestu meðfædd
prúðmennska Jóns og þeir eiginleik-
ar hans að leysa mál með lipurð
og lagni, því vissulega vorum við
ekki alltaf sammála fremur en önn-
ur mannanna börn. Af Jóni lærði
ég öðrum fremur að hemja skap
mitt og að skilja mikilvægi vand-
aðra og nákvæmra vinnubragða,
en meiri nákvæmnismanni en Jóni
hefi ég vart kynnst á lífsleiðinni.
Fannst mér á stundum, einkum á
„eldhugaárunum", þessi nákvæmni
standa Jóni nokkuð fyrir þrifum,
því ekkert mátti út fara án mikillar
ígrundunar. Jón sagði gjarnan að
afgreiðsla í ráðuneytum þyrfti sinn
tíma og að alls ekki mætti flýta
afgreiðslu í því einu skyni að svara
fljótt.
Þótt Jón hafi lagt stund á lög-
fræði og starfað sem slíkur er mér
ekki örgrannt um, að ýmislegt ann-
að hafi átt hug hans og ekki legið
síður fyrir honum, þótt ávallt sé
erfitt að dæma um slíkt, ekki síst
þegar jafn hæfielikaríkur maður
sem Jón átti í hlut. Að mínu mati
var Jón fæddur fræðimaður og
grúskari, ekki síst á sviði sagn-
fræði, þjóðfræða og ættfræði. Mála-
maður var hann og afbragðsgóður,
þótt ekki hefði hann dvalið lang-
dvölum erlendis, og nutu sín þar
vel vandvirknin og nákvæm vinnu-
brögð. Mér eru minnisstæðar sam-
ræður okkar Jóns, er við ræddum
hið Sígilda viðfangsefni íslendinga,
hvort við værum á réttri hillu, þar
sem áhugamál okkar og hugsanlega
hæfileikar væru að mörgu leyti lítt
tengdir lögfræðinni. Skoðun Jóns
var sú, að hillan væri ef til vill ekki
alveg sú rétta en nálægt væri hún,
auk þess sem við íslendingar þyrft-
um að vinna fleiri störf en þau, sem
við teldum höfða sérstaklega til
hæfileika okkar, sakir fámennis.
Hvað sem öðru liði væri lögfræðin
og störf í stjórnarráði þess eðlis,
að þau mættu teljast til forréttinda
vegna fjöibreytileika og tengsla við
slagæðar þjóðfélagsins, lífið sjálft.
Auk þess væri hægt að rækta hæfi-
leika sina í hið óendanlega, stæði
vilji til þess. Jón lifði eftir þessu
dyggilega og hafði t.d.á sjötugs-
aldri tileinkað sér svo tölvutækni,
að margir honum yngri menn máttu
öfunda hann af.
Með Jóni Ingimarssyni er geng-
inn mér einkar kær maður. Missir
okkar samstarfsmanna hans er sár
en sárastur er þó missir ástvina
hans. Bið ég þann sem öllu ræður
að halda verndarhendi sinni yfir
Elínu, börnum, barnabörnum,
tengdabörnum og öðrum aðstand-
endum og styrkja þau til þess að
standast þau *ólög, sem riðið hafa
yfír. í huga mínum mun ég varð-
veita minningu um góðan dreng.
Ingimar Sigurðsson lögfræðingur
Jón Ingimarsson skrifstofustjóri
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
ríeytisins lést 2. september sl. langt
um aldur fram. — Hér verður í
stuttu máli rakinn starfsferill hans
og lífshlaup.
Jón fæddist að Mosfelii í
Grímsnesi 27. október 1923. Faðir
hans, Ingimar Jónsson, var þá
prestur þar, en hann varð síðar
skólastjóri í Reykjavík. Móðir Jóns
var Elínborg Lárusdóttir, húsfreyja
og rithöfundur.
Jón ólst upp í Reykjavík og iauk
stúdentsprófi frá stærðfræðideild
Menntaskólans í Reykjavík vorið
1934. Jón hugðist nema læknis-
fræði en varð að hverfa frá námi
vegna berkla, og þegar dráttur varð
á háskólanáminu innritaðist hann í
iögfræðideild og lauk lögfræðiprófi
frá Lagadeild Háskóla íslands í jan-
úar 1953. Hann starfaði fyrsteftir
lögfræðiprófið við sjálfstæð mál-
flutningsstörf í Reykjavík og lauk
prófi héraðsdómslögmanns 1954,
en tók við starfí hjá Trygginga:
stofnun ríkisins sem aðallögfræð-
ingur stofnunarinnar 1954 og
gegndi því starfi til 1963.
Leiðir okkar Jóns lágu saman,
þegar ég hóf störf hjá Trygginga-
stofnun ríkisins 1960, og sérstak-
lega urðu kynni okkar náin, þegar
við tókum, fyrir íslands hönd, sæti
í nefnd Norðurlandaþjóða, sem átti
að reyna að samræma örorkumat
í slysatryggingum. Við sátum sam-
an í þeirri nefnd á árabilinu 1960
til 1964 og var einn læknir og einn
lögfræðingur frá hverri þjóð í
nefndinni.
Jón fór til framhaldsnáms í Nor-
egi í tryggingafræðum 1961-62 og
stóð því vel að vígi að starfa að
þessum málum þá.
Nefndarálit þessara nefndar kom
út sem bók í árslok 1963 og var
lögð fram á 6. Norræna almanna-
tryggingamóti í Kaupmannahöfn
1964.
Jón breytti um starf 1964 og tók
þá að nýju að reka lögfræðiskrif-
stofu í Reykjavík, en annaðist jafn-
framt ýmiss konar viðskiptastörf
og fasteignasölu.
Þessa starfsemi rak hann fram
á árið 1970.
Það ár lágu leiðir okkar Jóns
saman að nýju. Með nýjum stjórnar-
ráðslögum 1969 var nýtt ráðuneyti
heilbrigðis- og tryggingamála,
stofnað frá 1. janúar 1970. Þegar
ég hafði verið skipaður ráðuneytis-
stjóri í því ráðuneyti, leitaði ég til
Jóns í samráði við þáverandi heil-
brigðisráðherra um að hann kæmi
til starfa í hinu nýja ráðuneyti sem
skrifstofustjóri, þar sem enginn
þeirra lögfræðinga sem að þessum
málaflokkum unnu í dómsmála-
ráðuneyti og félagsmálaráðuneyti
komu til starfa í ráðuneytinu.
Það varð úr, að Jón tók að sér
þetta starf og síðan 1. september
1970, eða rétt 19 ár, þegar hann
lést, höfðum við unnið saman að
þessum tveimur málaflokkum.
Þegar ég leitaði til Jóns um að
koma til starfa var það vegna þess,
að ég vissi, að mikilvægt var að fá
til starfa í ráðuneytinu sem skrif-
stofustjóra mann, sem hefði annars
vegar yfirgripsmikla reynslu og
þekkingu í lögfræði og hins vegar
samstarfsmann, sem ég vissi að
auðvelt væri að vinna með að upp-
byggingu ráðuneytisins.
Það gekk eftir, sem ég hafði
haldið og öll þessi ár hefur sam-
vinna okkar Jóns verið eins góð og
best verður á kosið og aldrei borið
skugga á góða samvinnu.
Þegar við Jón hófum störf í heil-
brigðisráðuneytinu þurfti að byggja
nýtt ráðuneyti upp frá grunni og
hvorugur okkar hafði starfað í ráðu-
neyti. Við byggðum því ráðuneytið
upp eins og okkur fannst hentugast
og skynsamlegast og þannig höfum
við unnið saman að þessum málum
aila tíð síðan og að sjálfsögðu
ávallt í góðu samstarfi og undir
yfírstjórn þeirra ráðherra, sem með
málaflokkinn hafa farið hverju
sinni.
Vissulega héfur ráðherra yfir-
stjórn allra mála í ráðuneyti, en
fastir starfsmenn verða að reyna
að móta hin daglegu störf og af-
greiðslur, þannig að málin séu af-
greidd og reynt sé að ljúka verkefn-
um. Á þessu tímabili höfum við
starfað með 7 ráðherrum.
Frá byijun hefur skrifstofustjór-
inn í ráðuneytinu séð um starfs-
mannamál og framkvæmd vinnu á
skrifstofu og fyrstu árin annaðist
hann einnig öll lögfræðistörf, en
fljótlega þurfti að ráða fleiri menn
til þeirra starfa.
Á sínum langa starfstíma í ráðu-
neytinu voru Jóni falin ótal nefnd-
ar- og trúnaðarstörf, og vil ég hér
minnst á nokkur þeirra. Hann var
skipaður í bygginganefnd Landspít-
alans 1971, og síðar ritari í yfir-
stjórn mannvirkjagerðar_ á Land-
spítalalóð til ársins 1984. í stjórnar-
nefnd Ríkisspítalanna frá 1972 og
varaformaður frá 1974 til 1984.
Árið 1977 var Jón skipaður í 21
manns fulltrúaráð sjálfseignastofn-
unar St. Jósefsspítala, Landakoti
og sat í yfirstjórn þeirra stofnunar,
þar til á síðasta ári, að hann baðst
lausnar.
Það hafði lengi verið hefð, að
ráðuneytisstjóri félagsmálaráðu-
neytisins væri formaður stjórnar
atvinnuleysistryggingasjóða. Árið
1979 varð það að samkomulagi, að
Jón tæki það verkefni að sér, og
var hann kosinn af Alþingi 1979 í
stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs
og skipaður formaður sjóðsins þá
og aftur 1980 til 1984.
Sjá síðu 29
THE0DÓRA
□ Buxur kr. 1.700,-
o Skyrtur fró kr 900,-
o Dress fró kr. 3.900,-
□ Pilsfró kr. 900,-
IHUMMEL
o Dúnúlpurfró kr. 2.500,-
o Jogginggallar barna fró.....kr. 790,-
□ Jogginggallar dömu og herro fró
....................kr. 990,-
BOMBEY-barnaföt
□ Skólaúlpur fró..........kr. 1.990,-
□ Galla- og flauelsbuxur..kr. 1.500,-
□ Peysur.....................kr. 990,-
SPARTA
o Iþróttaskór fró..............kr. 490,-
□ íþróttaskór fró.............kr. 990,-
□ Toppíþróttagallor fró.....kr. 2.490,-
SKÆÐI - KRINGLUNNI
□ Herroskórfró....kr. 1.000-1.995,-
□ Dömuskór fró......kr. 500-2.99Q,-
□ Barnaskórfró......kr. 500-1.000,-
1
Bifreiöaskoöun ■
íslands
áf>TÚNSBREKKA
BILDSHÖFÐI
STORUTSOLUMARKAÐUR
Bíldshöföa 10
VESTURLANDSVEGUR
STRAUMUR
jSAMBANDIÐ I ■partý
□ Kuldagallar kr. 4.900,- □ Bolirfró kr. 450,-
□ Herraúlpur kr. 2.400,- o Barnasmekkbuxur kr. 690,-
o Skólaúlpur kr. 1.400,- o Stokor buxur fró kr. 490,-
o Fóðruð gallasett kr. 2.900,- □ Ullarjakkorfró kr. 3.500,-
o Barna joggingsett kr. 990,- o Joggingbuxur fró kr. 990,-
STEINAR
□ Isl. og erl. spólur fró.....kr. 99,-
o ísl. hljómplötur fró.........kr. 99,-
o Erl. hljómplötur fró.........kr. 99,-
o 12“ hljómplötur fró.........kr. 49,-
o ísl. og erl. geisladiskar fró...kr. 399,-
□ Myndböndfró...............kr. 899,-
KARNABÆR - B0GART
GARB0
o Jakkaföt fró.............kr. 3.900,-
o Kakybuxurfró.....................kr. 500,-
o Gallabuxur fró...................kr. 990,-
o Bolirfró.........................kr. 200,-
o Stakir jakkar fró.......kr. 2.900,-
o Dömufrakkar fró........kr. 1.500,-
o Barnaföt meö 60% afsl.
Saumalist (Nafnlausa búðin)
o Gardínuefnifró ..kr. 195,- pr. m.
o Fataefni fró ..kr. 200,- pr. m.
o Lakaefnifró ,.kr. 290,- pr. m.
o Sængurverosett fró. kr. 1.290,-
VINNUFATABÚÐIN
□ Gallabuxur fró kr. 990,-
o Flauelsbuxur fró kr. 990,-
o Kuldaúlpur fró kr. 1.900,-
o Vinnuvettlingar kr. 100,-
EFRAIM
□ Herraskór..kr. 990,- 1.490,- 1.990,-
o Kvenskór............kr. 990,- 1.490,-
o Kuldajkór.................kr. 2.490,-
o Barnaskór...................kr. 490,-
Fj'óldifyrirtœkja — gífurlegt vöruúrval — ÓTRÚLEGT VERÐ