Morgunblaðið - 08.09.1989, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGÚR 8. SEPTEMBER 1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag er það umfjöllun um
hið dæmigerða fyrir Vatns-
berann (21. janúar — 19.
febrúar) og Fiskamerkið
(19. febrúar — 19. mars)
í ást og samstarfi.
YJirvegun
Vatnsberinn er tilfinninga-
lega sjálfstæður og yfirvegað-
ur. Hann leggur áherslu á að
skynsemi stjórni tilfinningum
og er illá við að missa stjóm
á sér eða sýna einhver kjána-
læti og afkáraskap. Sjálfsagj
er honum því mikilvægur. I
’ daglegri umgengni er hann
yfirleitt vingjarnlegur og
þægilegur.
Hiti og kuldi
Framangreint þýðir að Vatns-
berinn er hinn skynsami elsk-
hugi, maður sem heldur aftur
af tilfínningum sínum og sýn-
ir þær einungis við sérstök
tækifæri. Hann getur verið
heitur, en er einnig kaldur
þess á milli.
Sérstakt fólk
Vatnsberinn laðast að hug-
myndaríkum og sérstökum
mönnum, þeim sem eru öðru-
vísi og hafa eitthvað sérstakt
fram að færa og eru því for-
vitnilegir í viðkynningu. Hann
gerir þá kröfu að vinir hans
séu ekki of nærgöngulir við
hann sjálfan eða ætli sér að
gleypa hann með húð og hári.
Þegar hann á annað borð hef-
ur gefið sig er hann trygg-
lyndur í ást. Vinátta og hug-
myndalegur samhljómur, að
hægt sé að tala við ástvininn,
er forsenda ástar þegar
Vatnsberinn er annars vegar.
Nœmleiki
Fiskurinn hefur næmar og
sterkar tilfinningar. Hann er
viðkvæmur o'g verður fyrir
miklum áhrifum af því sem
er að gerast í umhverfinu.
Hann er skiiningsríkur og
umburðarlyndur og oftast
þægilegur í daglegri um-
gengni, þó hann geti verið
mislyndur og misjafn.
Fórn
Algengt er að Fiskurinn fórni
sér fyrir ástvin sinn, þegar
hann á annað borð verður
ástfanginn. Það þýðir að hann
á til að hugsa ekki um eigin
þarfir og gefa allt sem hann
á til ástvinarins. Svo langt
gengur hann ekki alltaf og
því má einnig segja að hann
sé oft á tíðum næmur og til-
litssamur elskhugi.
Samúö
Fiskurinn vorkennir fólki sem
á bágt. Hann lendir því oft í
hlutverki sálusorgara og verð-
ur fyrir því að vinir hans trúa
honum fyrir öllum möguleg-
um og ómögulegum málum.
Fiskurinn hænist oft að fólki
sem er á einhvem hátt dular-
fullt, sem hefur áhuga á and-
Iegum og sálrænum málum,
er listrænt og menningarlega
sinnað. í ástum er hann oft
rómantískur. Það sem hins
vegar skiptir máli þegar Fisk-
urinn er annars vegar er að
tákn hans eru tveir Fiskar
sem synda hvor í sína áttina.
Annar Fiskurinn er næmur
og hlustar á þarfir ástvinar
síns. Hinn á til að slá sporðin-
um snögglega í vatnið og
synda í burt. Fiskurinn er því
oft óútreiknanlegur í ást.
Mörg merki
Þessi umfjöllun um merkin í
ást miðast við hið dæmígerða
merki. Staða Sólarinnar, eða
grunneðli okkar, • hefur tölu-
.vert að segja í sambandi við
• ástina. Staða Tunglsins segir
einnfg töluvert, eða það hverj-
ar daglegar tilfinningaþarfir
okkar eru. Venus og Mars
hafa síðan töluvert með róm-
antík og kyniíf að gera. Það
þarf því að tengja saman, ef
við viljum fá heilsteypta mynd
af ákveðnum einstaklingum.
GARPUR
GRETTIR
7-18
BRENDA STARR
LJÓSKA
SMÁFÓLK
YES, MA'AM, IT U)A5
VERV UIIMPH' THI5 M0RNIN6..
Já, kennari, það var mjög hvasst í
morgun.
WHEN U/E U/ERE UIALKIN6 (6UT U)E PIPN'T LET IT \
TO 5CH00L/ LEAVE5, ANP V 5T0P US, MA'AMÍ )
PAPER ANP BRANCHE5 U)ERE , <
3LOUOING ALL OVEK... L
^ /júíf n\ i/x J ^
Bf Ji ■
Þegar við vorum að labba í skólann
voru lauf, pappír og greinar að
Ijúka um allt...
En við létum það ekki aftra okkur,
kennari!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Heldur uppburðarlitill blindur
og þægilegt útspil makkers
svæfðu austur í vörnina gegn
spaðageimi suðurs.
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 1084
V 842
♦ 964
♦ DG93
Austur
♦ K63
V ÁK95
♦ 1075
+ K84
Suður
♦ ÁDG95
V 106
♦ ÁK85
♦ Á6
Vestur Norður Austur Suður
— Pass 1 grand Dobl
Pass 2 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Útspii: hjartadrottning.
Austur kallaði og vestur spil-
aði áfram hjarta. Ef við setjum
okkur í spor austurs virðist fátt
sjálfsagðara en spila þriðja
hjartanu. Sem hann gerði.
Suður trompaði og spilaði
þrisvar tígli! Það hafði ótrúleg
áhrif, því hvetju sem vestur spil-
ar, kemst blindur inn. Sagnhafi
getur svo dundað sér við að svíða
svörtu kóngana af austri.
Sjái austur þessa stöðu fyrir
getur hann varist með því að
skipta yfir í tígul í þriðja slag
og halda þannig opinni útgöngu-
leið á hjarta.
Vestur
♦ 72
▼ DG73
♦ DG2
♦ 10752
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Marseille í
Frakklandi í sumar kom þessi
staða upp í skák júgóslavneska
stórmeistarans Todorcevic og
Mikhails Tal, fyrrum heimsmeist-
ara, sem hafði svart og átti leik.
18. - Rdbí!, 19. cxb4 - Rxb4,
20. Dc3 - Dxd3, (Lakara var
hins vegar 20. - Rxd3, 21. Rfxe5!)
21. Ra3 - e4, 22. Dxd3 - Rxd3,
23. Hxe4 - Rxcl, 24. Hxcl -
Bxb2, 25. Hxc7 - Hdl+, 26.
Hel - Hxel+, 27. Rxel - Bxa3
og svartur hefur léttunnið enda-
tafl. Úrslit á mótinu urðu þau að
stórmeistararnir Kozul og Tod-
orcevic, Júgóslavíu og Dorfman,
Sovétríkjunum, sigruðu með 5 v.
af 8 mögulegum, en Tal og
Kanadamaðurinn Spraggett komu
næstir með 414 v.
Þetta var fyrsta mót Tal eftir
langa sjúkrahúslegu í vor.