Morgunblaðið - 08.09.1989, Side 40

Morgunblaðið - 08.09.1989, Side 40
SJÓVÁOIdÁLMENNAR FELAG FOLKSINS EINKAREIKNINGUR Þ/NN í LANDSBANKANUM _________________MA FOSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Fimist kaup- verðið vera jnjög hátt - segirbanka- stjóri Samvinnu- banka Islands „EF Landsbankinn greiðir 700-1000 milljónir króna fyrir 52% hlut í Samvinnubankanum finnst mér það mjög hátt verð,“ sagði Geir Magnússon, bankastjóri Sam- vinnubankans, í samtali við Morg- unblaðið. Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir því við Landsbankann að hann láti í té gögn um kaupin. - Geir Magnússon sagði að útibú ' Í5amvinnubankans væru 19 talsins, þar af 3 í Reykjavík, og um síðastlið- in áramót hefðu starfsmenn Sam- vinnubankans verið 244 talsins í 224 stöðugildum’. „Samvinnubankinn var stofnaður með sérstökum lögum á sínum tíma þar sem honum var gert að þjóna samvinnufélögum sérstak- lega. Þau eru með um 17% af útlán- um bankans og hafa milligöngu um 10% til viðbótar, sem fara til land- búnaðar," sagði Geir. m* Ríkisendurskoðun hefur óskað eft- ir því við Landsbankann að hann láti í té gögn um kaup bankans á Sam- vinnubankanum. Því neita banka- stjórar Landsbankans, nema banka- ráð hans samþykki kaupin á fundi sínum á sunnudag. Ekki náðist í Halldór V. Sigurðs- son ríkisendurskoðanda í gærkvöldi, en í fréttum útvarps var haft eftir honum að Ríkisendurskoðun hefði haft frumkvæði að endurskoðun á kaupunum, enda sé henni skylt að hafa eftirlit með Landsbankanum. Útsýnish úsið glerjað Morgunblaöið/Julius Að undanförnu hefúr verið unnið við að glerja útsýnishúsið á hitaveitutönkunum í Oskjuhlíð og er verkið rúmlega hálfnað að sögn Jóhannesar Zoega verkeftiissljóra. Grindin í hvolfþakinu er hol að innan og verður hún fyllt með vatni ýmist heitu eða köldu allt eftir veðri. Efst má sjá útloftun úr loftræstikerfínu en á miðju þakinu verður flugvallarvitinn, sem er á gömlu tönkunum, settur upp strax í haust. Þá er til öryggis gert ráð fyrir opnanlegum fögum í efstu gluggaröð til að hleypa út reyk ef svo slysalega vill til að eldur komi upp. ^Svona munu hinar nýju Boeing 757-200 þotur, sem afhentar verða í mars á næsta ári, líta út í einkennislitum Flugleiða. Flugleiðir: Ákveðið að fljúga til Baltimore á ný STJÓRN Flugleiða samþykkti í gær að helja flug til Baltimore í Bandaríkjunum á ný og verður flogið fjórum sinnum í viku. Er gert ráð fyrir að fyrsta ferðin verði í apríl á næsta ári. Flugi til Baltimore var hætt tímabundið þegar rekstur á Norður- Atlantshafsleiðum Flugleiða var dreginn saman. Tvær Boeing 757-200 vélar, aðsmálum opni möguleikann á því sem Flugleiðir hafa fest kaup á til flugs á Norður-Atlantshafsleið- unum koma til landsins í byijun næsta árs. Telur fyrirtækið að ný tæki og breyttar áherslur í mark- að reka flug til Baltimore með hagnaði. Áfram verður flogið til núverandi áfangastaða Flugleiða í Bandaríkjunum, Orlando og New York. Deilur á vinnumarkaði harðna: Mj ólkurfræðingar liafa boðað yfirvinnubann Samninganeftidir ÍS AL fimda i dag MJÓLKURFRÆÐINGAR boðuðu í gær yfirvinnubann, sem taka á gildi á fóstudag eftir viku. Samningafundur um deilu þeirra og viðsemjenda verður væntanlega boðaður í næstu viku. Þá hefúr fúndur verið ákveð- inn með samninganefnd tíu verkalýðsfélaga starfsmanna Islenska álfé- lagsins og forsvarsmanna þess og Vinnuveitendasambands íslands í dag klukkan 10. Á fundum starfsmanna í fyrradag var ákveðið að afla verkfallsheimilda hjá viðkomandi verkalýðsfélögum. Þá hafa rafvirkjar og rafeindavirkjar í ríkisþjónustu, sem eru um 200, einnig óskað verk- fallsheimildar. Innan Félags mjólkurfræðinga eru um 100 manns. Félagið hefur þegar aflað sér heimildar til verkfallsboð- unar, en Kristján Larsen, formaður félagsins, sagði að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um að boða til þess. Kristján sagði að viðsemjendur mjólkurfræðinga, VSÍ og Vinnu- málasamband samvinnufélaganna, hefðu ekki fengist til að ræða kröfur um ýmis sérmál og því ekkert miðað í samkomulagsátt. Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðar- maður starfsmanna ÍSAL, sagði að ekkert hefði ennþágengið í viðræð- um starfsmanna ISAL, þar sem ágreiningur væri um viðmiðanir. Þá hefðu starfsmenn viljað ræða samn- ing til lengri tíma, en áhugi á því hefði ekki reynst fyrir hendi hjá við- semjendum. Nú væri verið að ræða samning til 5-6 mánaða. Hann sagð- ist eiga von á leitað yrði allra leiða um helgina til að leysa málið, en hann væri hóflega bjartsýnn. Magnús Geirsson, formaður Raf- iðnaðarsambands íslands, sagði að trúnaðarráð félaga innan sambands- ins, Félags rafeindavirkja og Félags íslenskra rafvirkja, funduðu væntan- lega á mánudag og tækju þar af- stöðu til beiðnar félagsmanna, sem starfa hjá ÍSAL og ríkisstofnunum, um verkfallsheimild. „Vi_ð vonum að á samningafundi með ÍSAL í dag náist samkomulag, svo til verkfalls- boðunar þurfi ekki að koma. Hins vegar höfum við fundað þrisvar með samninganefnd ríkisins, en nú hefur samninganefndin óskað eftir hléi á viðræðunum, án þess að nokkur árangur hafi náðst.“ Auk samninga við ÍSAL og ríkið eru samningar rafvirkja og rafeinda- virkja við Reykjavíkurborg lausir. „Viðræður eru í gangi og ekki talin ástæða til að þrýsta þar á nú,“ sagði Magnús. Sama sagði hann gilda um samninga rafvirkja og rafeindavirkja við Rafmagnsveitur ríkisins, á al- mennum verkstæðum, hjá rafverk- tökum og rafeindavirkjaverktökum. Sáttafundur var í gær um kjara- deilu flugvirkja hjá Landhelgisgæsl- unni og ríkisvaldsins. Flugvirkjar lögðu fram gagntilboð, en samninga- nefnd ríkisins tók sér frest fram yfir helgi til að taka afstöðu til þess. Fundur verður á mánudag klukkan 9. Hj ólastólaferðin: Ferðalok á Lækjartorgi „VIÐ ætlum að ljúka ferðinni á Lækjartorgi í dag klukkan 15-15.30. Þar tekur meðal annarra á móti okkur heiðursgestur Sjálfs- bjargar, Joachim Deckarm, sem varð heimsmeistari í handbolta með Vestur-Þjóðverjum árið 1978,“ sagði Jóhann Pétur Sveins- son, formaður Sjálfsbjargar. Fjórir félagar í Sjálfsbjörg hafa frá því á sunnudag ferðast í hjólastól- um frá Akureyri til Reykjavíkur. Jóhann sagði að fjársöfnun Sjálfs- bjargar gengi vonum framar. I dag er aðaldagur í söfnunarátakinu. Flutt verður dagskrá á Rás 2, frá klukkan 8.30-18, og í ríkissjónvarpinu verður sýndur þáttur að loknum fréttum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.