Morgunblaðið - 07.11.1989, Page 47

Morgunblaðið - 07.11.1989, Page 47
i MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGÚR' 7.‘ nÓvEMBER lóéð 47 *te« Akranes: Almenn flársöfiiun vegna dvalarheimilisins Höfða Akranesi. Fjáröflunar- og framkvæmdanefhd vegna byggingar 2. áfanga dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefur ákveðið að leita til íbúa á Akranesi og í hreppunum sunnan Skarðsheiðar um frjáis framlög til HÖfða. Bygging þessa áfanga hefur staðið yfir í tæp tvo ár og er stefnt að því að efri hæð hússins verði tilbúin til notkunar í mars- mánuði 1990. Fjármagn er tryggt fyrir þeirri framkvæmd. Þar fá 26 íbúar húsnæði. Aðrir hlutar hússins verða að bíða um sinn og er mjög brýnt að ljúka við bygg- inguna sem fyrst því þar er um að ræða eldhús, borðstofu, félags- rými auk margs annars fyrir allt dvalarheimilið. Gerð hefur verið áætlun um að ljúka innréttingu neðri hæðarinn- ar fyrir lok næsta árs, án kaupa á lausum búnaði, og kostnaður við það er talinn geta verið um 50 milljónir króna. Stærstu tekju- stofnar byggingarinnar í ár eru lán frá Byggðasjóði að upphæð kr. 27,7 milljónir og framlag eig- enda 19,4 milljónir. Lánveitingum Byggðasjóðs lýkur um næstu ára- mót. Þótt eigendur leggi fram svipaða upphæð eða hærri 1990 en á þessu ári vantar samt vem- legt fjármagn svo hægt verði að standa við þessa áætlun. Söfnunarvikan hefur verið vel undirbúin og væntir fjáröflunar- nefndin þess að hægt verði að safna verulegu fé ef íbúar Akra- ness og nærsveita eru samtaka. Að sögn Gunnlaugs Haraldssonar, formanns nefndarinnar, telja þeir að ef hægt sé að safna 12 til 15 milljónum króna gætu fram- kvæmdir haldið sleitulaust áfram. Að öðrum kosti verði að fresta framkvæmdum um óákveðinn tíma og yrði það öllum mikil von- brigði. Gunnlaugur Haraldsson segir að Höfða hafi borist margar góð- ar gjafir síðan byggingarfram- kvæmdir hófust eða um 9,5 millj- ónir króna frá um 40 aðilum. Gjaf- irnar hafi létt mjög byggingar- starfið og sé nefndin afar þakklát öllum þeim, sem veitt hafa henni stuðning. Á söfnunarsvæðinu eru um 1.700 heimili og er þess vænst að hvert heimili geti látið eitthvað af hendi rakna. Fjársöfnunin verð- ur þannig í framkvæmd. Fulltrúar í umboði nefndarinnar munu heimsækja öll heimili á svæðinu en þeim hefur nú þegar verið sent gjafabréf. Þeir sem vilja taka þátt í söfnuninni geta merkt á gjafa- bréfið hvort þeir vilja gefa strax tiltekna upphæð eða skriflegt lof- orð um greiðslu síðar á þessu ári eða næsta. Þá er einnig sá mögu- leiki að fólk vilji notfæra sér hvort tveggja. - JG Hin nýja bygging dvalarheimilisins Höfða. Mo.gunbiaðið/Jón Gunniaugsson Frjálsu verði á írystri síld hafiiað: Seljendurnir vilja fijálst fiskverð þegar þeim hentar - segir Bjami Lúðvíksson, ftilltr. kaupenda „SELJENDURNIR virðast sjálfir vilja hafa fiskverð frjálst þegar þeim lientar. Ef þeir vilja almennt frjálsa verðlagningu á fiski hefðu þeir ekki hafnað frjálsu verði á síld til frystingar,“ segir Bjarni Lúðvíksson, framkvæmdastjóri hjá SH og einn af fulltrúum kaup- enda í verðlagsráði sjávarútvegs- Verð á síld til frystingar gilti til 31. október og vilja kaupendur fijálst verð á henni frá og með 1. nóvem- ber síðastliðnum, að sögn Bjarna Lúðvíkssonar. Seljendur hafa hins vegar hafnað því. Deilunum var því vísað til yfirnefndar verðlagsráðs. Fyrsti fundur nefndarinnar um þetta mál var haldinn síðastliðinn fimmtu- dag. Nefndin fjallaði aftur um málið Pétur Einarsson flugmálastjóri „Iendir“ í hans situr Viktor Viktorsson flugkennari. Morgunblaðið/PPJ flugherminum. Við hlið fer úi-skeiðis. Að „flugi“ loknu fær flugmaðurinn teikningu af ferii og fiughraða „flugvélarinnar" og sér þá hvar hann fór af leið eða gerði mistök. Fyrst um sinn verður nýi flug- þjálfinn í húsnæði flugskólans í gamla flugturninum á Reykjavíkur- flugvelli, en ráðgert er að flytja hann í nýbyggingu slökkviliðs flug- vallarins þegar líður á veturinn. á mánudag og næsti fundur hennar verður haldinn næstkomandi fimmtudag. Guðjón A. Kristjánsson, einn af fuiltníum seljenda í verðlagsráði sjávarútyegsins, sagði að sjómenn hefðu almennt viljað fijálsa verð- lagningu á fiski en kaupendur vildu einungis fijáist fiskverð þegar þeim hentaði. Guðjón sagði að kaupendur yrðu settir í einokunaraðstöðu ef verð á frystri síld yrði gefið frjálst núna, þar sem seljendur þefðu ein- ungis þá kosti að selja síldina til frystingar og bræðslu á meðan ekki væri búið að semja við Sovétmenn um saltsíldarkaup þeiiTa. Sama verð var á síld til frystingar og söltunar, eða 10,70 krónur fyrir kílóið af 33ja sentímetra síld og lengri, 9 krónur fyrir 30-33ja sentí- metra síld og 5 krónur fyrir 25-30 sentímetra síid. Verð á síld tii bræðslu er hins vegar fijálst. Bjarni Lúðvíksson sagði að síldin í milliflokknum Refði einfaldlega ver- ið verðlögð of hátt miðað við það verð sem markaðirnir vildu gefa fyr- ir hana. „Verð á, miliisíld var það hátt að ekki var hægt að reyna að vinna nýja markaði í Frakklandi, Þýskalandi og Tékkóslóvakíu en þar virðast vera okkar einu möguleikar á að auka söluna. Þar er hins vegar hörð verðsamkeppni um þessar niundir," sagði Bjarni. Hann sagði að það ætti að vera sameiginlegt hagsmunamál seljenda og kaupenda að koma sem mestu af síldinni í vinnslu á meðan hún skilaði hærra verði en bræðslan. „Verðið, sem við teijum hæfilegt að greiða fyrir millisíldina, er rúm- lega helmingi hærra en verð á síld til bræðslu. Við emm hins vegar ekki að leggja til verðlækkun á stærstu síldinni, sem hentar til fryst- ingar á Japansmarkað.“ . ,. Moi-gnnblartið/Áki Guflmundsson Fra byggmgu nyja pósthússins á Bakkafirði. Bakkafiörður: Smíði hafin Bakkafirdi. NÚ ER hafin smíði á nýju póst- húsi hér á Bakkafirði. Samkvæmt samtali við Rósu Magnúsdóttur, stöðvarstjóra Pósts og síma, mun það gjörbreyta allri aðstöðu á pósthúsinu þar sem það hefur eingöngu verið í einu herbergi á einkaheimiii hjá fráfarandi stöðv- arstjóra. Nýja pósthúsið verður 91,2 fm að á pósthúsi grunnfleti, timburhús, klætt að utan með steinplötum. Það á að steypa upp grunn og ganga frá góifplötu í haust og er yfirsmiður við það verk Jóliannes Jónasson frá Brúarlandi í Þistilfirði. Gert er ráð fyrir að nýja pósthús Bakkfirðinga verði tilbúið til notkun- ar eftir ár. - Á.H.G. Félag íslenskra rithöfiinda: Skattlagningu ís- lenskunnar mótmælt FÉLAG íslenskra rithöfunda framhaldsaðalfiind sinn 26. október sl. Á fundinum gengu þrír rithöfundar í félagið og nú eru félags- menn 80 alls. Núverandi stjórn Félags íslenskra rithöfiinda skipí^ Sveinn Sæmundsson formaður, Páll Líndal varaformaður, Snjólaug Bragadóttir ritari, Indriði Indriðason gjaldkeri, meðstjórnendur eru Indriði G. Þorsteinsson og Vilhjálmur Hjálmarsson. í vara- stjórn eru Jón Björnsson og Bjarni Th. Rögnvaldsson. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt einróma á framhaldsaðal- fundi Félags íslenskra rithöfunda 26. október sl. „Framhaldsaðalfundur Félags- íslenskra rithöfunda haldinn 26. október 1989 varar við öllum hug- myndum um skattlagningu, sem leggur stein í götu íslenskunnar, ritaðrar og talaðrar, hvort heldur er á bókum, í tímaritum og blöðum, í útvarpi og sjónvarpi. Öllum má vera ljóst að leggist virðisaukaskattur á bókaútgáfu, og eins og nú hefír frést einnig á aðra fjölmiðla, er vá fyrir dyrum. Um þessar mundir hellist yfir þjóðina sjónvarpsefni um gervi- hnetti, þar sem mál stjórþjóða eru alls ráðandi. Vitað er að fljótlega aukast slíkar sendingar og allar horfur á að tæki til móttöku þeirra verði almenningseign á næstunni. Vegna þessa er meiri þörf en nokkru sinni að íslenskir ijölmiðlar og útgáfufyrirtæki geti sinnt starf- semi sinni af fullum krafti. Að skáld, ritliöfundar og aðrir þeir sem tjá sig á íslensku verði ekki settir skör lægra en útlendingar sem hingað beina sendingum og sem engin leið er fyrir skattglöð hérlend stjórnvöld að skattleggja. Fyrir því mótmælir Félag íslenskra rithöfunda því að virðis- aukaskattur verði lagður á íslenskt mál, skrifað og talað, og skorar á stjórnvöld að falla frá hugmyndum um slíka skattlagningu.“ Tónleikar í Olafs- vík og Stykkishólmi VIÐAR Gunnarsson bassasöngv- ari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari halda tónleika í Olafsvík þriðjudaginn 7. nóvem- ber og aðra tónleika í Stykkis- hólmi miðvikudaginn 8. nóvem- ber. Fyrri tónleikarnir verða í Félagsheimilinu á Klifí og hefjast kl. 20.30 en þeir seinni verða í Hótel Stykkishólmi og liefjast einnig kl. 20.30. Á efnisskránni verða íslensk ein- söngslög eftir Árna Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns, Eyþór Stefáns- son, Karl O. Runólfsson og aríur úr óperum eftir W.A. Mozart, G. Verdi og G. Rossini. Viðar Gunnarsson stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík frá 1978—81 þar sem Garðar Cortes var aðalkennari hans. Að loknu 8. stigs-prófi frá skólanum var Viðar við framhalds- nám hjá dr. Foike og Gunvor Sall- strom í Stokkhólmi. í pæsta mán- uði fer Viðar til Vínarborgar til þess að syngja við Kammeróperuna Viðar Gunnarsson bassasöngvari Selma Guðmundsdóttir pianó- leikari og mun hann syngja hlutverk Sar- astros í Töfraflautunni eftir W.A. Mozart. Selma Guðmundsdóttir lauk ein- leikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem aðalkennari hennar var Árni Kristjánsson. Hún stundaði framhaldsnám hjá Hans Leygraf, fyrst við Mozarteum í Salzburg, síðan við Staatliche- Hochschule fiir Musik und Theater í Hannover.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.