Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAfflff VIÐSKI|RTl/aTVlNWILÍiP7-'?PMTtJpa.G^{{H8- JANÚML 199(1 ; ■ B ff3 s Fiskeldi Súrefhisbúnaður hélt lífí í eldislaxi í 7 tíma Munum setja þennan búnað sem skilyrði í fiskeldistryggingum, segir Össur Skarp- héðinsson Á SAMA tíma og fiskeldisstöðin ísþór í Þorlákshöfn var að verða fyr- ir tugmilljóna króna tjóni í óveðrinu í síðustu viku, varð tiltölulega frumstæður súrefiiisbúnaður ásamt ósérhlífni starfsmanna til að koma í veg fyrir tugmilljóna tjón í Fiskeldisstöð Grindavíkur að Brunnum. I stöðinni voru alls um 60 tonn af eldisfiski að verðmæti um 30 milljón- ir króna. Össur Skarphéðinsson, aðstoðarforstjóri Reykvískar endur- tryggingar, sem tryggði fiskinn, segir að eftir þá reynslu sem fékkst af þessum súrefnisbúnaði við þessar aðstæður muni Reykvísk endur- trygging eftirleiðis gera hann að algjöru skilyrði í skilmálum fiskeld- istrygginga félagsins. ' Reykvísk gerði súrefnisbúnað þennan að skilyrði fyrir því að fisk- eldisstöðin í Grindavík fengi fiskeld- istryggingu hjá félaginu og varð búnaðinum komið upp 2. janúar. Aðeins um viku síðar skall óveðrið á með þeim afleiðingum að vatn komst í rafmagnstöflu stöðvarinnar. Við það stöðvuðust dælurnar sem dæla fersku vatni inn í stöðina, og ' gripu þá starfsmennirnir til súrefnis- búnaðarins, sem Össur segir að sé næsta frumstæður og tiltölulega lítil framkvæmd að koma upp. Jafnframt var hafist handa um að reyna þurrka rafmagnstöfluna en fljótlega þótti sýnt að það tæki lengri tíma en svo að súrefnið dygði. Var því maður sendur til Reykjavíkur til að sækja aukabirgðir. Með þessu móti tókst að halda laxinum lifandi í sjö klukku- stundir í stöðinni án þess að einn einasti fiskur dræpist. „Eg hafði fyrirfram gert mér í hugarlund að halda mætti fiski með þessum hætti lifandi í 3 stundarfjórðunga til klukkustund, en 7 klukkustundir er meira en nokkurn óraði fyrir,“ sagði Össur. „Auðvitað köm hér einnig til útsjónarsemi og ósérhlífni starfs- manna í stöðinni, en engu að síður er reynslan af þessum búnaði slík að hér eftir munum við gera kröfu um hann í hverri einustu stöð sem við tökum að okkur að tryggja." Súrefnisbúnaðurinn hefði þó kom- ið að litlum notum í ísþóri í Þorláks- höfn, þar sem 15-20 metra háar öld- ur brutu niður sjóvamargarð, gerðan af náttúrunnar hendi, auk þess að þeyta burtu grettistökum sem komið hafði verið fyrir til viðbótar. í stöð- inni voru alls um 160 tonn af eldis- laxi sem drapst í öllum látunum, þegar sjórinn gekk inn í stöðina. Óssur segir að þrátt fyrir það hafi verið þarna margt af mjög fallegum fiski, sem-ekki var þó talinn hæfur til manneldis, þar sem honum hafði verjð gefin lyf um mánuði áður. Áætlað verðmæti þessa lax er um 50-60 milljónir króna. Stöðin var tryggð hjá Reykvískri en með um 20% sjálfsábyrgð. Liðlega 40 milljón- ir munu því lenda á tryggingafélag- inu, en Óssur segir að vegna áhæt- tunnar í fiskeldistryggingum sé fé- lagið endurtryggt bak og fyrir — og í þessu tilfelli einkum hjá þýska tryggingafélaginu Munich Re. Þjónusta Reykvísk tilbúin með greiðsluvátryggingu Ætluð innflytjendum sem ætla að fá greiðslufrest á virðisaukaskatti REYKVISK endurtrygging er að setja á markað sérstaka greiðsluvá- tryggingu fyrir innflytjendur til að mæta skilyrðum þeim, sem fjár- málaráðuneytið hefúr sett fyrir greiðslufresti á virðisaukaskatti vegna innflutnings. Til að fá greiðslufrest þarf innflytjandinn að leggja fram annað hvort bankaábyrgð eða ábyrgð frá viðurkenndu tryggingarfé- lagi. Gísli Lárusson, forstjóri Reyk- vískrar endurtryggingar, segir að félagið sé nú búið að ganga frá greiðsluvátryggingu í samræmi við nýju virðisaukalögin. Innflytjendur getið því keypt slíka tryggingu og lagt hana fram sé ábyrgð fyrir greiðslu virðisaukaskattsins gagn- vart ráðuneytinu. Tryggingin auð- veldi þannig innflutningsaðilum að notfæra sér greiðslufrestinn. „Við getum boðið þessa tryggingu þegar í stað,“ segir Gísli. „Félagið hefur gengið frá mjög traustum endurtryggingarsamningum erlend- is og útbúið mjög einföld vátrygg- ingarskírteini. Innflutningsaðili þarf einungis að koma og semja við okk- ur um trygginguna en við göngum úr skugga um að á bak við trygging- una liggi nægileg veð, svo að mála- lengingar í kringum þessa trygging- ar eiga að verða í lágmarki.“ Gísli segir að af hálfu Reykvískrar endurtryggingar sé fyrst og fremst litið á greiðsluvátrygginguna sem aukna þjónustu. „Félagið hefur jafn- an kappkostað að vera í farabroddi með nýjungar af þessum tagi innan tryggingarstarfseminnar hér á landi. Þannig fékk Reykvísk fyrst allra tryggingarfélaga heimild Trygg- ingareftirlitsins til að selja greiðslu- vátryggingar (kredit-tryggingar) í ágúst 1988.“ Gísli segir að þótt Reykvísk sé ekki stór tryggingarfélag felist styrkur þess ekki síst í því að geta verið mjög skjótt að bregðast við breytingum og_ nýjum kröfum á markaðinum. „Ástæðan fyrir því að við erum svo fljótir til með þessa tryggingu má þó einnig rekja til þess að árið 1982 voru uppi áform af hálfu stjórnvalda að veita innflytj- endum tollkrít gegn ábyrgðum. Þá undirbjuggum við greiðsluvátrygg- ingu af þessum toga til fullnustu og höfðum þá þegar allan pakkann til- búinn. Tollkrítin sá hins vegar ekki dagsins ljós árið 1982 en öll sú undir- búningsvinna sem þá fór fram kem- ur okkur hins vegar til góða núna.“ Fundur MGALLUP á íslandi boðar til fundar nk. þriðjudag 23. janúar kl. 15 á Holiday Inn í Hvammi og verður fjallað um fjölmiðla, fjöl- miðlakannanir, markaðsmál og vin- sældakannanir. Gestur fundarins er Malcolm Mather einn af fram- kvæmdastjórum og eigendum Gall- up London. Mun hann aðallega fyalla um sjónvarp og útvarp og greina frá nýjustu aðferðum og nið- urstöðum. Auk þess mun hann gera grein fyrir gerð breska vinsældar- listans, en þar nýtir Gallup áhuga- verða síma- og tölævutækni. Verður erindið 45 mínútna langt og að því loknu verður kaffi, fyrirpsurnir og umræður. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. 30% - 40% AFSLÁTTUR af öllum vörum Nýtt kortatímabil Rabgreibslur á stœrri innkaup. P.S. Lloyds skór i öllum stærðum Austurstræti 14, sími 12345 Opið 9-18 Laugardag 10-14 %0 i É. í. •f G3 @ 1 % C ® ©' © Hmarks Vísitalan Hefur Hækkað Um 2% Frá Áramótum HMARK IIIIJTABR! l AMARKAljURINN III Aldrei hafa jafnmargir íslendingar keypt hluta- bréf og í desember mánuöi s.l. Margir spáöu því aö mikiö yrði um sölu hlutabréfa fljótlega eftir áramót og gengi bréfa myndi því lækka vegna mikils framboðs. Andstætt þessum spám lækkuðu engin hluta- bréf á skrá hjá HMARKI eftir áramót. Þvert á móti hafa hlutabréf Eimskipa, Hampiðjunnar, Sjóvá - Almennra, Skagstrendings og Olíufél- agsins þegar tekiö að hækka og hefur hækkun- in veriö á bilinu 2-4%. HMARKSVÍSITALAN 18.01.1990 419STIG BREYTING FRÁ ÁRAM.: +2% GIINGI HLUTABRLfA 18. JANUAR 1990 KAUPGENGI SÖLUGENGI JÖFNUN 1989 ARÐUR A989 SÖLUGENGI BREYTING F. ÁRAM. INNRA VIRÐI Eimskipafélag islands hf 3,92 4,15 25.00% 10.00% 132.00% +4% Flugleiöir hf 1,53 1,62 100.00% 10.00% 69.00% +0% BE Hampiðjan hf 1,64 1,74 0.00% 8.00% 95.00% +2% Hlutabréfasjóöurinn hf 1,59 1,68 20.00% 10.00% 143.00% +0% © Iðnaðarbankinn hf 1,70 1,80 19,94% 10.00% 111.00% +0% Grandi hf 1,48 1,57 0.00% 0.00% 118.00% +0% Sjóvá - Almennar hf 3,92 4,15 230.00% +4% Skagstrendingur hf 3,02 3,20 20.00% 10.00% 70.00% +3% ♦ Tollvörugeymslan hf 1,04 1,14 20.00% 10.00% 97.00% +0% Útvegsbankinn hf 1,47 1,55 0.00% 3,50% 111.00% +0% Verslunarbankinn hf 1,45 1,53 19,93% 10.00% 115.00% +0% Olíufélagið hf 3,10 3,28 20.00% 10.00% 64.00% +3% Kaupgengi er margfeldisstuöull á nafnverö, aö lokinni ákvöröun um útgáfu jöfnunar- hlutabréfa. Áskilinn er réttur til aö takmarka þá fjárhæö sem keypt er fyrir. Innra viröi i árs- lok 1988. Breyting frá áramótum er leiörétt fyrir útgáfu jöfnunarbréfa, en ekki greiöslu arös. Hlutabréfamarkaöurinn hf hefur afgreiösluraö Skólavörðustíg 12 og hjá VÍB í Ármúla 7. Verið velkomin. VÍB VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF. Ármúla 7, Reykjavik, Sími: 68 1530. HMARK-afgreiösla, Skólavöröustig 12, Reykjavik, Sími: 2 16 77. & © ŒIB & © ÍILil * © ) % 1 ®) Bl Ý i i °% © |

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.