Morgunblaðið - 18.01.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990
B 5
Atvinnulíf
HVAÐ EB NETIÐ ?
NETIÐ er fyrir konur í öllum störfum, sem
hafa áhuga á því að styrkja vitund kvenna
og þátttöku þeirra í atvinnulífi. Kveikjan
að stofnun Netsins var ráðstefnan Konur
við stjómvölinn, sem var haldin í lok sér-
staks kvennanámskeiðs Verkstjómarfræðsl-
unnar hjá Iðntæknistofnun árið 1986. Með-
al þess sem bent var á í niðurstöðum ráð-
stefnunnar var að konur skorti fyrirmyndir
á sviði stjórnunar og að konur í stjórnun
þyrftu að koma betur fram í dagsljósið.
Einnig, að sá nýi stjórnunarstíll sem hefði
mtt sér til rúms hentaði og hæfði vel kon-
um, þar sem þær byggju yfir svokölluðum
„mjúkum“ eiginleikum, sem veita forskot í
— því sambandi. Og síðast en ekki síst var
bent á, að konur stæðu nú meira og minna
utan þess óformlega samskiptanets, sem
karlar nota sér til að fleyta sér fram á við
í viðskiptalífinu og öðrum sviðum. Það varð
úr að ákveðið var að stofna Netið sem átti
að verða lifandi, óformlegt samskiptatæki
og var fyrsti stofnfundur að hausti 1986.
Frá byijun gátu konurnar valið í hvaða hóp
þær vildu fara, stjórnunarhóp, verslunar-
og viðskiptahóp eða almennan hóp. Um 160
konur eru skráðar i Netið, en margar þeirra
hafa-ekki verið virkar lengi. Ákveðið var
að hafa engan píramída í samskiptunum,
en einn tengill yrði fyrir hvern hóp, sem sæi
um að senda út fréttabréf, panta sali fyrir
fundi og sjá um það nauðsynlegasta. Síðan
var Félagaþjónustan fengin til að innheimta
félagsgjöld og halda utan um félagatal.
Fastir fundir eru einu sinni í mánuði og eru
oft fengnir fyrirlesarar til að ræða ýmis
mál. í viðtölunum hér á eftir greina tvær
konur, önnur fyrrverandi tengill en hinn
núverandi, frá því hvernig Netið starfar og
hvemig það hefur gefist.
Markmiðið er að styrkja
oghvelja konur
Rætt við Ingibjörgu Bjarnardóttur, tengil stjórnunarhóps
INGIBJÖRG Bjarnardóttir, sem rekur Lögfræðiþjónustuna ásamt
fimm öðrum lögfræðingum, er tengill stjórnunarhóps Netsins. Eg
hitti hana að máli að loknum fundi á laugardagsmorgni, þar sem
Ingólfiir Sveinsson hafði nýlokið erindi um streitu. Eg dró Ingi-
björgu afsíðis meðan konurnar héldu áfram að spjalla sín á milli.
„Við hittumst alltaf reglulega og erum í raun eini hópurinn sem
starfað hefur óslitið frá stofiiun Netsins. Það má segja að það
hafi tekið þessi þrjú ár að koma samskiptanetinu í fast horf,“ seg-
ir hún. „Þróunin hefúr sýnt að það hentar okkur best að starfa
formlega yfir vetrarmánuðina. A haustin hittumst við á vinnu-
fúndi þar sem allar viðstaddar leggja fram óskir um verkefiii
hópsins á komandi vetri. Við í sljórnunarhópnum reynum að út-
vega einn fyrirlesara á hvern fund og auk þess höfúm við reynt
að halda námskeið einu sinni á ári. Þetta hefúr mælst mjög vel
fyrir hjá konunum.“
Talið berst að því hvernig þess-
ar konur geti hjálpað hver annarri
frá degi til dags og segir Ingibjörg
að til að kynnast sem flestum
geti konurnar farið á milli hópa
eða verið í tveimur hópum alveg
eftir því hversu mikinn tíma hver
kona hefur. „En það skemmtilega
við þátttökuna í Netinu og að hitta
konurnar á fundum er að félags-
konurnar eru úr öllum stéttum og
á öllum aldri. Sumar eru með sér-
menntun en aðrar hafa langa
stafsreynslu í ýmsum störfum.
Þessi blanda af reynslu, þekkingu
og aldursmun gerir það að verkum
að við búum yfir miklum sjóði af
þekkingu, visku og víðsýni. Við
ræðum um allt mögulegt, t.d.
vandamál í rekstri fyrirtækja,
launamál, hvernig hægt sé að
hjálpa varðandi ákveðin vandamál
og felst það bæði í málefnalegum
umræðum og ráðleggingum. Einn-
ig eru rædd vandamál á vinnustað
og meðal þessara kvenna þekkist
ekki togstreita eða samkeppni,
heldur er þetta hópur, sem hefur
það að markmiði að styrkja og
hvetja konur og auka hlut þeirra
í atvinnulílfinu með því að hjálpa
og miðla hver annarri.“
Samskiptanet karla og
kvenna eru ekki eins
Mér leikur forvitni á að vita
hvort þetta samskiptanet virki eins
og samskiptanet karlanna. Ingi-
björg telur að það virki ekki alveg
á sama hátt og samskiptnet karla.
„Segja má að karlar noti sam-
skiptanet sitt meira sem sam-
tryggingarnet til að gæta hags-
muna sinna og valda. Má e.t.v.
segja að með þeirra fyrirkomulagi
reyni þeir að hafa fingurinn á
púlsæð þjóðfélagsins þannig að
þeir viti hvaða hræringar eru í
atvinnu og pólitísku lífi þjóðarinn-
ar. Þessi vitneskja veitir síðan
tækifæri til að kippa í rétta þræði
strax og þörf gerist, t.d. þegar
konur hóta hagsmunum karla að
LÖGFRÆÐINGUR -
Ingibjörg Bjarnardóttir er teng-
ill stjórnunarhópsins. „Konur
ræða saman á persónulegra
plani en karlar," segir hún.
þeirra áliti. Ef konur væru í valda-
stöðum gæti þó verið að þær
brygðust við á sama hátt,“ segir
hún. „Þó að samskiptanet karla
þjóni þeirra tilgangi þá er ég alls
ekkert viss um að konur vilji að
samskiptanet þeirra starfi á sama
Netið ergeysilega gagnlegt
- segir Rósalind Ragnarsdóttir sem er fyrrverandi tengill viðskiptahópsins
ÞEGAR ég banka upp á að Hólabraut 4 í Hafharfírði opna tveir
litlir drengir dyrnar og kalla inn: „Mamma, konan er komin.“ Og
hlaupandi upp tröppurnar kemur Rósalind Ragnarsdóttir, sem
rekur innflutnings- og heildsöluverslunina Extra en er um leið
húsmóðir á sama stað. „Jú, vinnudagurinn verður oft ódijúgur
og langur, því þó að ég reyni að sinna viðskiptunum, þá þurfa
strákarnir líka sitt. Ég reyni þó að halda þessu svolítið aðskildu,
þeir fá t.d. ekki að svara í símann á daginn, því ég vil ekki að
viðskiptavinur fái samband við barn þegar hringt er í fyrirtæk-
ið,“ segir Rósalind.
Fyrirtækið eiga þau hjónin sam-
an, en hún stendur ein að rekstrin-
um og segir að sér finnist gagn-
legt að mæta á fundi hjá Netinu
til að bera saman bækur sínar við
aðrar konur í svipaðri aðstöðu. Til
dæmis að fá ýmsar upplýsingar í
sambandi við virðisaukaskattinn,
ræða breytingar og reglugerðir,
hvar sé' hagstætt að fá prentuð
eyðublöð, hverjar ætli að fara á
sýningar á næstunni og svo mætti
lengi telja. Það sé líka nýjung að
geta rætt sín hugðarefni í sam-
bandi við vinnuna i hópi kvenna
sem starfa á sama vettvangi;
Venjulega þegar konur hittist í
vinahópi fjalli þær lítið um starf
sitt en frekar um ýmis kvenna-
mál. Hún segir jafnframt að hóp-
urinn í heild sé mjög víðtækur.
Þar séu einstaklingar með mis-
munandi menntun og starfs-
reynslu, þannig að þær geti leið-
beint hver annarri og veitt aðstoð.
í daglegum viðskiptum segist hún
líka nota tengslin og hringja á
milli ef einhverjar spurningar eða
vandamál koma upp. „Mér finnst
þetta alveg geysilega gagnlegt.
Ég hafði verið ein með fyrirtækið
í 5 ár og eftir að ég kynntist þess-
um konum finnst mér hafa opnast
alveg nýr heimur. Ég fór til dæm-
is að fara á vörusýningar, sem ég
hafði ekki gert áður. Netið hefur
einnig hjálpað mörgum konum
sem hugðust stofna fyrirtæki með
því að þær sem hafa reynsluna
gefa ráðleggingar um hvar á að
byija og hvað beri að forðast,
þannig að þær þurfi ekki að reka
sig á og prófa sig áfram. Við gát-
um sagt þeim hvar við höfðum
gert mistök. Þannig að mér finnst
þetta hafa verið ákaflega gagn-
legt.“
Erfitt að halda
viðskiptahópnum saman
Rósalind segir að það hafi verið
erfitt að halda viðskiptahópnum
saman, ákveðinn kjarni mæti alltaf
á fundum, en aðrar láti sig alltaf
vanta. Þær viti eiginlega ekki hver
ástæðan sé. En þegar erfiðleikar
fóru að gera vart við sig í rekstri
fyrirtækja um áramótin ’87-’88
urðu þær varar við að konurnar
gáfu sér ekki tíma til að mæta á
fundum. „Við finnum einnig fyrir
því að þegar konur koma heim
eftir langan vinnudag þá bíður
þeirra alls kyns húsverk og þær
hlaupa ekki svo glatt frá kvöld-
matnum til að fara á fund. Og ef
þær gera það þá hafa þær gjarnan
samviskubit. Við höfum reynt að
hittast einu sinni í mánuði, en ef
eitthvað mikið er framundan t.d.
jól eða fermingar, sem sagt eitt-
hvað sem kemur konum meira við
en körlum, þá hafa fundir verið
stopulli,“ segir hún.
Aðspurð hvort henni finnist
Netið virka eins og það hafi verið
hugsað í upphafi segir hún að svo
sé. Hins vegar finnst henni það
ekki hafa virkað nóg. Konur séu
ekki nógu duglegar að hringja og
leita eftir aðstoð, of fáar séu virk-
ar. Því það sé ekki síst tilgangur
Netsins að virka sem óformlegt
samskiptanet. „Okkur vantar svo
tilfinnanlega þessi tengsl út á við
sem karlar hafa. Til dæmis ef við
förum í laxveiði þá erum við yfir-
leitt með börnin líka og þá verður
þetta meira fjölskylduferð, en þeir
fara iðulega með öðrum körlum
úr viðskiptalífinu. En auðvitað eru
undantekningar á þessu eins og
öllu öðru. Hins vegar er ég sann-
færð um að svona samskiptanet
hátt. Konur ræða saman í allt
öðrum tilgangi en karlar. Þær
ræða saman á persónulegra plani
um vandamál sín og væntingar
og hvernig eigi að leysa þau mál.
Karlmenn tala yfirleitt ekki um
sjálfan sig og í þessu er kannski
munurinn fólginn, að þeir spjalla
frekar um menn og málefni. Með
þessu formi eru þeir samt sem
áður að reyna að leysa vandamál
sín og vætningar þótt óbeint sé
komið að efninu og vandanum.
Þannig verður upplýsinganet
þeirra virkara."
Stuðningur mikilvægur
Ingibjörg segir að væntingar
kvenna til samskiptanets nái ekki
einungis til upplýsinga- og hags-
munagæslu netsins heldur sé einn-
ig lögð rík áhersla á stuðning og
hvatningu kvenna við hvora aðra.
Á þann hátt vinni þær að auknum
hlut kvenna í völdum og ábyrgð
atvinnulífsins og þjóðfélagsins í
heild. Þær vinni að því að bijóta
upp viðtekið kynja- og atferlis-
mynstur og þær telji að sú þróun
sem nú sé hafin komi körlum jafnt
sem konum til góða þegar fram
líði stundir.
Ingibjörg sagðist að lokum vilja
skora á þær konur sem áhuga
hafa á að starfa í Netinu að mæta
á fund, en fyrsta þriðjudag í hveij-
um mánuði væru haldnir óform-
legir hádegisfundir í kaffistofu
Listasafnsins.
er mjög gott og því fleiri konur
sem koma inn í Netið því betur
geti þetta virkað.“