Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 B 7 REIKNINGSSKIL — Það er ekki einkamál endurskoðenda hvernig reikningar líta út. í rauninni er það frekar einkamál fyrirtækj- anna þar sem þau eru formlega ábyrg fyrir ársreikningunum en endur- skoðandinn fyrir árituninni. Það er því auðvitað eðlilegt að það sé einhver samvinna milli þessara aðila um það hvernig þessar reglur eigi að vera,“ segir Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi og dósent við viðskiptadeild H.í. Úttekt Ragnars talin verulega gölluð Af hálfu endurskoðenda er úttekt Ragnars talin verulega gölluð og ekki skrifuð af mikilli þekkingu á reglum reikningshalds. Stefán Svavarsson benti t.d. á í svargrein í Morgunblaðinu að hér á landi væru þrjár aðferðir við endurmat fasta- fjármuna. Þar sem hér væru ekki gefnar út margar verðvísitölur væri af þeim sökum erfitt að fá upplýsing- ar um sértækar verðlagsbreytingar. Endurskoðendur hefðu brugðist við þessum vanda með því að rannsaka hvaða verðstuðlar og gjaldmiðlar gætu verið til vitnis um endurkaups- verð. Og á grundvelli þeirra rann- sókna hefðu þeii* gert tillögur til yfirstjórna fyrirtækja um endur- matsstuðul en ekki endurmatsað- ferð. Stefán vekur ennfremur at- hygli á því að samkvæmt íslenskum lögum megi endurmeta varanlega rekstrarfjármuni hafi um varanlega hækkun þeirra verið að ræða. Engin bein fyrirmæli séu á hinn bóginn um hvernig að þessu mati skuli staðið, þegar frá sé talið að heimilt er að miða endurmat eigna við aðferð skattalaga. Stefán bendir á að lögum samkvæmt skuli þó reikningsskil vera í samræmi við góða reiknings- skilavenju. Féiagsskapur endurskoð- enda hafi margsinnis fjallað um þetta mál og sé það aðaltillaga fé- lagsins að miða við almennar verð- lagsbreytingar, en færi sé gefið á öðrum stuðlum telji menn það eiga betur við. Varðandi gengismál segist Stefán sammála því að fyrirtæki noti sama gengi, en hann kveðst hins vegar ekki sammála því að mismunandi gengi viti á óskiljanleg vinnubrögð. Hjá sumum fyrirtækjum hefði átt betur við að nota ársloka- gengi fyrir umrætt ár en hjá öðrum átt betur við að nota gengi í árs- bytjun 1989. Stefán bendir á í lok greinar sinnar að það sé skoðun þeirra sem til þekki að miklar framfarir hafí átt sér stað á síðustu árum í gerð reikningsskila hér á landi. Og það raunar við aðstæður sem geri mæl- ingar á afkomu og efnahag fyrir- tækja ákaflega erfiðar. Hér eigi hann við þau áhrif sem verðbólgan hafi til þess að brengla úrslit reikn- ingsskila. En endurskoðendur hafi ekki brugðist í þessu efni. Það sé a.m.k. umsögn erlendra fagmanna um málefni þeirra. Það sé því langur vegur frá því að endurskoðendur séu að missa tökin á starfi sínu. KB Frumkvæöi hf. - hlutabréf Höfum kaupanda að hlutabrefum í Frumkvæði hf. Allar nánari upplýsingar veitir Svanbjörn Thoroddssen í síma 681530 eóa á skrifstofu VÍB, Armúla 7. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF ÞAU NOTA BOÐKERFI PÓSTS & SÍMA Nð er lího l samband lilli þeirra þegar þau eru ehki saman Oft er bagalegt að geta ekki náð sambandi við fólk sem þarf að vera mikið á ferðinni innan húss og úti við. Nú er sá vandi úr sögunni. Boðkerfi Pósts & síma gerir fólki kleift að senda boð frá venjulegum síma til léttra boðtækja sem viðtakandi hefur í vasa sínum. Hann er í kallfæri hvar sem hann er. v I t Boðtæki taka ýmist við tónboðum eða talnaboðum. *SV'4^’ Tækið sem Halldór smiður hefur í vasanum gefur frá sér fjögur mismunandi tónmerki. Hann og Anna kona hans ’ I ' hafa komið sér saman um að ákveðið tónmerki tákni pósts^og'síma Halldór eigi að hringja heim. Anna hringir einfaldlega - í svæðisnúmer boðkerfisins og fimm stafa boðkallsnúmer og velur í framhaldi af því þá tölu sem kallar fram það hljóðmerki sem þau hafa valið í þessu skyni. Fyrirtæki geta komist hjá kostnaðarsamri farsímavæðingu með því að nota boðkerfið. Það getur líka virkað sem fullkominn símsvari og hægt er að senda boð til allt að 10 boðtækja í einu. Boðkerfið er einnig til mikilla þæginda fyrir einstaklinga og eykur öryggi þeirra í fjölmörgum tilvikum. Merkjasendingar þess ná um allt Stór-Reykjavíkursvæðið og sendar hafa verið settir upp á Akureyri, Selfossi, Akranesi og Keflavík. Stofngjald fyrir boðþjónustu miðað við tónboðtæki er kr. 6.225.- með VSK og ársfjórðungsgjald er kr. 800 án VSK Stofhgjald fyrir þjónustu talnaboðtækja er kr. 7.470,- með VSK og ársfjórðungsgjald kr. 1000.- án VSK POSTUR OG SIMI Við spörutn þér sporin Boðtæki eru seld í öllum söludeildum Pósts & síma og hjá nokkrum öðrum innflytjendum notendabúnaðar. Eru þau einnig nefhd símboðar. Fáðu frekari upplýsingar um boðkerfið hjá söludeildum Pósts & síma Ármúla 27 (fýrirtækjaþjónusta), sími 680580, Kirkjustræti, sími 26165 og Kxinglunni, sími 689199 og á póststöðvum þar sem sendar hafa verið settir upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.