Morgunblaðið - 20.02.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
Nýir hluthafar og aukið hlutafé í Sýn hf.;
Kemur til greina að senda
út fleiri daga en um helgar
- segir Jónas Kristjánsson stjórnarformaður
FJÓRIR nýir hluthafar hafa keypt hlut í sjónvarpsfyrirtækinu Sýn
hf. og heftir hlutafé félagsins verið aukið í 184 milljónir króna.
Nýju hluthafarnir eru Frjáls fjölmiðlun, útgáfufyrirtæki DV, Bíó-
höllin, Vífilfell og Þorgeir Baldursson í prentsmiðjunni Odda. Sýn
hyggst hefja útsendingar næsta haust. Hingað til hefur fyrirtækið
haft áform um helgarsjónvarp, en nýskipaður sljórnarformaður
fyrirtækisins, Jónas Kristjánsson ritstjóri, segist ekki útiloka að
dagskráin verði lengri.
Ný stjórn Sýnar var skipuð á
fundi í hlutafélaginu á sunnudags-
kvöld. Hana skipa Jónas Kristjáns-
son ritstjóri, sem er stjómarform-
aður, Arni Samúelsson forstjóri
Bíóhallarinnar, sem er varaform-
aður, Sveinn R. Eyjólfsson stjórn-
arformaður og útgáfustjóri
Fijálsrar fjölmiðlunar, Þorgeir
Baldursson í Odda og Halldór
Guðmundsson hjá Hvíta húsinu,
áður Auglýsingastofunni GBB.
Hvíta húsið var hluthafi í Sýn fyr-
ir, ásamt nokkrum starfsmönnum
fyrirtækisins.
Jónas Kristjánsson vildi í sam-
tali við Morgunblaðið ekki skýra
frá því hversu stóran hlut hver
hluthafi ætti í Sýn, en sagði að
enginn hefði yfirburðastöðu um-
fram aðra. Hann sagði að þótt
fyrirtækið hefði uj phaflega verið
stofnað um helgar ijónvarp, væri
hlutaféð það mikið, rð hugsanlegt
væri að sjónvarpa fleiri daga í
viku. „Það hefur engin ákvörðun
verið tekin, en það kemur til greina
að sjónvarpa ekki bara um helg-
ar,“ sagði Jónas.
Jónas sagði að gert væri ráð
fyrir því að Sýn ræki auglýsinga-
og áskriftarsjónvarp. Dagskráin
verður því lykluð. Forráðamenn
Sýnar hafa áður farið þess á leit
við Stöð 2 að fá afnot af myndlykl-
um hennar, en því var neitað. Jón-
as sagði að það ætti hins vegar
eftir að láta reyna á það hvort ný
stjórnvöld á Stöð 2 myndu ljá
máls á slíku. „Við getum líka vel
verið með eigin lykla,“ sagði hann.
Engir nýir starfsmenn hafa enn-
þá verið ráðnir að fyrirtækinu í
kjölfar hlutafjáraukningarinnar.
Stefnt er að því að hefja útsend-
ingar næsta haust, en ekki er
nákvæmlega ákveðið hvenær það
verður. Sýn hefur verið úthlutað
rás á VHF-sviði fyrir útsendingar
sínar.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 20. FEBRÚAR
YFIRLIT í QÆR: Norðaustlægátt um allt land, 7-9 vindstig á Suð-
austurlandi og Austfjörðum en annars hægari. Snjókoma eða él
voru á norðan- og austanverðu landinu. 4 til 0 stig.
SPÁ: Norðaustan 7-9 vindstig austanlands en heldur hægari vest-
anlands. Snjókoma á Norður- og Austurlandi en annars þurrt.
Lægir í nótt og í fyrramálið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg breytileg eða
suðvestlægátt. Bjart veður á Norður- og Austurlandi en él í öðrum
landshlutum. Frost 3-10 stig. Undir kvöld fer að þykkna upp suð-
vestanlands með vaxandi suðaustan- og austanátt. Aðfaranótt
fimmtudags verður mikill vindur og snjókoma eða slydda um nær
allt land en á fimmtudag lítur út fyrir stífa suð- og suðvestanátt
með éljum sunnanlands og vestan en norðaustanlands léttir til.
TÁKN:
O. ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
j"~<^ Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 0 alskýjað Reykjavík +1 skýjað
Bergen 7 rigning
Helsinki 4 kornsnjór
Kaupmannah. 4 þokumóða
Narssarssuaq +2 skýjað
Nuuk +8 snjókoma
Osló 5 alskýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Þórshöfn 6 skúr
Algan/e 18 heiðskírt
Amsterdam 14 mistur
Barcelona 14 þokumóða
Berlín 12 þokumóða
Chicago ■5-7 heiðskírt
Feneyjar 2 þokumóða
Frankfurt 12 skýjað
Glasgow 10 alskýjað
Hamborg 8 þokumóða
Las Palmas 25 léttskýjað
London 12 alskýjað
Los Angeles 8 heiðskirt
Lúxemborg vantar
Madrid vantar
Malaga 17 mistur
Mallorca 16 skýjað
Montreal +4 alskýjað
New York 4 alskýjað
Orlando 18 skýjað
París 13 skýjað
Róm 15 þokumóða
Vfn 11 skýjað
Washington 7 þokumóða
Winnipeg +23 helðskirt
Rækju landað úr grænlenskum togara.
Aflagjald lagt á
rækju úr græn-
lenskum togurum
VÖRUGJALD hefur verið fellt niður af lrystri rækju, sem grænlensk-
ir togarar landa í höfnum hér á landi. Þess í stað hefiir samgöngu-
ráðherra sett reglugerð um að greitt skuli aflagjald sem er 0,85%
af hálfu fobverði aflans og er það til samræmis við þær reglur er
gilda um löndun íslenskra skipa. Talið er að aflagjaldið sé um tífalt
hærra en vörugjaldið áður.
Að sögn Þorvaldar Jónssonar
skipamiðlara, hafa grænlensku tog-
aramir haldið áfram að landa hér
eftir að reglugerðin tók gildi 1. jan-
úar síðastliðinn. Sagði hann mjög
erfitt að innheimta aflagjaldið þar
sem ekki væri vitað hvað fobverð
aflans væri, hann væri ekki seldur
héðan. „Ég veit ekki hvernig það
er gert,“ sagði hann.
Eimskip sjá um að losa græn-
lensku togarana í Hafnarfirði, búa
um aflann og flytja síðan á mark-
aði í Evrópu og Japan. Þórður
Sverrisson framkvæmdstjóri hjá
Eimskip sagði að þessi breyting úr
vörugjaldi í aflagjald hefði verið til-
kynnt með bréfi um miðjan janúar
og látið gilda frá áramótum. Þá
hefðu hins vegar legið fyrir sámn-
ingar við grænlensku aðilanna um
losun og flutning á rækjunni frá
íslandi.
„Þessi starfsemi er þjónusta sem
hefur verið veitt og er hægt að
veita á Grænlandi, Nýfundnalandi
eða í Færeyjum og við óttumst
auðvitað að Grænlendingamir snúi
sér þangað aftur. Það er kannski
eðlilegt að sama gangi yfir íslenska
og erlenda aðila í þessum efnum
en þetta eru ófær vinnubrögð. Ef
menn vilja, að aflagjald sé lagt á
grænlensku togarana átti að byija
á því í upphafi, en ekki lokka þá
hingað inn upp á eitthvað annað
gjald, og koma svo aftan að þeim,
þegar búið er að byggja hér upp
aðstöðu þessi viðskipti farin að fest-
ast í sessi. íslensk fyrirtæki ná aldr-
ei árangri í þjónustu fyrir erlenda
aðila ef að vinnubrögð sem þessi
em viðhöfð,“ sagði Þórður Sverris-
son.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson og
fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokks:
Yfirsljórn öryggis-
mála verði samhæfð
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt fram á Al-
þingi þingsályktunartillögu um
að könnuð verði og undirbúin
löggjöf um yfirstjórn öryggis-
mála. Tilgangurinn er að sam-
hæfa þá stjórnsýslu sem lýtur að
öryggis- og löggæzlu ríkis og
almennings í landinu. í greinar-
gerð segir að þessi samræmda
gæzla þurfi að vera þannig að
Starfsmannafélag
borgarinnar:
Kjarasamn-
ingurinn
samþykktur
FÉLAGAR I Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar samþykktu
nýgerðan kjarasamning í alls-
herjaratkvæðagreiðslu sem fram
fór á föstudag og laugardag. Af
þeim sem greiddu atkvæði voru
60% samþykkir samningnum.
Á kjörskrá voru 2.464, en at-
kvæði greiddu 538, eða 22% félags-
manna. Af þeim voru 323 fylgjandi
samningnum, eða 60%, en andvígir
voru 205, eða 38%. Auðir seðlar.
og ógildir voru 10, eða 2%.
skipulagi og framkvæmd að hún
geti tekið við verkeftium af varn-
arliðinu eftir því sem við verður
komið þegar til þess kemur að
það hverfí af landi brott.
í tillögutexta segir að hlutverk
sérstakrar yfirstjórnar öryggsmála
verði að fara með skipulega sam-
stjórn lögreglumála, landhelgis-
gæzlu og mála er varða tollgæzlu,
almannavamir og aðra löggæzlu.
Til að undirbúa setningu löggjafar-
innar skal sett á fót nefnd sjö þing-
manna sem kosin verði hlutbund-
inni kosningu á Alþingi. Frum-
varpsgerð á að vera lokið eigi síðar
en 1. febrúar 1991.
í greinargerð segir að tillagan
kveði ekki á um veru varnarliðsins
hér landi. Hún fjalli hins vegar um
að komið verði á fót sameiginlegri
stjórn eða einni stjórn, sem sam-
hæfi þá stjórnsýslu er lúti að ör-
yggi og löggæzlu. „Það er gert ráð
fyrir að þessi samræmda gæzla sé
þannig að skipulagi og framkvæmd
að hún sé þess umkomin að taka
við verkefnum af vamarliðinu eftir
því sem við verður komið og allri
öryggis- og löggæzlu á Keflavíkur-
flugvelli þegar til þess kemur að
varnarliðið hverfur af landi brott.“
Fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar er Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son. Meðflutningsmenn em Matt-
hías A. Mathiesen, Friðjón Þórðar-
son og Olafur G. Éinarsson.
Sjá nánar á þingsíðu, bls. 27.