Morgunblaðið - 20.02.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
t
Móðir mín,
BJÖRG TÓMASDÓTTIR
frá Miðhóli,
er látin. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu næsta
mánudag kl. 15.00.
Tómas Gunnarsson.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
BJARNEY FRIÐRIKSDÓTTIR,
Marargötu 1,
andaðist á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b, 17.febrúar.
Sigurður P. Sigurjónsson,
Hulda Lárusdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR SIGURJÓNSSON,
Austurbrún 25,
lést aðfaranótt 18. febrúar í Landakotsspítala.
Guðrún Pétursdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t Móðir mín,
LÁRA LÁRUSDÓTTIR VÁRNHED
til heimilis f Sydney,
Ástraliu,
lést 17. febrúar sl. Fyrir hönd aðstandenda. Björn Þórðarson.
t
Frænka okkar og systir,
SVAVA ÞORSTEINSDÓTTIR
fyrrum kennari,
áðurtil heimilis á Hringbraut 37,
andaðist á Hrafnistu sunnudaginn 18. febrúar.
Anna Viggósdóttir, Eyvör Þorsteinsdóttir,
Birna Viggósdóttir, Kristrún Cortes,
Þorsteinn Júlíus Viggósson, Þorsteinn H. Þorsteinsson.
t
Eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, mágur og frændi,
VALGEIR KRISTÓFER HAUKSSON,
Spóarima 15,
Selfossi,
andaðist laugardaginn 17. febrúar.
Sigríður Herdís Leósdóttir, börn og stjúpdóttir.
Halldóra Jónsdóttir, Haukur Kristófersson,
Margrét Hauksdóttir, Bragi Guðmundsson,
Guðrún Hauksdóttir, Jóhannes Jóhannesson,
og systrabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GEIR MARINÓ JÓNSSON,
Goðatúni 15,
andaðist í Landspítalanum 18. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Elisabet Gestsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKARPHÉÐINN JÓNSSON
fyrrv. bifreiðastjóri,
Hvassaleiti 28,
lést á heimili sínu 18. febrúar.
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir,
Sverrir Skarphéðinsson,
Ingólfur Skarphéðinsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarna-
börn.
Minning:
GuðMður L. Bene-
diktsdóttir kaupkona
Fædd 26. maí 1902
Dáin 12. febrúar 1990
Guðfríður Lilja Benediktsdóttir
fæddist á Hóli í Hörðudal, Dala-
sýslu 26. maí 1902. Foreldrar henn-
ar voru Margrét Steinunn Guð-
mundsdóttir og Benedikt Bjami
Kristjánsson bóndi þar 1902-1907.
Lilja var yngst 7 systkina sem kom-
ust á legg og eru nú öll látin.
Benedikt og Margrét tóku við
stórbúi föður Benedikts, Kristjáns
hreppstjóra og dannebrogsmanns á
Þorbergsstöðum í Laxárdal við
andlát Kristjáns, 2. apríl 1907. Ása
Egilsdóttir, móðir Benedikts, lést
nákvæmlega 10 árum áður eða 2.
apríl 1897. Kristján hafði reist stórt
og mikið íbúðarhús úr timbri á jörð-
inni og var því hinni barnmörgu
fjölskyldu ekki í kot vísað.
Þarna ólust upp við störf og leik
alsystkinin sjö: Egill, Hólmfríður,
Ása, Kristján, Jakob, Ágúst og
Lilja, en auk þeirra börn Margrétar
frá fyrra hjónabandi, Ása og Hjört-
ur. Þá tóku þau ágætu hjón í fóstur
til sín þrjú bamaböm sín þau
Margréti Bjömsdóttur Ármann,
Kristján Bjarnason og Svölu Krist-
jánsdóttur.
Á Þorbergsstöðum var bæði hús-
og hjartarými nóg hjá hinni stóm
fjölskyldu.
„Morgunstund gefur gull í mund“
voru einkunnarorð húsbænda. Risið
árla úr rekkju og gengið seint til
náða. Mikill þurfti afrakstur starfs-
ins að vera, þegar metta þurfti
marga munna og klæða hópinn
stóra. Systkinin ólust því upp bæði
við aga og vinnusemi sem kom þeim
til góða síðar á lífsbrautinni.
Þorbergsstaðir liggja við þjóð-
braut. Þar var því tíðum gest-
kvæmt. Gestum var veitt vel í mat
og drykk og jafnan gengið úr rúm-
um fyrir lúnum ferðalöngum. Bæði
Margrét og Benedikt vom höfðingj-
ar heim að sækja og hinn stóri glað-
væri systkinahópur skildi eftir sig
góðar minningar gesta, sem þökk-
uðu stundum fyrir sig með stöku.
Einn þeirra, Símon Dalaskáld, orti
þannig til Lilju:
Guðfríður Lilja, gullfríð mær,
geðjast foreldrunum.
Þriggja ára andlitsskær
yngst af systkinunum.
Systkinin áttu gott með að
blanda geði við fólk, vina- og kunn-
ingjahópurinn varð því stór. Margt
var sér til gamans gert á menning-
arheimili. Hér má nefna leiksýning-
ar, íþróttakeppni, spilað, teflt, leikið
á harmoniku eða orgel, sungið við
raust og dansinn dunaði, á stund-
um. Þá má ekki gleyma gæðingum
fjölskyldunnar, sem óspart fengu
að spretta úr spori á gleðistund.
Lilja var ekki eftirbátur annarra,
átti bæði harmoniku og hest, þótt
ung væri að árum. Tefldi og glímdi
við strákana óhikað. Á þessum
ámm fór Lilja ung til náms í orgel-
leik hjá dr. Páli Isólfssyni, vetrar-
langt, kom heim í sveitina sína aft-
ur og starfaði sem organisti við
Stóra-Vatnshomskirkju um skeið.
Nú tók að halla undan fæti,
Benedikt lést 1930 og Margrét
Steinunn 1939.
Könnun á flölda afkomenda Ásu
Egilsdóttur (1830-1897) og Krist-
-jáns Tómassonar (1844-1907), með
væntanlegt ættarmót í huga leiddi
ljós, að þeir eru nú orðnir á sjöunda
hundrað talsins og var Lilja elsti
núlifandi afkomandinn.
Lilja fylgdi í fótspor Ásu systur
sinnar og fluttist einnig til
Reykjavíkur. Kært var ætíð með
þeim systrum.
Hún hóf störf við fiskvinnslu og
síðar hjá Sigurjóni á Álafossi, í
verksmiðju hans. Hugur Lilju beind-
ist til frekara náms og nam hún
karlmannafatasaum hjá Andrési
Andréssyni og starfaði þar um
fjölda ára.
Ása, systir Lilju, giftist Sigurði
Bjömssyni brúarsmið 1922, og
byggðu þau sér hús að Bergstaða-
stræti 55 og lifðu í hamingjuríku
hjónabandi. Ský dró þó fyrir sólu.
Ása lést úr lungnabólgu aðeins 35
ára, 1933 frá-tveim ungum sonum
þeirra hjóna, Benedikt Bjarna 9 ára
og Birni Leví 6 ára. Var það þeim
bræðrum til happs, að Lilja gekk
að eiga Sigurð afa, 24. nóvember
1934 og ól þá upp sem besta móð-
ir. Þau Sigurður eignuðust síðan
saman soninn Grétar Áss, 22. okt.
1935.
Að jafnaði var gestkvæmt hjá
þeim hjónum á þeim árum. Þau
tóku á móti sveitungum og ættingj-
um beggja af rausn og gestrisni,
og margir þáðu næturgreiða. Þetta
var án efa arfur úr foreldrahúsum
á Þorbergsstöðum. Bróðurdóttir
Lilju, Svala, átti á þeim árum löng-
um heimili hjá þeim hjónum og var
milli Lilju og hennar gagnkvæm og
góð vinátta.
Lilja hafði á hendi ráðskonustörf
að jafnaði hvert sumar fyrir brúar-
vinnuflokka Sigurðar, sem oft voru
fjölmennir og annríki mikið. Gott
veganesti frá æskuheimilinu í Döl-
um við matseldina nýttist henni hér
vel sem og námið á húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli. Auk húsmóður-
starfanna á veturna tók Lilja að sér
fatasaum heim fyrir ýmsa klæð-
skera, og drýgði þannig tekjur
heimilisins. Bræðurnir þrír fengu
gott uppeldi og menntun farsæla.
Grétar Áss nam viðskiptafræði
og var ríkisbókari um 15 ára skeið,
en starfar nú sjálfstætt. Hann er
kvæntur Sigrúnu Andrewsdóttur
kennara, og eiga þau íjögur börn.
Elstur er Sigurður Áss, þá Andri
Áss, Guðfríður Lilja og Helgi Dag-
bjartur Áss.
Benedikt Bjami er yfirverkfræð-
ingur hjá Húsnæðisstofnun ríkisins.
Kvæntur Inger Elise f. Madsen,
börn þeirra eru þijú. Ása, Jóhannes
og Anna María.
Björn Leví, húsasmíðameistari.
Hann er kvæntur Sigríði Jóhanns-
dóttur, þeirra börn voru þijú. Jó-
hanna, Sigurður, látinn og María.
Auk þeirra, Guðbjörg, dóttir Björns
fyrir hjónaband.
Kaupmennska hafði frá æsku
verið áhugamál Lilju og ósk hennar
um eigin vefnaðarvömverslun rætt-
ist, er hún setti á stofn verslun í
húsi ■ þeirra hjóna að Bergstaða-
stræti 55, hinn 7. apríl 1951. Við
þau störf eignaðist Lilja fjölda vin-
kvenna, sem höfðu í senn ánægju
og gagn af viðskiptum sínum við
hana. Þekking Lilju á vefnaðarvöru
og smáhlutum til sauma kom
margri hagsýnni húsmóðurinni vel.
Hún var einlægur ráðgjafi við-
skiptavina sinna og naut þess að
gauka lítilræði í kaupbæti til smá-
fólksins, ef færi gafst. Ógleyman-
legar vom heimsóknir okkar systk-
inanna í búðina til hennar, en aldr-
ei fórum við þaðan tómhent, og þá
ekki síður til Sigurðar afa, uppi á
Iofti, þar sem heitt kakóið og með-
lætið beið okkar jafnan.
Sigurður afi dó 28. ágúst 1964,
74 ára gamall og hafði þá verið
veikur allmörg ár. Lilja lét þó hvergi
deigan síga. Hélt sinni verslun og
bjó áfram á Bergstaðastrætinu.
Árið 1983 skall þó ógæfan yfir,
þá er kviknaði í húsi hennar og
verslunin stórskemmdist. Lilja var
þá orðin áttræð og tími til kominn
að hætta störfum og setjast í helg-
an stein. Slíkt var henni mjög óljúft,
því bæði var hún ern og full af
starfslöngun, þótt þrekið væri farið
að minnka. Nú dvaldi hún um ára-
bil hjá Grétari syni sínum og Sig-
rúnu tengdadóttur við góðan að-
búnað að Brúnastekk 11.
Að lokum fékk Lilja vistun með
þeim er fyrstir fluttu inn á dvalar-
heimili aldraðra í Seljahlíð í Breið-
holti um mitt ár 1986. Þar naut
hún góðrar umhyggju meðal jafn-
aldra og gladdist sérstaklega þá er
Margrét Björnsdóttir Ármann upp-
eldissystir hennar og systurdóttir
fékk þar einnig dvalarrými.
Fyrir þrem vikum varð Lilja fyrir
því óhappi að detta og lærbrotna,
enda orðin óstyrk til gangs og sjón
farin að daprast. Á Landspítalanum
andaðist Lilja síðan af völdum þessa
óhapps og lungnabólgu hinn 12.
þessa mánaðar.
Þá er lífsgöngu Lilju er lokið
kemur upp í hugann, að hún var
óvenju mörgum kostum búin.
Líkamlegur styrkur hennar var
mikill mestan hluta æviskeiðsins og
andleg áhugamál mörg. Nefnd
skulu hér nokkur dæmi. Þá er Lilja
t
Elskuleg tengdamóðir mín,
ÁSA THEODÓRS,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 22. febrúar kl.
13.30.
Dóra Sigurjónsdóttir.