Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRUAR 1990
17
Tónskáldið John Speight ásamt hljóðfæraleikurunum Einari Jóhann-
essyni, Páli Eyjólfssyni, Hafsteini Guðmundssyni og Sveinbjörgu
Vilhjálmsdóttur.
Kvöldstund með tónskáldi:
John Speight kynn-
ir eigin tónsmíðar
TONVERK Johns Speight verða kynnt á kvöldstund með tónskáldi í
Listasafhi Sigurjóns Olafssonar kl. 20.30 í kvöld, þriðjudagskvöld.
Tónskáldið sjálft talar um tónsmíðar sínar undir yfirskriftinni „Aðeins
nokkrar línur“, og þijú verk hans verða leikin.
Hljóðfærraleikararnir Páll Ey- um Speights verður á annarri hæð
jólfsson, Einar Jóhannesson, Haf- safnsins.
steinn Guðmundssonog Sveinbjörg íslenzk tónverkamiðstöð og Lista-
Vilhjálmsdóttir munu leika verk safn Sigutjóns Ólafssonar gangast
Speights; Bergmál Orfeusar, Þijár fyrir kvöldstundinni. Áður hafa verk
prelúdíur og Verses and Cadenzas. Þorkels Sigurbjörnssonar verið
Jafnframt verður efnt til umræðna, kynnt á þeirra vegum og í marz og
þar sem gestum gefst kostur á að apríl verða Áskell Másson og Þor-
spyija tónskáldið um hvaðeina sem steinn Hauksson kynntir. Styrktar-
þeim kann að liggja á hjarta varð- menn kvöldstundarinnar að þessu
andi tónsmíðar hans. Sýning á verk- sinni eru SPRON og Glitnir hf.
BÍLL SEM BER AF ÖÐRUM
VegnŒ íoimíeguiðai
akstuiseiginleika
þœginda
spaineytni
ZINKHÚÐUÐ
YFIRBY GGING
Vöm gegn veðnan og ryöi
s
í
TfeiðW
-pódíesta
■'falltídfrœl
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Miklar skemmdir urðu á miðri
sljórnborðssíðu Þórsness þegar
Garðar sigldi á skipið.
Stykkishólmur:
að lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna,
fyrirframgreiðslu launa og breyt-
ingar á rétti starfsmanna þegar um
veikindi er að ræða. Nefnd var skip-
uð í fyrravor til að vinna að fast-
ráðningum ríkisstarfsmanna í svo-
kölluðum óheimiluðum stöðum. Að
sögn Sigrúnar Ásgeirsdóttur, sem
sæti á í nefndinni, hefur verið stefnt
að því að ljúka afgreiðslu umsókna
um fastráðningar í þessum mánuði.
Enn vanti þó gögn frá menntamála-
ráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti.
Talið er, að sögn Sigrúnar, að þess-
ar breytingar muni ekki hafa um-
talsverðan kostnað í för með sér
fyrir ríkissjóð.
Auk þeirra 483 starfsmanna sem
unnið höfðu í a.m.k. tvö ár án fast-
ráðningar er þannig ástatt um tæp-
lega þúsund kennara við grunn-
skóla og framhaldsskóla. Um kenn-
ara gilda þó sérstök lög og unnið
er að undirbúningi þess í mennta-
málaráðuneytinu að framhalds-
skólakennarar verði fastráðnir með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Þá mun ríkisstjórnin á næstunni
leggja fram frumvarp um breytingu
á lögum 97/1974 um ráðningar
ríkisstarfsmanna, þess efnis að þeir
sem ráðnir eru til árs samkvæmt
fjárlagaheimild geti fengið fast-
ráðningu, en tveggja ára starf hjá
ríkinu þurfi ekki til.
Fimm hundruð hafa slíkan rétt
HÁTT I 80 ríkisstarfsmenn, sem
ekki höfðu stöðuheimildir, verða
fastráðnir i samræmi við bókun
með kjarasamningi síðstliðið
vor. í bókuninni segir að þeir
sem unnið hafi hjá ríkinu í tvö
ár samfleytt eigi rétt á ótima-
bundinni ráðningu með þriggja
mánaða uppsagnarfresti. í fyrra
höfðu 483 ríkisstarfsmenn slíkan
rétt en 170 umsóknir um fast-
ráðningu hafa borist ráðninga-
nefiid Fjárlaga- og hagsýslu-
stoftiunar.
Ótímabundin ráðning eða fast-
ráðning hefur í för með sér aðgang
Opið hús hjá Kven-
stúdentafélagi Islands
OPIÐ HÚS verður hjá Kvenstúd-
entafélagp íslands einu sinni í
mánuði næstu þijá mánuði, þ.e.
7. mars, 4. apríl og 2. maí kl.
16.00-18.30.
Stjórnarkonur verða við í húsa-
kynnum BKR að Hallveigarstöðum
við Túngötu. Þar verður kaffi og
meðlæti á boðstólum. Konur eru
hvattar til að mæta og kynna sér
og ræða málefni sem efst eru á baugi
hjá félaginu, IFUW og systurfélög-
unum. Einnig eru veittar upplýsing-
ar um hverskonar aðstoð eins og
heimilisföng systrafélaga út um all-
an heim, upplýsingar um styrki á
vegum félagsins og einnig systrafé-
laganna.
Breyting hefur orðið á fundarstað
fýrir aðalfund félagins en hann verð-
ur haldinn fimmtudaginn 22. febrúar
kl. 20.00 í veitingasalnum Þingholti
við Bergstaðastræti. 25 ára stúdínur
MA munu sjá um skemmtidagskrá.
Félagsfundur verður haldinn laugar-
daginn 17. mars í Veitingahúsinu
Asíu við Laugaveg kl. 12.00 og árs-
hátíð í Átthagasal, Hótels Sögu,
fimmtudaginn 17. maí kl. 19.30.
(Fréttatilkynning)
Þórsnesið að
nýju til veiða
Stykkishólmi.
VIÐERÐ á mb. Þórsnesi II er nú
senn lokið hjá Skipavík hf., en
báturinn skemmdist þegar Garð-
ar frá Ólafsvík sigldi á skipið á
dögunum.
Ákveðið var að gera við Þórsnesið
til bráðabirgða nú til að það verði
sem minnst frá veiðum á vertíðinni
en fresta fullnaðarviðgerð til betri
tíma. Skipið heldur að nýju til veiða
á næstu dögum.
Árni
r Ribena
sólberjasafi
varia til neitt
hollara
JM
c2
Ó. Johnson & Kaaberhf
SÍMI: 91 -24000
Hátt í áttatíu ríkisstarfs-
menn fá fastráðningu