Morgunblaðið - 20.02.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPFI/JIEIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
25
Á MARKAÐI
. Bjarni Sigtryggsson
Flensan er flestum
bæði holl og góð!
Sigurður B. Stefánsson for-
stöðumaður verðbréfamarkaðar
íslandsbanka talaði á dögunum
um samdráttartímann 1988-89 í
þátíð. Hann átti við að nú væri
botninum náð, en leiðin uppávið
yrði þó hvorki auðveld né sárs-
aukalaus. Enn mætti gera ráð
fyrir að fyrirtæki atvinnulífsins
yrðu að glíma við gamla erfið-
leika. Atvinnuleysi væri ekki horf-
ið og enn um sinn mætti búast
við gjaldþrotum í ýmsum greinum.
Að mörgu leyti minnir kreppu-
skeiðið á flensufaraldur í þjóð-
arlíkamanum. Inflúensan er
nefnilega holl hveijum ungum og
hraustum líkama. Hún er að vísu
óþægileg meðan hún varir, en hún
byggir upp varnir líkamans og
hreinsar burt ýmsan óþverra.
Fasta og hugleiðsla
Langvarandi flensukast er eini
megrunarkúrinn sem ýmsir leggja
á sig um ævina, — í senn eins
konar fasta og hugleiðsla — og
verði menn nógu veikir gefast
þeim jafnan nokkrir hitalausir
dagar heima fyrir til að skoða
sjálfa sig og umhverfið í öðru ljósi
en gefst alla jafna í annríki dag-
anna.
Nú eru batamerki farin að
verða glögg í efnahagskerfi þjóð-
arlíkamans, og það jafnvel svo,
að forstjóri Þjóðhagsstofnunar
hefur opinberlega varað við
þensluáhrifum, fari menn ekki
hægt af stað upp á við. Tryggður
„Nú er þegar
farið að tala um
samdráttar-
skeiðið 1988-89
íþátíð . . .“
hefur verið langtímafriður á
vinnumarkaði, og það hefur haft
slík áhrif á rekstrarumhverfi fyr-
irtækja, að hlutabréf stórra fýrir-
tækja seljast nú betur en nokkru
sinni fyrr.
Hávextir eru trygging
Háir vextir gera hvort tveggja
gott; tryggja lífeyrissjóðum laun-
þeganna bætta möguleika á að
standa við skuldbindingar sínar
við væntanleg gamalmenni (þau
sem í dag halda upp á fertugs-
og fimmtugsafmæli) og veita fjár-
magni inn í lánakerfið. Háir vext-
ir eru líka eins konar hindrun
gegn óráðsíu fjárfestingar í gælu-
verkefnum.
Ætla má að nú í lok flensunnar
hugi menn að því að fara vel með
sig, eins og læknar (les: hagfræð-
ingar) ráðleggja og slengi ekki
hækkandi fiskverði á erlendum
mörkuðum beint í neyslupottana.
Kannski reynslan kenni útgerð-
inni að leggja nú fyrir af fúsum
og fijálsum vilja í sjóðakerfi og
stjórnvöldum að láta fjármagns-
markaðinn fijálsan um það að
ákvarða vexti. Og takist með ein-
hveijum ráðum að lokka álfram-
leiðendur til að reisa hér nýja
kerskála, þá verði þess gætt að
þar með hefjist ekki uppboðs-
markaður á vinnuafli.
Sígandi lukka er bext
Þótt atvinnuleysi sé eitt hið
versta sem komi fyrir þá rnenn
sem það mega þola og fjölskyldur
þeirra, þá er skyndiþensla á vinnu-
markaði jafn slæm fyrir efna-
hagslífið í heild. Það er sígandi
lukka og jafn og hægur vöxtur,
sem getur bætt efnahagslegt
heilsufar þjóðarinnar.
Það versta við flensu er nefni-
lega það ef manni slær niður aft-
ur.
VERSLUN
—- Ný herrafata-
verslun, Herra-
fataverslun Birg-
is, var opnuð í
byijun febrúar að
Fákafeni 11. Eig-
endur eru Birgir
Georgsson sem
verið hefur versl-
unarstjóri í Herr-
aríki undanfarin 5
ár og Guðrún
Björnsdóttir, sem
hefur verið inn-
kaupastjóri fatn-
aðar hjá KRON og
Miklagarði undan-
farin 3 ár. Á boð-
stólnum eru
herrafatnaður frá
m.a. GANT, Web-
more, CAMEL og
Chris Martin og
verður lögð
áhersla á persónu-
lega þjónustu, að
sögn eigendanna.
EFTA
Lægstu ríkisstyrkir til
iðnaðar hér og í Sviss
OPINBERIR styrkir til iðnaðar í aðildarríkjum Fríverslunarbanda-
lags Evrópu, EFTA, sem hlutfall af landsframleiðslu eru lægstir á
íslandi og Sviss en hæstir í Noregi. Þetta kemur fram í nýlegri
skýrslu EFTA um viðskipti aðildarríkjanna á árinu 1988.
Ríkisstyrkir til iðnaðar jukust
verulega á áttunda áratugnum, eða
eftir olíukreppuna. Á síðasta áratug
var dregið nokkuð úr styrkjunum,
og hlutfallslega var mest dregið úr
þeim í Svíþjóð. I Noregi voru styrk-
irnir lítið breyttir.
ísland og Sviss h^fa nokkra sér-
stöðu meðal EFTA-landanna, en
þar eru ríkisstyrkir aðeins lítið brot
af landsframleiðslu og langt undir
meðaltalinu. Sem hlutfall af lands-
framleiðslu hafa styrkir til iðnaðar
verið nokkuð jafnir í Finnlandi, en
í Austurríki hafa þeir hins vegar
aukist.
Kynning
■ END URMENNTUNAR-
NEFND Háskóla íslands og
Tölvuháskóli Verslunarskólans
standa sameiginlega að kynningu
á gluggaumhverfum 27. febrúar
næstkomandi kl. 9:00-12:00. I
fréttatilkynningu segir að um-
hverfí einkatölva hafi verið að
breytast á undanförnum árum yfir
í grafískt gluggaumhverfi með
músastýringu. Á kynningunni
verður farið yfir kosti gluggaum-
hverfa, gerður samanburður á
þeim kerfum sem eru á markaðin-
um og kynnt þróunarumhverfi
þeirra. Fyrirlesari verður Stefán
Hrafiikelsson tölvuverkfræðingur
hjá Tölvumyndum hf. en hann
er einnig kennari við Tölvuhá-
skóla Verslunarskólans. Endur-
menntunarnefnd HÍ veitir allar
nánari upplýsingar.
UTSALA
SÍÐUSTU DAGAR
LAURA ASHLEY
gardínuefni/veggföður
og fatnaður
30—40% afsláttur
Ath: Versluhin verður lokuð
24. febrúar — 5. mars v/breytinga.
‘T^istan
Laugavegi 99, sími: 16646
Om heimsendingu lyfja
Ylirlýslng írá Apótekaraiélagi íslands
Vegna auglýsingaherferðar Laugavegsapóteks
áheimsendingu lyfja, vill Apótekarafélag íslands
taka eftirfarandi fram:
Lyfsalar á Reykjavíkursvæðinu hafa um árabil
sent lyf heim til sjúklinga í hverfum sínum þegar-
þörf hefur verið á. Þessi þjónusta hefur þó
aldrei verið auglýst, enda samræmast slíkar
auglýsingar ekki íslenskum lyfjalögum. Þá telur
, Apótekarafélagið að með afgreiðslumáta Lauga-
vegsapóteks sé verið að brjóta reglur um með-
ferð lyfja og skapa hættu á mistökum.
Virðingarfyllst.
Stjórn Apótekarafélags íslands.
JHQWGAV
RÖNNING
HJÁ RÖNIMING í KRINGLUNNI BÝÐST NÚ EINSTAKT TÆKIFÆRI
TIL AÐ EIGNAST SNOWCAP KÆLITÆKI Á GÓÐU VERÐI.