Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 40

Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 40
SYKURLAUSÍTjfjC ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Rynkeby HREINN APPELSÍNUSAFI Beið bana í vinnuslysi UNGUR maður, tæplega þrítug- ur, beið bana í vinnuslysi á Sel- tjarnarnesi í gær, þegar verið var að færa valtara upp á tengivagn flutningabíls. Slysið varð við Eiðismýri um klukkan 10 í gærmorgun. Verið var að vinna við að flytja valtara í burtu. Maðurinn, sem var starfsmaður Hagvirkis, ók honum upp á tengi- vagn flutningabfls eftir hallandi palli. Þegar valtarinn var kominn hálfa leið fór hann út af hallanum og valt niður fyrir metra hátt barð. Hann hafnaði á toppnum og lést ökumaður hans samstundis. Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu. Siglufjörður: Togari í fjöru TOGARINN Hjörleifur RE sigldi upp í Qöru við Siglufjarðarhöfn á sunnudag þegar bilun varð i skrúfubúnaði. Skrúfan hrökk í fulla ferð aftur á bak þegar togarinn var nýfarinn .-—ft'á bryggju. Dráttarbáturinn Goðinn dró Hjörleif aftur á flot og munu skemmdir vera óverulegar. Bandaríkjamarkaður: Stöðugt verð vegnaminnk- andi birgða Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Loðnumiðlun á miðunum Loðnuskipin moka upp loðnunni fyrir Suðurlandi um þessar mundir er miðlað á milli. Oft eru það hinir smærri, sem gefa þeim stóru eins og og gengur hratt á kvótann. Heilfrysting er hafin og hrognatakan tek- - á meðfylgjandi mynd. Þar nýtur stærsta skip flotans, Hólmaborg SU, ur svo við af henni og við það aukast verðmæti aflans enn frekar. þess að eitt hið minnsta, Björg Jónsdóttir ÞH, er aflögufær. Þegar vel gengur verða köstin oft stærri en lestarrými leyfír og þá Sjá nánari loðnufréttir á bls. 23 í dag. Fiskverðsákvörðun: BÚIST er við að verð á þorsk- blokk og þorskflökum á Banda- ríkjamarkaði verði stöðugt á næstunni, vegna þess að birgðir hafa minnkað mjög upp á síðkast- ið. Markaðssfræðingar telja að eftirspurn eftir öðrum fisktegund- um muni aukast i kjölfarið. Vegna minni þorskkvóta hjá helstu fiskveiðiþjóðunum er talið að birgðir af þorskblokk á Bandaríkja- markaði verði mun minni á þessu ári en árið áður. Þvi muni verð hald- ast stöðugt, og jafnvel hækka. En um leið óttast framleiðendur að ef verðið hækkar um of minnki eftir- spum neytenda. Verð á þorskblokk er nú um 1,6 til 1,65 dollarar á pundið en hefur farið upp í 1,7 dollara. Verð á þorsk- flökum er einnig stöðugt en nægar bha?ðir eru til af þeim. Aflamiðlun skilyrði þess að samkomulag geti tekist Yfírstjórn aflamiðlunar verði færð úr utanríkisráðuneyti og framseld hagsmunaaðilum ÁKVÖRÐUN um nýtt fískverð liggur nú þegar fyrir, en beðið er með að gera hana opinbera þar til Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur gefíð út reglugerð um flutning yfirstjóm- unar aflamiðlunar úr utanrikis- ráðuneytinu til sjávarútvegsráðu- neytisins. Yfimefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins kom saman til fundar kl. 18.15 í gær og fundaði um málið til kl. 21.30. Að sögn Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofhunar, sem er odda- maður i nefndinni og formaður hennar, kemur nefndin saman til Stálvinnslan hf.: Sfldarflokkunarvél seld í sovéskan togara UM helgina var sett síldarflokkunarvél frá Stálvinnslunni hf. í sovésk- an verksmiðjutogara. Nokkuð er um liðið, síðan sölusamningur var gerður og var ráðgert að afhenda vélina í Kaupmannahöfn um miðj- an nóvember sl., en togarinn kom fyrst til að sækja vélina á laugardag. Þráinn Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Stálvinnslunnar, sagði við Morgunblaðið í gær að um hefðbundna sfldarflokkunarvél íyrirtækisins væri að ræða, svokall- aða Stava-fiskflokkunarvél. Út- flutningur til Bandaríkjanna, Kanada, Danmerkur, írlands, Skot- lands og Noregs hefði verið reglu- legur í 20 ár og um 80 vélar seldar á síðustu 10 árum, en þetta væri sú fyrsta, sem færi í togara, og ætluðu Sovétmennirnir að nota hana til að flokka sfld og makríl. Stálvinnslan hefur einnig fram- Ieitt sérstakar vélar til að flokka lifandi lax, annars vegar fyrir seiði og hins vegar fyrir sláturlax. Ný- lega seldi fyrirtækið vél til Nýja Sjálands, sem notuð er til að flokka túnfísk, og önnur var seld til Port- úgal til að flokka kolkrabba, og sagði Þráinn að fyrstu viðbrögð lof- uðu góðu. fundar á nýjan leik kl. 14.30 í dag. Þórður sagðist gera sér von- ir um að heildarsamkomulag um fiskverð tækist og að oddamaður yrði þar með óþarfur, sem hann kvaðst telja besta háttinn. Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri SÍF og fulítrúi fisk- verkenda í yfímefndinni, hafði þetta að segja um fiskverðið: „Þetta er eins og að spila spil, þar sem annar aðilinn fær alltaf öll trompin á hend- ina, en hinn alla hundana. Sá, sem fær hundana, getur ekki spilað öðru vísi en að reyna að lágmarka tapið.“ Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun fiskverð hækka um 3%, auk þess sem greitt verður sér- stakt heimalöndunarálag á aflann frá 70 og upp í 100%. Þannig geta skipshafnir sem landa öllum afla sínum heima fengið 12% álag á hluta aflans. Gengið er út frá því að álag- ið verði 0,4% á hvert prósentustig umfram 70%. Fulltrúar fiskvinnsl- unnar vildu að álagsgreiðslur hæfust við 75. prósentustigið, en útvegs- menn og sjómenn höfðu betur í þeim átökum, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Yfírnefnd verðlagsráðs sjávarút- vegsins hefur sent forsætisráðherra bréf þar sem farið er fram á að ríkis- stjórnin standi við fyrirheit um afla- miðlun, sem gefið var í tengslum við kjarasamningana. Heimildir úr Verðlagsráði herma að krafan um að yfirstjóm aflamiðlunar verði flutt til sjávarútvegsráðuneytisins sé al- gjört skilyrði þess að samkomulag geti tekist. Sjávarútvegsráðuneytið myndi síðan framselja yfirstjórnina til hagsmunaaðila, sem þegar hafa náð samkomulagi um með hvaða hætti aflamiðlun verði stjórnað: út- gerðarmenn fengju tvo fulltrúa í aflamiðlunamefnd, fiskvinnslan einn, sjómenn einn og fiskverkunar- fólk einn. Markmið aflamiðlunar yrði m.a. að takmarka útflutning á ýsu og þorski, en ekki yrði sett þak á útflutning annarra fisktegunda. Fulltrúar fiskvinnslunnar vildu, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, að útflutningur á ferskum þorski og ýsu yrði ekki nema 50% þess magns sem hann var á sl. ári, eða 16 til 17 þúsund tonn í stað 32 þúsund tonna í fyrra. Seljendur hafa ekki viljað ljá máls á þessu, en þó virðist sem hagsmunaaðilar séu sammála um að jafnvel þótt ekki næðist nema 15 til 20% samdráttur í útflutningi á ferskum þorski og ýsu, þá væri það verulegur árangur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.