Morgunblaðið - 04.04.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 04.04.1990, Síða 1
56 SIÐUR B 79. tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Yiðræður EFTA og EB; Lagt á ráðin um næsta þátt viðræðna Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. RÁÐHERRAR £rá aðildarlöndum Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) voru sammála um það á fundi í Genf í gær, að ganga til formlegra samningaviðræðna við EVrópubandalagið (EB) um sameig- inlegt evrópskt efnahagssvæði (EES). Utanríkisráðherrar EB-land- anna ræddu þessar viðræður á fundi í Lúxemborg á mánudag. Hyggst framkvæmdastjórn bandalagsins afgreiða tiilögu um umboð samningamanna í formlegum viðræðum við EFTA á fúndi 10. apríl nk. Líklegt er að málið verði á dagskrá þings EB um miðjan maí, þannig að utanríkisráðherrar EB-landanna geta ekki tekið afstöðu til þess fyrr en í júní. Frans Andriessen sem fer með utanríkismál innan framkvæmda- stjórnar EB segir, að EFTA-ríkin hafi í undirbúningsviðræðum sett fram marga fyrirvara einkum varð- andi sjávarútveg og landbúnað en einnig í umhverfismálum. Vilji framkvæmdastjórnin að undanþág- ur verði eins fáar og frekast sé kostur. Jacques Poos, utanríkisráð- herra Lúxemborgar, segir, að Sjálfstæði frestað í Litháen? Moskvu. Washington. Reuter. ROMUALDAS Ozolas, að- stoðarforsætisráðherra Lit- háens, sagði í gær að Litháar væru reiðubúnir að fresta sjálfstæðistöku rikisins ef það mætti verða til þess að leysa deilur við Sovétstjórnina veg^na sjálfstæðisyfirlýsingar Litháens frá 11. mars. Þeir myndu þó aldrei fallast á að ómerkja yfirlýsinguna. Ozolas er leiðtogi þriggja manna sendinefndar Litháens sem fór í gær til Moskvu til þess að freista þess að fá við- ræður við Moskvustjórnina. Sta- sys Lozoraitis, sendifulltrúi Lit- háens í Bandaríkjunum, sagði á blaðamannafundi í gær, að Lit- háar væru rejðubúnir að semja um sjálfstæði i áföngum ef það mætti verða til að koma til móts við óskir Sovétstjómarinn- ar. Hún yrði þá að setjast að samningaborði og Litháar væru reiðubúnir að semja um nýjar tímasetningar. Þing Litháens samþykkti 24. mars sl. að fela Lozoraitis æðsta vald í málefnum landsins ef Sovétstjómin hindraði eðlileg störf ríkisstjómarinnar og þingsins. Edúard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, kom í gær til viðræðna við bandaríska ráðamenn. Við kom- una til Washington sagði hann að Sovétstjórnin væri tilbúin til „hreinskiptra viðræðna" við full- trúa Litháens um lausn deilunn- ar um sjálfstæði ríkisins. Heim- ildir hermdu í gær, að banda- rískir ráðamenn myndu setja málefni Litháens á oddinn í við- ræðum við Shevardnadze næstu daga. Sjá „Æðsta ráðið fjallar um frumvarp varðandi sam- bandsslit" á bls. 24. ágreiningur um það hvernig töku ákvarðana vegna EES skuli háttað geti hæglega leitt til óleysanlegra vandræða og haft í för með sér að ýmis ríki kysu að sækja um aðild að EB. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sem sat fund EFTA-ráðherranna í Genf sagði að honum loknum, að of mikið væri gert úr vandkvæðum vegna aðildar EFTA-ríkjanna að ákvörðunum inn- an EB og hið sama mætti segja um fyrirvara af hálfu EFTA-ríkjanna. Fríverslun með sjávarafurðir væri sameiginleg stefna EFTA-ríkjanna og það yrði látið á hana reyna í samningaviðræðum. Fyrst reyndi á ákvarðanaferilinn eftir að EES hefði verið komið á fót. Vildu EFTA-ríkin ekki sætta sig við ákvarðanir EB giltu þær ekki fyrir EES heldur einvörðungu EB. Jón Baldvin sagði, að menn minntust gjarnan á 60 blaðsíðna skýrslu EFTA, þegar rætt væri um fyrir- vara af þess hálfu. Þessi skýrsla væri samin til að nota innan EFTA en engum hefði dottið i hug að leggja hana fram á samningafundi við EB. Reuter Enga baltneska drengi í hernámsliðið Eistnesk kona með mótmælaspjald fyrir utan byggingar eistneska þingsins í Tallinn. Á spjaldinu stendur: Enga baltneska drengi í her- námsliðið. Þing Eistlands samþykkti ályktun í gær þar sem þess er krafist að Sovétstjórnin láti nú þegar af stjórnmálalegum og hemað- arlegum þrýstingi á Litháa og viðurkenni formlega sjálfstæðisyfirlýs- ingu þeirra frá 11. mars síðastliðnum. Tóbakið deyðir 500 millj. fyr- irárið2015 Perth. Reuter. ÁÆTLAÐ er, að 500 milljónir manna muni deyja af völdum tóbaksreykinga á næstu 25 árum. Kemur þetta fram í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, WHO, og telja höfúndarnir, að um aidamótin muni tóbakið taka fleirum gröf en nokkurt eitt atriði annað. „Nú deyja 8.000 manns daglega vegna reykinga en þegar börnin okkar verða komin á miðjan aldur verður talan komin upp í 28.000,“ sagði Richard Peto, höfundur skýrslunnar ásamt Alan Lopez. Bætti hann við, að héldi núver- andi þróun áfram myndu 200 millj- ónir manna undir tvítugu deyja af völdum reykinga fram til ársins 2015 og 300 milljónir fullorðins fólks. Er það niðurstaðan, að tó- baksfaraldurinn sé banvænni en alnæmið að því leyti, að hann deyði miklu fleiri. Þeir Lopez og Peto segjast hafa farið að öllu með gát í útreikning- um sínum, en komast samt að .því, að dauðsföll af völdum krabba- meins, hjarta- og lungnasjúkdóma muni að 30% verða rakin til tóbaks- notkunar þegar kemur fram yfir aldamótin. Dauðsföll af völdum reykinga eru nú flest í iðnvæddum löndum en því er spáð, að 2025 verði 70% þeirra í þróunarríkjun- um. Þingflokkur a-þýskra jafiiaðarmanna setur flokksforystunni stólinn fyrir dyrnar: Stefot að samsteypustjóm undir forystu kristilegra Austur-Berlín. Reuter. ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna í A-Þýskalandi snerist gegn tillögum forystu flokksins á fúndi á mánudigskvöld og ákvað að ganga til viðræðna við Kristilega demókraU um samsteypusljórn. Fyrr um daginn hafði flokksforystan mælt gegn stjórnarþátttöku en undirbún- ingsviðræður um ríkisstjórn hófust ím síðustu helgi. Talsmenn kristi- legra álíta að ný stjórn, án aðildar kommúnista, verði mynduð fyrir páska. Markus Meckel, sem tekið hefur við forystu jafnaðarmanna af Ibra- him Böhme, sagði í gær að flokks- menn settu skilyrði fyrir sam- steypustjórn með kristilegum og nokkrum öðrum flokkum. Meðal annars yrði flokkurinn að fá nokkur mikilvæg ráðuneyti, þ. á m. ut- anríkismálin, taka yrði verulegt til- lit til stefnumála hans og verka- skipting yrði að vera skýr milli sam- starfsflokkanna. Hann sagði helstu baráttumál jafnaðarmanna að tryggja að velferðarkerfi yrði ekki lagt af og Austur-Þjóðveijar myndu bera skarðan hlut frá borði er mynt- einingu þýsku ríkjanna yrði komið á. „Flokkur jafnaðarmanna vill styrka samsteypustjórn undir for- ystu Kristilegra demókrata svo að hagsmuna þjóðarinnar verði sem best gætt,“ sagði Meckel. Lothar de Maiziere, formaður kristilegra, hefur lýst því yfir að hann sé fús að taka að sér stjórnarforystu. Kristilegir telja víst að búið verði að mynda nýja stjórn fyrir páska, að líkindum 10. aprí!. Viðræður jafnaðarmanna og kristilegra, stærstu flokka landsins, hófust þegar í gær og sögðu tals- menn flokkanna að upphafið lofaði góðu. Leiðtogar jafnaðarmanna hafa verið mjög andvígir því að einn af samstarfsflokkum kristilegra, hægriflokkurinn DSU, fái aðild að stjórninni. Að sögn jafnaðarmanna notaði DSU óheiðarlegar aðferðir í kosningabaráttunni og sagði jafn- aðarmenn vera laumu-rauðliða sem væru réttkjörnir arftakar kommún- ista er réðu ríkjum í 40 ár í landinu. „Við eigum enn eftir að ræða hlut- verk og stöðu DSU í samsteypu- stjórninni," sagði Meckel á frétta- mannafundi í gær. Hann bætti því við að afsökunarbeiðni frá DSU myndi hjálpa til við að hreinsa and- rúmsloftið. Auk áðurnefndra þriggja flokka munu Lýðræðisvakning, er var í kosningabandalagi með kristileg- um, og Fijálsir demókratar taka þátt í stjómarmyndunarviðræðum. Eining er um að halda arftaka kommúnistaflokksins gamla utan við viðræðurnar. Vestur-þýska dagblaðið Frank- furter Allgemeine Zeitung sagði í gær að Ibrahim Böhme, sem sagt hefur af sér öllum trúnaðarstöðum fyrir jafnaðarmenn vegna ásakana um að hann hafi starfað fyrir ör- yggislögregluna Stasi, hafi reynt að fyrirfara sér. Blaðið segir að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús síðastliðinn föstudag með alvarleg höfuðsár eftir sjálfsvígstilraunina. Heimildarmenn úr röðum jafnaðar- manna vísa þessum fregnum á bug og segja Böhme dveljast hjá vinum og sé hann að ná sér eftir þráláta bólgu í eyra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.