Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990
Lýsi hf.:
Seldu lýsi í
rækjufóður
fyrir 50 millj.
á síðasta ári
LÝSI hf. seldi á síðasta ári sér-
unnið loðnulýsi lyrir um 50 millj-
ónir króna í rækjufóður í Thai-
landi, Taiwan og Indónesíu, og
einnig til fískeldis í Ástraliu. Að
sögn Ágústs Einarssonar for-
stjóra Lýsis hefur þegar verið
selt nokkuð magn til þessara
landa á þessu ári.
Ágúst sagði að hörð samkeppni
væri við Japani á þessum markaði,
en hann væri þó bjartsýnn á fram-
haldið þar sem'náðst hefðu góð við-
skiptasambönd, og þessi viðskipti
væru þegar orðin hluti af starfsemi
fyririrtækisins. Hann sagði að hjá
Lýsi hf. væri jafnframt hafin fram-
leiðsla á sérunnu loðnulýsi til mann-
eldis, sem meðal annars væri selt
til Noregs, en það væri notað við
niðursuðu matvæla í stað jurtaolíu.
Blönduóss-
búar kjósa um
áfengisútsölu
Blönduósi. °
BÆJARSTJÓRN Blönduóss sam-
þykkti á fundi sínum í gær svo-
fellda tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að sam-
hliða bæjarstjórnarkosningum þann
26. maí næstkomandi fari fram
atkvæðagreiðsla um afstöðu kjós-
enda til opnunar áfengisútsölu á
Blönduósi."
Allir bæjarfulltrúar voru sam-
þykkir þessari tillögu. Jón Sig.
Sveitarstj órnarkosningar:
Kosning utan
kjörstaða hafín
KOSNING utan kjörstaðar er
hafín í Reykjavík þó að enn séu
ekki allir listar komnir fram.
Kaus sá fyrsti um hádegisbilið á
þriðjudag.
Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla í
Reykjavík fer fram hjá embætti
borgarfógeta að Skógarhlíð 6.
Lausn í sjónmáli á
erfiðleikum Alafoss
Ríkisstjórnin eykur við víkjandi lán til fyrirtækisins
Iðnaðarráðherra segir að
fundin sé lausn á erfiðleikum
Álafoss hf. sem hann vonist til
að sé málsendir. Álafoss hafði
óskað eftir aðstoð ríkissljórnar-
innar vegna yfirvofandi gjald-
þrots.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
í gær^að að auka við víkjandi lán,
sem Álafossi hf. var veitt í fyrra,
sem nemur tugum milljóna, og
heimila fyrirtækinu afnot af
Hekluhúsinu, sem er í eigu ríkis-
ins, næstu tvö ár. Þá hafa stærstu
lánadrottnar Álafoss, Landsbank-
inn, Iðnlánasjóður og Iðnþróunar-
sjóður, samþykkt að yfirtaka
helstu fasteignir fyrirtækisins, og
létta þannig á skuldum. Loks
munu Atvinnutryggingasjóður og
Hlutafjársjóður standa við samtals
um 400 milljóna króna lánsloforð
sem veitt voru á síðasta ári, en
hætt var við vegna ótryggrar
framtíðar Álafoss.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagði við Morgunblaðið að helstu
lánadrottnar og aðstandendur
málsins telji þetta vera nægilegt
til að koma Álafossi hf. fyrir vind
og skapa svigi'úm til að koma á
raunverulegum úrbótum í rekstri
og markaðsátaki.
Skuldir Álafoss hf. nema, fyrir
þessar aðgérðir, rúmum tveimur
milljörðum króna. Fyrirtækið tap-
aði hálfum milljarði á síðasta ári.
Ammoníaksgeymir
verksmiðjunni.
Aburðar-
Samið í Aburðar-
verksmiðjunni
STARFSMENN Aburðaverk-
smiðjunnar í Gufunesi hafa sam-
Sigmundur Guðbjamason, rektor Háskóla íslands:
Könnum hvort breyta beri
stjórn Háskólasjóðsins
VERIÐ er að kanna það innan Háskóla ísiands hvort ástæða sé til
þess að breyta sljórn Háskólasjóðs Eimskips, en samkvæmt skipulags-
skrá sjóðsins er stjórn hans í höndum stjórnarformanns, varafor-
manns stjórnar og forsljóra hf. Eimskipafélags íslands. Sigmundur
Guðbjarnason, rektor Háskóla íslands sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að verið væri að kanna þetta innan Háskólans, með það fyr-
ir augum að tryggja það að hagsmunum Háskólans sé sem best borgið,
Háskólasjóðurinn er næststærsti
hluthafi Eimskips með 5,5% hluta-
fjáreignar. Tilgangur sjóðsins, sem
stofnaður var 1964 af Vestur-íslend-
ingum er að stuðla að velgengni
Háskólans og styrkja efnilega stúd-
enta til náms. „Síðustu árin hefur
sjóðurinn ekki styrkt stúdenta
beint,“ sagði Sigmundur. Helmingi
arðgreiðslu Háskólasjóðsins hefur
hins vegar verið varið til hlutabréfa-
kaupa í Eimskip. Sigmundur var
spurður hvort hann teldi að slíkt
stangaðist á við skipulagsskrá sjóðs-
ins: „Þetta er ekkert vandamál, frá
okkar sjónarhóli. Þetta er nokkuð
-almennt orðað í-skipulagsskránni og
tekjurnar hafa verið notaðar til þess
að efla starfsemi Háskólans með
ýmsu móti, þannig að við teljum að
við höfum notað féð með þeim hætti
sem tilgreint er í skipulagsskrá."
Sigmundur sagði að í kjölfar
þeirrar umræðu sem átt hefði sér
stað í þjóðfélaginu að undanförnu
um hlutabréfakaup og eign hefði
mikið verið hringt í Háskólann og
fram hefðu komið ábendingar og
kröfur um að Háskólinn léti kanna
hvort breyta bæri stjórn sjóðsins.
„Það er nú í athugun okkar færustu
lögfræðinga hvað sé ástæða til þess
að gera, ef nokkuðJ'.
þykkt kjarasamninga, sem gerðir
voru fyrir skömmu, með 48 at-
kvæðum gegn 17, en um helming-
ur starfsmanna tók þátt i at-
kvæðagreiðslunni. Kjarasamn-
ingurinn er á sömu nótum og
kjarasamningur Alþýðusam-
bands Islands og Vinnuveitenda-
sambands íslands, en þó útfærð-
ur með öðrum hætti.
Samningurinn felur í sér 5%
launahækkun á árinu eins.og kjara-
samningur ASÍ og VSÍ en þó með
nokkuð öðrum hætti. Starfsmenn í
Áburðaverksmiðjunni voru með
kjarasamning í gildi til febrúarloka
og höfðu fengið 2% launahækkun
í ársbyijun. Síðan kemur 1,5%
launahækkun frá 1. febrúar í stað
1,5% launahækkunar almennu
samningana 1. júní og 1,5% hækk-
un 1. desember í stað 2% hækkunar
almennu samninganna. Þá gildir
samningurinn til 1. nóvember 1991
í stað 1. september, eins og al-
mennu samningarnir kveða á um.
Sex verkalýðsfélög eiga aðild að
þessum samningum, Dagsbrún,
Framsókn, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur, auk félaga rafvirkja,
trésmiða og jámiðnaðarmanna.
Langstærstur hluti starfsmanna
Áburðai-verksmiðjunnar er í verka-
•mannafélaginu Dagshrún,
DAUÐ hrefna fannst rekin á fjömr sunnarlega á Alftanesi í gærmorgun. Þetta var ókynþroska kvendýr, 6,35 metrar á lengd og fullt af loðnu
pg sílum. Að sögn Atia Konráðssonar líffræðings hjá Hafrannsóknastofnun vom netaför á dýrinu og því líklegt að það hafí lent í neti og dmkknað.
I gærmorgun sást einnig búrhvalur fastur í netatrossu við Lundey á Kollafirði. Björgunarbátar Slysavarnafélagsins fóm á staðinn en þegar
netin vom dregin upp var hvalurinn á brottu. A myndinni em Atli Konráðsson, Sverrir Daníel Halldórsson og Sveinn Guðmundsson að skoða
hrefnuna á Álftanesfjöru.
Kemur sér vel því við
áttum enga íbúð fyrir
„MÉR þykir afskaplega líklegt að við flytjum inn í íbúðina,“ sagði
Sigurður Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi,
skömmu eftir að honum hafði verið tilkynnt að hann hefði unnið
hæsta vinninginn í Happdrætti DAS, íbúð við Jöklafold í Reykjavík.
„Þetta kemur sér vel því að við ina,“ sagði Sigurður.
áttum enga íbúð fyrir,“ sagði Sig-
urður. „Eg hef spilað í DAS í
fyölda ára og ekki unnið nema
einu sinni fimm þúsund krónur.
Þó missti ég einu sinni af milljón
króna vinningi þegar ég gleymdi
að endumýja. Svo setti ég miðann
á greiðslukort og hef ekkert vitað
af honum fyrr en það var hringt
9g sagt að ég hefði fengið íbúð-
Söluverðmæti íbúðarinnar er
um 10 milljónir króna, að sögn
Baldvins Jónssonar framkvæmda-
stjóra Happdrættis DAS. Baldvin
lætur af störfum þann 1. júní
næstkomandi eftir að hafa verið
framkvæmdastjóri Happdrættis
DAS frá upphafí 1954. Sigurður
Ágúst Sigurðsson hefur verið ráð-
inn til að taka við starfi Baldvins.
Hvalreki á Álftanesi
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Emelía
Frá afhendingu happdrættisíbúðar DAS við Jöklafold. Frá vinstri
Sigurður Ágúst Sigurðsson framkvæmdasfjóri Happdrættis DAS,
þá vinningshafarnir Guðríður Jónsdóttir og Sigurður Guðmunds-
son, og loks Baldvin Jónsson framkvæmdastjóri Happdrættis DAS.
Unnu íbúð í Happdrætti DAS: