Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990
Frumvarp um stjórnun fískveiða:
Verður að afgreið-
ast á þessu þingi
- segir Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra
FRUMVARPIÐ um stjórnun fisk-
veiða er enn statt í efri deild
Alþingis. Sjávarútvegsnefhdir
beggja deilda hafa að undan-
förnu átt viðtöl við hagsmunaað-
ila og einstaklinga um frumvarp-
ið og segist sjávarútvegsráð-
herra búast við því að nefndin í
efri deild taki það fljótlega til
sjálístæðrar athugunar. Frum-
varp um stjórnun fiskveiða hefúr
aldrei verið lagt fram jafii
snemma og nú hin síðustu ár.
Halldór Ásgrímsson segir, að
frumvarpið verði að fá afgreiðslu á
þessu þingi, en hvort svo verði, vilji
hann ekkert fullyrða um. Það fari
eftir gangi mála í þingi og hve lengi
það standi. Mjög skiptar skoðanir
hafi ætíð verið um stjórnun veið-
anna og misjafnlega gengið að ná
meirihluta á þinginu fyrir samþykkt
laganna.
„Síðustu ár hefur samþykkt lag-
anna ævinlega dregizt fram á
síðustu stundu. Að vísu hefur frum-
varpið fyrst verið lagt fram á haust-
in þar til nú, en sem dæmi um
gang mála má benda á að núgild-
andi lög voru ekki samþykkt fyrr
en í janúar 1988. Það var auðvitað
allt of seint og það er öllum fyrir
beztu að lögin liggi fyrir með mjög
góðum fyrirvara. Eg legg því
áherzlú á að afgreiðsla náist á þessu
þingi hvað sem verða kann. Undir-
búningur er nú lengra kominn en
nokkru sinni fyrr og því væri baga-
legt að samþykkt laganna dragist
fram á haustið," segir Halldór.
Morgunblaðið/Emilía
Minningargripir um Jón Sigurðsson
Hrafnseyramefnd afhenti hinn 3. apríl Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands grip sem nefndin hefur lát-
ið gera með lágmynd af Jóni Sigurðssyni forseta, sem felld er á valið fjörugijót frá Hrafnseyri við Arnar-
fjörð, en gripinn hannaði og smíðaði Steinþór Sigurðsson listmálari. Gert er ráð fyrir að láta vinna 200
samskonar gripi, sem verða til sölu í safni Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, en það verður opnað 17. júní eins
og úndanfarin ár. í ár eru 10 ár liðin síðan safnið var opnað og minningarkapella Jóns Sigurðssonar var
vígð, en heimsókn Vigdísar forseta til Hrafnseyrar við það tækifæri var eitt fyrsta embættisverk hennar.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Ágúst Böðvarsson, Jón Páll Halldórsson, Halldór Kristjánsson, Þórhallur
Ásgeirsson, formaður Hrafnseyrarnefndar, Steinþór Sigurðsson listmálari og Vigdís Finnbogadóttir forseti
íslands.
VEÐUR
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +13 heiðskírt
Reykjavík +10 léttskýjað
Bergen
Helsinki
Kaupmannah.
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Las Palmas
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
New York
Orlando
París
Róm
Vín
Washlngton
Winnipeg
súld
rigning
þokumóða
vantar
vantar
þokumóða
rigning
vantar
8 hálfskýjað
7 alskýjað
8 þokumóða
12 rigning
2 alskýjað
12 rigning
11 rigning
2 skýjað
11 rigning
vantar
1 léttskýjað
13 þokumóða
9 rigning
6 þokumóða
9 heiðskfrt
11 hálfskýjað
3 rigning
vantar
vantar
7 rigning
12 rigning
9 skýjað
11 rigning
0 skýjað
í DAG k/. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 4. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er vaxandi lægð
sem þokast austnorðaustur og mun fara hafa áhrif á veöur hér
við land í kvöld og nótt, fyrst þó suðvestanlands.
SPÁ: Austan- og suðaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi.
Slydduél suðvestanlands, en snjókoma eða él á Suður- og Vestur-
landi og sennilega einnig á Vestfjörðum. Skýjað en úrkomulítið á
Norður- og Austurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Austan- og norðaustan-
áttir um land allt. Él á Austfjörðum og á annesjum norðanlands,
en víðast úrkomulaust annars staðar. Léttskýjað á Vestur- og Suð-
vesturlandi. Hiti um eða rétt yfir frostmarki að deginum við suður-
og austurströndina, en annars frost á bilinu 2 til 7 stig.
TAKN:
Heiðskfrt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Siydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
»•*.*«*•
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
EE Poka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
Erfítt að manna sum læknishéruð:
Þarf að sameina læknis-
heruð og bæta launakjör
- segir formaður Læknafélags íslands
„LÆKNAFELAG Islands hefur bent á ýmsa kosti, sem gætu orðið
til þess að auðveldara yrði að manna læknishéruð en nú er. Við
teljum nauðsynlegt að bæta launakjör lækna í fámennum og afskekkt-
um héruðum og sameina læknishéruð þar sem þess er kostur,“ sagði
Haukur Þórðarson, formaður Læknafélags íslands, í samtali við
Morgunblaðið.
I Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Ólafi Ólafssyni, landlækni, að
sífellt yrði erfiðara að manna af-
skekktari læknishéruð. Eina ástæðu
þess taldi hann vera fjöldatakmark-
anir í læknadeild, svo færri læknar
útskrifuðust þaðan en áður. „Þetta
er vafalaust hvort tveggja rétt,“
sagði Haukur. „í raun er ekki skort-
ur á íslenskum læknum og það má
benda á, að í lok síðasta árs voru
285 læknar erlendis. Flestir þeirra
eru í sérnámi og ætla sér að flytja
heim aftur. Það eru margar ástæð-
ur fyrir því að illa gengur að manna
afskekktari læknishéruð. Sum þess-
ara umdæma eru fámenn og lækn-
ar eru ef til vill ekki spenntir fyrir
að dvelja þar sem verkefni eru fá
og einhæf. Þá hljóta launin að hafa
sitt að segja. Læknafélaginu finnst
að þar sem aðeins einn læknir situr
í héraði eigi að greiða honum með
öðrum hætti en annars staðar
tíðkast. Hann verður að fá hærri
grunnlaun, þar sem tekjumöguleik-
ar hans vegna ýmissa verkefna eru
litlir. Þá höfum við einnig bent á
að rétt væri að læknar á slíkum
stöðum fengju greitt sérstaklega
fyrir bakvaktir. Þeir fá greiðslur
núna, en þær eru mjög lágar. Það
verður að hafa í huga að læknir,
sem er einn í heilsugæsluumdæmi,
er mjög bundinn af starfi sínu og
alltaf á bakvakt."
Haukur sagði að sameina ætti
fámenn læknishéruð þar sem þess
væri kostur. „Það er ekki hægt að
fara fram á að einn og sami læknjr-
inn sé á vakt allan sólarhringinn,
allan ársins hring,“ sagði hann.
„Sums staðar eru landfræðilegir
Nýr vettvangur:
annmarkar á að sameina umdæmin,
eins og á Vestfjörðum, þar sem
bæir eru einangraðir yfir vetrart-
ímann. Sú skipan er þó á, að lækn-
ar á Suðureyri og Súðavík sitja á
ísafirði, en fara reglulega til þess-
ara staða.“
Haukur sagði að unnið væri að
úrbótum í þessum málum í samráði
við heilbrigðisráðuneytið, en þær
væru ekki í höfn enn.
Breiðafjarð-
arferjan af-
hent í dag
NÝJA Breiðafjarðarferjan
verður afhent í Akraneshöfii
klukkan 14 í dag. Fulltrúar
skipasmíðastöðvar Þorgeirs
og Ellerts afhenda sljórn
Flóabátsins Baldurs skipið
og síðan verður siglt til
Reykjavíkur.
Áætlað er að komið verði til
Reykjavíkur um klukkan 16.30
og eftir það verður skipið opið
almenningi til skoðunar í
Reykjavíkurhöfn. Hafnar-
mannvirki á Bijánslæk og í
Stykkishólmi eru tilbúin og
hefjast áætlunarsiglingar
næstu daga, fyrsta ferðin verð-
ur líklega á föstudag, að sögn
Tryggva Gunnarssonar hjá út-
gerðinni.
Sótt um lista bókstafinn H
NÝR vettvangur hefur sótt um
listabókstafinn H fyrir framboð
til borgarsljórnarkosninganna í
vor.
Prófkjör fyrir framboðið verður
um næstu helgi. í frétt Morgun-
blaðsins um frambjóðendur í gær
féll niður nafn Guðrúnar Jónsdóttur
' áf-kítfektá. f tiþþ1ýsingum*frá'-Nýjúnr
vettvangi tii Morgunblaðsins í
fyrradag voru frambjóðendur sagð-
ir 22, en alls eru frambjóðendur í
prófkjörinu 23.
Ekki hefur enn verið gengið frá
reglum um prófkjörið utan að kosið
verður bindandi í átta efstu sætin.
Samtök um nýjan vettvang verða
með kynningarfund á fimmtudags-
kvöld á Hótef Sögu. - •