Morgunblaðið - 04.04.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4, AJRRÍL 1990
7
Krýning Japanskeisara:
Óskað eftir
að forsetinn
verði full-
trúi Islands
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
síðustu viku að fara þess á leit
við forseta íslands lrú Vigdísi
Finnbogadóttur að hún verði fúll-
trúi Islands við krýningu Japans-
keisara þann 12. nóvember næst-
komandi.
Að sögn Kornelíusar Sigmunds-
sonar forsetaritara hefur ekki verið
endanlega gengið frá því að forset-
inn verði viðstaddur athöfnina, en
hann sagðist búast við að svo verði.
Fyrirvarinn væri langur og því
nægur tími til að skipuleggja Jap-
ansför forsetans.
Norræni menn-
ingarsjóðurinn:
Islendingar
fá rúma 1
milljón kr.
NORRÆNI menningarsjóðurinn
hefúr ákveðið að veita 45 norr-
ænum aðilum samtals 2,914 miHj-
ónir danskra króna, eða rúmar
27 milljónir íslenskra króna, í
styrki. Þar af fá þrír íslenskir
aðilar samtals 110 þúsund dan-
skar krónur, eða rúma eina millj-
ón íslenskra króna. Hlutverk
sjóðsins er að styðja norræna
samvinnu á sviði rannsókna,
kennslu og menningar.
Norræni menningarsjóðurinn
hefur ákveðið að veita eftirtöldum
íslenskum aðilum styrki:
Félag íslenskra handavinnukenn-
ara fær 40 þúsund danskar krónur,
eða 376 þúsund íslenskar krónur,
vegna námskeiðs fyrir norræna
handavinnu- og vefnaðarkennara.
Þá fær Sigrún Magnúsdóttir, bóka-
safni Háskólans á Akureyri, 30
þúsund danskar krónur, eða 282
þúsund íslenskar krónur, til að
bjóða þrem norrænum fyrirlesurum
á ráðstefnu um íslensk bókfræði.
Gísli Pálsson, félagsvísindadeild
Háskóla íslands, fær 40 þúsund
danskar krónur, eða 376 þúsund
íslenskar krónur, vegna alþjóðlegu
ráðstefnunnar „Frá sögu til samfé-
lags“.
Stjórn Norræna menningarsjóðs-
ins skipa 10 menn, einn þingmaður
og einn embættismaður frá hverju
Norðurlandanna fyrir sig, sem vald-
ir eru af Norðurlandaráði og ríkis-
stjórnum Norðurlandanna.
Fegurðarsamkeppni:
Tvær stúlk-
ur keppa
erlendis á
næstunni
TVÆR íslenzkar stúlkur halda á
næstunni til Bandarikjanna og
Sovétríkjanna til þátttöku í feg-
urðarsamkeppni.
Hildur Dungal frá Reykjavík,
sem varð númer tvö í Fegurðarsam-
keppni íslands 1989, fer til Los
Angeles til þátttöku í keppninni
Miss universe 15. apríl. Þá fer Guð-
rún Eyjólfsdóttir frá Akranesi til
Leningrad til að taka þátt í nýrri
fegurðarkeppni sem ber heitið Miss
charm. Guðrún varð í 3. sæti í Feg-
urðarsamkeppni Islands í fyrra.
Það er alltaf öruggara
að líta á málið frá öllum hliðum
Litum til dæmis á húsbréf.
Húsbréf eru rfkistryggö skuldabréf, gefin út af Byggingarsjóði ríkisins til seljanda
fasteignar (skiptum fyrir skuldabréf sem er gefiö út af kaupanda fasteignarinnar. í fljótu bragði má
ætla aö lítill munur sé á verðbréfafyrirtækjum þegar viöskipti meö húsbréf
eru annars vegar. En þaö er öðru nær.
Landsbréf eru nýtt, framsækið og traust verðbréfafyrirtæki sem gegnir forystuhlutverki f
viðskiptum með húsbréf. í sérstökum samningi Landsbréfa og Húsnæðisstofnunar er kveðið á um
að Landsbréf greiði fyrir og tryggi örugg viðskipti með húsbréf. Þetta greinir Landsbréf frá
öllum öðrum verðbréfafyrirtækjum.
Það er sama frá hvaða hlið er litið á málið. Hvort sem þú vilt kaupa eða selja húsbréf,
þá gengur þaö hvergi hraðar og betur en hjá Landsbréfum.
Vertu - með Landsbréfum - í forystuhlutverki.
M
LANDSBRÉF
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24 • Sími 91 -606080
og öll útibú Landsbanka íslands
Upplýsingasími um veró húsbréfa er 91-606081