Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 18

Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990 Stalín ræður ennþá ríkjum á Islandi - að minnsta kosti í íslenskum landbúnaði eftir Svein Guðmundsson í þessu greinarkorni vil ég byija á því að birta greinargerð um Til- raunastöðina á Reykhólum sem Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttar- lögmaður, gerði fyrir Reykhóla- hrepp 1984. „Minnisgreinar um lög nr. 57/1944 um tilraunastöð í jarðrækt á Reykhólum. 1. í framangreindum lögum sem eru í gildi segir að reisa skuli skv. lögum nr. 64/1940 um rannsónir og tilraunir í þágu landbúnaðarins tilraunastöð í jarðrækt á Reykhól- um. í lögum nr. 57/1944 er hlut- verk tilraunastöðvarinnar ekki frek- ar skilgreint. 2. L. nr. 64/1940 voru leyst af hólmi með lögum nr. 64/1965 um rannsóknir í þágu atvinnuveganna en í V. kafla þeirra eru ákvæði um Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins. 3. í 36. gr. síðastnefndra laga segir að ríkið skuli fá umráð yfir þeim tilraunastöðvum á sviði land- búnaðar sem ríkið á. Síðan segir í 36. gr. I. mgr. laganna: „Þar skulu framkvæmdar tilraunir í jarðrækt, búfjárrækt, heyverkun og öðru sem stjórn stofnunarinnar ákveður." 4. Enginn vafi er á því að ákvæði 36. gr. 1. nr. 64/1965 eiga við um tilraunastöðina á Reykhólum. Ekki eru í lögunum nein ákvæði, sem banna þar tilraunir í búfjárrækt, heldur er þar beinlínis fyrirmælt að slíkar tilraunir skuli þar fram fara. Reykjavík, 14. febrúar 1984, Ragnar Aðalsteinsson hrl.“ Eg hélt að stjóm RALA (Rann- sóknastofnun landbúnaðarins) væri búin að læra það að henni ber að fara eftir lögum eins og öðmm ís- lendingum. Ég get ekki séð að stjórn RALA hafi nokkum lagarétt í:i i---a gera tilraunastöðina að dánarbúi og selja hæstbjóðanda eignir hennar. Meðal annars er stjóm RALA búin að flytja stöðu- gildi tilraunastjórans á Reykhólum suður að Hesti og það er gert án lagaheimildar. Einnig er búið að segja upp ráðsmanni. Stjórn RALA get ég sagt það að jafnvel Landbún- aðarráðuneytið hefur engan rétt til að leggja niður stöðina á Reykhól- um. Til þess þarf einfaldlega málið að fara gegnum Alþingi. Það er því of snemmt fyrir aðstandendur RALA að kaupa kransinn og vera við útförina. Því miður verður ekki hjá því komist að gera ofurlitla úttekt á RALA. Stjórn hennar er skipuð þremur framóknarmönnum sem hafa þegið „frama“ sinn vegna trú- ar á Framsóknarflokkinn. Hins veg- ar er það álit mitt að Framsóknar- flokkurinn hafi hætt að vera lands- byggðaflokkur þegar formaður flokksins hætti að vera þingmaður á landsbyggðinni og flutti höfuð- stöðvar sínar suður á Miðnesheiði. Að mínum dómi er Framsóknar- flokkurinn ábyrgur fyrir aðförinni að tilraunastöðinni. Nú hefur tilraunastöðin frekar verið geymslustaður hin síðari ár fyrir hvíta féð. Allt er þar í niður- níðslu. Hús og önnur mannvirki fá ekki eðlilegt viðhald en það er eng- in nýlunda að eignir ríkisins eru látnar drabbast niður. Nú neitar fjárveitingavaldið því að hafa ekki lagt nóg fé til þess að reka tilraunastöðina áfram. Það fjármagn hefur ekki skilað sér þangað. Hver gæti ástæðan verið? Mín skoðun er sú að RALA líti frekar á sig sem reykvíska stofnun en stofnun í þágu bænda og þar með þjóðarinnar allrar. Nær allar nýjungar í íslenskum iandbúnaði höfum við þegið erlend-' is frá. Sú skoðun gæti þó verið röng vegna þess að Búnaðarfélag Islands hefur ekki komið til skila því sem gert er á RALA. Búnaðarfélag ís- lands gefur út þijú rit a.m.k. Það er Freyr, Handbók bænda og Bún- aðarritið. Mín skoðun er sú að eitt gott erindi sé meira virði en stórar bækur sem menn setja upp í bóka- skáp. Sannleikurinn er sá að við hér fyrir vestan verðum lítið varir við annan ráðunaut en ráðunaut æðar- ræktar, enda ber starf hans góðan ávöxt. Til hvers eru tilrauna- stöðvarnar á Reykhólum og Skriðuklaustri? Ég mun að þessu sinni halda mig við vinnuaðferðir Jóns Baldvins og segja í l.-lagi og í 2. lagi og segja bæði A og B. 1. Sé ekki tilraunastarfsemin höfð meðal bændanna sjálfra þá er hætt við að hún nái ekki því mark- miði sem henni var ætlað. Sé ætlun þjóðfélagsins að leggja íslenskan landbúnað niður, þá á fyrst að byija á stofnunum landbúnaðarins sem starfa í Reykjavík. Þar er RALA engin undantekning. 2. Hvíta féð og hreinhvít ull eru undirstaða þess að hægt sé að starf- rækja ullarverksmiðjuna Álafoss með nokkru viti. I Álafossverk- smiðjuna er þegar búið að leggja á annan milljarð án þess að undirstað- an sé trygg. Á sama tíma er lítið hugsað um ullina og gætu bænda- skólarnir unnið þar stórvirki með því að kenna bændaefnum að greina sundur illhærulausa ull frá gulri ull með hvítum og gulum illhærum. Einnig_ skiptir grófleiki ullar miklu máli. Álafoss og Gefjun hafa ekki haldið vöku sinni. Ónýt ull hefur verið f alltof háu verði sé miðað við skástu ullina. Einnig gætu ráðu- nautar frá búnaðarsamböndunum og Búnaðarfélagi íslands kennt bændum að gera sér grein fyrir því hvernig góð ull á að vera. Sveinn Guðmundsson „Ég get ekki séð að stjórn RALA hafi nokk- urn lagarétt til þess að gera tilraunastöðina að dánarbúi og selja hæst- bjóðanda eignir henn- ar“ Það er heldur engin afsökun fyr- ir RALA að flytja fullvirðisrétt frá Reykhólum og suður að Hesti. Þörf hvers tilraunabús þarf að meta hveiju sinni og svo er það mál hverrar ríkisstjórnar að meta hvort þeir láti henda afurðunum eftir að mælingar hafi farið fram eða mark- aðssetja vörurnar. Bændur og neyt- endur skiptir harla litlu máli hvort 12 til 15 hundruð ærgildum er fleira í landinu eða ekki. Þá er komið að bókstöfunum: A) RALA vill hafa allar tilraunir á Hesti í Borgarfírði enda er hann í námunda við Hvanneyri. Að sjálf- sögðu er Hestur alls maklegur en sá er galli á gjöf Njarðar að Hestur er á gamaveikisvæði. Ef til niður- skurðar kæmi þá er það röng kenn- ing og byggð á fáfræði að lítill vandi sé að fá fé frá bændum og halda af stað þar sem frá var horf- ið. Þeir segja þá með óbeinum orð- um að tilraúnastöðin á Hesti hafi ekkert gagn gert. Ekki efast ég um að Hestbúið hafi gert gagn þó að ýmsar forsendur hafi breyst. Nú vill þjóðin ekki feitt kjöt. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að fleiri en Þýðingar í myndmiðlum eftir Gauta Kristmannsson Undanfarið hafa þýðingar verið mikið til umræðu og er það vel. Mikill hluti lesefnis landsmanna er þýtt efni í sjónvarpi, kvikmyndahús- um og á prenti. Það getur þess vegna skipt sköpum fyrir þróun íslenskrar tungu að þýðingar séu vel úr garði gerðar, ekki síst þar sem ungviðið hefur þær fyrir aug- um og eyrum svo að segja daglega. Það er hins vegar broslegt að sjá gagnrýni eins og þá sem „Leikmað- ur“ skrifar í Velvakanda þriðjudag- inn 13. mars. Þar telur hann helst- an löst á sjónvarpsþýðingum vera að þær séu ekki orðabókarþýðing- ar. Eins og öllum ætti að vera kunn- ugt hefur samhengi alltaf mikil áhrif á merkingu orða og ætli menn sér einungis að nota orðabókar- merkingu við þýðingar verða þeir fljótt að athlægi. (Eða hvernig færi „Leikmaður" að því að þýða beint slangur eins when the shit hits the fan“?) „Leikmaður“ hnýtir líka í „áráttu þýðenda að geta aldrei þýtt titia beint eða eðlilega". Ég býð honum hér með upp á nokkrar beinar þýð- ingar á titlum sjónvarpsþátta eða mynda. „Holocaust" útleggst þá sem „Gjöreyðingin" ekki satt? Nei, „Helförin" er miklu betri þýðing, í senn skáldlegri og nákvæmari. „Who is the Boss“ yrði í meðförum „Leikmanns" að „Hver er stjórinn?" en ekki „Hver á að ráða?“ og „Frenzy“ yrði að líkindum „Æði“ en ekki „óðafár". Þáttaröðin „Crazy Like a Fox“ hefði líkast til útlagst „Bijálaður eins og refur“ ef reglum „Leikmanns" væri fylgt í þýðingum. (Hins vegar var téður Fox gamall karl og það sást aldrei til refs í þáttaröðinni". Ég læt honum hins vegar- eftir sjálfum að þýða beint nafnið á þáttaröðinni „Berlin Game, Mexico Set & London Match“. En það var ekki ætlunin að fjalla um orðbókarþýðingar í þessari grein heldur þýðingar í myndmiðl- um almennt. Þar er víða pottur brotinn að margra dómi. Undir þá gagnrýni má taka að sumu leyti, en þó tel ég ekki rétt að setja alla þýðendur undir sama hatt. Víst er um það að þýðingar eru misjafnar en hver ber ábyrgðina? Ef við lítum á myndmiðlamark- aðinn eins og hann er í dag má sjá að hann skiptist nokkum veginn í þrennt: sjónvarp, myndbönd og kvikmyndahús. Ég ætla ekki að setjast í dómarasæti og sakfella einn og sýkna annan, en mig lang- ar að bera saman vinnubrögðin við þýðingar á hinum ýmsu miðlum og læt síðan lesendum eftir að dæma hver séu æskilegust. Undirritaður vill taka fram að hann þýðir ein- göngu fyrir Sjónvarpið og byggir þennan samanburð á upplýsingum frá fólki sem vinnur við hina ýmsu miðla. A. Sjónvarpið. Þýðandi fær í hendur myndband og handric (ef til er) og skoðar myndina. Því næst er myndin þýdd, skilað inn á tölvu- disklingi og textinn prófarkalesinn af íslenskufræðingi. Þýðandinn set- ur síðan textánn sjálfur inn á mynd- ina, æfir innsláttinn og les yfir. Við þessa vinnu gefst honum færi á að laga hugsanlegar þýðingarvillur sem prófarkalesari sér vitaskuld ekki, stytta textana og endurtaka textunina ef textinn kemur of snemma eða seint inn. Þýðandinn fær síðan greitt fyrir skoðun og textun í tímavinnu ásamt tilteknu gjaldi fyrir hvem texta. B. Stöð 2. Sömu vinnubrögð og hjá Sjónvarpinu fram að því að setja skal textann inn á myndina, þ.e. skoðun, þýðing og prófarkalestur. Tæknimenn annast hins vegar text- unina. Þýðandinn fær aðeins greitt textagjald, ekki fyrir skoðun. C. Myndbönd. Þýðandi fær myndband og handrit og þýðir síðan. Myndin er síðan textuð af tæknimönnum og fjölfölduð á myndbönd. Þýðandinn fær greitt fast gjald fyrir myndina, óháð textafjölda, lengd eða þyngd. D. Kvikmyndahús. Þýðandi fær í hendur handrit og skoðar myndina í kvikmyndahúsinu. Textinn er síðan vélritaður inn í vél sem brenn- ir hann inn á filmuna og verður því ekki aftur snúið ef hann fer inn á röngum stað. (Þessi tækni er orðin áratugagömul og hlýtur eitthvað betra að vera komið í staðinn.) Þýðandi fær greitt fast gjald fyrir myndina. Eins og sjá má af þessarí stuttu yfirferð er textinn „mishrár“ þegar hann kemur til lesandans, en ég tel afleitt þegar prófarkalestri og ann- arri yfirferð er sleppt. Þetta eru hlutir sem kostar mjög lítið að laga. Á hinn bógiiín tél ég að gera Gauti Kristmannsson „Færa má rök fyrir því að mikið framboð óreyndra þýðenda á hlálegum launum og . lítill metnaður sumra dreifingaraðila grafi undan gerð íslensks efnis vegna þess hve kostnaðarhlutfallið er því óhagstætt.“ megi betur á öllum fyrrgreindum stöðum og taka upp t.d. aðferð sem tíðkast á Norðurlöndum þar sem einn þýðir og textar eftir prófarka- lestur og annar þýðandi fer síðan yfir myndina textaða og færir ábendingar í handrit.' Þýðandinn sjálfur fer síðan sjálfur einu sinni yfír að lokum áður en mynd er tilbú- einn stofn megi vera til í landinu. Rangt er að alhæfa allt. B) Þeir á Reykhólum og Skriðu- klaustri hafa lagt meiri áherslu á ullargæði en kjötmagn sem ekki var vanþörf á. Hins vegar hefur líka verið lögð áhersla á kjötgæði og fijósemi. Ég efast ekki um að bragðlaukar manna geri lítinn mun á dilkakjöti frá Hesti og Reykhól- um. Fijósemi í Reykhólafénu er mik- il. Mjólkurlægni mikil og ærnar eru frábærar mæður og óvenju gott er að venja undir missi þær lamb eða lömb. Ég minnist þess að Runólfur Sveinsson, skólastjóri á Hvanneyri, sagði að það tæki að minnsta kosti eina öld að ná árangri í búfjár- rækt. Halldór Pálsson, búnaðar- málastjóri, lagði grunninn að Hest- búinu. Hann var kennari minn í sauðfjárrækt og þar að auki vann ég nokkurn tíma með honum og ég veit að hann hefði orðið hryggur yfír þeirri skammsýni RALA- manna að vilja eyðileggja allt nema Hestbúið. Hann var leitandi vísinda- maður, en ég efast um að sú hug- sjón ráði ríkjum hjá RALA í dag. Ég verð að játa að það fer um mig gleðitilfínning þegar ég horfi yfir Reykhólaféð. Þar er saman- komið eitt fallegasta fé landsins. Skilyrðislaust á framræktun að vera þar og hvað eru 1 til 2 milljón- ir í viðbót við allt sem á undan er gengið? Að lokum Nú verð ég að játa að stjórn RALA virkar á mig sem sé hún óvinveitt sauðfjárbændum. Ég trúi því ekki að stjórn RALA verði leyft að bijóta lög. Það að leggja niður tilraunastöðina á Reykhólum verður aðeins gert með lögum frá Alþingi. Sem betur fer hafa framkvæmda- stjóri og stjórn RALA ekki ennþá löggjafarvald og þó að þeir vilji taka sér framkvæmdavald þá verða þeir að gera það með samþykki Alþingis. Sú tilraunastöð sem var sett á fót með sérstökum lögum verður ekki aflögð nema með sér- stökum lögum. Ég fordæmi þann hugsunarhátt sem ég hef heimildir fyrir að einn af forystumönnum RALA hafi sýnt með orðunum: „Ég er ekki neinn andskotans Iandsbyggðarmaður." Höfundur er kennari og bóndi og býr í Miðhúsum í Reykhólasveit. in til sýningar. Þetta eru að sönnu flóknari vinnubrögð en miklu líklegri til góðs árangurs og þess vegna æskilegri. Staðreyndin er nefnilega sú að þýtt myndefni er svo ódýrt að það hlýtur að vera freisting fyrir dreif- ingaraðila að birta það í löngum bunum frekar en íslenskt efni sem er margfalt dýrara. Færa má rök fyrir því að mikið framboð óreyndra þýðenda á hlálegum launum og lítill metnaður sumra dreifíngaraðila grafi undan gerð íslensks efnis vegna þess hve kostnaðarhlutfallið er því óhagstætt. Dæmin ættu að sanna þetta og hér í Morgunblaðinu var meira að segja talað um „afþreyingarstöðv- ar“ og þá átt við einkasjónvarps- stöðvarnar. Á þá íslensk menning einungis að birtast í Ríkisútvarpinu af því það er ekki hægt að græða nógu mikið á henni á meðan „fijálsu“ stöðvarnar dæla út tugum klukkustunda af útlendu efni í viku hverri? Samkvæmt því er menning- arleg ábyrgð einkastöðva lítil sem engin og fái gróðasjónarmið ein að ráða er víst að íslensk tunga og menning eiga undir högg að sækja. En hvað er þá til ráða? Á að skylda sjónvarpsstöðvar til að birta a.m.k. 50% íslenskt efni? Hvað yrði þá um myndböndin og þýðingar á þeim? Raunhæfasta lausnin hlýtur að vera sú að gera einhveijar lág- markskröfur til þýðenda útlends myndefnis. Það yrði til þess að óprúttnir dreifingaraðilar gætu ekki lengur fengið saklausa viðvaninga til að skella einhveijum texta á myndir og rekið þá samdægurs ef þeir eru með einhver uppsteyt. Höfvndur er formaður Félags sjónvarpsþýðenda hjá RÚV.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.