Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 19

Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990 19 Lýðræðisleg flokksskipan eftir Guttorm P. Einarsson Það er mikið gleðiefni að borgar- málanefnd Borgaraflokksins í Reykjavík hefur tekið þá ákvörðun að efna til opins prófkjörs um upp- stillingu á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. A sama hátt og mikill meirihluti landsmanna telur það skyldu æðstu ráðamanna þjóðarinnar að láta fag- legt mat ráða ferðinni þegar valið er í áhrifamikil embætti, en ekki gerræðisleg flokksbönd, þá er það einnig skoðun alls þorra lands- manna að kjósendur eigi sjálfir að fá að velja frambjóðendur á lista og raða þeim upp_ í krafti lýðræðis- iegs prófkjörs. Á sama tíma og gömlu ijórflokkarnir hafa snúið baki við kjósendum sínum og svipt þá þessum ákvörðunarrétti með ein- þykkum ákvörðunum fárra manna að setja fram og raða upp sínum mönnum á lista, í krafti eigin duttl- unga og geðþótta, hefur Borgara- flokkurinn í Reykjavík sagt þessum öflum stríð á hendur og efnt til opins prófkjörs. Auðna ein ræður hvort flokkar eru stórir eða litlir og vissulega markast það í veigam- iklum atriðum af þeim mönnum sem fara fyrir flokkum hveiju sinni, hvaða baráttumál þeir setja á odd- inn fyrir flokk sinn og kjósendur, en grundvallaratriðið er að flokks- menn fái sjálfir að velja þá fram- bjóðendur sem best treysta til að fylgja málum sínum fram. Að öðr- um kosti er hætta á því að annar- leg sjónarmið fárra manna og ef til vill sérgæðingsleg viðhorf þeirra móti allt framferði þeirra sem óhjá- kvæmilega verður túlkað sem stefna og vilji flokksmanna. Fijálst og opið prófkjör kemur í veg fyrir þetta að svo miklu leyti sem slíkt er unnt. Ef kjósendum líkar ekki frammistaða forystunnar eiga þeir þann eina kost að breyta stöðu þeirra innan flokksins í prófkjöri og einnig geta þeir komið á fram- færi nýjum og frambærilegum for- ystumönnum á sama hátt. Með ein- ræði þröngra uppstillingarnefnda Guttormur P. Einarsson „Grundvallaratriðið er að flokksmenn fái sjálf- ir að velja þá frambjóð- endur sem þeir best treysta til að fylgja málum sínum fram.“ er girt fyrir þessa möguleika og þar með er búið að ijúfa sambandið á milli flokksmanna og forystu. Borg- araflokkurinn var ekki síst stofnað- ur til þess að tryggja kjósendum hans þennan rétt, hvort heldur það er lítilmagninn eða stórbokkinn skiptir einu, allir skulu hafa sama rétt. Sé það skoðun manna að Borg- araflokkurinn eigi aðeins fáa og smáa kjósendur, þá er að taka því og vinna málum framgang af drenglyndi og heilindum og missa ekki sjónar á þeirri staðreynd að flokksforysta er og verður ekki til án þess að kjósendur flokka velji hana, en vilji forystan svipta fólkið því valdi, klippir hún á þráðinn að ofan og hlýtur að falla í duftið eins og köngulóin í dæmisögunni forðum daga. Höfundur er ritari Borgaraflokksins. ■ Á FUNDI bæjarstjórnar Hafn- arljarðar var nýlega samþykkt ályktun þar sem segir að nú sem fyrr telji bæjarstjórnin að besti val- kostur fyrir byggingu nýs álvers sé í Straumsvík. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafi tekið þátt í viðræð- um og samningum við Atlantal- hópinn á umliðnum árum í tíð fyrri ríkisstjórna, og málið gengið vel fram. Allar forsendur fyrir slíkum samningum og að framkvæmdir gætu hafist mjög fljótlega í Straumsvík séu fyrir hendi. í álykt- uninni segir orðrétt: „Bæjarstjórnin gengur út frá því að afstaða íslenskra stjórnvalda nú, sem er í samræmi við stefnu síðustu ríkis- stjórna, sé óbreytt. Það á engu að breyta í þessum efnum, þótt nýr samstarfsaðili komi inn í Átlantal- hópinn á síðustu stigum málsins. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mun ganga fast fram í því að fyrri yfir- lýsingar um málið standi, og mun ekki láta sitt eftir liggja að sem allra fyrst náist viðunandi samning- ar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar um byggingu nýs álvers í Straumsvík. GS GoldStcir ER-5054 D örbylgjuofnar eru 20 lítra, 530 W, meö 7 styrkstillingum og 30 mín. klukku. Fást hvítir eða drapplitir. H:324 x B: 495 x D: 353 mm. Verð: 25S80F' kr. 22.083,-kr. Kr. 19.990,- stgr. GoldStcir ER-535 MD örbylgjuofnar eru 20 Iftra, 530 W, með lOstyrkstillingum og99 mín. tölvuklukku. Fásthvítir eða drapplitir. H: 243 x B: 430 x D: 300 mm. Verð: -27S507- kr. 23.758, kr. Kr. 21.990,- stgr. O 0 GoldStcir ER-654 MD örbylgjuofnar eru 28 lítra, 650 W, með lOstyrkstillingum og 99 mín. tölvuklukku. Fást hvítir eða brúnir. H:326 x B:544 x D: 377 mm. Verð: J34S7VF kr. 29.640,- kr. Kr. 27.890,- stgr. GS A thugiö: Takmarkað magn ! GoldStcir ER-9350 D örbylgjuofnar eru 25 lítra, 650 W, með 7 styrkstill., 60 mín. klukku og grilli, tilað brúna og baka matinn. Fásthvítireða brúnir. H: 362 x B: 546 x D: 437 mm. Verð: -59S5Ö7- kr. 50.958,- kr. Kr. 47.960,- stgr. tökum \)ol n VISA Samkort ■ ■ Orbylgjuofnar a páskatilboðsverði i ■ greiðslukjör til allt að 12 mán. SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 • Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl. KYNNIN6 A K.E.W. HKÞRYSTHUELIIM - MARGAR GERfllR K.E11/I Sérfræðingar K.E.W. verða ó staðnum 3. og 4. apríl fró kl. 14.00-18.00 báða dagana * Hobby heimilisdælan lítil handhæg og þægileg + Stærri og kraftmeiri dælur fyrir fyrirtæki og stofnanir * Eins fasa, þriggja fasa og bensíndrifnar dælur * Mikið úrval fylgi- og aukahluta * Góð viðgerðor- og varahlutaþjónusta Kynningarverð á Hobby dælu REKSTRARVORUR Réttarhálsi 2, 110 Rvík. - símar 31956-685554-Fax 687116 • Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.