Morgunblaðið - 04.04.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990
29
Samninganefiid starfsmanna ISAL:
Starfsmönnum hefiir fækkað
verulega og framleiðsla aukist
DAGINN áður en vinnustöðvun hófst hjá ÍSAL, föstudaginn 30. mars,
er viðtal við dr. Roth forstjóra ísal í Morgunblaðinu með yfirskrift-
inni „Ekki deilt um peninga". Þar ræðir forstjórinn m.a. um starfs-
mennina, fyrirtækið og samningamálin. Vegna þessa viðtals telur
samninganeftid verkalýðsfélaganna óhjákvæmilegt að koma eftirfar-
andi á framfæri.
1. Starfsmenn ÍSAL
I viðtalinu eru starfsmennirnir
bornir þeim sökum að hafa stundað
fjárkúgun og þvingunaraðgerðir
gagnvart fyrirtækinu sl. 20 ár og
ótilgreindir hópar eru sakaðir um
hyskni í vinnu. Ásökunum um fjár-
kúgun starfsmanna hefur . verið
svarað sérstaklega. í viðtalinu segir
orðrétt m.a.: „Auk þess höfum við
greitt starfsmönnum okkar 0,5%
launahækkun vegna samkomulags
við þá um að þeir hætti kaffihléum.
Þeir fá nú greitt samkvæmt því en
engin kaffihlé hafa verið lögð nið-
ur.“ Þessi ummæli verða ekki skilin
öðruvísi en svo að starfsmenn hafi
ekki staðið við gerðan samning um
að leggja niður kaffihlé en fái samt
sem áður umsamdar greiðslur. Þessi
fullyrðing forstjórans er alröng. Hér
er um að ræða greiðslur vegna
sparnaðar og betri nýting vinnutíma
vegna kaffihléa sem búið er að fella
niður og hafa ekki verið tekin upp
aftur. Um þetta hefur aldrei verið
neinn ágreiningur, samningsákvæð-
ið er skýrt og furðulegt að slíku
skuli haldið fram eins og reyndar
ýmsu öðru í þessu viðtali. Þá er
fullyrt að hópar starfsmanna vinni
aðeins 2-3 klst. á dag og afkasti
engu meiru nú en fyrir 20 árum
þrátt fyrir tæknibreytingar. Slíkar
fullyrðingar ef réttar væru lýsa því
að meira en lítið er bogið við skipu-
lagningu og stjórnun í fyrirtækinu.
Staðreynd málsins er sú að starfs-
mönnum í einstökum hópum í heild
sinni hefur fækkað verulega og
framleiðsla aukist. Það skal skýrt
tekið fram, að í kjarasamningi við
ísal eru engin samningsákvæði um
tiltekinn fjölda starfsmanna í heild
eða einstökum störfum.
2. Fyrirtækið
í öðru lagi er dregin upp sú mynd
af fyrirtækinu að það hafi frum-
kvæði að launahækkunum og fé-
lagslegum úrbótum fyrir starfs-
menn. í viðtalinu er beinlínis sagt
að þær framieiðslutengdu launa-
greiðslur sem eru í kjarasamningi
en ÍSAL/VSÍ neitar að framlengja
hafi verið greiddar í „þakklætis-
skyni við starfsmenn“. Staðreyndin
er sú að þessi atriði eru tilkomin
vegna kröfu frá starfsmönnum og
hafa náðst fram í samningum und-
anfarinna ára. Til þess að dr. Roth
njóti sannmælis er rétt að taka fram
að hann hafði jákvæða afstöðu í
viðræðum um sérstaka vinnustöð
fyrir starfsmenn sem af heilsufars-
ástæðum geta ekki lengur unnið við
erfíðar aðstæður í fyrirtækinu og
það sama gilti um afstöðu hans til
flýtingu starfsloka.
3. Samningarnir
í þriðja lagi fjallar viðtalið um
þá kjaradeilu sem nú er uppi í álver-
inu og snýst um það að VSÍ/ÍSAL
neita að framlengja samningsgrein
um tengsl launa og framleiðslu.
Forstjórinn gefur sér það sem for-
sendu að framlenging á samnings-
greininni sé brot á samningi ASÍ/
VSÍ frá 1. febrúar. Þetta sé grund-
vallarregla sem þeir brjóti ekki og
því sé málið allt á ábyrgð verkalýðs-
félaganna. Á öðrum stað í viðtalinu
segir orðrétt „fyrir tveimur vikum
buðum við starfsmönnum nánast
sömu upphæð og fólgin var í „ein-
greiðslunni" í fyrra“. Af þessu er
ljóst að annað hvort er grundvallar-
reglan fyrirsláttur eða hún skiptir
ekki máli ef ÍSAL hefur fyrir sér
aukinn hagnað vegna fækkunar
starfsmanna.
Það er alvarlegt mál þegar for-
stjóri gefur í skyn að samninga-
nefnd verkalýðsfélaganna sé með
kröfum og boðun vinnustöðvunar
að ganga þvert á þá yfirlýsingu sem
fram kemur í 2. mgr. 1. gr. ASI/
VSÍ samnings frá 1. febrúar en þar
stendur: „Fullti'úar í samninga-
nefndum og þau félög og sambönd,
sem að samningnum standa munu
gera sitt ítrasta til að fá framlengt
þeim kjarasamningum, sem nú eru
í gildi, með þeim ákvæðum og efni,
sem í samningi þessum felast fyrir
5. mars nk.“
Ábyrgð samningsaðila er jöfn.
Samninganefnd verkalýðsfélaganna
hefur staðið við ofangreint ákvæði
og þá stefnu sem mörkuð var í
ASI/VSI samningi 1. febrúar og
starfsmenn ÍSAL hafa samþykkt
að fara þá leið.
Það er hins vegar ljóst af viðtai-
inu við forstjórann að hann hafnar
því að framlengja kjarasamningi
með þeim framleiðslutengdu launa-
bótum sem í honum eru. Vinnuveit-
endasambandið hefur þá skyldu að
fá ÍSAL sem er aðili að VSÍ til að
framlengja kjarasamninginn.
Veitingahúsið við Bláa lónið
Grindavík:
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Nýtt veitingahús hefur
opnað við Bláa lónið
Grindavík.
VÍKURLÓN hf. í Grindavík hefúr opnað nýjan veitingastað við
Bláa lónið. Staðurinn stendur rétt vestan við Hótel Bláa lónið.
Guðjón Jónsson, einn eigend- akstur til og frá veitingastað.
anna, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að líklega verði staðurinn
nefndur Veitingahúsið við Bláa
lónið. Hann sagði að boðið yrði
upp á fjölbreyttan matseðil með
fisk- og kjötréttum auk þess að
vera með austurlenskan matseðil.
Þá sagði Guðjón að matsala yrði
fyrir hótelgesti Bláa lónsins. Ýmis
þjónusta verður við matargesti ss.
Matsalurinn á nýja veitinga-
staðnum er í gamla kaupfélags-
húsinu sem var flutt frá Grindavík
en í viðbyggingu eru anddyri og
eldhús.
„Það verður okkur keppikefli
að gera alla ánægða með matinn
og þjónustuna og kannski ekki
síst umhverfið," sagði Guðjón að
lokum. pó
Þyrluvinafélag’ið stofhað
STOFNAÐ hefiir verið félag áhugamanna um björgun og sjúkraflutn-
inga með loftförum á íslandi. Félagið neftiist Þyrluvinafélagið.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
I 3. apríl.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 82,00 80,00 , 81,07 8,580 695.540
Þorskur(óst) 90,00 50,00 81,44 4,452 362.583
Ýsa 118,00 118,00 118,00 1,888 222.784
Ýsa (ósl.) 50,00 50,00 50,00 0,041 2.050
Karfi 44,00 44,00 44,00 0,982 43.208
Ufsi 41,00 40,00 40,13 1,129 45.309
Steinbítur(óst) 45,00 43,00 43,78 0,417 18.255
Langa 49,00 49,00 49,00 0,260 12.730
Keila (ósl.) 28,00 28,00 28,00 0,533 14.924
Koli 70,00 70,00 70,00 0,054 3.780
Skötuselur 200,00 195,00 197,15 0,065 12.815
Rauðmagi 100,00 100,00 100,00 0,049 4.900
Hrogn 140,00 140,00 140,00 0,322 45.080
Samtals 80,32 19,003 1.526.265
i dag verða meðal annars seld 33 tonn af þorski og 36 tonn af ýsu.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 83,00 76,00 80,76 51,426 4.153.279
Þorskur(óst) 76,00 32,00 72,00 22,527 1.621.852
Ýsa 110,00 50,00 93,37 37,925 3.541.037
Ýsa (ósl.) 104,00 50,00 96,68 8,130 785.990
Karfi 45,50 42,00 43,51 18,220 792.742
Ufsi 42,00 38,00 41,07 22,805 936.599
Hlýri+steinb. 42,00 38,00 41,46 4,430 183.660
Langa 50,00 50,00 50,00 1,100 55.000
Lúða 360,00 305,00 344,92 0,062 21.385
Skarkoli 38,00 20,00 23,65 0,138 3.264
Keila 25,00 25,00 25,00 0,296 7.400
Skata 90,00 90,00 90,00 0,016 1.440
Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,064 12.800
Rauðmagi 70,00 34,00 54,87 0,842 46.199
Kinnar 120,00 120,00 120,00 0,040 4.800
Hrogn 190,00 2,00 107,93 8,541 921.800
Samtals 74,09 176,767 13.096.172
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 109,00 50,00 78,53 85,883 6.744.819
Ýsa 97,00 45,00 76,03 34,410 2.616.253
Karfi 43,00 20,00 39,61 7,227 286.282
Ufsi 33,00 15,00 32,39 12,974 420.290
Steinbítur 39,00 27,00 36,06 7,670 276.577
Hlýri 27,00 27,00 27,00 0,089 2.403
Langa 59,00 25,00 57,59 0,385 22.171
Lúða 310,00 195,00 249,17 0,817 203.575
Skarkoli 50,00 23,00 42,76 2,198 93.987
Sandkoli 3,80 3,80 3,80 ■ 0,250 950
Keila 26,00 12,00 22,19 0,522 11.581
Gellur 200,00 200,00 200,00 0,032 6.400
Samtals 69,98 152,965 10.703.790
Selt var meðal annars úr Gnúpi GK. í dag verða meðal annars seld 35 tonn.
| aðallega af þorski, úr Skarfi GK.
í fréttatilkynningu segir:
„Markmið félagsins er að stuðla
að framþróun í björgun og sjúkra-
flutningum með loftförum. Meðal
stofnfélaga eru flestir þeir sem
starfað hafa við Þyrluvakt Land-
helgisgæzlunnar á undanförnum
árum, þar á meðal flugmenn, stýri-
menn, flugvirkjar og læknar. Meðal
stofnfélaga eru einnig ýmsir aðrir
sem sýnt hafa þessum málefnum
mikinn áhuga.
Félagið mun beita sér fyrir að
kynna og efla þá starfsemi sem
þegar fer fram á vegum Landhelgis-
gæzlu Islands. Meðal áhugamála
félagsins er einnig að stuðla að
aukinni menntun og hæfni þeirra
sem starfa að þessum málum á ís-
landi. Félagið vill vekja athygli
landsmanna á því að þessi starfsemi
hefur margoft sannað gíldi sitt og
á einungis eftir að eflast á komandi
árum.
Nýkjörin stjórn félagsins ákvað
á fyrsta fundi sínum að beita sér
fyrir stofnun sjóðs sem taka mun
við áheitum og gjöfum sem berast.
Sjóðnum verður ætlað að stuðla að
því að á hveijum tíma hafi Flug-
gæzla Landhelgisgæzlunnar á að
skipa bezta tækjakosti sem völ er
á. Sérstök áherzla verður lögð á
tæki er tryggja sem öruggasta
björgun og flutning sjúkra og slas-
aðra með loftförum Landhelgis-
gæzlunnar. Einnig mun sjóðnum
ætlað að stuðla að aukinni mennt-
un, þjálfun og sérþekkingu áhafnar-
meðlima.
Á stofnfundi félagsins var Páll
Halldórsson yfirflugstjóri kjörinn
heiðursfélagi fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf að uppbyggingu Þyrlu-
vaktar Landhelgisgæzlunnar.
Stjórn Þyrluvinafélagsins var
kjörin á stofnfundi og hana skipa:
Friðrik Sigurbergsson formaður,
Guðmundur Björnsson varaformað-J
ur, Ragnar Bjarnason ritari, Axel
Sigurðsson gjaldkeri og Felix Vals-
son meðstjórnandi.“
Ráðstefiia um uppeldi og
menntun forskólabarna
FÓSTRUFÉLAG íslands gengst fyrir opinni ráðsteftiu á Hótel Loft-
leiðum dagana 5.-7. apríl næstkomandi um uppeldi og menntun for-
skólabarna og hlutverk leikskólans í nútíð og framtíð.
Skipta má inntaki ráðstefnunnar
í þijá meginþætti; uppbyggingu,
rekstur og framtíðaráform sveitar-
félaga, fræðilega upplestra um leik-
skólauppeldi, fyrirlestra um hag-
Leiðrétting
I myndlistargagni'ýni í blaðinu í
gær er sagt að sýningu Kristbergs
Péturssonar í Listhúsinu einn einn
ljúki 4. apríl. Þetta er ekki rétt.
Sýningunni lýkur þann 8. apríl.
nýtt uppeldisstarf á leikskólum.
Samkvæmt nýjum lögum um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga, sem tóku gildi um síðastliðin
áramót, sjá nú sveitarfélögin alfarið
um uppbyggingu og rekstur leik-
skóla. Því óskaði Fóstrufélag ís-
lands eftir samstarfi við þau sveit-
arfélög sem nú þegar reka leik-
skóla. Um það bil 40 sveitarfélög
taka þátt í ráðstefnunni.
Rúmlega 400 manns sitja ráð-
stefnuna í heild, auk þess sem
margir munu hlusta á einstaka fyr-
irlestra.
Námsvaka í
Einholtsskóla
NEMENDUR og kennarar við
Einholtsskóla í Iieykjavík efna til
sólarhrings námsvökú í skólan-
um fimmtudaginn 5. apríl.
Einholtsskóli er sérskóli á grunn-
skólastigi fyrir 15 unglinga sem af
ýmsum félagslegum ástæðum hafa
ekki getað nýtt sem skyldi námsað-
stöðu í almennum grunnskóla.
Nemendur hafa ákveðið auk
átaks í námi á vökunni að leita
peningaáheita til þess að kaupa
námsgögn í skólann svo sem sjón-
varpstæki og myndbandstökuvél.
Vonast nemendur til að vinveitt
fyrirtæki og einstaklingar styðji við
framtakið. Tekið verður á móti pen-
ingaáheitum í síma 623711 alla
námsvökuna, sem hefst 5. apríl kl.
9 árdegis.
■ BO Arne Skjöld, fyrrum lektor
við Kennaraháskólann í Stokk-
hólmi, flytur opinberan fyrirlestur
í boði Heimspekideildar Háskóla
íslands og Norræna hússins
fimmtudaginn 5. apríl kl. 20.30 í
Norræna húsinu. Fyrirlesturinn
nefnist „Carl Michael Bellman
250 ár“ og verður fluttur á sænsku.
Bo Arne Skjöld hefur starfað sem
lektor í sænsku, fyrst í menntaskól-
um í Stokkhólmi, en u.þ.b. síðustu
25 árin við Kennaraháskólann í
Stokkhólmi. Rannsóknir hans hafa
aðallega beinst að höfuðskáldi Svía,
Carl Michael Bellman. Einnig hefur
hann stundað rannsóknir á því
hvernig megi bæta kennsluaðferðir
til að ná virkri þátttöku nemenda
í tímum. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
■ STOFNFUNDUR kattarækt-
arfélags verður haldinn að Hall-
veigarstöðum fimmtudaginn 5.
apríl kl. 20. Allir sem hafa áhuga
á kattarækt eru velkomnir. Til-
gangur félagsins er að kynna katta-
ræktun á Islandi með fundum fé-
lagsmanna, kattasýningum, útgáfu
á fréttabréfi, skráningu katta, út-
gáfu á ættartölum og að vinna með
öðrum kattafélögum um baráttu
fyrir málefnum katta.