Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990
Heldur fækkað á
atvinnuleysisskrá
NOKKUR fækkun hefur orðið á atvinnuleysisskrá á milli mánaða-
móta, eða um 40 manns. Nú um mánaðamótin voru 308 skráðir at-
vinnulausir, en voru 347 í lok febrúar.
Sigrún Bjömsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunar segir að
ástandið sé heldur skárra en það
hafi verið, en vissulega sé enn mik-
ið atvinnuleysi ríkjandi á Akureyri.
Samkvæmt skráningu Vinnu-
miðlunar síðasta dag marsmánaðar
voru 308 skráðir atvinnulausir, 193
karlar og 111 konur, en við mán-
aðamótin þar á undan voru 214
karlar atvinnulausir og 133 konur.
Nokkur fækkun hefur orðið á
atvinnuiausum verkamönnum, en
nú eru 45 konur og 63 karlar úr
Verkalýðsfélaginu Einingu atvinnu-
iaus, eða samtais 108 manns. í Iðju,
félagi verksmiðjufólks, eru 22 kon-
ur án atvinnu og 26 karlar eða
samtals 48. Þá eru 40 iðnaðar-
menn, allt karlar, skráðir atvinnu-
lausir.
í Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks eru 62 án atvinnu, 38 konur
og 24 karlar, og segir Sigrún að
ástandið virðist einna verst í þjón-
ustugreinunum og minnst hreyfing
út af atvinnuleysisskránni.
Vör hf.:
• •
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikfélag VMA frumsýndi í gærkvöld leikritið „Góða sálin í Sesúan" eftir Bertholt Brecht.
Leikfélag VMA:
Sýnir Góðu sálina í Sesúan
Ollum starfsmönn-
um sagt upp störfiim
VÖR hf. hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki, 26 að tölu, og taka
uppsagnirnar gildi 1. júlí næstkomandi. Ástæða uppsagnanna er
fyrirsjáanlegur verkefhaskortur hjá fyrirtækinu.
STÆLT og stolið, Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri, firum-
sýndi í gærkvöld verkið „Góða sálin í Sesúan" eftir Bertholt
Brecht.
Önnur sýning á verkinu verður,
annað kvöld, fimmtudagskvöldið
5. apríl, og þriðja sýning verður
á laugardag, 7. apríl. Allar sýn-
ingarnar hefjast kl. 20.00. Boðið
verður upp á sætaferðir frá Eyrar-
landsholti kl. 19.30. í verkinu er
fjallað um baráttu góðs og ills og
taka 16 leikendur þátt í sýning-
unm.
Hallgrímur Skaptason fram-
kvæmdastjóri sagði að afar dauft
virtist framundan hvað verkefni
varðar og fyrirsjáanlegur verkefna-
skortur. Hann sagði að í kjölfar
uppsagnanna yrði fyrirtækið endur-
skipulagt. „Við ætlum að skoða
okkar gang á næstunni, en því
miður virðist vera dauft framundan
á þeim vettvangi sem við störfum
á,“ sagði Hallgrímur.
Bæjarstjórn:
Þrjú íþróttafélög fá greiddar
samtals 15,5 milljónir króna
Skiptar skoðanir á milli bæjarfulltrúa um skiptingu peninganna á milli félaga
BÆJARSTJÖRN Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær samning
við þrjú íþróttafélög, Skautafélag Akureyrar, íþróttafélagið Þór og
Golfklúbb Akureyrar, en á fjárhagsáætlun þessa árs verður varið
15,5 milljónum króna. Á fúndi bæjarstjórnar i gær urðu allheitar
umræður um skiptingu peninganna.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri skýrði
rammasamning sem gerður
var
milli Akureyrarbæjar og Iþrótta-
T ónlistarskólinn:
Einleikstón-
leikar á sal
HELGA Steinunn Torfadóttir,
fiðlunemandi við Tónlistarskólann
á Akureyri, verður með einleiks-
tónleika á sal skólans fimmtudags-
kvöldið 5. apríl kl. 20.30.
Á efnisskránni eru þættir úr ein-
leikssvítu eftir Bach og fiðlukonsert
eftir Mozart, lög eftir Josef Suk og
Sarasate og Sónata eftir Jón Nor-
dal. Kristinn Örn Kristinsson leikur
með á píanó. Helga hefur stundað
fiðlunám við tónlistarskólann síðast-
liðin 11 ár og er núverandi kennari
hennar Lilja Hjaltadóttir.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
Elín Kjartansdóttir, sem skipar
5. sæti á lista Alþýðubandalagsins
til bæjarstjómarkosninga á Akur-
eyri í vor, var titluð iðnverkakona
í frétt af framboðslistanum sem
birtist hér í blaðinu gær. Elín hafði
samband við blaðið og bað um að
starfsheiti sitt yrði iðnverkamaður
og leiðréttist það hér með um leið
og hún er beðin velvirðingar.
bandalags Akureyrar og undirritað-
ur var í febrúar síðastliðnum.
Samningurinn er tilkominn í kjölfar
breytinga á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, en eftir að lögin tóku
gildi er bygging íþróttamannvirkja
alfarið á könnu sveitarfélaganna.
Samningurinn við íþróttafélagið
Þór er samtals upp á 18 milljónir
króna, en til útborgunar á þessu
ári eru 6,2 milljónir króna. Fénu
verður varið til að ijúka íþróttaað-
stöðu í félagsheimilinu Hamri, en
samningur um lok á félagsaðstöðu
hefur ekki verið gerður. Heildar-
kostnaður við íþróttaaðstöðuna er
um 24 milljónir, en bærinn greiðir
75% af kostnaði, eða um 18 milljón-
ir.
Frá Skautafélagi Akureyrar kom
ósk um styrk vegna framkvæmda
sem félagið hefur þegar farið í, en
einnig hefur þess verið farið á leit
að bærinn taki þátt í byggingu
búningsaðstöðu við skautasvellið,
en áætlaður kostnaður við bygging-
una er um 3,5 milljónir króna.
Skautafélagið fær tæplega 3 millj-
ónir króna greiddar á þessu ári.
í máli bæjarstjóra kom fram að
Golfklúbbur Akureyrar hefur ráðist
í miklar framkvæmdir á síðustu
árum og er fjárhagsstaða hans erf-
ið. Klúbburinn hafi beðið um aðstoð
við að greiða niður skuldir. Samn-
ingur hefur verið gerður við Golf-
klúbb Akureyrar um að bærinn
greiði alls 15,6 milljónir miðað við
verðlag í janúar síðastliðnum, en á
þessu ári verða greiddar 6,2 milljón-
ir króna. Golfklúbburinn hefur
skuldbundið sig til að ráðast ekki
í framkvæmdir á næstu árum.
Engar greiðslur koma til Knatt-
spyrnufélags Akureyrar við þessa
fyrstu úthlutun, sem kemur til af
því að félagið stendur ekki í fram-
kvæmdum um þessar mundir. Sig-
fús sagði að rætt hefði verið við
forsvarsmenn KA um áframhald-
andi framkvæmdir og þá fyrst og
fremst varðandi byggingu íþrótta-
húss sem jafnframt myndi nýtast
nemendum Lundarskóla.
Bæjarfulltrúar fögnuðu sam-
komulaginu við íþróttafélögin, en
voru ekki á einu máli um skiptingu
þess fjár sem til ráðstöfunar er nú.
Sigríður Stefánsdóttir (G) sagðist
alls ekki geta sætt sig við að Golf-
klúbburinn hefði forgang umfram
önnur félög, hún væri ekki á móti
því að styrkja klúbbinn, en þegar
ekki væru nægir peningar til svo
allir fengju eitthvað væri skynsam-
legra að byggja upp fram í tímann.
Endalaus verkefni lægu fyrir á sviði
íþrótta- ,og útivistarmála. Gísli
Bragi Hjartarson (A) sagði Golf-
klúbbinn hafa lent í miklum hrakn-
ingum og hann hefði byggt upp
þijá golfvelli á starfstíma sínum.
Þá sagði Gísli Bragi að klúbburinn
hefði varið 44,9 milljónum króna
til framkvæmda við völlinn á árun-
um 1980-1990, völlurinn væri sá
nyrsti í heimi og þangað kæmu
margir erlendir kylfingar sem bæn-
um hlyti að vera akkur í.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjómar sagði að aldrei væri
hægt að gera öllum til hæfis, en
tvö félaganna sem nú hlytu styrk
frá bænum skulduðu mikið og þann
vanda þyrfti að leysa. Félögin hefðu
farið út í viðamiklar framkvæmdir
sem þau ekki hefðu bolmagn til að
greiða og því treyst á að bæjarfé-
lagið kæmi til aðstoðar.
Fyrirtækið hefur starfrækt járn-
smíðaverkstæði, trésmíðaverkstæði
og verktakastarfsemi í jarðvinnslu
og sprengingum og einnig veitt
bátum og fiskiskipum þjónustu m.a.
varðandi viðgerðir.
Álver verði
við EyjaQörð
Á aðalfundi Akureyrardeildar
KEA var samþykkt ályktun þar
sem þeim tilmælum er beint til
ríkisstjórnar og Alþingis að
væntanlegt álver verði byggt við
Eyjafjörð.
I ályktuninni er þeim eindregnu
tilmælum beint til ríkisstjómar og
Alþingis að beita sér fyrir því að
væntanlegt álver verði byggt við
Eyjafjörð, en ekki á suðvesturhomi
landsins. „Bygging álvers á suð-
vesturhorninu myndi leiða til mestu
byggðaröskunar í sögu íslensku
þjóðarinnar og getur því ekki talist
þjóðhagslega hagkvæm fram-
kvæmd,“ segir í ályktuninni.
Heiniild til að
reka sjúkrahótel
AKUREYRARDEILD Rauða
kross íslands hefur verið veitt
heimild til að reka sjúkrahótel og
er ætlunin að starfsemi þess hefj-
ist á næstunni.
Úlfar Hauksson formaður Akur-
eyrardeildar Rauða krossins sagði
að vegna ítrekaðra fyrirspurna hafi
deildin óskað eftir leyfi frá heilbrigð-
isráðuneyti til að gera tilraun rekstr-
ar sjúkrahótels á Akureyri. Leyfið
hefur nú verið veitt.
Deildin hefur fengið eigendur
hússins númer 5 við Skólastíg til að
taka að sér reksturinn og í fyrstu
verður boðið upp á fjögur rúm á
sjúkrahótelinu.
Krossanesverksmiðj-
an verður byggð upp
ÁKVEÐIÐ hefúr verið að ráðast í endurbyggingu Krossanesverk-
smiðjunnar, en sem kunnugt er varð hún eldi að bráð á gamlárs-
dag. Málefni verksmiðjunnar hafa síðan verið til umljöllunar hjá
bæjarstjórn og stjórn verksmiðjunnar.
Samningur hefur náðst við út- smiðjunni. Skipin munu leggja upp
gerðir fimm loðnuskipa, Súlunnar hráefni hjá verksmiðjunni á næstu
EA, Þórðar Jónassonar EA, Arnar árum.
KE, Svans RE og að líkindum verð- Hlutafé upp á 100 milljónir króna
ur Erling RE einnig hluthafi í verk- verður afskrifað, en AkÐreyrai'bær
mun leggja fram nýtt hlutafé upp
á 200 milljónir kiona, helmings
þess fjár verður aflað með lántöku,
en afgangurinn verður yfirtaka
skulda.
Útgerðir skipanna fimm munu
leggja fram 15 milljóna króna
hlutafé og þau tilnefna einn mann
í stjórn fyrirtækisins.