Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990
31
Sjálfstæðismenn í neðri deild:
Flotgallar verði undan-
þegnir virðisaukaskatti
ÁRNI Johnsen (S/Sl) hefur ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í neðri deild Alþingis lagt fram frumvarp til laga, sem
felur í sér að sala á flotvinnubúningum, sem fullnægja kröfiim
Siglingamálastofhunar, verði undanþegin virðisaukaskatti.
I greinargerð með frumvarpinu og hvatt til þess að efla öryggi
segir: „Á undanförnum misserum
hefur það ítrekað bjargað lífi sjó-
manna sem hafa fallið fyrir borð
á hafi úti að vera klæddir flot-
vinnubúningum. Flotvinnubún-
inga er ekki skylt að hafa í fiski-
skipum en Siglingamálastofnun
hefur viðurkennt flotgallana sem
öryggistæki með reglugerð frá 28.
júlí 1989. Siglingamálastofnun er
eini umsagnaraðilinn á landinu um
öryggisbúnað sjómanna.
Fjölmennur fundur sjómanns-
kvenna í Vestmannaeyjum vakti
fyrst athygli á því hve óeðlilegt
væri að leggja virðisaukaskatt á
það öryggistæki sem flotvinnu-
búningurinn er og getur skipt
sköpum um lífsmöguleika sjó-
manna. Nemendur Stýrimanna-
skólans fylgdu í kjölfarið og segja
meðal annars í skjali sem þeir
hafa afhent fjármálaráðherra, for-
seta sameinaðs Alþingis og alþing-
ismönnum: „Við getum ekki sætt
okkur við að greiða virðisauka-
skatt af möguleika okkar til að
lifa.“
Þá segir í greinargerðinni: „Sjó-
mannskonur um allt land hafa
vakið athygli á mikilvægi málsins
sjómanna. Þá heldur dr. Jóhann
Áxelsson prófessor í lífeðlisfræði
því fram út frá rannsóknum á of-
kælingu að flotgallar geti ráðið
úrslitum um lífslíkur sjómanna
sem lenda í hrakningum.
Siglingamálastofnun hefur nú
þegar viðurkennt þijár tegundir
flotvinnubúninga sem uppfylla
kröfur um einangi-un og flot-
hæfni. Öll rök mæla með því að
flotvinnubúningar séu undanþegn-
ir virðisaukaskatti. Þeir eru viður-
kennd öryggistæki, það er rík
ástæða til að hvetja til notkunar
þeirra og því eðlilegt að lækka svo
sem mögulegt er kostnað sjó-
manna við öflun slíkra öryggis-
tækja. Björgunarbúningar sem eru
um borð í skipaflota landsmanna
henta ekki sem vinnugallar en það
gera flotvinnubúningar sem
reynslan hefur sýnt á undanförn-
um mánuðum að ráðið hafa úrslit-
um um björgun mannslífa. Óviðun-
andi er að skattleggja öryggi sjó-
manna sem búa við mesta slysat-
íðni allra starfsgreina í landinu.
Slík lagabreyting, sem hér er lögð
til, er knýjandi til þess að efla og
Ráðherra sagði við umræður í
deildinni, að leggja ætti sjóðinn
niður til einföldunar og til þess
að bæta hag lagmetisiðnaðarins.
Eignir sjóðsins ættu annars vegar
að renna beint til framleiðenda og
söluaðila og hins vegar til Iðnlána-
sjóðs, auk þess sem 1% gjald, sem
þeir hafa greitt til sjóðsins yrði
auðvelda öryggi sjómannastéttar-
innar í landinu," segir að lokum í
greinargerð með frumvarpi sjálf-
stæðismanna í neðri deild Alþing-
is.
Sjálfstæðismenn í neðri deild leggja til að flotgallar sjómanna verði
undanþegnir virðisaukaskatti og segja þá mikilvægt öryggistæki.
Þingmál: ^
Lög um Abyrgðardeild fisk-
eldis samþykkt á Alþingi
FJÖGUR frumvörp voru samþykkt sem lög lrá Alþingi í gær. Það
voru frumvörp um Ábyrgðardeild fískeldislána, lyQadreifingu, hollustu-
hætti og heilbrigðiseflirlit og um heilbrigðisþjónustu.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra:
Þróunarsjóður lagmet-
is verði lagður niður
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Jón Sigurðsson, mælti í efri deild Alþingis
í gær fyrir stjórnarfrumvarpi um að Þróunarsjóður lagmetis-
iðnaðarins verði lagður niður.
fellt niður. Fyrirtæki í greininni
hefðu átt í erfiðleikum að undanf-
örnu og þessar aðgerðir kæmu í
stað beins styrks eða framlags frá
ríkinu, sem óskað hefði verið eftir.
Sagði iðnaðarráðherra, að næði
þetta frumvarp fram að ganga
lyki afskiptum ríkisins af sölumál-
um lagmetisiðnaðarins.
Meðal nýrra mála, sem lögð hafa
verið fram á Alþingi er frumvarp til
laga um tekjustofna sveitarfélaga frá
Hreggviði Jónssyni (FH/Rn) og Inga
Birni Albertssyni (FH/Vl). Þar er
gert ráð fyrir að sveitarstjórnir til-
greini á álagningarseðli hlutfall ann-
arra gjalda sem greidd eru af fast-
eign í sveitarsjóð samhliða fasteigna-
skatti. Enn fremur að á seðlinum
skuli koma fram heildarhlutfall sam-
anlagðra fasteignagjalda. í greinar-
gerð með frumvarpinu kemur fram,
að tilgangur þess sé að auðvelda
fólki að bera saman heildarfasteigna-
gjöld í einstökum sveitarfélögum.
Ingi Björn Albertsson og Hregg-
viður Jónsson hafa einnig lagt fram
frumvarp um stofnun afreksmanna-
sjóðs íslenskra íþróttamanna. Rétt
til greiðslu úr sjóðnum eiga þeir
íþróttamenn að hafa, sem sýnt hafa
ótvíræða hæfileika í grein sinni og
eru líklegir til afreka á því sviði.
Samkvæmt frumvarpinu á sjóðurinn
að fá árlega ríkisframlag sem sam-
svarar launum fjörutíu háskólakenn-
ara.
Egill Jónsson (S/Al) og Matthías
Bjarnason (S/Vf) hafa lagt fram til-
lögu til þingsályktunar þar sem land-
búnaðarráðherra er faiið að hlutast
til um að starfsemi tilraunastöðvanna
á Skriðuklaustri og Reykhólum verði
stórefld frá því sem verið hefur. í
greinargerð með tillögunni segir, að
starfsemi stöðvanna hafi búið við
þröngan kost lengst af, en úr hófi
hafi gengið á síðustu árum, enda
liggi fyrir yfirlýsingar ráðamanna
um að starfsemi þeirra verði hætt.
Um þessar mundir fari fram mikil
umræða um að þörf sé markvissra
aðgerða til að treysta dreifðar byggð-
ir landsins, meðal annars með flutn-
ingi opinberra stofnanna út á land
og það væri fullkomlega í mótsögn
við þá umræðu, ef stöðva ætti starf-
semi tilraunastöðvanna, sem hafi það
að markmiði að treysta grundvöll
landbúnaðar í viðkomandi byggðum.
Enn deilt um yfir-
stjóm umhverfismála
í GÆR lauk í neðri deild Alþing-
is annarri umræðu um sljórnar-
frumvarp um yfirstjórn umhverf-
ismála. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokks og Frjálslyndra hægri-
manna hafa haldið uppi harðri
gagnrýni á það og jafiiframt lýst
þeirri skoðun sinni að ekki hafi
verið þörf á stofnun umhverfis-
málaráðuneytis.
Ingi Björn Albertsson (FH/Vl),
Pálmi Jónsson (S/Nv) og Ragnhild-
ur Helgadóttir (S/Rv) mæltu gegn
frumvarpi um yfirstjórn umhverfis:
mála á fundi neðri deildar í gær. í
máli þeirra kom fram, að þorri
þeirra aðila, sem leitað hefði verið
álits hjá vegna frumvarpsins, hefði
lýst sig andvígan því eða haft at-
hugasemdir vegna einstakra þátta
þess. Gagnrýndu þingmennirnir
ríkisstjórnarflokkana harðlega fyrir
að hafa ekki tekið tillit til sjónar-
miða þessara aðila. Jafnframt kom
frarn gagnrýni á þá málsmeðferð,
að ekki væri ijallað um frumvörpin
Júlíus Sólnes gegnir embætti
umhverfismálaráðherra en hart
er um það deilt á þingi hvert
verksvið ráðuneytis hans eigi að
vera.
um umhverfisráðuneyti og yfir-
stjórn umhverfismála í einu.
Sölumaður sumarbústaða á Spáni dæmdur fyrir svik:
Tveggja ára fangelsi fyrir
fimm milljóna Qárdrátt
Líkan af fyrirhuguðu safnahúsi. Lögun byggingarinnar er sótt í öld-
ur sjávarins og ávala hraunhólana umhverfis.
Safhahús fyrir sjóminjasalii
MORGUNBLAÐINU hefiir
borist eftirfarandi athugasemd
frá Páli V. Bjarnasyni, arki-
tekt:
„í frétt Morgunblaðsins þann
3. apríl sl. um hugsanleg kaup
ríkisins á húsi Sláturfélags Suður-
lands m.a. fyrir Þjóðminjasafn er
haft eftir Ólafi G. Einarssyni, al-
þingismanni, að nú þegar hafi
verið lagt í mikinn undirbúning
að Sjóminjasafni íslands í Hafnar-
firði, m.a. við „breytingar á húsi
á Skerseyri". Þetta er ekki rétt.
Hið rétta er að þegar hefur
verið hannað (af undirrituðum)
nýtt safnahús fyrir Sjóminjasafn
íslands á Skerseyri vestan við
Hafnaríjörð, nánar tiltekið við sjó-
inn niður undan Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Meðfylgjandi mynd sýnir líkan
af fyrirhuguðu safnahúsi sem ætl-
að er að byggja í áföngum; úr
límtrésbogum og með léttu þaki.
Kannað hefur verið að hér er alls
ekki um dýra byggingu að ræða.
Lögun byggingarinnar er sótt í
öldur sjávarins og ávala hraunhól-
ana umhverfís. Heildargrunnflötur
er um 4.700 fm og er þar gert ráð
fyrir aðalsafni, bátaskýli, báta-
verkstæði, sýningarsal fyrir ein-
stakar sýningar, skrifstofuálmu,
skjalasafni og kaffistofu.“
35 ÁRA gamall maður, fyrrum
umboðsmaður erlendra fyrirtækja
við sölu á sumarhúsum á Spáni,
hefur í sakadómi Reykjavíkur ver-
ið dæmdur til tveggja ára fangels-
isvistar fyrir stórfelldan fjárdrátt
og skjalafals. Sannað þykir að
maður þessi hafi á árunum 1985
og 1986 dregið sér rúmlega 5,4
milljónir króna af fé 8 einstaklinga
og tveggja starfsmannafélaga sem
létu honum í té greiðslr sem
ganga áttu upp í kaup þeirra á
sumarhúsum sem maðurinn bauð
til sölu. I niðurstöðum dómsins
segir að á verðlagi dagsins í dag
hafi maðurinn dregið sér meira
en 11 milljónir króna. Maðurinn
notaði til eigin þarfa um 4,7 inillj-
ónir af fjárhæðinni en um 700
þúsund krónur voru notaðar til
að greiða inn á hús annarra en
þeirra sem inntu greiðsluna af
hendi.
Maður þessi falsaði meðal annars
undirritanir erlendra viðskiptaaila
sinna á kaupsamninga og taldi þann-
ig hinum væntanlegu kaupendum trú
um að samningur hefði komist á. í
nokkrum tilvikum falsaði hann nafn-
ritanir á tékka þá sem greitt var
með og hagnýtti sér féð í eigin þágu.
Sannað þótti að maðurinn hefði út-
búið falsaða kvittun frá erlendum
viðskiptaaðila og látið kaupendunum
í té sem kvittun fyrir því að greiðsla
hefði komist til skila.
Þá var máðurinn einig dæmdur
■ Á FJÖLMENNUM fundi sj álf-
stæðismanna og óháðra í Stykkis-
hólmi fyrir nokkru var eftirfar-
andi framboðslisti til bæjar-
stjórnarkosninga samþykktur
einróma: 1. Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri, 2. Bæring Guðmunds-
son verkstjóri, 3. Auður Stefiiis-
dóttir skrifstofumaður, 4. Ellert
Kristinsson framkvæmdastjóri, 5.
Gunnar Svanlaugsson yfirkenn-
ari, 6. Ríkharður Hrafiikelsson
skrifstofustjóri, 7. Helga Sigur-
jónsdóttir skrifstofumaður, 8.
Hanna María Siggeirsdóttir lyf-
sali, 9. Rúnar Gíslason dýralækn-
ir, 10. Óskar Eyþórsson skip-
stjóri, 11. Sólrún Júlíusdóttir
fyrir útgáfu teggja innistæðulausra
tékka.
Átta af þeim tíu aðilum sem urðu
fyrir tjóni vegna viðskipta við mann-
inn gerðu bótakröfur, sem voru tekn-
ar til greina en tveir þeirra gerðu
ekki kröfur um bætur.
Guðjón St. Marteinsson sakadóm-
ari kvað upp dóminn.
kennari, 12. Sigþór Unnsteinn
Hallfreðsson framreiðslunemi, 13.
Guðrún A. Gunnarsdóttir verslun-
armaður, 14. Guðni Friðriksson
aðalbókari. Gréta Pálsdóttir stýrði
fundi. Gissur Tryggvason fram-
kvæmdastjóri kynnti listann og eins
störf uppstillingarnefndar sem und-
anfarið hefir starfað við að koma
listanum saman. Hann skýrði störf
þeirra. Sjálfstæðismenn og óháðir
eiga nú fjóra bæjarfulltrúa og af
þeim hverfa nú tveir úr bæjar-
stjórn, þau Pétur Ágústsson skip-
stjóri og Kristín Björnsdóttir hús-
móðir, sem ekki gáfu kost á sér.
Voru þeim sérstaklega þökkuð vel
unnin störf. - Árni