Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 35

Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990 35 Markvisst starf Hunda- ræktarfélagsins eftir Jóhönnu Harðardóttur Þegar ég les skæting í blöðum les ég hann með fyrirvara og vona að aðrir geri hið sama. Svo var einnig um greinar Árna Stefáns Árnasonar í Morgunblaðinu þriðjudaginn 20. mars og DV mið- vikudaginn 28. mars síðastliðinn þar sem hann úthúðar Hundarækt- arfélagi íslands og forsvarsmönn- um þess og ber þeim á brýn linkind og óheilindi. Ég las þessar greinar vegna þess að ég er almennur félagi í HRFÍ og hef mikinn áhuga á ræktun hunda og annarra gæludýra og hef unnið fyrir félagið sem kennari við hvolpaskólann. Mér blöskraði algerlega hinn ill- kvittni rógur í greinunum og get ekki látið honum ósvarað þar sem hann gæti hugsanlega skaðað hundaræktarfélagið og málstað ■ SAUÐÁRKRÓKUR. Á sam- eiginlegum fundi sjálfstæðisfélag- anna á Sauðárkróki þann 27. mars var lögð fram tillaga uppstill- ingarnefndar að framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosning- arnar í maí í vor. Var listinn borinn undir atkvæði og samþykktur sam- hljóða. Listann skipa: Knútur Aadnegard, byggingameistari, Steinunn Hjartardóttir, lyfja- fræðingur, Björn Björnsson, skólastjóri, Gísli Halldórsson, dýralæknir,^ Sólveig Jónasdóttir, húsmóðir, Árni Egilsson, slátur- hússtjóri, Páll Ragnarsson, tann- læknir, Anna HaHdórsdóttir, hús- móðir, Erling Örn Pétursson, kaupmaður, Einar Einarsson, framkvæmdastjóri, Vigfús Vigfús- son, húsasmiður, Kristrún Siýólfe- dóttir, nemi, Gunnar Steingríms- son, stýrimaður, Jóhanna Björns- dóttir, skrifstofumaður, Jóhann Ingólfeson, bifvélavirki, Rögn- valdur Árnason, bifreiðastjóri, Aðalheiður Arnórsdóttir, snyrti- fræðingur, og Þorbjörn Árnason, framkvæmdastjóri. Þá kom fram á fundinum svohljóðandi tillaga: „Sameiginlegur fundur sjálfstæðis- félaganna á Sauðárkróki leggur til að bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Sauðárkróks verði fækkað í 7, og felur bæjarfulltrúum flokksins að flytja slíka tillögu í bæjarstjórn." Var tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Má því ætla að bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna muni á næstu dögum flytja tillögu þessa í bæjarráði, og síðan komi hún til afgreiðslu í bæjarstjórn snemma í næsta mánuði. Verði til- lagan samþykkt þar, kemur þessi fækkun bæjarfuíltrúa til fram- kvæmda við sveitarstjórnarkosn- ingarnar árið 1994. - BB ■ LISTI Alþýðubandalags og óháðra við væntanlegar bæjar- stjórnarkosningar á Húsavík hefiir verið ákveðinn: 1. Kristján Ás- geirsson, útgerðarstjóri, 2. Val- gerður Gunnarsdóttir, kennari, 3. Hörður Arnórsson, forstjóri, 4. Aðalsteinn Baldursson, verka- maður, 5. Regína Sigurðardóttir, fulltrúi, 6. Krislján Eiðsson, vél- stjóri, 7. Haukur Hauksson, verka- maður, 8. Helgi Helgason, verk- stjóri, 9. Aðalbjörg Sigurðardótt- ir, læknaritari, 10. Eiríkur Sig- urðsson, skipstjóri, 11. Jóhanna M. Stefánsdóttir, húsmóðir, 12. Magnús Hreiðarsson, sjómaður, 13. Bjarni Ásmundsson, tækni- fræðingur, 14. Kristín Sigurðar- dóttir, húsmóðir, 15. Guðmunda Þórhallsdóttir, meinatæknir, 16. Sigmar Arnórsson, verkamaður 17. Stefán Halldórsson, bókari og 18. Þórarinn Vigfússon, skip- stjóri. þess. — Reyndar sýnist mér það vera eini tilgangur greinanna, a.m.k. er ekki um faglega gagnrýni að ræða, enda hefðu félagsfundir eða málgagn HRFÍ verið hinn rétti vettvangur slíks. Hundaræktarfélag íslands hefur starfað að hugsmunum hundarækt- enda og hundaeigenda á íslandi og stutt þá af alúð og ábyrgð sem er með ólíkindum við þær vonlitlu að- stæður sem bann við innflutningi og fordómar skapa hér á landi. Ég hef haft kynni af hundarækt- arfélögum og ræktendum erlendis og þeim ber saman um að HRFÍ „Himdaræktarfélag ís- lands hefur starfað að hugsmunum hunda- ræktenda og hundaeig- enda á Islandi og stutt þá af alúð og ábyrgð.“ vinni mjög yfirvegað og markvisst og hafi ótrúlega gott vald á verk: efni sínu við slæmar aðstæður. í október sl. hafði ég tal af K.G. Frederikson sem er formaður sænska kennelklúbbsins og í stjóm Jóhanna Harðardóttir Federation Cynologique Internati- onale (FCI) sem er alþjóðasamband hundaræktarfélaga. K.G. Frederik- son minntist sérstaklega á að þann bæri mikla virðingu fyrir HRFÍ fyr- ir það hversu faglega það ynni að ræktunarstarfínu og taldi árangur^ starfsins frábærlega góðan (krafta- verki líkastan voru hans eigin orð) sérstaklega miðað við þá fáu hunda sem hér væru til staðar. Ég vona að allir þeir sem láta sig hundarækt varða fylgist sjálfir með starfi Hundaræktarfélags ís- lands og sambandi þess við sam- bærileg félög víða um heim. Þeir sem það gera geta síðan sjálfir dæmt faglega um starf félagsins og láta ekki sjálfskipaða riddara á ritvellinum um að brjóta niður það uppbyggingarstarf sem átt hefur sér stað innan HRFÍ með óábyrgri * og ófaglegri árás í fjölmiðlum. Höfundur er blaðamaður og dagskrárgerðarmaður á rás 2. SVNING á viðskiptahugbúnaði Dagana 5. og 6. apríl verður sýning á viðskiptahugbúnaði frá eftirtöldum aðilum: • • í^KORN iiih«ii«i»i;ii!i.i HUGBUNADARÞJONUSIA Tölvumiðstöðin hf \r víkurhugbunadur Sýningin er hjá okkur í Skeifunni 17, kl. 09:00-17:00 báða dagana. ORTOLVUTÆKNI Tölvukaup hf., Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 687220, Fax 687260. - Fréttáritári

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.