Morgunblaðið - 04.04.1990, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990
>
38
■ SAMGÖNG URÁÐ UNEYTIÐ
ákvað nýverið að fækka snjómokst-
ursdögum á Fjarðarheiði. Bæjar-
stjórn Seyðisfjarðar hefur sent frá
sér samþykkt þar sem þessu er
mótmælt. í mótmælunum segir
““m.a.: Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
mótmælir þeirri einhliða ákvörðun
samgönguyfirvalda að skerða
snjómokstur á Fjarðarheiði um einn
dag í viku. Þetta er þeim mun verra
þegar þess er gætt að úrbætur í
snjómokstri eru ekki nema ársgaml-
ar og þegar á þær reynir er aftur
breytt í fyrra horf. Bæjarstjórn
ítrekar fyrri ábendingar um þá sér-
stöðu kaupstaðarins að til staðarins
er ekki áætlunarflug og þeim mun
brýnna að halda góðum sam-
göngum.
Garðar Rúnar
GÓÐAR
FERMINGAR
GJAFIR
SILFURHÁLSMEN
Verð frá kr. 2.150,-
SILFURHRINGIR
Verð frá kr. 2.580,-
BÓMULLARPEYSUR
Verð frá kr. 4.450,-
RAHfiAGERÐIN
HAFNARSTRÆT119
OG KRINGLUNNI
Guðrún Árnadóttir
■ AÐALFUNDUR KRFÍ var
haidinn miðvikudaginn 28. febrúar
síðastliðinn að Hallveigarstöðum.
Kosinn var nýr formaður, Guðrún
Árnadóttir, meinatæknir og fyrr-
verandi framkvæmdastjóri BSRB.
Guðrún hefur unnið mikið síðastlið-
in 20 ár að félags- og jafnréttismál-
um. Var formaður Meinatæknifé-
lags Islands. Átti meðal annars
sæti í stjórn Starfsmannafélags
ríkisstofnana, BSRB, Hfeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og fram-
kvæmdanefnd um launamál
kvenna. Einnig situr hún í jafnrétt-
isráði. Guðrún tekur við for-
mennsku af Gerði Steinþó'rsdótt-
ur, lektor við Uppsalaháskóla í
Svíþjóð, sem gegnt hefur for-
mennsku síðastliðið ár. Þá gekk úr
framkvæmdastjórn Arndís Stein-
þórsdóttir, en í hennar stað var
kosin Sigurveig Sigurðardóttir,
hjúkrunarfræðingur. Aðrar í fram-
kvæmdastjórn eru Jónína Margrét
Guðnadóttir, Ragnhildur Hjalta-
dóttir og Ásthildur Ketilsdóttir.
Auk þeirra eiga sæti í stjóm félags-
ins 6 konur frá stjórnmálaflokkun-
um, kosnar á landsfundi.
(Úr fréttatilkynningu.)
WfJ'fíf-f:/'/
GJÖF
sem gleður....
BUXNAPRESSA
Hvítar - svartar - brúnar.
Verð kr. 9.400 stgr.
.tf
Einar Farestveit&Co.hf.
BOWQARTÚNI28, SlMI 1699S.
LalA 4 stoppar vHI dymar
/■/;/■■/:/:/:f:/
Hernámið og framhjáhaldið
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Kvennamál („Un affaire de
femmes“) eftir Claude Chabrol
með Isabelle Huppert og Franco-
is Cluzet og I mesta sakleysi („En
toute innocence) eftir Alain
Jessua með Michel Serrault og
Nathalie Baye.
Mynd Claude Chabrol, Kvenna-
mál, sem sýnd er á Franskri viku
í Regnboganum, er sönn saga einn-
ar síðustu konunnar sem dæmd var
til að láta lífið í fallöxinni í Frakk-
landi. Myndin er ein af mörgum
frá Frökkum síðustu árin sem tak-
ast á við hin viðkvæmu hernámsár
en Chabrol einbeitir sér fyrst og
fremst að breyttum siðferðisgild-
um, splundrun fjölskyldunnar og
vissri fijálsræðiskennd konunnar
sem vaknar þegar karlarnir eru
fjarri en er kramin af dómstó!
þeirra í leit að fordæmi og fordæm-
ingu.
Kvennamál er þannig mjög at-
hyglisverð samfélagslýsing undir
hernámi en um leið ásækið mann-
legt drama. Leikurinn, sérstaklega
hjá Isabelle Huppert, sem fer með
aðalhlutverkið, Marie, er afar góð-
ur en Huppert sýnir okkur inní
hugarheim konunnar sem vill eitt-
hvað meira út úr lífinu en nið-
urnídda Mðarkytru og ástlaust
hjónaband, kemst í álnir með því
að stunda fóstureyðingar fyrir þær
sem voru í ástandinu og tekur að
slá sér upp með ungum manni
grunlaus um afleiðingarnar.
í mesta sakleysi eftir Alain
Jessua tekur á öðru uppáhaldi
franskra mynda, framhjáhaldinu.
Hinn dásamlega lágstemmdi Mic-
hel Serrault leikur kaupsýslumann
sem kemst að því að tengdadóttir
hans (Nathalie Baye) heldur fram-
hjá einkasyni hans, lendir um leið
í bílslysi og þykist missa málið en
á heimilinu upphefst barátta á milli
þeirra tveggja uppá líf og dauða.
Þetta er snjöll hugmynd og vel
útfærð og góður leikurinn bætir
það upp ef teygjast vill á söguþræð-
inum, en leikstjóranum Jessua er
í mun að sýna hversu langt er
hægt að ganga í fordæmingu á
framhjáhaldi þar til of seint er að
bæta fyrir.
Jafiiaðarmanna-Bond
Dulnefni Rauði haninn („Coq
Rouge“). Leikstjórn og handrit:
Pelle Berglund, byggt á sögu
Jan Guillou. Aðalhlutverk: Stell-
an Skarsgard.
Ef James Bond væri sænskur
liti hann sjálfsagt út eins og aðal-
persónan í þessum linsoðna,
sænska aðþjóðlega samsærisþrill-
er. Hamilton heitir hann, Carl
Hamilton, og ef það er ekki nógu
töff sest hann upp í glænýju Cor-
vettuna sína og brunar á vit ævin-
týranna.
Ýmislegt bendir til þess að arab-
ískir hryðjuverkamenn muni láta
til skarar skríða í Svíþjóð innan
skamms og Carl Hamilton er feng-
inn til að rannsaka og eyða slíkum
plönum. í sænska jafnaðarmanna-
plottinu eru skúrkarnir öfgasamtök
Israelsmanna sem vilja vinna á
sakleysislegum PLO-samtökum í
Svíaríki. Jafnvel Carl Hamilton,
þjálfaður hjá CIA, vann með PLO
á sínum tíma en nú er kominn tími
til að rúlla upp gamla Che Gue-
vara-plakatinu og stíga inn í raun-
veruleikann, þ.e. upp í Corvettuna.
Carl Hamilton, sem Stellan
Skarsgard leikur frekar héralega,
er Ijóshærður og hávaxinn foringi
í sænska flotanum, byssufróður og
hugrakkur en þekkir ekki lauslæti
enda ekki ein skvísa skrifuð í hand-
ritið fyrir hann. Hins vegar á þessi
máttarstólpi sænsku velferðarinnar
sjö ára dreng, sem hann verður að
skilja eftir einan heima þegar hann
þeysir til Austurlanda nær að leysa
sín mál og hringir í úr almennings-
símum í sundurtættri LÍbanon til
að vita hvort ekki er allt í lagi.
Skömmu seinna er hann handtek-
inn af tveimur jafnöldrum sonar
síns. Það ætti að sýna veruleikann
í Líbanon en tekst ekki í þessu
samhengi.
Þetta er ekki sanngjarn heimur
fyrir krata-bond. Og í ofanálag og
andhollywoodískum anda mistekst
Carl Hamilton sendiförin því ekki
má bjóða uppá auðveldar lausnir
og hamingjurík endalok. Þó er súp-
erhetjan Carl Hamilton eins og
snýttur útúr ótal, ódýrum Holly-
woodmyndum. Dulnefni Rauði han-
inn er á mörkum gríns og þrillers
en það virðist vera óvart. Hrein
grínmynd hefði verið miklu betri.
Sagan er í ofanálag langdregin og
óskýr og gersamlega laus við
spennu. Þess má geta að mynda-
takan er í höndum Göran Nilsson,
samstarfsmanns Lárusar Ýmis
Óskarssonar.
KRAFTLAUS KVENDJÖFULL
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabó:
Ævi og ástir kvendjöfuls —
„She-Devil“
Leikstjóri Susan Seidelman.
Handrit byggt á samne&idri
skáldsögu Fays Weldons. Aðal-
leikendur Meryl Streep, Rose-
anne Barr, Ed Begley, Jr.
Bandarísk. Orion 1989.
Bók Weldons vakti heimsathygli
á sínum tíma, nánast tímamótaverk
þar sem kom fram gagnrýnin af-
staða á stöðu konunnar í nútíma
þjóðfélagi en sett fram á meinhæð-
inn, oftast drepfyndinn hátt. Verk-
ið vakti miklar umræður um órétt-
lætið í mismunun kynjanna og sjón-
varpsþættirnir sem gerðir voru eft-
ir bókinni voru henni trúir.
Myndin er því miður hversdags-
leg Hollywoodsoðníng þar sem allt
er lagt uppúr skemmtigildinu. Inn-
takið er víðsfjarri ádeilu Weldons,
afraksturinn varla meira en meðal
gamanmynd sem vissulega ergir
aðdáendur Weldons. Maður rétt
kannast við framvinduna sem er
vægast sagt sakleysisleg miðað við
söguna og áherslan lögð á að líma
brosið á áhorfendur og til að kór-
óna alltsaman er endirinn ljúfur
og léttur einsog í hugljúfri ástar-
vellu frá fjórða áratugnum.
Eini ljósi punkturinn við mynd-
gerðina er stjörnuleikur Streeps,
það virðist vera sama hvað þessi
fjölhæfa leikkona fær til meðferð-
ar, hún gerir sér mat úr öllu. Barr
er hinsvegar jafn hörmuleg og
Streep er skemmtileg og á digi an
þátt í mistökum myndarinnar.
Begley yngri sleppur fyrir horn.
Glasgow.......
Luxemborg.....
Hamborg.......
Kaupmannahöfn
Frankfurt...
Amsterdam.....
London ..
París...
Salzburg
verð frá kr. 28.500
.verð frá kr. 31.800
verð frá kr. 32.000
. verð frá kr. 32.400
verð frákr. 32.600
verð frá kr. 34.400
verð frá kr. 34.600
verð frá kr. 34.800
verðfrá kr. 39.100
við 4 í bíl í A. flokki í tvær vikur
OG FLUG 1.4.90___________________________
FLUG OG BÍLLIFRÁBJERU VEROI
Amsterdam, Frankfurt, Glasgow,
Hamborg, Kaupmannahöfn, París
London, Luxemborg, og Salzburg.
Við bjóðum einnig gott úrval fyrsta
flokks gistingar í sumarhúsum og
íbúðum, víðs vegar um Evrópu, á
góðu verði.
FERDASKRIFSTOFAN