Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 39

Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990 39 Nokkur orð um stímplun Mmerkja ________Frímerki_____________ Jón Aðalsteinn Jónsson Oft hef ég hugsað mér að ræða um stimplun frímerkja. Öllum er það trúlega ljóst, að tilgangur með stimplun frímerkja er sá að koma í veg fyrir, að þau verði aftur not- uð á póstsendingar til greiðslu burðargjalds og pósturinn missi við það einhveijar tekjur Þetta sést m.a. á því, að hér á landi var í upphafi talað um að ónýta frímerki, þegar átt var við stimplun frímerkja. Auðvitað var ekki átt við það að eyðileggja þau í venju- legum skilningi, heldur átti ein- ungis með stimplun þeirra að sporna við endurnotkun frímerkja. í frumbernsku íslenzku frímerkj- anna kom einmitt upp mál, sem varðaði slíka tvínotkun 4 sk. frímerkis, og kostaði það bæði málaferli og sektir þess, sem braut póstreglurr.ar. Hér er ekki rúm til að rekja það mál nánar. Ýmsar aðrar leiðir voru í fyrstu famar til stimplunar frímerkja en nota póststimpla, t. d. sú að strika horn í horn með bleki yfir frímerk- in. Sennilega hafa menn í upphafi „frímerkjaaldar" látið sig það litlu skipta, hvernig þessi „ónýting" frímerkjanna fór fram, en eftir að stimplasöfnun hófst meðal safn- ara, skipti þetta vitaskuld verulegu máli fyrir þá. Því miður hefur þessi stimplun verið ærið misjöfn, en um það vil ég ræða betur síðar í ein- hveijum þætti. Að þessu sinni vil ég af gefnu tilefni fjalla sérstaklega um einn þátt stimplunar, sem ég held, að íslenzkir póstmenn hafi eitthvað misskilið. Á ég hér við stimplun þeirra „miða“, sem nefndir hafa verið frímerklar og kaupa má hér í Reykjavík úr sérstakri vél, sem kallast Frami. Góður kunningi minn og safnari benti mér á þetta atriði. Að sjálfsögðu þjónar frímerkill sama hlutverki og venju- legt frímerki. Þess vegna hlýtur að eiga að stimpla hann á sama hátt og gert er við frímerki og koma þannig í veg fyrir, að hann verði notaður aftur. Þijú urrislög hef ég að láni, þar sem með öllu er sneitt hjá að stimpla miðana og það auðsæilega af ásettu ráði. Á tveimur þeirra eru einnig frímerki, og þau eru kirfilega stimpluð, svo sem vera ber. Á þriðja umslaginu var frímerkillinn hins vegar einn og rétt burðargjald, 19 kr. En les- endur geta hér séð á myndinni, hvernig póstmaðurinn brást þá við. Sjálfur á ég tvö bréf með frímerkl- um. Á öðru þeirra má sjá, að póst- maðurinn hefur einnig sniðgengið „miðann", en honum hefur líka sézt yfir fleira, svo sem sjá má. Frímerki stimplað, en frímerk- illinn ekki. 2. Frímerkill sniðgenginn. E.t.v. hefur það gerzt vegna þess, að hann hefur með engu móti vilj- að stimpla miðann. Hitt bréfið er hárrétt stimplað, á Frímerkjasölu póststjórnarinnar, enda getur eng- inn vafi leikið á því, að stimpla ber frímerkingarmiða eða frímerk- il á sama hátt og öll frímerki til þess að koma í veg fyrir hugsan- lega endurnotkun hans og um leið tap fyrir póstsjóðinn. Ég hef minnzt á þetta mál við Rafn Júlíus- son póstmálafulltrúa. Segir hann mér, að þess sé rækilega getið í reglum póstsins, að það eigi að fara eins með frímerkla og frímerki. Ég vonast til, að allir póstmenn athugi þetta framvegis. Til þess eins eru þessi orð sett á blað. FrímerkiII óstimplaður og stimplun frímerkja ábótavant. 4. Rétt stimplun frímerkils frá Frímerkjasölunni. Skiptimarkaður safnara í nokkur ár hefur Félag frímerkjasafnara haldið svonefnd- an skiptimarkað í samvinnu við myntsafnara og kortasafnara. Að þessu sinni verður slíkur markaður haldinn í Síðumúla 17 laugardag- inn 14. þ.m. Hefst hann kl. 13.30 og lýkur kl. 17.00. Á þessum mark- aði gefst söfnurum og almenningi kostur á að skiptast á frímerkjum, mynt, kortum, vindlamerkjum, spilum og yfirleitt öllu því, sem nöfnum tjáir að nefna. Um leið gefst almenningi hér ágætt tæki- færi til að kynnast starfi safnara á Reykjavíkursvæðinu. TOLVU- MÖPPUR /rá Múlalundi... þar er tölvupappírinn vel geymdur. Múlalundur SfMI: 62 84 50 VIDSKIPTA- Þú getur alltaf stækkaö við þig og bætt viö kerfum í STÖLPA. Kerfin eru seld í einingum og þú greiðir aöeins fyrir þaö sem þú þarft á aö halda. Auk almennra bókhaldskerfa nefnum viö m.a. verkbókhald, tilboðskerfi, lánadrottnakerfi, verðbréfakerfi, framlegðarkerfi, framleiöslustýringu, pantanakerfi auk sérhæföra kerfa fyrir bifreiöaverkstæöi. STÓLPI er tilvalinn fyrir útflutningsfyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Á fjórða hundraö fyrirtæki nota STÓLPA STÓIPI FJÖLNOTENDAKERFI FYRIR UNIX EDA NETKERFI Öflug 386 aöalvél með litaskjá, 100Mb diski, 4Mb innra minni, fjórum skjám, tveimur prenturum, Unix stýrikerfi ásamt STÓLPA-fjárhags-, skuldunauta-, sölu- og birgöakerfi. Verð án uppsetningar frá kr. 873.000,- 2. Sama, en með RISC vél meö gulbrúnum aöalskjá, 152Mb diski, 8Mb innra minni og 67Mb segulbandsstöð. Verö frá kr. 2.218.000,- Viö gerum tilboö I uppsetningu, kennslu og flutning á gögnum úr eldri kerfum. STÓIPI - fjárhags,- skuldunauta-, sölu- og birgöakerfi. Verö frá kr. 125.000,- án vsk. fyrir einmenningstölvur. UT1J-STÓLPI fyrir smærri fyrirtæki. Fjögur kerfi i „pakka". Verö frá kr. 35.000,- Launakerfi frá kr. 20.000,- Verkbókhald frá kp. 25.000,- SÉRTILBOÐ BÓSTÓLPI fyrir þá sem eru aö byrja tölvuvinnslu. - Fjárhagsbókhald m.a. með vsk. skýrslugerð. kp. 20.000,- Launakerfi frá kp. 20.000,- Halið sambanú vlð sölumenn okkar. öll verð eru án vsk. SKERFISÞRÓUN HF. SKEIFUNNI 17, 108 REYKJAVÍK Sölu- og þjónustuaðilar um land allt. Símar 91-688055 / 687466 Hólar í Hjaltadal: Gengið frá gömlum bein- um í Hóladómkirkju Hólum í Hjaltadal. Nú nýverið komu aftur heim til Hóla bein þau sem grafin voru upp úr gólfi dómkirkjunnar þegar endurbætur voru á henni gerðar á árunum 1988-1989 í tengslum við endurgerð kirkjunnar. Þegar gamla gólfið var tekið upp og lækkað, þurfti einnig að grafa fyrir loftrásum sem liggja undir gólfinu, og kom þá upp allmikið af gömlum beinum sem ákveðið var að senda suður til aldursgrein- ingar, og ýmissa athugana sem I aðeins er hægt að sinna á sérhæfð- um stofnunum. Nú er þessum rannsóknum lokið, og eins og til stóð erú nú bein hinna fornu Hóla- manna komin norður aftur, og hefur verið búið um þau í litlum, merktum kistum, sem komið er fyrir í gólfi forkirkjunnar að Hól-. um. Sr. Sigurður Guðmundsson, vígslu- biskup, sem hafði umsjón með því að koma kistunum fyrir, sagði að aldrei hefði annað staðið til, en að hinar fornu líkamsleifar yrðu áfram varðveittar innan veggja Hóladómkirkju, en nú væri svo um búið að fullur sómi væri að, og einnig væri unnt með lítilli fyrir- höfn að komast að kistunum væri frekari rannsóknar þörf. - BB Sænsku nðttúrnvönirnar frá BI-PRO Þurr húð CJnglingabólur Fílapenslar Munnangur Varaþurrkur Fæsl á eflirtöldum útsölustööum: Breiðholtsapóteki, Mjóddinni, Rvík. Lyfjabergi, Hraunbergi 4, Rvík. Iðunnarapóteki, Laugavegi 40a, Rvík. Háaleitisapóteki, Háaleitisbraut 68, Rvík Líkþorn Fótasveppir Sigg Aumt Sprungin húð Hælsæri Heildsölubirgðir ambrosia S. 680630.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.