Morgunblaðið - 04.04.1990, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRIL 1990
45*"
BOKMENNTIR
2 nýjar smá-
sögur eftir
Heming’way
Fundist hafa sex smásögur eftir
bandaríska rithöfundinn Er
nest Hemingway og verða tvær
þeirra birtar í
fræðiritinu Hem-
ingway Review 16.
apríl. Það er Ohio
Northern Univers-
ity sem gefur tíma-
ritið út og þar sem
það er aðeins
prentað í innan við
þúsund eintökum
verða þeir sem hafa
hug að lesa sögurn- Ernest
ar að hafa hraðan Hemingway
á. Aðra söguna, „Lack of Passion“
(Skortur á ástríðu), skrifaði Heming-
way í byijun þriðja áratugarins. Það
kemur vart mörgum á óvart að hún
er um nautabana, en hitt þykir
merkilegra að söguhetjan er „and-
hetja“, sem skortir hugrekki til að
bjóða nautunum birginn. Hin sagan
heitir „Philip Haines Was a Writer“
(Philip Haines var rithöfundur) og
hana skrifaði Hemingway árið 1957,
eða eftir að hann lauk við „Veislu í
farangrinum". Sagan er um rithöf-
und sem tekur yfirvofandi skilnað
svo nærri sér að hann getur ekki
lengur skrifað.
Sögurnar fundust á heimili ekkju
Hemingways, Mary, sem lést árið
1986, 25 árum eftir að rithöfundur-
inn framdi sjálfsmorð. Þar komu
einnig í leitirnar fjórar aðrar smásög-
ur, endurminningar rithöfundarins
frá Afríku, sem hann nefndi „Afríku-
dagbókina" og kaflar sem ekki voru
notaðir í „Veislu í farangrinum. Ted
Oliver, ritstjóri Hemingway Review,
segir að „Afríkudagbókin" sé því
miður ekki upp á marga fiska og
verði að öllum líkindum aldrei gefin
út.
KVEÐJUHOF
Skógrækt-
arstjóri
kvaddur
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri, lét af embætti um ára
mótin. Af því tilefni var efnt til
kveðjuhófs í ráðherrabústaðnum
með ráðherrum, samstarfsmönnum
og samheijum. Hér má sjá þau
Þorvald S. Þorvaldsson formann
Skógræktarfélags Reykjavíkur,
Steingrím J. Sigfússon landbúnað-
arráðherra, konu hans Bergný Mar-
vinsdóttur og Sigurð Blöndal.
Morgunblaðið/Björn Bjömsson
Bjarni Haraldson, kaupmaður varð sextugur fyrir skömmu og
við það tækifæri afhenti Knútur Aadnegard honum að gjöf
klukku með merki Sjálfstæðisflokksins.
SAUÐARKROKUR
„Bæjarstjórinn“ í
Norðurbænum sextugur
Bjarni Haraldsson, kaupmaður
í verslun Haraldar Júlíusson
ar á Sauðárkróki, sem stundum
hefur verið nefndur „Bæjarstjór-
inn norðan við kirkju", varð sex-
tugur nú nýverið.
Bjarni hefur verið einn öflug-
asti stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Sauðárkróki, og hefur
um árabil gegnt margskonar trún-
aðarstörfum í hans þágu. Á af-
mælisdaginn var Bjarni erlendis
ásamt fjölskyldu sinni. Laugar-
daginn 24. mars, í morgunkaffi
sjálfstæðismanna í Sæborg, af-
henti Knútur Aadnegard bæjar-
fulltrúi Bjarna að gjöf áletraða
klukku með merki Sjálfstæðis-
flokksins, um leið og hann árnaði
honum allra heilla og þakkaði
mikil og góð störf í þágu flokks-
ins á Sauðárkróki.
- BB.
COSPER
Eru ekki til einhveijar plöntur, sem eru kjötætur.
NORDPLAN
Stofnun Norðurlanda í skipulagsfræðum
Aðsetur: Holmamiralens torg, Skeppsholmen, Stokkhólmi
Póstfang: Box 1658, S-111 86, Stokkhólmi
Sími: 9046-8-614 40 00. Bréfasími: 9046-8-611 51 05
Þverfagleg norrœn framhaldsmenntun skipulagsfólks. Engin
námsgjöld. Námsstyrkir bjóðast.
Árið 1991: Framhaldsmcnntun. Stefársins:„10. áratugurinn kallar
á alhliða skipulagningu til framþróunar þjóðfélagsins
og vistverndar.“
9.-10. janúar Kynning í Helsingfors, Kaupmannahöfn, Osló og Stokk-
hólmi.
25. febr.-22. mars Kennsla og raunhæf dæmi í Stokkhólmi
21. maí-14. júní Vettvangsathuganir í Lillehammer og nágrenni.
28. okt.-22. nóv. Skýrslugerð og niðurstöður í Stokkhólmi. Rannsókna-
leiðangur til Helsingfors.
Kynning: Liselott Happ og háskólakennararnir Lars Emmelin og
Kenneth Olwig.
Umsóknarfrestur: 1. maí 1990.
arans
Q Manfrotto
Þnfætur
fyrirmyndavélar og
videoupptökuvélar
L* BARONSTIG18
imrJ/ 101REYKJAVÍK
SÍMI (91)23411
Gat fyrir þumalfingur-
inn kemur í veg fyrir
aö ermarnar dragist
upp.
Buxurnar eru sérstaklega
styrktar á hnjám og sitjanda.
SKATABUÐIN
Afbragðs nærfatnaður sem heldur
þér heitum og þurrum!
IROTERMO er einstakur nærfatnaöur fyrir vélsleöamenn og aöra sem eru mikið úti
viö störf og leik. IROTERMO temprar líkamshitann, hleypir út svita og
varnar því aö væta komist aö líkamanum.
Innra borö IROTERMO nærfatanna er úr riffluðu polypropylen.
Rifflurnar hindra aö fötin leggist of þétt aö;
þér verður hæfilega heitt og svitnar minna.
Ytra lagið er úr bómull. Það dregur í sig
svita og heldur raka frá líkamanum
sem þannig helst alltaf þurr.
Sértu þurr, verður þér ekki kalt.
IROTERMO nærfötin hafa
reynst vel í hvers konar
vetrarveörum. Sænski
herinn og lögreglan
eru meöal þeirra
fjölmörgu sem
hafa valiö
IROTERMO
nærföt.
Lambhúshettan skýlir vel fyrir
veðri og vindum. Stórt op er
fyrir augun og gleraugu.
Rúllukragi myndast þegar
hettan er dregin niður.
Rúllukragi með
rennilás nær upp
fyrir höku. Renni-
lásinn er fóðraður að
innan og snertir því
aldrei hörundið.
Bolurinn nær niður
fyrir rass og heldur
baki og nýrum
heitum.
SMKrfK fKAMÚK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
Fyrir neðan hné er þynnra og
þéttara efni svo auðvelt er að
komast í skó og stígvél.
feraié