Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 48

Morgunblaðið - 04.04.1990, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁPRÍL 1990 ®1960 Uni*«f«il Preu Syndkols ,,/Etlaáiréu h^nniaS -F&uvLutL Mztni<5?" * Ast er ... . .. hluti af mannlegu eðli. TM Reg U.S. Pat Off.—all nghts reserved c 1990 Los Angeles Times Syndicate Ég vona bara að við náum heim aftur fyrir myrkur: Rafmagnsreikningnrinn var ótrúlega hár ... Ég sagði við hann um dag- inn: Annað hvort hættir þú að drekka eða ég flyt til hennar mömmu þinnar ... HOGNI HREKKVISI Sinead O’Conn- or ekki í boði Til að koma í veg fyrir misskilning tekur Listahátíð í Reykjavík fram að aldrei stóð tii boða að fá söngkon- una Sinead O’Connor til tónieika- halds á íslandi. Hún var aðeins eitt fjölmargra nafna sem nefnd voru, hins vegar var aldrei ljóst hvort hún hefði yfirleitt tíma eða áhuga á því að halda tónleika hér. Sinead O’Connor hefur áður kom- ið til Islands. Þá hélt hún tónleika, vísast í veitingahúsinu Casa blanca. Þá var Sinead O’Connor tiltölulega óþekkt söngkona eins og hún reynd- ar var alveg fram yfir síðustu ára- mót. Síðan hefur Sinead O’Connor getið sér frægðarorð fyrir lagio Not- hing compares 2 you. Nafn Sinead O’Connor var nefnt í tengslum við listahátíð löngu áður en þetta lag varð frægt. Það þarf varla að taka fram að Listahátíð hefur ekki spádómsgáfu frekar en annað venjulegt fólk. Sinead O’Connor mun ver a full- bókuð í sumar. Egill Helgason, blaðafúlltrúi Listahátíðar. í»essir hringdu . . . Gleraugu Gleraugu fundust fyrir utan íslensku óperuna 24. febrúar. Upplýsingar í síma 14314. Lyklakippa Lyklakippa fannst á mótum Hringbrautar og Birkimels. Upp- lýsingar í síma 10806. Húfa Silfurrefshúfa tapaðist á leið frá Kringlunni niður í Miðbæ. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 71814. Ónæði af hundum Agnes hringdi: „Ég vil taka undir grein sem birtist í Velvakanda fýrir skömmu. Ég bý í húsi með hunda- eiganda sem ekki hirðir nógu vel um hundinn sinn. Hundurinn er bundinn úti í garði tímum saman og þar geltir hann og ólmast án þess að nokkur skipti sér af hon- um. Ég stunda vaktavinnu get oft ekki sofið fyrir látunum í hundin- um. í þessu tilviki er aðeins hirðu- leysi um að kenna. Það eru marg- ir aðrir hundar í götunni þar sem ég bý og er aldrei ónæði af þeim.“ LÝSUM YFIR AFDRÁTT ARL AU S- UM STUÐNINGIVIÐ LITHÁA Norðmenn bjóðast til að halda sáttafund milli Litháa osr Sovétstiómarinnar: Sjálfstæði Lit aldrei á samn - segir Vytaulas Landsbergis forset VYTAUTAS I-andsbergis foncti Litháens sagði á fréttamanna- fundi i gær að í hugsanlegum viðræðum við sovésk stjórnvöld yrði sjálfstæði landsins ekki á sanmingaborðinu. Hann sagði að reynt vseri að fá Moskvustjórnina til viðnrðna en Míkhail (iorbatsj- ov forseti Sovétríkjanna hefði ekki enn veitt sendinefnd stjórn- valda í Litháen áheyrn. Norðmenn hafa boðist til að halda sátta- fund og gegna hlutverki málamiðlara i deilu Litháa og Sovétstjóm- arinnar. Sendinefnd þingmanna frá Lit- | hélduslíkai háens verður lingaborðinu landsins 1 ... ... ... þeirra eftir þorfum en stjómvöld í btaaam.nralandim með ha,a ekki „ið„búln um. landsbergis sagði að 1 fram- | yj , tiðinni kynni að verða komið á • • (M■ jnj M.. •> I • ir . : , | tÁlgg *' L :•■ : BBH , í • .• •. t^f'- -i*’1 ’ ^ oi.iiii*ii ; -• ■-:.** j .• HR • Það vekur furðu fjöldans að ekki skuli vera flutningsmenn úr öllum flokkum að tillögu á Alþingi um að lýsa yfir afdráttarlausum stuðn- ingi við Litháa og árétta samstöðu einnar smáþjóðar með annarri í erfiðri stöðu hennar. Röksemdir forsætisráðherra og utanríkisráð- herra eru heldur tötralegar flíkur og allt stífelsi úr þeim. Þessi tepru- lega tillitssemi við forsætisráðherra Sovétríkjanna er þeim mun þýðing- arlausari að hann er einmitt þessar mínúturnar að beita hervaldi í Lítháen og tilbúinn gagnvart Eistl- andi og Lettlandi; fer sér hægt og kannar viðbrögð umheimsins. Fyrr en varir er komin enn ein járnkeðj- an um hálsinn á Litháum og nývak- in frelsisvon kramin til dauða. Get- um við nokkuð minna gert en að mótmæla og veita stuðning með nokkrum vel völdum orðum á blaði. Skilja menn ekki að forseti Sov- étríkjanna er fóstursonur þeirrar ráðstéttar sem hvað ósvífnust hefur verið á þessari öld? Sjá menn ekki hið rétta andlit á hrokagikkjum Rauðatorgsins? Nú er ekki tími fyr- ir pólitískar skuggamyndasýningar á Alþingi Islendinga. Ef menn halda að sjálfstæði Eistarsaltsríkjanna velti herra Gorbatsjov úr sessi verð- ur bara að hafa það. Annars eru slíkar vangaveltur út í hött. Þungi atburðarrásarinnar er orðinn slíkur að hvorki herra Grobatsjov eða aðrir einstaklingar geta komið þar böndum á. Nú er tækifæri fyrir íslendinga að eiga sögulega stund. Neyðarkall berst frá lítilli þjóð sem er í hræðilegum vanda^ Erum við þá ekki menn til þess, Islendingar, sem eru eru svo lánssamir að eiga betri nágranna en Eystrasaltsþjóðimar, að gefa ótvíræða yfírlýsingu um stuðning. Nöfn þeirra þingmanna sem sam- þykkja framkomna tillögu eða aðra svipaða mun rituð á heiðursskjal í sögubók þjóðarinnar. En nöfn þeirra sem ekki hafa kjark til að rétta upp hönd munu hljóta önnur örlög. Emil Als Víkveiji skrifar Víkveija er ógjörlegt að átta sig á því, hvernig háttað er send ingu á erlendu blaði sem hann kaup- ir í áskrift. Honum virðist engin regla í þeirri óreglu sem einkennir komu þessa dagblaðs The Intern- ational Herald Tribune til landsins. Mánudaginn 26. mars fékk Víkveiji fjögur tölublöð af blaðinu, þ.e. frá 21., 22., 23. og 24. mars, það er frá miðvikudegi til laugar- dags í vikunni á undan. Þriðjudag- inn 27. mars komu síðan tölublað þessa blaðs frá laugardegi 17. mars og mánudegi 19. mars. Dagblöð leggja mikið á sig til að tryggja snurðuiausa dreifingu og ekki síst blað á borð við IHT, sem á allt sitt undir sölu á alþjóðlegum markaði. Víkveiji er sannfærður um að ástæðan fyrir þessari slitróttu dreif- ingu á blaðinu til hans á rætur að rekja til póstþjónustunnar hér eða erlendis. Raunar vaknar sú spurn- ing, hvort póstpokar verði eftir í flugstöðvum eriendis og það sé komið undir afgreiðslumönnum þar, hvort þeir berist hingað með fyrstu ferð. Hvarvetna eru að fæðast sjálf- stæð dreifingarfyrirtæki sem starfa í samkeppni við opinbera póstþjón- ustu. Víða vegnar þeim vel. Hér- lendis hefur verið boðið upp á áskrift á erlendum blöðum með dreifingu sem byggist á öðru en póstþjónustunni. Víkveiji hefurekki nýtt sér þessa þjónustu enn sem komið er og lifir í þeirri von, að viðunandi regla komist á hina opin- beru póstþjónustu. xxx Víkverji var nýlega staddur í fjailaþorpi í Sviss, þar sem svo mikil áhersla er lögð á mengun- arvarnir, að boðnar eru ókeypis ferðir með strætisvögnum um þorp- ið til að draga úr eituráhrifum frá útblæstri bíla. A göngu um þorpið tók Víkveiji eftir einföldu og snyitilegu stein- húsi skammt frá brautarstöðinni og vakti það sérstaka athygli hans, hve sorpbílar fóru þangað oft. Við nán- ari athugun kom í ljós, að þetta var sorpböggunarstöð. Eftir að sorpið hafði verið baggað var það sett á járnbrautarvagna sem fluttu það á brott úr þorpinu. Víkveiji varð hvorki var við óþrifnað við húsið né ólykt frá því. Minntist hann þá hávaðans og lá- tanna hér vegna áforma Reykjavík- urborgar um að reisa slíka böggun- arstöð. Var engu líkara en ýmsir teldu að verið væri að flytja sorp- hauga inn í garðinn hjá þeim, þeg- ar rætt var um að reisa slíka stöð um 500 metra frá byggð. Líklega var það vegna þessara mótmæla sem Víkveiji trúði því ekki í fyrstu að byggingin í hjarta þorpsins í Sviss væri miðstöð fyrir sorp. xxx Víkveija finnst tónninn í auglýs- ingaherferð gegn því að ekið sé aftan á bíla ekki réttur. Það má skilja orðalag helstu auglýsingar- innar á þann veg, að einhverjir geri það af ásettu ráði að aka á næsta bíl fyrir framan. Hafa að- standendur herferðarinnar eitthvað í höndunum sem bendir til þess? Hvernig væri að umferðarfröm- uðir hæfu auglýsingaherferð og hvettu yfirvöld vegamála til að breyta Keflavíkurveginum úr slys- agildru?........................

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.