Morgunblaðið - 04.04.1990, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Örlög í himingeimnum
Til Velvakanda.
Ég hlustaði á þijá unga menn
tala saman í utvarpi að kveldi hins
26. mars. Einn taldist vera raun-
hyggjumaður (realisti), annar miðili
(vökumiðill), þriðju stjömuspámað-
ur. Allir voru þeir — eða ekki kunni
ég betur um að dæma en svo —
greindir, menntaðir og áhugasamir.
En ekki íannst mér þessar umræð-
ur, eða öllu heldur samræður, vera
skipulegar á þann hátt, sem ætti að
vera, en það væri að leiða sem best
í ljós, hvað ber á milli og hvar hver
stendur; gat ég ekki betur séð en
það væri stjórnandanum nokkuð um
að kenna, Ævari Kjartanssyni. En
hann hefur það sér til áfsökunar að
efnið er vandmeðfarið; ef til vill eitt-
hvert hið vandmeðfarnasta efni;
dugir þar hvorki að vera „með eða
móti“ né heldur hitt, að taka aldrei
afstöðu til neins.
Það sem vekur mér vantrú á íþrótt
stjörnuspámanna er fyrst og fremst
það hvað hún er „forkópernisk" eða
„miðjörðungsleg" að allri gerð. Þeg-
ar spákort er gert er jafnan gengið
þegjandi út frá því að jörðin sé mið-
bik alls, en himinninn og stjörnumar
eitthvað allt annað; er þetta í fyllsta
samræmi við almennar fáfræðiskoð-
anir, eins og þær vora fyrir daga
Kópernikusar, eru enn hjá vanþróuð-
um þjóðum og era að verða hjá hin-
um afsiðuðu Vesturlandabúum.
Stjörnuspámenn vitna gjaman í
hulda visku Egypta og Austurlanda-
þjóða, en þeir vitna sjaldnar í Kó-
pernikus og Brúnó, og varla í Kepler
heldur, sem neyddist þó til að spá
til þess að framfleyta lífinu. En
Kepler hafði sjálfur litlar mætur á
þessari iðju, og þó að hann væri
maður sem sparaði stóru orðin, má
vel skilja, að hann hefði viljað vera
án hennar.
Fyrir löngu spurði ég stjömuspá-
mann, sem var að spá fyrir mér (og
spáði rétt, maður lifandi), hvort hann
horfði nokkurntíma á stjörnumar.
Hann taldi sig ekki þurfa á slíku að
haida. „Það er alltaf nóg til af hand-
verksmönnum," sagði hann, og átti
þar við stjömufræðingana. En í
bækur þeirra sótti hann tölur sínar.
í þessu fannst mér koma fram hroki
gagnvart bæði vísindunum og verka-
mönnum. Og ég held, að maðurinn
hafí haft fremur lítinn áhuga á því,
hvað stjörnumar í raun réttri eru.
Geram ráð fyrir — en ég hef aldr-
ei verið þeirrar skoðunar nb. — að
menningarlif hefði þróast á Mars,
og að þar væra bæði stjörnufræðing-
ar og stjörnuspámenn. Hveijar væra
þá skoðanir þeirra þar á stjörnunum.
Stjörnufræðingarnir hefðu uppgöt-
vað að Mars er ekki miðpunktur al-
heimsins, og að blái depillinn Jörð,
væri stór hnöttur úti í geimnum.
En stjörnuspámennirnir mundu telja
það afar þýðingarmikið fyrir örlög
hvers og eins, í hvaða „húsi“ stjarn-
an Jörð væri á fæðingarstund lians.
Nefnilega að þið, sem gangið til
stjörnuspámanna, og allur ykkar
heimu'r og eins hann leggur sig —
Jörðin — séuð hinir mestu örlaga-
valdar fyrir íbúa himingeimsins.
Þorsteinn Guðjónsson
Hvað er til ráða?
Til Velvakanda.
Það snjóar og snjóar á íslandi
en samt skynjum við að vorið er í
nánd, vorið með sinni hækkandi
sól, fermingarbörnum sem játa
Frelsarann sem leiðtoga lífs síns,
bændum sem fijótlega vara að
dreifa áburði á sín tún um von um
góða sprettu í sumarlok. Sem sagt
allt gengur sinn vana gang á landi
vora. Jafnvel í Austur-Evrópu er
vor í stjórnmálaheiminum og það
svo gott að menn eru farnir að trúa
að kommúnisminn sé að syngja sitt
síðasta vers. I bönkum landsins er
jafnvei svo mikil vorbiíða að menn
era farair að þrátta uin hvað gera
skuli við alia þá peninga sem bank:
ar og sparisjóðir landsins geyma. í
íslandskiukku Kiljans segir eitt.hvað
á þá leið: Hvað stoðar sriærisiausan
mann að kunna latínu. Nú eigum
við mikið af snæri og fjöldi íslend-
inga kann latínu. Maður skyldi því
ætla að okkur sé ekkert að vanbún-
aði tiV að taka á móti vori og hækk-
ancii 3Ó1. Ekki er þetta i. anril-
gabb, þó sá dagur sé i dag, þegar
þetta er ritað. Svo ég vitni aitur í
Nóbeisví iðlaunaskáluið okkar, seg-
ir liann okkur frá þegar TJósvíking-
ur fann „kraftbirtingarhijóm Cuö-
dómsins" i ijörunni simu í víkinni
fögru. Hvað með ?enningarbör?iinV
Skyidu þau finna þennan hljóm?
Vonandí finnum við öl! áðuv en ævi
okkar lýkur þann hljóm seni ski’ar
Heilræöi
Það gæti orðið þitt barn!
Börnin í umferðinni eru börnin okkar. Þar sem þau eru á eða við
akbrautir er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgát. Öll viljum við
vernda börnin fyrir hættum í umferðinni. Það gerum við best með
því að sýna gott fordæmi.
Bestu þakkir fceri ég öllum þeim, sem glöddu
mig meÖ gjöfum, heillaóskaskeytum og heim-
sóknum í tilefni 70 ára afmœlis míns, þann
30. mars sl.
LiflÖ heil. Einar Guðlaugsson.
okkur til þess sem sagði: „Hjarta
yðar skelfist ekki né hræðist, trúið
á Guð og trúið á mig, í húsi mínu
eru inargar vistarverur." í dag kall-
ast sá sértrúarmaður eða eitthvað
þvíumlíkt sem vill gera Frelsarann
að leiðtoga lífsins, jafnvel þó að við
vitum að kannski á næsta augna-
bliki verði snærið og latínan tekin
frá okkur. Þó bændurnir fái met
sprettu í ár, þá era þeir litlu bætt-
ari, kvótinn lokar öllum okkar sund-
um.
Hvað er þá tii ráða? Ég er ekki
sértrúarmaður, né held ég sé öðru-
vísi en meðal-„Jóninn“, ég trúi að
við verðum að nýta sem best þann
kvóta sem okkur er úthlutaður, því
það skulum við vita að eftir þetta
tímabil sem mannsævin kallast,
kemur gjörsamlega kvótalaust
tímabil sem kallast eilífð, hvað við
gerum þar, vita víst fáir með vissu.
Gleðilega páska.
Manni
ELFA
IVORTICEl
viftur í úrvali
Loftviftur-baðherbergisviftur
- eldhúsviftur - borðviftur -
röraviftur - iðnaðarviftur
Hagstætt verð.
M’
Einar Farestveit&Co.hf
Borgartúni 28. Sími 16995.
Þakka öllum, nœr og fjœr, sem heiðruÖu mig
á sjötugsafmœli mínu 31. mars.
Guö blessi ykkur öll.
Sigfríður Georgsdóttir,
Bústaðavegi 105,
Reykjavík.
Sumarhús í Danmörku
Til leigu tvö yndisleg 6 manna sumarhús við fallega strönd
á Fjóni. Hvort um sig er í fallegum garði og liggja garðarn-
ir saman. Húsunum fylgir allt, s.s. sængurföt, sjónvarp,
útvarp, sími, hjól og allt í eldhúsi. íslenskumælandi hjón
sjá um húsin og aðstoða. Leigan er kr. 14.800-29.800 á
viku (fer eftir á hvaða tíma). Einnig getur bíll fylgt fyrir kr.
1.900 á dag.
Ath., að húsin eru laus um páska.
Upplýsingar í síma 91-17678 kl. 17-21 næstu daga.
Vortilboðá
BV-handtjðkkum
10% afsláttur í apríl og maí.
Lyftigeta; 800 kg.
Lyftihæð: 80 cm.
Hentugt hjálpartæki
við allskonarstörf.
Sparið bakið,
stillið vinnuhæðina.
r
|' Eigum ávallt fyrirliggjandi
l hinavelþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BlLDSHÖFÐA 16 SÍMI672444 TELEFAX672580