Morgunblaðið - 04.04.1990, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1990
- >
50
SKÍÐI / ALÞJÓÐAMÓT í ALPAGREINUM í BLÁFJÖLLUM
Svig kvenna:
Goud Renaud
kom, sá og sigraði
Franska stúlkan Goud Renaud,
kom, sá og sigraði í síðasta
alþjóðamótinu í alpagreinum
kvenna í Bláfjöllum í gær. Hún
kom til landsins á
Valur sunnudag og náði
Jóntansson því aðeins að
skrifar keppa í þessu eina
FlS-móti á íslandi.
Carin Lindberg frá Svíþjóð varð
önnur og Guðrún H. Kristjáns-
dóttir þriðja.
Renaud, sem kom hingað frá
Kanada þar sem hún sigraði í
svigi á sterku stúdentamóti, var
einni og hálfri sekúndu á undan
Crinu Lindberg, sem varð önnur.
Guðrún hafnaði í þriðja sæti, var
tveimur sekúndum á eftir frönsku
stúlkunni.
Renaud, sem er 24 ára, keyrði
mjög vel í síðari umferð og náði
þá lang besta brautartímanum.
Það hjálpaði henni einnig að
norska stúlkan, Hanne Johnsen,
sem var með besta tímann í fyrri
ferð, datt þegar hún átti aðeins
eftir fjögur hlið í síðari umferð.
Fyrsta sætið í mótinu gaf 54,60
punkta. Guðrún hlaut 67,09
punkta.
Svig karla:
Blomberg
bestur
Morgunblaðið/Bjarni Eirlksson
Goud Renaud frá Frakklandi er hér á fullri ferð í sviginu, sem fram fór
í Bláfjöllum í gær.
TORBJÖRN Blomberg, frá
Svíþjóð, sigraði í síðasta svig-
mótinu í aiþjóðamótaröð
Skíðasambands íslands, sem
fram fór í Bláfjöllum í gær.
Örnólfur Valdimarsson úr
Reykjavík varð annar og
Matjaz Cujes frá Júgóslavíu
þriðji.
Blomberg keyrði fyrri ferðina
mjög vel og má segja að
hann hafi þá lagt grunninn að
sigrinum. Hann var með lang
HHI besta tímann,
ValurB. rúmlega einni og
Jónatansson hálfri sekúndu á
skrifar undan Ömólfi
Valdimarssyni.
Örnólfur keyrði einnig vel og var
sekúndu á undan næsta manni í
fyrri ferð. Hann var því sá eini
sem hugsanlega gat unnið Svíann.
Örnólfur fór næstur á undan
Biomberg í síðari umferð og náði
besta tímanum. En Blomberg var
öryggið uppmálað og gaf fyrsta
sætið ekki frá sér, náði aftur besta
tímanum og sigraði.
Júgóslavarnir, Matjaz Cujes og
Pavli Cebulj, urðu í þriðja og
fjórða sæti. Valdemar Valdemars-
son frá Akureyri kom næstur og
Ólafsfirðingurinn ungi, Kristinn
Björnsson, hafnaði í sjötta sæti.
Töluvert var um fall í brautinni
og komst aðeins helmingur kepp-
enda klakklaust í gegnum báðar
umferðir. Aðstæður til keppni í
Bláfjöllum voru eins og best verð-
ur á kosið.
Guðrún og Blomberg
unnu íslandsbikarinn
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Torbjörn Blomberg hafði töluverða yfirburði í sviginu. Hér er hann í fyrri
umferð.
Guðrún H. Kristjansdóttir frá
Akureyri vann íslandsbikar-
inn í kvenaflokki og Svíinn Tor-
björn Blomberg í karlaflokki. ís-
landsbikarinn er veittur fyrir
besta árangur í þeim fimm al-
þjóðamótum sem fram hafa farið
hér á landi síðustu daga.
Guðrún var lang stigahæst í
kvennaflokki, hlaut samtals 105
stig. Hún sigraði í þremur mótum
af fimm og varð í þriðja sæti í
tveimur. Sama stigagjöf var notuð
og í heimsbikarnuum, þannig að
fyrsta sætið gaf 25 stig, annað
sætið 20 stig og þriðja sætið 15
stig og svo framvegis. Carin Lind-
berg frá Svíþjóð varð önnur í
stigakeppninni með 85 stig,
Hanne Johnsen frá Noregi í þriðja
sæti.
Torbjörn Blomberg, Svíþjóð,
sigraði með nokkrum yfirburðum
í karlaflokki. Hann hlaut samtals
110 stig, Valdemar Valdemars-
son, Akureyri, varð í öðru sæti
með 52 stig, Arnór Gunnarsson,
ísafirði, í þriðja með 51 stig.
Sigurður Einarsson, formaður
Skíðasambands íslands, sagðist
MorgunblaðiöA/alur Jónatansson
Guðrún H. Kristjánsdóttir Tor-
björn björn Blomberg hampa hér
verðlaunum sínum.
vera mjög ánægður með hvernig
til hafí tekist. „Það verður fram-
hald á þessum mótum næsta vet-
ur og fara þau fram aðeins seinna
í árinu, eða um miðjan apríl. Sú
tímasetning hentar betur fyrir þá
erlendu keppendur sem hugsan-
lega vildu vera með,“ sagði Sig-
urður.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Michael Jordan
maður vikunnar
- gerði samtals 165 stig í þremur leikjum
ÁTTA lið hafa nú þegar tryggt
sér sæti í 16-liða úrslitakeppn-
inni í NBA-körfuboltanum en
flest liðin eiga eftir 10 til 12
leiki. Los Angeles Lakers hefur
náð bestum árangri allra liða.
Michael Jordan hefur verið í
banastuði hjá Chicago og verð-
ur að öilu óbreyttu stigahæstur
_^>etta keppnistímabil eins og
þrjú siðustu.
W
Iausturdeild hafa Philadelphia,
Detroit Pistons og Chicago Bulls
tryggt sér sæti í úrslitakeppninni
og Utah Jazz, San Antonio, Los
Angeles Lakers,
Portland og Phoenix
í vesturdeild.
ISunnan . , e
Valgeirssyni Detroit hefur ver-
íBandaríkjunum ið að missa flugið í
austurdeildinni að undanförnu og
tapað síðustu fjórum útileikjum
sínum. Það munar miklu fyrir liðið
að bakvörðurinn Joe Dumars er
meiddur á hendi og leikur ekki með
liðinu fyrr en í úrslitakeppninni.
Lakers með yfirburði
Lakers hefur hins vegar yfir-
burðastcðu í vesturdeild og hefur
tryggt sér sigur þar. Liðið vann
Portland og Utah um helgina, en
þau eru í 2. og 3. sæti í deildinni.
Magic Johnson hefur leikið mjög
vel fyrir Lakers og skoraði t.d. 33
stig gegn Utah á sunnudag.
Stórstjörnurnar hjá liðunum virð-
ast blómstra þessa dagana. Larry
Bird hefur verið besti leikmaður
Boston Celtic og hefur gert 30 stig
Michael Jordan átti þtjá stórleiki
í vikunni.
að meðaltali í leik. Charles Barkley
hefur verið dtjúgur fyrir Philadelp-
hiu, sem unnið hefur hvem leikinn
á fætur öðrum.
Loks má geta þess að Michael
Jordan hjá Chicago Bulls hefur ver-
ið óstöðvandi og var tvímælalaust
leikmaður síðustu viku. Hann gerði
samtals 165 stig í þremur leikjum
í vikunni, 69 stig gegn Cleveland,
49 stig gegn New York og 47 stig
gegn Miami.
FERÐALOG
Arsenal-klúbbur-
inn til Englands
ARSENAL-klúbburinn á íslandi hygg-
ur á knattspyrnuferð til Lundúna
föstudaginn 27. apríl til fimmtudags-
ins 3. maí. Þetta er 7. ferð klúbbsins
á jafn mörgum árum. Farið verður á
tvo leiki með Arsenal á Highbury,
þann fyrri gegn Millwall og þann
síðari gegn Southampton. Einnig verð-
ur farið á Wembley sunnudaginn 29.
apríl þar sem Þorvaldur Orlygsson og
félagar í Nottingham Forest leika til
úrslita í deildarbikarkeppninni.
Gist verður á White House hótelinu
í miðborg London. Upplýsingar um
ferðina fást í síma 98-22499 á kvöld-
in eða á ferðaskrifstofunni Ratvís.
KORFUBOLTI
Landsleikjum
viðíra
frestað
Landsleikjum við Ira, sem fram
áttu að fara hér á landi í lok
apríl, hefur verið frestað framá
haust. írska körfuknattleikssam-
bandið hafði samband við KKÍ og
óskaði eftir frestun þar sem staða
sambandsins væri mjög slæm og
ekki hægt að senda lið í vor.
Ekki hefur verið ákveðið hven-
ær leikirnir í'ara fram en þeir
verða líklega næsta haust.
TENNIS / DAVIS-BIKARINN
Meistaramir úr leik
M eistarar Vestur-Þjóðveija í Davis-bikarnum eru úr leik eftir tap
fyrir Argentínu í fjórðungsúrslitum keppninnar um helgina. Vestur-
Þjóðveijar, sem voru án Boris Beckers, höfðu forystuna 2:1 en töpuðu
tveimur síðustu leikjunum og eru úr leik.
Ástralía sigraði Nýja-Sjáland, 3:2, og Austurríki sigraði Ítalíu, 5:0, en
ítalir höfðu áður slegið Svía út. Loks sigruðu Bandaríkjamenn Tékka 4:1.