Alþýðublaðið - 06.01.1959, Page 2

Alþýðublaðið - 06.01.1959, Page 2
VEÐRIÐ: Norðaustan stinn- ingskaldi. Frost 4—6 stig. 8LYSAVARÐSTOFA Reykja víkur í Slysavarðstofunni er opin allan sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fiyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 8—18. Sími 1-50-30. ’LYFJABÚÐIN Iðunn, Reykja víkur apótek, Laugavegs apótek og Ingólfs apótek fylgja lokunartíma sölu- búða. Garðs apótek, Holts apótek, Austurbæjar apó- tek og Vesturbæjar apótek eru opin til kl. 7 daglega, nema á laugardögum til kl. 4. Holts apótek og Garðs apótek eru opin á sunnu- dögum milli kl. 1—4. e-. h. HAFNARFJARÐAR apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9— 16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21. gtÓPAVOGS apótek, Álfhóls- vegi 9, er opið daglega kl.^g 9—20, nema laugardaga kl.!í| 9—16 og helgidaga kl. 13— 16. Sími 23100. * DAGSKRÁ alþingis: Ed.: 1. 1 Kosning fyrri varaforseta | deildarinnar. 2. Virkjun | Sogsins, frv. 3. Sameign fjöl býlishúsa, frv. Nd.: 1. Bún- | aðarmálasjóður, frv. 2. I Skuldaskil útgerðarmanna 9 1951, frv. * ÚTVARPIÐ í dag: 18.30 Barnatími. 20.20 Tónleikar: íslenzkir dansar og álfalög, sungin og leikin (plötur). | 21 - Hringferðin: Ýmis j skemmtiatriði hljóðrituð á samkomu Kvenfélagsins Hringsins í nóvember sl. Stjórnandi: Haraldur Á. Sigurðsson. 22.10 Danslög. * HJÓNAEFNI. Á gamlaárs- dag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Gerd Sólveig Dragaas, frá Guðbrandsdal í Noregi, og Helgi Marías- son, .starfsmaður hjá Sem- entsverkemiðjunni, Austur- götu 28, Hafnarfirði. ★ BRÚÐHJÓN. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Árelíusi Níelssyni ung- frú Jóna G. Valdimarsdótt- ir og Gunnar Snorrason kaupmaður. Heimili þeirra er á Laugarnesv. 72, Rvík. -k NESKIRKJA. Barnaspurning ar verða auglýstar síðar. Séra Jón Thorarensen. ★ (KVENFÉLAG Háteigssóknar býðiir öldruðum konum í söfnuðinum til sín á jóla- . fund félagsins, sem haldinn verður í Sjómannaskólan- um miðvikudaginn 7. þ. m. og hefst kl. 8 e. h. Vigfús Sigurgeirsson sýnir kvik- miynd, Anna Guðmundsdótt ir leikkona les upp og konur | úr kirkjukórnum syngja nokkra jólasöngva. Kaffi- | drykkja. * 'Kaþólska kirkjan: Lágmessa kl. 8 árd. Hámessa og pré- 1 dikun kl. 6 síðd. 1 III..................... ! LONDGN, 5. jan. (REUTER). Enskir cldflaugnasérfræðingar skrifa margt og mikið um eld- flaugarskot Rússa. Eru þeir allir á einu máli um hversu rússneskir vísindamenn hafi náð mikilli nákvæmni í eld- fiaugarskotum. Ekki eru menn þó á eitt sáttir um hvernig eldflauginni hafi verið stjórn- að, hvort það hafi verið gert frá jörðu eða hvort tækin hafi verið síillt áður en hún var send af stað. Sérfræðingarnir eru þeirrar skoðunar, að Rússar hafi nú hafið framkvæmd risavaxinn- ar áætlunar um margvíslegar geimrannsóknir, sem m.a. geri ráð fyrir að senda gervitungl á brautir umhverfis Venus og Marz, spútnika, sem sendir verði langt út í geiminn og síð- an náð til jarðar aftur og loks að senda mannaðar eldflaugar í könnunarleiðangra út í rúm- ið. Sólareldflaug Rússa fór nægilega nálægt tungli til þess að vitneskja fengist um hvort um það væri segulsvið og hvernig geislun væri þar hátt- að. Eru þær upplýsingar nauð- synlegar til að skera úr því hvort menn geti hafst við á tunglinu Einnig er búizt við að margvíslegar upplýsingar fáist um sólina, yfirborð henn- ar og geimgeisla í rúminu utan tunglsins. Sumir vísindamenn benda á, að rnögulegt kunni að vera að koma upp herstöðvum á tungl- „Litíi teimur" Framhafti at 12. síðu. stjóri og kona hans. Lögðu þau upp 12. desember sl- frá Kanarí eyjunum. Tilgangur fararinnar var einkum að sanna að mögu- legt væri að láta berast af norð austamdndunum yfir Atlants- hafið. ÁSKRIFENDASÖFNUN S U J á nú aðeins að standa í 3 vikur enn. Eru ungir jafnaðarmeim því beðnir að herða söfnunina og tilkynna nýja áskrifendur að Alþýðu blaðinu jafnóðum og þeir fást. Verðlaunin eru glæsi- leg: Ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim aftur og Islendingasögurnar. Framhald af 12. jíðu. í Reykjavík einni eru á ann- að þúsund öryrkjar á bótum hjá Tryggingarstofnun ríkisins, en stór hluti þeirra gæti leyst ýmis störf af hendi og óskar eftir slíkum verkefnum, aðeins að þau séu við þeirra hæfi. Þessu fólki, sem hingað til hefur verið afskipt, óskar SÍBS að liðsinna. Við allan undirbúning þessa verkefnis hefur SÍBS notið bezta stuðnings og hvatningar hjá féiagsmálaráðuneytinu og Tryggingarstofnun ríkisins, enda áhugi þessara aðila fyrir framgangi máisins verið ein- dreginn. inu. Þar sem aðdráttarafls gæt- ir mun minna þar en á jörð- unni er margfalt auðveldara að skjóta þaðan flugskeytum til jarðar heldur en frá jörðu til tungls. Einn blaðamaður telur að Bretar séu nær því að leysa vandamálið með að senda menn út í geiminn heldur en Rússar og Bandaríkjanienn. Flugslysið Framhald af 1. síðu. í förina, en ætlaði að koma með vélinni strax aftur. EKKI LENDANDI Á LAUGUM. Þegar komið var austur að Laugum, var ekki lendandi þar og sneri vélin því við og hélt áleiðis til Akureyrar. Laust fyrir kl. þrjú sást til flugvél- arinnar, þar sem hún hnitaði nokkra hringi lágt yfir bænum Fjósatungu, eins og hún ætlaði að lenda, enda oft lent þar á vetrum. Skömmu síðar hækk- aði vélin flugið og hvarf í átt- ina suður yfir Vaðlaheiði. Var nú veður mjög farið að versna, þoka og gekk á með hríðarbylj um. Síðast heyrðist til flugvél- arinnar í radíóstöðinni á Akur- eyri kl. 15.01, er Jóhann sagð- ist vera að fara yfr heiðina. SKÍPULÖGÐ LEIT HAFIN. Þsgar flugvélin kom ekki fram á eðhlegum tíma, var þeg ar hafizt handa um að skipu- leggja leit að henni. Símað var um næstu sveitir til að leita upplýsinga um ferðir hennar. Flugbiörgunarsveitin á Akur- eyri hóf leit undir stjórn Tryggva Þorsteinssonar og var aðalbækistöð sveitarinnar í Fífilgerði, efsta bænum í Kaupangssveit. Alls munu um 80 manns frá Akureyri, Öng- ulsstaðahreppi og Fnjóskadal hafa tekið þátt í leitinni. Var fyrst lagt á heiðina um kl. fimm. Veður versnaði enn er leið á kvöldið, frost og lausa- mjöll, sem víða náði leitar- mönnum í hné eða lengra. Leit að var víða um heiðina sunn- an þjóðvegarins. FLÆKIÐ FINNST Á HEIÐINNÍ Um kvöldið mættust leitar- mennirnir fimm úr Fnjóska- dal og tveir frá Akureyri og um kl. 8,30 rákust þeir á flak- ið af flugvélinni á heiðinni. Var þa’ð á sléttum mel skammt frá Grjótárdal, sem er suður og upp af Fjósatungu. Hafði flugvélin brotnað í spón og vængirnir og brakið úr henni dreifzt yfir stórt svæði. Þrjú lík fundust, en eitt fanst hvergi þrátt fyrir mikla leit, enda var stórhríg og náttmyrkur skollið á sem fyrr segir. Héldu leitar- menn við svo búið niður að Fjósatungu -eftir að hafa búið um líkin á staðnurn. Voru leit- annenn að tínast ofan af heið- inni allt til kl. að ganga þrjú um nóttina. Gistu þeir í Fjósa- tungu. í dag hafa menn beðið til- búnir að leggja aftur á heið- ina, en það hefur ekki. enn reynzt viðlit sökum illviðris. T.d. var frostið 13—15 stig og stórhríð. Verður gerður út leið- angur á slysstaðinn jafnskjótt og veður leyfir. — B.S. alþyðublaðið_________________________________ Útg-efandf: Alþýöuflokkurinn. Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson (áb). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmars- son. Fréttastjóri: Björgvin Guömundsson. Auglýsingastjóri: Pét- ur Pétursson. Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiöslusími: 14900. Aösetur: Alþýðuhúsið. Frentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10 Samkeppnin míkla MEN'NIRNIR láta sér ekki lengur nægja að deila og keppa um heimsálfurnar og úthöfin á jörðinni. Himiingeim- urinn er kominn til sögunnar um .sam!keppnina o,g átökin. Mennina dreymir um að feg.gja undir sig, tunglið og sól- ina. Og þetta er ekkf aðains draumur. Stórveldin leggja sig fram um að gera hann ,að veruleika. Til þess einbeita þau vitsmunum, tækni og vísindum. Árangurinn er líka undraverður og mesta ævintýri samtíðarinnar. Grundvöllur þessa er hernaðarþekking. nútímans. Hún er orðin slík og þvílík, að mennirnir geta hæglega sprengt hnöttinn í ,loft upp einn góðan veðurdag vitandi vits eða í ógáti. Þar með væri ævintýri m-annkynsins lokið. Von- andi þarf þó ekki að óttast slíkt. Mennirnir verða ískyggi- lega háðir þeirri furðul-egu tækni, sem nú er á valdi þeirra,. en þá langar samt að 'lifa áfram- á jörðinni og binda fram,- tíðarvonir sínar við .hana, þó að himingeimurinn heil-Ii þá til könnu-nar og. uppgötvana. Skýrin.g þeirrar samkeppni er kappið -um yfirráðin á jörðinni. Stórvéldin vilja tryggja sig í sessi og sanna yfiriburði sína í hernaði og heimsvalda- sókn -m-eð því að sýna og sanna keppinautunum, hvað hægt sé að komast langt og hátt út á óraleiðir stjörnugeims og himintungla. Þessi samkeppni er vissulega hættuleg, ef um reynist að tefla líf eða da'uða jarðarbúa. Hins vegar hlýtur hún að teljast skemmtileg sönnun um þroska, vit og mátt mnnanna. Tækninni fleygir fram. Hernaðarvísindin geta æ meira. Og valdið eykst að sama skapi, enda víkur enn ekki kúgun og ofbeldi fyrir viti og þekkingu. En hvers; mætti ekki vænta, cf þessi samikeppni færðist yfir á önnur svið en langferðirnar út í himingeiminn? Hverju mætti ckki afreka til farsældar og hamingju, -ef fjár- munum þeim, sem nú renna til vígbúnaðar og heniaðar, yrði ráðstafað á annan hátt og betri? Þá væri hægt að láta fegurstu drauma mannkynsins ræ-tast. Hugsum- okkur, að sparað yrði það fé, sem nú rennut til vígbúnaðar og hernaðar, og því varið tiil þeirrar sa-m- keppni stórveldannia ,að sigrast á fátæktinni og sjúkdóm- unum. Ára-ngur hennar nayndi mannkyninu mikill og fag- Ur sigur. En hún gleymist því miður, enda varla hernaða-r- legra yfirburða a-f henni að vænta. Þess vegna er forustu- mönnum stórveldanna hugstæðara að skjóta eldflaugum til tunglsins og sólarinnar, filjúga stáldreku-m mieð ofsa- hraða milli heimskautanna og sigla kaf-bátum um regin- djúpin en segja skortinum og siúkdómun'um- stríð á hend- ur. ■—• Mil-ljónir m/anna deyja urn aldur fram vegna fá- tæktar og aðrar milljónir fal-la- fyrir sjúkdómum eins og gras á sláttuteigi. Þennan vanda geta mlennirnir ekki sigr- að af því að þeir eru svo uppteknir af að undirbúa og l'ramkvæma- könnunarferðir út í himingeimi-nn. Styrjöldim við fátæktina og sjúkdómana er metin á krónur, en hin. samkeppnin kostar milljónatu-gi. Afl. þeirra hluta, sem gera ska-1, er vinna fóílksins á jörðinni. Hún gefur af sér fjárnyagnið, sem til fram-kv.æ-md- anna þarf. — En er þeim auði ekki hryggilega misskipt, meðan hernaðartækni og ,geimfarir eru metnar meira en. hamingjan og lífið? Svo mun mörgum finnast. Þess vegna er samkeppnin mikla hæpið gleðiefni. Hún ætti að vera á öðrum sviðum og rrjennskari. í íbúðarhús, verzlanir o. fl. Frúin óskar sér þess — Bóndin-n afiar þsss : — Það sparar án frekari fyrirhafnar : frúnni ærna vinnu, — bóndanum viðhalds og hitakostnað. Afhendingarfrestur tveir til þrír mánuðir. Það er í yðar þágu, að gera pantanir tímanlega. <2 6. janúar 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.