Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 1
mgtniliIfiMfr MENNING LISTIR PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK Viótal vió Maríu Gísladóttur, ballettdansara ú getur drei sítót Nú er ég nógu góé LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 1990, verður sett næstkomandi föstudagskvöld. Við það tækifæri dansar María Gísladóttir, ballettdansari, ásamt Malcolm Burn, dansara frá Nýja-Sjálandi, sem starfar með The Richmond Ballet í Bandaríkjunum. Atrið- ið sem þau dansa er úr þriðja þætti Don Quijote, ballett sem saminn er af Petipa. því boði og hefur nú starfað þar í fimm ár. María hefur nú sagt upp stöðu sinni hjá The Richmond Ballet og ætlar að reyna að láta langþráðan draum ræt- ast; drauminn um að lifa og starfa á Islandi. Líklega eru þeir margir íslensku listamennirnir, sem starfa erlendis, sem eiga sér þennan draum, en fáir eru þó svo djarfir og segja skilið við glæsilegan feril erlendis til að koma heim í óvissu og atvinnuleysi. Þegar ég hitti Maríu, þar sem hún var að æfa fyrir Listahátíð í æfinga- sal íslenska dansflokksins, spyr ég af hverju hún hafi gert þetta. Sjá nsstu síóu María er nýkomin heim eftir að hafa starfað ytra um sextán ára skeið. Fimmtán ára að aldri innritaðist hún í Royal Ballet School í London og stundaði þar nám frá 1970 til 1972. Eftir námið var hún ráðin hjá Deutsche Oper í Berlín, frá 1972 til 1981, þar sem hún dansaði fyrst sem almennur dansari, en síðan sólódansari. Haustið 1981 réði hún sig sem aðaldansara við Staatsteat- er í Wiesbaden og dansaði þar til 1983. Þá ákvað María að söðia um og flytja sig yfir hafið — til Bandaríkjanna. Hún vann í New York fram til ársins 1985, í lausa- mennsku með ýmsum danshópum, en árið 1985 var henni boðin staða sem aðaldansari við The Richmond Ballet, tók

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.