Morgunblaðið - 13.06.1990, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
*
Olafiir Ragnar Grímsson, fjármálaráðhetra:
Stefiiir í minni tekjur
ATVR en áætlað var
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra segir að hækkun sú
sem varð á áfengi og tóbaki í gær sé innan þeirra marka sem tiltek-
in voru við gerð kjarasamninganna þann 1. febrúar sl. „I minnis-
blaði sem fylgdi frá fjármálaráðuneytinu sem íylgiskjal kjarasamning-
anna segir ma.a „verð á áfengi og tóbaki hækki í takt við almenna
kostnaðarþróun á þriggja mánaða fresti," sagði Ólafur Ragnar í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Ólafur Ragnar sagði að fjármáia-
ráðuneytið hefði lækkað fram-
færsluvísitöluna um umsamin 0,3%
með lækkun bifreiða- og bensín-
gjalds. „Allar aðrar hækkanir
standa, þannig að þetta er í sam-
ræmi við bæði forsendur fjárlaga
og forsendur kjarasamninganna,"
sagði fjármálaráðherra.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
tækifæri fyrir ríkið að ganga á
undan með góðu fordæmi, og hverfa
frá þessum hækkunum og draga
þar með úr hættunni á að farið
verði yfir rauðu strikin þann 1. sept-
ember nk. sagði Ólafur Ragnar:
„Við gerum einfaldlega það sem
ákveðið var. Þetta er bara hluti af
þeim forsendum sem fjárlögin voru
byggð á, sem voru kynnt í aðdrag-
anda kjarasamninganna. Aðilar
vinnumarkaðarins reiknuðu alltaf
með þessum hækkunum."
Meðalhækkun á tóbaki er 4%, en
sumar tegundir hækka minna, aðr-
ar meira. Einn pakki af Winston
Leiðrétting
í myndatexta með baksíðufrétt
Morgunblaðsins í gær víxluðust
skímamafn og föðurnafn manns-,
ins, sem lézt í bílslysinu í Hrúta-
fírði. Hann hét Sigurjón Sæmunds-
son. Aðstandendur Siguijóns og
lesendur blaðsins eru beðnir afsök-
unar á þessum mistökum.
sígarettum kostar nú 204 krónur,
en kostaði áður 198 krónur og
hækkaði þannig um 3%. Prince
sígarettur hækka úr 198 krónum í
212 krónur, eða um 7%. Meðal-
hækkun áfengis er 5,6%. Algeng
rauðvínstegund, St. Emilion kostar
nú 1040 krónur, og hækkaði um
4%. Bernkasteler hvítvín kostar 580
krónur og hækkaði um 5,5%. Black
Label viskí kostar 2820 krónur,
kostaði áður 2680 krónur og hækk-
aði um 5,2%. Smirnoff vodka kostar
nú 1990 krónur og hækkaði um
4,2%.
Hækkun á áfengu öli er minnst,
eða frá því að vera engin á Heine-
ken og Pilsner Urquell í það að
vera 2,6% á Löwenbrau Sex flöskur
af Löwenbrau kosta nú 790 krón-
ur. Beck’s bjórinn hækkaði um 2,3%
og kostar kippan nú 860 krónur.
Tuborg hækkaði um 1,3% og kostar
nú 800 krónur.
Ólafur Ragnar sagði að hér væri
ekki um neinar viðbótartekjur að
ræða fyrir ríkissjóð, heldur einungis
það sem reiknað hefði verið með í
forsendum fjárlaga þegar heiidar-
tekjur af Áfengis og tóbaksverslun-
inni voru áætlaðar. „Hins vegar
stefnir í það að þær tekjur verði
hugsanlega eitthvað minni, en áætl-
að var,“ sagði fjármálaráðherra.
í frétt frá fjármálaráðuneytinu
segir að rekja megi hækkanir þær
sem eru umfram 4% til kostnaðar-
hækkana erlendis.
Morgunblaðið/Júlíus
Erá blaðamannafúndi á Hallveigarstöðum. Frá vinstri, Jónína Margrét Guðnadóttir, varaformaður Kven-
réttindafélags íslands, Herdís Hall, framkvæmdastjóri félagsins, Guðrún Arnardóttir, formaður, Björg
Einarsdóttir, rithöfundur, Guðrún Ásmundsdóttir,leiksljóri, Aslaug Brynjólfsdóttir og Soffía Guðmunds-
dóttir úr stjórn Kvenréttindafélagsins.
Kvenréttindafélag íslands:
Konur halda upp á 7 5
ára kosnmgaréttarafmæli
SAMSTARFSNEFND Kvenréttindafélags íslands og fulltrúa þeirra
þingflokka sem eiga konur á þingi gangast fyrir hátiðarhöldum í
tilefhi af 75 ára kosningaréttarafmæli kvenna 19. júní næstkom-
andi. Dagskráin hefst klukkan 16. 30 í porti Miðbæjarskólans. Þá
verður gengið um miðbæinn og hlýtt á stutta dagskrá við Austur-
völl. Klukkan 18.00 verður konum boðið að skoða Alþingishúsið.
Hatíðarfundur verður sama dag björgu Sveinsdóttur, Ólafíu Jó-
klukkan 20.30 í Islensku óperunni.
Þar verða flutt stutt ávörp og gest-
ur Kvenréttindafélags Islands,
bandaríska kvenréttindakonan
Betty Friedan frá Bandaríkjunum,
segir nokkur orð. Þá verður flutt
samfelld dagskrá um sögu kvenna-
baráttunnar alit frá frönsku stjórn-
arbyltingunni til okkar daga. Sér-
staklega verður fjallað um Þor-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Tryggvi Ólafsson listmálari gróðursetur fyrstu plöntuna í landgræðslu- og skógræktarátaki í Vestmanna-
eyjum.
Vestmannaeyjar;
Skógræktarátak hafíð
Tryggvi Olafsson listmálari gróðursetti fyrstu plöntuna
Vestmannaeyj um.
LANDGRÆÐSLU- og skógraektarátak er hafið í Vestmannaeyjum og
var það Tryggvi Ólafsson, listmálari, sem setti niður fyrstu plöntuna.
Á vordögum þegar söfnun til skóg-
ræktarátaks fór fram málaði Tryggvi
Ólafsson málverk í beinni útsendingu
í sjónvarpi. Málverkið var síðan selt
á uppboði. Myndin seidist á hálfa
milljón króna og var skilyði að fjár-
magnið rynni til skógræktar í Vest-
mannaeyjum. í framhaldi af því var
ákveðið að andvirði sölu grænu
greinarinnar í Eyjum rynni til skóg-
ræktar þar. Græna greinin seldist
fyrir háifa milljón í Eyjum þannig
að ein milljón rennur því til skóg-
ræktarátaksins í Vestmannaeyjum
nú.
Ekki var vitað fyrr en nú hver
hafði keypt málverk Tryggva en þá
var upplýst að það voru Lífeyrissjóð-
ur Vestmanneyinga, starfsfólk og
stjórn sjóðsins ásamt verkalýðsfélög-
unum í Eyjum. Var þetta gert í til-
efni 20 ára afmælis sjóðsins.
Tryggvi Ólafsson kom til Eyja og
gróðursetti fyrstu plöntuna. Flutt
voru stutt ávörp þar sem menn fögn-
uðu þessu átaki og eftir að Tryggvi
hafði gróðursett plöntuna afhenti
Torfí Sigurhjartarson, skrifstofu-
stjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja,
Snorra Sigurðssyni, starfsmanni
Skógræktarátaks, ávísun til greiðslu
málverksins sem keypt var.
Tryggvi Ólafsson á annríkt í Eyj-
um þessa dagana því eftir að hann
hafði gróðursett tók hann til við að
setja upp málverkasýningu í Safna-
húsinu í Eyjum.
Grímur
hannsdóttur, Bríeti Bjarnhéðins-
dóttur, Ingibjörgu H.Bjarnason og
Hannes Hafstein sem árið 1911
flutti frumvarp þess efnis að konur
mættu gegna embætti presta og
dómara. Leikarar undir stjórn Guð-
rúnar Asmundsdóttur og Sögu
Jónsdóttur munu flytja dagskrána.
Höfundar hennar eru þær Björg
Einarsdóttir, rithöfundur, og Guð-
rún Ásmundsdóttir,leikstjóri.
Auk þess sem Betty Friedan mun
ávarpa hátíðarsamkomuna þann
19. júní mun hún halda fyrirlestur
í Odda 18.júní klukkan 17.15 á
vegum Félagsvísindadeildar Há-
skóla íslands og nýstofnaðar
Kvennarannsóknarstofu við háskól-
ann. Nefnir hún þann fyrirlestur
„From the Feminine Mystique to
the Second Stage - the Role of
Feminist Thought in Society
Today.“
Þann 21. júní klukkan 20.30 mun
hún svo flytja fyrirlestur á vegum
Kvenréttindafélags íslands á
Holiday Inn. Þar mun hún ræða
um stöðu kvennahreyfingarinnar
um þessar mundir, einkum í Banda-
ríkjunum, og hvert beri að stefna
í nánustu framtíð. I síðustu bók
sinni „The Second Stage hefur
Betty lýst áhyggjum sínum af and-
varaleysi 'yngri kvenna um stöðu
sína og jafnrétti kynjanna og mun
fyrirlestur hennar m.a. fjalla um
hvernig spornað skuli gegn þeirri
þróun.
Betty er af mörgum talin hafa
hrint jafnréttishreyfingu nútímans
af stað með ritinu „The Feminine
Mystique“ sem kom út árið 1963.
Æ síðan hefur hún beitt sér af afli
Betty Friedan er að mörgun talin
hafa hrint jafnréttishreyfingu
nútímans af stað.
í baráttu fyrir jafnrétti kvenna og
karla og haft mikil áhrif, langt út
fyrir ættland sitt, segir í frétt frá
undirbúningsnefndinni. I för með
Betty Friedan verða nokkrar banda-
rískar konur sem vilja af eigin raun
kynna sér stöðu kvenna í stjórnmál-
um hér á landi og sjá hvernig stað-
ið er að málefnum barna og fjöl-
skyldunnar í heild. Meðal þessara
kvenna eru fræðimenn og stjórn-
endur á þessum sviðum, svo og
.framkvæmdastjóri Ijölmiðlastofn-
unar í Washington sem einkum
starfar að útbreiðslu- og fræðslu-
herferðum í þágu jafnréttismála,
mannréttinda- og umhverfísmála.
„Konur eru hvattar til að taka
þátt í skrúðgöngunni 19. júní og
vonast er til að þær mæti í einkenn-
isbúningum sinnar stéttar séu þeir
til og þær konur sem eigi íslenskan
búning beri hann í tilefni dagsins,"
segir að lokum í fréttinni Aðgangur
að hátíðrsýningunni um kvöldið er
ókeypis og allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Vel má ræða viðauka við
nafh Alþýðuflokksins
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra segist ekki telja að það skipti
neinum sköpum fyrir Alþýðuflokkinn, að viðaukinn Jafnaðarmanna-
flokkur Islans bætist við nafn flokksins. „Það má vel ræða svona
viðauka við nafn flokksins, en ég tel ekki að slíkt hefði neina úrslita-
þýðingu fyrir Alþýðuflokkinn. Eg tel slíkt ekki tilheyra stórákvörðun-
um í íslenskum stjórnmálum," sagði Jón í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Málverk Tryggva Ólafssonar sem
selt var á uppboði.
„I fyrsta iagi fínnst mér rétt að
nafn flokksins haldist og í öðru lagi
tel ég formlega viðbót ekki skipta
mjög miklu máli,“ sagði Jón. „Auð-
vitað vita það allir að þetta er jafn-
aðarflokkur íslands og hvort við
notum það í kynningu á flokknum,
finnst mér vera mál sem vel megi
ræða. Kjarni málsins er að sjálf-
sögðu sá, að þetta er Alþýðuflokk-
urinn og hann heldur áfram að vera
það.“