Morgunblaðið - 13.06.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
41 -
Minning:
Egill H. Hjálmarsson
í hendi guðs er hver ein tíð,
í hendi guðs er allt- vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.
(M. Jóh.)
í lífi þess sem hér er kvaddur
hafði húmað að kveldi um nokkurt
skeið. Nú hefur hann hlotið
hvíldina. Á þeim stúndum sem ást-
vinir okkar kveðja þennan heim
skynjum við sterkar en áður að öll
erum við á langri vegferð og að það
er engin leið til baka inn í lífið aft-
ur. En í sorginni rata þær minning-
ar sem geymdar eru í sjóði hjartans
leið sína til andans og um stund
hverfur okkur heimur hraða og
áreita og við endurlifum þann tíma
er skipst var á heimsóknum, teflt,
spjallað og hlegið.
Það var ósjaldan sem Egill leit
inn til okkar þann tíma er við bjugg-
um í Álftamýrinni og það breyttist
ekki er við fluttum í Fossvoginn.
Segja má að oftast hafi heimsóknir
hans hafist og endað á taflmennsku
enda hafði Egill gaman af að tefla
og ekki var áhuginn minni hjá heim-
ilisföðurnum. En það var ekki ein-
ungis skákin sem sameinaði þá
frændur. Laxveiði skipaði stóran
sess í lífi beggja og veiðiferðirnar
hvort heldur farið var í Vatnsá,
Laxá eða einhveija aðra á, veittu
ómældar ánægjustundir.
Þegar Egill og Helga komu bæði
í heimsókn varð skákin og laxveiði-
áhuginn stundum að víkja fyrir
samræðum og bollaleggingum um
eitthvað allt annað og þá leið tíminn
oft hratt. Slíkar minningar ylja og
samræðurnar, hvort sem þær sner-
ust um dægurmál eða alvarlegri
efni, vitja okkar nú þegar horft er
til baka. Okkur finnst það ómetan-
legt að hafa átt þess kost að blanda
geði við svo góðan og heilsteyptan
mann sem Egill var og fyrir það
þökkum við. Samfylgdin við hann
var okkur mikils virði.
Elsku Helga, megi sá sem öllu
ræður styrkja þig og þína.
Við kveðjum elskulegan frænda
og vin og óskum honum góðrar
heimkomu.
Gréiar og Stína.
Góður vinur minn og tengdafað-
ir, Egill H. Hjálmarsson, lést í
Reykjavík 6. júní síðastliðinn.
Egill fæddist 8. október 1910 í
Reykjavík, sonur hjónanna Mar-
grétar Egilsdóttur og Hjálmars
Þorsteinssonar. Mér er ljúft að
minnast Egils tengdaföður míns en
fundum okkar bar fyrst saman fyr-
ir um 30 árum. Frá fyrsta degi vildi
Egill allt fyrir mig gera og naut
ég þess í ríkum mæli alla tíð að
eiga hann að meðan krafta hans
naut við.
Heimili þeirra Egils og konu
hans, Helgu Jasonardóttur, var
ávallt einstaklega fallegt enda lögð
einstök rækt við að svo mætti vera.
Myndarskapur þeirra hjóna var ein-
stakur og nutu margir góðs af enda
ekkert til sparað þegar gesti bar
að garði og eru ógleymanleg jóla-
boðin þar sem öll fjölskyldan kom
ávallt saman.
Helga býr nú í þjónustuíbúðum
aldraðra sem reistar voru af Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur við
Hvassaleiti í fallegri íbúð sem er
myndarlegur afrakstur ævistarfs
þeirra Egils og Helgu.
Magnús E. Guðjóns-
son - Kveðjuorð
Fæddur 13. september 1926
Dáinn 17. maí 1990
Á maídögum árið 1953 lukum
við níu ungir menn prófi frá lága-
deild Háskóla íslands. Einum af
þessum skólabræðrum mínum
fylgdi ég til grafar mánudaginn 28.
maí sl. Af níu manna hópi eru nú
fjórir látnir. Auk Magnúsar E. Guð-
jónssonar þeir Emil Ágústsson,
borgardómari, Ófeigur Eiríksson,
bæjarfógeti, og Hafsteinn Sigurðs-
son, hæstaréttarlögmaður.
Við Magnús kynntumst talsvert
á námsárum okkar í Háskólanum.
Þau kynni héldust þó hann flytti
til Akureyrar, því hann kom oft til
Reykjavíkur og heilsaði þá stundum
upp á mig og kom í skrifstofu mína.
Eftir að hann varð framkvæmda-
stjóri Sambands sveitarfélaga, var
hann dijúgur við að vísa til mín
verkefnum, er til hans var leitað
og menn þurftu aðstoðar lögmanns.
Ég mat mikils það traust. Nú um
nokkurt skeið höfðum við ekki hist,
og kom dánarfregn hans mér ger-
samlega á óvart. Hafði ekkert heyrt
um veikindi hans.
Ekki undrar mig þótt samstarfs-
menn Magnúsar beri honum vel
söguna eins og lesa má í minningar-
greinum. Hann var einstaklega
prúður og þægilegur í vlðkynningu,
skarpgreindur og skýr í hugsun.
Magnús E. Guðjónsson hefði án efa
orðið afbragðs málflytjandi hefði
liann valið sér þá lífsbraut.
Ekkju Magnúsar og aðstandend-
um öllum sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur.
Ingi Ingiimindarson
Kveðja frá Rótarýfélögum
Hinn 17. maí sl. barst sú sorg-
lega frétt að Magnús E..Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri, hefði and-
ast þá um nóttina á sjúkrahúsi í
Reykjavík, 63 ára gamall.
Magnús fæddist og ólst upp á
Hólmavík. Hann var lögfræðingur
að mennt. Fulltrúi lögreglustjórans
á Keflavíkurflugvelli var hann
1954-58, bæjarstjóri á Akureyri
1958-67 og síðan framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra sveitarfé-
laga til dauðadags. Magnús var
félagi í Rótarýklúbbi Kópavogs og
kynntist ég honum þar. Mér fannst
hann hlýr og hjálpfús og aðlaðandi
persónuleiki. Við félagar hans
minnumst margra góðra og
skemmtilegra stunda með Magnúsi,
bæði þegar hann hafði með höndum
störf og embætti innan klúbbsins
og einnig þegar hann flutti erindi
fyrir félagana. Tók hann öllum
beiðnum ljúfmannlega og má með
sanni segja að það hafi einkennt
hann.
Magnús kvæntist 1962 Öldu
Bjarnadóttur, ættaðri úr Skaga-
firði, og lifir hún mann sinn.
Við félagar hans minnumst hans
með virðingu og trega. Við sendum
eiginkonu hans, dætrum og öðrum
ástvinum dýpstu samúðarkveðjur.
F.h. Rólarýklúbbs Kópavogs,
Ulfar Helgason.
Egill rak eigið bílaverkstæði í
húsakynnum Jóhanns Ólafssonar
og Co. við Ilverfisgötu um nokk-
urra ára skeið ásamt félaga sínum
Ragnari sem nú er látinn.
Arið 1969 hóf Egill störf við
nýstofnað fyrirtæki, Toyota-vara-
hlutaumboðið hf., sem undirritaður
ásamt fleirum stofnaði og var Egill
fyrsti starfsmaður þess. Fljótlega
eftir að Egill hóf störf festist Afa-
nafnið við Egil þar sem hann var
aldursforseti og viskubrunnur okk-
ar ungu mannanna enda gott að
leita ráða hjá Afa.
í byijun var starfsaðstaða heldur
bágborin og vegna sérstakra að-
stæðna var upphitun húsnæðisins
ekki möguleg og mældist frost
mest innandyra 16 gráður. Ekki
minnist ég þess þó að hafa nokkru
sinni heyrt Afa kvarta heldur
klæddi hann sig bara betur enda
ýmsu vanur og naut þess að fá að
starfa og byggja upp en þá fyrst
var hann í essinu sínu og nánast
gleymdi að borða ef mikið var um
að vera.
Afi var einnig góður smiður, sér-
staklega vandvirkur og úrræðagóð-
ur og nýttist því þessu nýja fyrir-
tæki vel því að mörgu var að hyggja
og knappur fjárhagur á þessum
krepputímum. Hin síðari ár átti Afi
við mikið heilsuleysi að stríða og
því kærkomin hvíldin nú.
Síðastliðin tvö og hálft ár dvaldi
hann á Hvítabandinu og vil ég fyr-
ir mína hönd og nánustu aðstand-
enda færa starfsfólki Hvítabandsins
innilegt þakklæti fyrir ómetanlega
umönnun sem hann naut meðan
hann var þar. t
Að lokum vil ég votta tengda-
móður minni, Helgu Jasonardóttur,
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Jóhann
jabak*up
þvottf
vélum
Blomberg
V.-þýsk gæðatœki
Alþjóðleg
hönnunarvorðlaun
Industrleform
Hannover
Vegna mikillar sölu á þvottavélum frá Blom-
berg getum við nú boðið sendingu af þess-
ari úrvals vél á einstöku verði
VM 1215 — 1200 snúninga vinding,
sparnaðarkerfi, áfangavinding,
tölvustýrður mótor.
Einstaklega skemmtileg vél.
Staðgreitt 66.405,-
Veró áóur 79.900,-
Þú sparar 10.OOO,-
Etnar FarestveÉt&Co.hff.
BORCAWTÚIH 28, SÍMI622901.
LelA 4 stoppar vM dyrrar
CLEARPLAN
egglosmælirinn
Hraðvirk, auðveld,
örugg og ódýr aðferð
til að vita nákvæmlega
hvenær mestar líkur
eru á þungun.
CLEARPLAN nemur
magn þess hormóns,
sem kemur egglosi af
stað.
En ólíkt öllum slíkum mælingum fram til þessa er CLEARPLAN
mælingin fyrirhafnarlaus. Mælinguna má gera hvenær dags sem
er. Svar fæst eftir 5 mínútur. íslenskar leiðbeiningar.
CLEARPLAN egglosmælirinn fæst í apótekum.
'mtt