Morgunblaðið - 13.06.1990, Síða 24
22
24
GLÆSIBÆ-SIMI82966
Stærðir 37-41
Teg. Lipstick
Verð frá kr. 4.540,- [
Póstsendum 5%
samdægurs stgr.afsléttur
MEÐ SÉRSTÖKUM SAMNINGIVIÐ
GRAM-VERKSMIÐJURNAR, FENGUM VIÐ
EINA SENDINGU AF ÞESSUM FJÓRUM
GERÐUM Á ALVEG EINSTAKLEGA
HAGSTÆÐU VERÐI
GRAM KF265
200 Itr. kælir
63 Itr. frystir
H 146,5 crn
B 55,0 cm
D 60,1 cm
áðurkr. 57.990.-
iiú l'i. 54.700."
stgr. kr. 51.960.-
GRAM KF250
173 Itr. kælir
70 llr. fryslir
H 126,5 cm
135,0 cm
(stillanleg)
B 59,5 cm
D 62,1 tm
áðurkr. 57.990.-
ii/í kr. 54.700."
stgr. kr. 51.960.-
GRAM KF355
277 llr. kælir
70 Itr. frystir
H 166,5 cm
175,0 cm
(stillanleg)
B 59,5 tm
0 62,1 tm
áðurkr. 72.960,-
mi kr. 68.900."
stgr. kr. 65.450.-
GRAM KF344
198 Itr. kælir
146 Itr. frystir
H 166,5 tm
175,0 cm
(stillanleg)
B 59,5 tm
D 62,1 tm
áðurkr. 79.950.-
mi kr. 75.400."
stgr. kr. 71.630.-
GRAMKÆUSKAPAR
hágæía læki í eldhúsió,
- á tilboSsverSi
5% Staðgreiðsluafsláttur
Kaupir þú Ivö heimilistæki í einu i verslun
okkar, gerum viS enn betur og bjóSum 10%
afsláll gegn slaSgreiSslu
/rOniX
HÁTÚNI óA SÍMI (91|24420
iHróðleikur og
J- skemmtun
fyrirháa semlága!
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990
Líbería:
Vaxandi
straumur
flóttafólks
Genf, Monroviu. Reuter.
YFIR 150.000 flóttamenn hafa flú-
ið frá Vestur-Afríkuríkinu Líberíu
til nálægra ríkja vegna borgara-
styrjaldar sem staðið hefur í hálft
ár, að sögn talsmanna Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, UNHCR. Flestir hafa farið
til Gíneu en allmargir til Fílabeins-
strandarinnar og Sierra Leone.
Leiðtogi uppreisnarliðsins, Charles
Taylor, krefst þess að Samuel Doe,
einráður forseti landsins, fari frá.
Hermenn Doe hafa verið sakaðir um
að myrða óvopnaða borgara í tilraun-
um sínum til að verjast uppreisnar-
mönnum, er sitja um höfuðborgina
Monróvíu, en Doe vísaði þessum
ásökunum á bug í viðtali við banda-
rískar sjónvarpsstöðvar.
Ríkisstjómin hefur sent fulltrúa
til samningaviðræðna við samtök
uppreisnarmanna, Föðurlandsfylk-
ingu Líberíu, og eiga viðræðurnar
að fara fram í Sierra Leone.
Lýðveldið Líbería var stofnað árið
1847 af bandarískum leysingjum
með aðstoð hvítra andstæðinga
þrælahalds en lengi hefur verið rígur
milli afkomenda leysingjanna og
ýmissa ættbálka.
Þýsku ríkin tvö:
Reuter
Gífúrlegur hiti í Mega Borg tefur slökkvistarfíð
Gífurlegur hiti varð til þess að slökkviliðsmenn komust ekki um borð í norska risaolíuskipið Mega Borg
við strendur Texas í gær. „Jafnvel klæðnaður, sem á að veija líkamann fyrir hita, nægir ekki þegar hitinn
er svona mikill,“ sagði talsmaður bandarísku strandgæslunnar, Todd Nelson. „Enginn bjóst við slíkum
hita eftir þriggja daga stanslausa dælingu á skipið,“ bætti hann við. Annar talsmaður strandgæslunnar
sagði þó að ekki væri hætta á alvarlegum olíuleka úr skipinu í bráð, þar sem veðrið væri hagstætt og
olían brynni jafn óðum og hún læki í sjóinn. Veðurfræðingar spá því að veðrið haldist gott næstu tvo
daga. Skutur skipsins hefur sokkið um 17 metra vegna vatnsins sem dælt hefur verið á það til að kæla
þilfar þess frá því á laugardag er sprenging varð í því. Hætta er talin á því að skipið sökkvi vegna vatnsins
og gæti það valdið mesta mengunarslysi í sögu Bandaríkjanna þar sem 155 milljónir lítra af bensíni eru
í skipinu. Á myndinni sést vatni dælt á skipið úr nokkrum bátum.
Stasi grunað um stuðn-
ing við hryðjuverkamenn
TALIÐ er líklegt að nokkur fjöldi
hryðjuverkamanna er tengist
vestur-þýsku hryðjuverkasam-
tökunum RAF (Rauða herdeildin)
hafí á sínum tíma fengið athvarf
í Austur-Þýskalandi og leynist
þar enn. Hefiir grunur þessi feng-
ið byr undir báða vængi eftir
handtöku hryðjuverkakonunnar
Susanne Albrecht í Austur-
Þýskalandi í síðustu viku. í kjöl-
far handtöku Albrechts velta
menn nú líka fyrir sér hversu
náið samstarf RAF og austur-
þýsku leynilögreglunnar, Stasi,
hafi verið og hvort Stasi hafi
hugsanlega átt beinan þátt í ein-
hverjum af hryðjuverkum RAF í
Vestur-Þýskalandi.
Til skamms tíma var Austur-
Þýskaland lokað svæði fyrir
vestur-þýsku lögregluna í leit henn-
ar að hryðjuverkamönnum.
Austur-þýskir borgarar gátu þó
flestir hveijir fylgst með fréttum í
vestur-þýsku sjónvarpi og fengið
þaðan upplýsingar um hvaða
hryðjuverkamönnum var lýst eftir.
Barst vestur-þýsku alríkislögregl-
unni, BKA, töluvert af upplýsingum
frá ónafngreindum aðilum í
Austur-Þýskalandi sem bentu til að
hiyðjuverkamennimir kynnu marg-
ir hveijir að eiga innangengt aust-
anmegin. En eins og gefur að skilja
gat lögreglan ekki fylgt þessum
upplýsingum eftir. Það var ekki
fyrr en innanríkisráðherrar beggja
þýsku ríkjanna gerðu með sér sam-
komulag um samstarf fyrir nokkr-
um vikum að þetta ástand breytt-
ist. Er nú leitað Iogandi Ijósi að
hryðjuverkamönnum í Áustur-
Þýskalandi og hafa meðal annars
verið hengd upp 7.000 veggspjöld
með myndum af eftirlýstum hryðju-
verkamönnum víðs vegar um
landið.
í síðustu viku var svo tilkynnt
um fyrsta árangurinn af þessari
leit. Susanne Albrecht hafði verið
handtekin í Austur-Berlín, en hún
er sú kona, að Uirike Meinhof einni
undanskilinni, sem BKA hefur haft
mest fyrir að leita að. Er hún talin
hafa átt þátt í morðinu á Jiirgen
Ponto, stjórnarformanni Dresdner
Bank, árið 1977. Ponto var guðfað-
ir Albrechts og góðvinur föður
hennar og grunaði því ekkert illt
er hún knúði dyra hjá honum ásamt
tveimur „vinum“ sínum, 30. júní
1977. Er talið að þrenningin hafi
ætlað að reyna að ræna Ponto en
skotið hann til bana er hann snerist
til varnar.
Fyrst um sinn eftir verknaðinn
mun Susanne Albrecht hafa verið
í felum í Mið-Austurlöndum en árið
1980 kom hún til Austur-Þýska-
lands um Tékkóslóvakíu. Örfáum
dögum síðar var hún orðin að
austur-þýskum ríkisborgara undir
nafninu „Ingrid Jáger.“ Albrecht,
sem í dag er 39 ára gömul, giftist
austur-þýskum eðlisfræðingi og
eiga þau saman eitt bam. Mun hún
hafa starfað í sovéskri kjamor-
kurannsóknastofnun tvö síðustu
árin áður en hún var handtekin.
Hefur verið upplýst að eiginmaður-
inn vissi til skamms tíma ekkert
um skuggalega fortíð konu sinnar.
Ríkissaksóknari Vestur-Þýska-
lands hefur óskað eftir því að
Albrecht verði afhent vestur-þýsk-
um yfirvöldum en veijandi hennar,
Wolfgang Vogel, sem einnig er
m.a. verjandi Erichs Honeckers,
krefst þess að hún verði látin laus
þar sem hún hafi ekki brotið gegn
austur-þýskum lögum. Telja margir
að mál þetta sé prófsteinn á hversu
langt Austur-Þýskalánd sé komið á
braut réttarríkisins.
En Albrecht-málið vekur líka
óhug af ýmsum ástæðum. Það
hversu hratt það gekk fyrir Su-
sanne Albrecht að fá austur-þýskt
nokkurs vafa til þess að austur-
þýska leynilögreglan, Stasi, hafi
verið méð puttana í spilinU. Hefur
meðal annars hinn nýi innanríkis-
ráðherra Austur-Þýskalands,
Peter-Michael Diestel, lýst því yfir,
aðspurður um hugsanleg tengsl
RAF og Stasi, að hann gæti enn
ekkert sagt en að honum litist illa
á málið. Hefur flokkur Diestels,
DSU, ásamt vestur-þýska systur-
flokki sínum, CSU, krafist þess að
allt hugsanlegt samstarf RAF og
Stasi verði rannsakað og leitt fram
í dagsljósið. Vestur-þýsk öryggis-
yfirvöld vilja sérstaklega ganga úr
skugga um hvort sá grunur þeirra
eigi við rök að styðjast að Stasi
hafi ekki einungis aðstoðað hryðju-
verkamenn við að fmna sér athvarf
heldur einnig átt beinan þátt í
hryðjuverkum í því skyni að grafa
undan stöðugleika lýðræðisins vest-
anmegin.
Öruggt er talið að nokkur fjöldi
hryðjuverkamanna sé enn í felum
í Áustur-Þýskalandi og hafa meðal
annars þær Silke Maier-Witt, Sigrid
Sternbeck og Inge Viett verið
nefndar á nafn. Þær eru m.a. tald-
ar hafa átt aðild að því að ræna
og myrða síðan formann vestur-
þýskra vinnuveitenda, Hanns-Mart-
in Schleyer, árið 1977, ræna for-
manni kristilegra demókrata í
Berlín, Peter Lorenz, árið 1975, og
að hafa gert tilraun til eldflauga-
árásar á skrifstofur ríkissaksóknara
Vestur-Þýskalands árið 1977.
En væntanlegur samruni þýsku
ríkjanna eykur ekki einungis mögu-
leika lögreglunnar til að hafa hend-
ur í hári hiyðjuverkamanna. Er
talið líklegt að starfsemi hryðju-
verkasamtakanna kunni nú einnig
að færast inn á svæði Austur-
Þýskalands. Þeir stjórnmálamenn
sem helst eru taldir vera í hættu
vegna þessa eru forsætisráðherra
Austur-Þýskalands, Lothar de
Maziére, Diestel innanríkisráðherra
og vamarmálaráðherrann, Rainer
Eppelmann.