Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/U
153. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja:
Tekist á um efnahags-
aðstoð til Sovétmanna
Houston, Tókíó, Brussel. Reuter, Daily Telegraph.
ÁRLEGUR fundur sjö voldugustu iðnríkja er búa við markaðskerfi hefst í Houston
í Texas á morgun, mánudag, og lýkur á miðvikudag. Þau mál sem verða efst á
baugi eru fjárhagsaðstoð vestrænna ríkja við Sovétmenn og nýfrjáls ríki Austur-Evr-
ópu ásamt afstöðunni til Mið-Ameríkuríkja og Mið-Austurlanda. Einnig mun stefnan
gagnvart kommúnistastjórninni í Kína verða til umræðu en Japanar hafa þegar
lýst því yfir að þeir muni senn aflétta öllum eftiahagsþvingunuin vegna blóðbaðsins
á Torgi hins himneska friðar, hver sem niðurstaða fundarins í Houston verði.
Er staupið gott
fyrir hjartað?
RANNSÓKN, sem náði
til 7.735 miðaldra manna
og kvenna og stóð í sjö
og hálft ár, hefúr leitt í
ljós að dánartíðnin á
meðal þeirra, sem neyta
áfengis í hófi, er lægri
en á meðal þeirra sem
segjast aldrei fá sér í staupinu. Hæst er
hún hjá þeim sem ekki drekka og hafa
hætt að reykja. A.G. Shaper, prófessor
við Lundúnaháskóla, hefiir rannsakað
þetta mál frekar og kynnti niðurstöður
sínar á þingi norrænna bindindismanna,
sem haldið var í Stafangri nýlega. Hann
sagði skýringuna þá að stór hluti bind-
indismanna hefði hætt að reykja og
drekka vegna þess að þessi óvani hefði
þegar valdið þeim hjartasjúkdóinuin.
Leigði fólk til að
hlýða á ráðherra
París. Daily Telegraph.
FRANSKI ferðamálaráðherrann Olivier
Stirn neyddist til að segja af sér á
fimmtudag eftir að hafa orðið uppvís að
því að fyrirskipa aðstoðarmönnum sínum
að ráða atvinnulaust fólk til að hlýða á
ræður ráðherra úr Sósíalistaflokknum á
ráðsteftiu í París. 200 atvinnuleysingjar
fengu þar tækifæri til að fræðast af tólf
ráðherrum og tveimur fyrrum forsætis-
ráðherrum landsins fyrir fjárhæð sem
jafngildir 3.000 íslenskum krónum. Þeir
voru hins vegar aðeins ráðnir til klukkan
18.15 ogþegar Jean Pierre Chevenement
varnarmálaráðherra tók til máls gengu
allir út úr ráðstefnusalnum.
Magadansmeyjar
mótmæla í Israel
Jerúsalem. Reuter.
RABBINAR sæta nú harðri gagnrýni
ísraelskra magadansmeyja, sem segja að
trúarlegt umburðarleysi ógni lífsafkomu
þeirra. Rabbínarnir liöfðu tilkynnt hótel-
um og samkomustöðum að þeir myndu
afturkalla nauðsynleg leyfi, sem staðfesta
að veitingarnar samræmist trúarreglum
gyðinga, ef staðirnir heimiluðu maga-
dansmeyjum að koma fram. Tíu þekkt-
ustu magadansmeyjar Isaraels mót-
mæltu fyrir utan aðalstöðvar trúarleið-
toga í bænuin Ashdod í suðurhluta lands-
ins, en trúarleiðtogar segja dansatriðin
vera ósæmileg og ögrandi. Mótmæli
magadansmeyjanna fóru fram á sóma-
samlegan hátt að sögn ísraelsku frétta-
stofunnar Itim - þær voru fullklæddar
og ekki sást glitta í einn einasta nafla.
Ríkin sjö eru Bandaríkin, Japan, Vertur-
Þýskaland, Frakkland, Bretland, Ítalía
og Kanada. Á nýlegum leiðtogafundi aðild-
arríkja Evrópubandalagsins voru ræddar
tillögur Frakka og V-Þjóðveija um 15 millj-
arða Bandaríkjadollara aðstoð við Sovét-
menm til að treysta Míkhaíl Gorbatsjov í
sessi. Full eining náðist ekki og var ákvörð-
un frestað. Bretar segja að slík aðstoð
muni ekki bera árangur fyrr en gerðar verði
róttækar breytingar í átt til markaðskerfis
í Sovétríkjunum. Bandaríkjamenn og Japan-
ar taka undir sjónarmið stjórnar Margaret
Thatcher. Þrátt fyrir umbótayfirlýsingar
Gorbatsjovs og ráðgjafa hans eru sérfræð-
ingar flestir á einu máli um að skrifræði
stalínismans ráði enn ferðinni í stjórnar-
skrifstofum Kremlveija. Breytingin er enn
sem komið er aðallega sú að miðstýringin
er orðin ráðleysislegri en frjálst hagkerfi á
langt í land. Þetta er sögð aðalástæðan
fyrir neyðarástandinu sem er að skapast;
umbótasinni á flokksþingi kommúnista í
Moskvu sagði fyrir helgi að íbúar í Smo-
lensk-héraði byggju við verri lífskjör en
Eþíópíumenn.
Mögulegt er að leiðtogarnir sjö lýsi yfir
stuðningi við umbætur Gorbatsjovs, sem
sent hefur vestrænum leiðtogum bréf með
beiðni um fjárhagsaðstoð, en reyni ekki að
ná samstöðu að þessu sinni um sameigin-
legt hjálparátak.
Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands,
mun heimsækja Gorbatsjov eftir Houston-
fundinn og er ljóst að kanslaranum er mjög
í mun að geta haldið til Moskvu með sam-
þykkt um efnahagsaðstoð sjöveldanna.
Framrétt hönd Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á Lundúnafundinum fyrir helgi og
ákvörðun um stórfellda aðstoð iðnríkjanna
ættu, að áliti Þjóðveija, að gulltryggja að
Sovétmenn láti af andstöðu við aðild samein-
aðs Þýskalands að NATO.
GLÍMUNNI
LÝKUR
í RISASTÓRUM
ÁFÖNGUM
Jóhannes Nordal -g /
16
UPP ÚR
ÖLDUDALNUM
OG ÚT í ÓVISSUNA
Stasi hjálpaöi
fo rsp rökkum
samtakanna
RAF ad byrja
nýtt lífhandan
múrsins
14
DJOFULLEGT
SAMSTARF