Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1990
5
Biskup vísi-
terar Þing-
eyjar pró-
fastsdæmi
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, vísiterar Þingeyjar-
prófastsdæmi dagana. 8.-19. júlí.
Iför með biskupi verða auk Ebbu
Sigurðardóttur, biskupsfrúar,
prófastshjónin séra Örn Firðriksson
og frú Álfhildur Sigurðardóttir,
Skútustöðum, Mývatnssveit. Til-
högun vísitasíunnar verður sem hér
segir: 8. júlí, sunnudagur, kl. 11.00
Húsavík. 9. júlí, mánudagur, kl.
14.00 Einarsstaðir, kl. 20.30 Nes.
10. júlí, þriðjudagur, kl. 14.00
Þverá, kl. 20.30 Grenjaðarstaður.
11. júlí, miðvikudagur, kl. 14.00
Snartastaðir, kl. 20.30 Raufarhöfn.
12. júlí, fimmtudagur, kl. 14.00
Svalbarð, kl. 20.30 Sauðanes. 13.
júlí, föstudagur, kl. 14.00 Skinna-
staður, kl. 20.30 Garður. 14. júlí,
laugardagur, kl. 14.00 Þórodds-
staður, 20.30 Ljósavatn. 15. júlí,
sunnudagur, kl. 14.00 Svalbarð, kl.
17.00 Laufás, kl. 20.30 Grenivík.
•16. júlí, mánudagur, kl. 14.00 Háls,
kl. 17.00 Illugastaðir, kl. 20.30
Draflastaðir. 17. júlí, þriðjudagur,
kl. 14.00 Lundarbrekka. 18. júlí,
miðvikudagur, kl. 14.00 Víðirhóll,
kl. 21.00 Reykjahlíð. 19. júlí,
fimmtudagur, kl. 21.00 Skútustað-
ir.
Borgarstjórn:
Tillaga um
útvarpssend-
ingar af
fundum felld
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
felldi á fundi sínum á fimmtudag
tillögu frá fulltrúum minnihluta-
flokkanna um að útvarpað verði
beint frá borgarstjórnarfúndum.
Borgarstjóri sagði við umræðurn-
ar að borgarstjórnarfúndir væru
öllum opnir og óvíða fylgdust fjöl-
miðlar jafn vel með fúndum sveit-
arstjórnar.
Kristín Á. Ólafsdóttir, Nýjum
vettvangi, mælti fyrir tillögu
minnihlutaflokkanna. Sagði hún
meðal annars, að forsenda þess að
kjósendur gætu myndað sér skoðun
á borgarmálum væri upplýsinga-
streymi. Fáir borgarbúar sætu á
pöllum á borgarstjórnarfundum og
aðeins Morgunblaðið og Ríkisútvarp-
ið fylgdust reglulega með þeim og
vegna skorts á tíma og rými gætu
þessir miðlar ekki greint frá ýmsu
sem þar gerðist. Því ætti borgar-
stjórn að kanna, hvort nýta mætti
þá senda, sem fyrir væru hjá útvarps-
stöðvunum, til að senda beint út frá
fundunum, eða að öðrum kosti, að
koma sér sjálf upp nauðsynlegum
búnaði.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði
að fundir borgarstjórnar væru opnir
og umræður þar færu fram í heyr-
anda hljóði. Óvíða fylgdust fjölmiðlar
jafn vel með fundum sveitarstjórnar
og útvarpssendingar af þessu tagi
fengju tæpast nokkra hlustun. Til-
lagan væri greinilega lögð fram í
góðum tilgangi en ekki væri líklegt
að hún næði tilgangi sínum.
1 Tillagan var felld með tíu atkvæð-
um sjálfstæðismanna gegn fimm at-
kvæðum minnihlutaflokkanna.
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Golfferðaklúbbun SL með glæsilegt upphafsbögg:
STÓRKOSTLEG
GOLFFERÐ
HL MALLORCA
A 25.270 KR*
Einn af ávinningunum við að vera félagi í nýstofnuðum Golfferðaklúbbi SL
eru ferðir á borð við Mallorcaferð þá sem farin verður kylfingum til dýrðar
þann 17. júlí. Ætlunin er að bjóða klúbbfélögum árlega ekki færri en
2 slíkar ferðir. Til þess að gerast klúbbfélagi þarftu aðeins að bóka
þig í eina af golfferðum okkar. Þú færð í hendur skírteini sem veitir
þér ekki aðeins aðgang að mörgum bestu golfvöllunum, heldur
færð þú í sumum tilfellum sérstakan afslátt af vallargjöldum!
GolfferðaklúbburSamvinnuferða-Landsýnar
er einnig stofnaður í þeim tilgangi að vinna golfíþróttinni
brautargengi hér á landi m.a. með sérstökum golfmótum hérlendis.
Og klúbburinn hefur starfsemi sína með glæsilegu upphafshöggi:
VIKUFERÐ TIL MALLORCA
Á SÉRSTÖKUM VILDARKJÖRUM.
17. júlí bregðum við okkur í sannkallað golfævintýri á Mallorca. Þar dveljum við í vikutíma, þar af 5 daga
undir handleiðslu hins eftirsótta golfkennara Johns Drummonds.
Hann mun kenna byrjendum og lengra komnum upphafsskot og uppáskot,
„bönker" og „pútt“ og aðrar kylfingakúnstir- upp á „grín“ að sjálfsögðu!
#Verðer 25.270 kr. á mann og er þá miðað við 4 í íbúð og staðgreiðslu.
Fyrir 2 í íbúð kostar 28.310 kr. ámann miðað við staðgreiðslu.
Innifaliö í verði er flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á fyrsta flokks
íbúðarhóteli, golfkennsla og íslensk fararstjórn.
GLÆSIGOLF Á FLORIDA
Nú þegar höfum við bókað fjölmarga farþega í Floridaferð
Golfferðaklúbbsins 5.-20. nóvember.
Frábær golfvöllur, fyrsta flokks gisting!
Hafðu samband, leitaðu upplýsinga ...og dragðu ekki að bóka!
Samvinnuferðir - Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferöir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu viö Hagatorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14. s. 96-27200, póstfax96-27588, telex 2195.
Golfkennsla innifalln!
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA