Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1990 39 Valgeir Vilhjálmsson kynnir vinsældalista. FM: Vinsæklalistar ■■■■ Á dagskrá útvarps- 1Q 00 stöðvarinnar FM 95,7 í ÍO kvöld verður farið yfir vinsældalista. Það er Valgeir Vil- hjálmsson sem kynnir vinsælda- listana í Bretlandi og Banda- ríkjunum, auk þess sem hann fer yfir stöðuna í breiðskífu-sölulist- anum. Þetta er þriggja tíma löng dagskrá og á milli laga segir Valgeir frá lögunum og flytjend- um þeirra. 15.00 Rós i hnappagatið. 15.30 Simtal dags- ins. 16.00 i dag i kvöld. Umsjón: Asgeir Tómasson. 16.05 Veðrið. 16.15 Saga dagsins. 17.45 Hei&ar, heilsan og hamingjan. Endurtek- ið. 18.00 Úti i garðí. 19.00 Við kvöldverðarborðið. Umsjón: Randver Jensson. 20.00 Á yfirborðinu. Umsjón: Koibeinn Gíslason. 24.00 Næturtónar Aðaístöðvarinnar. Umsjón: Randver Jensson. BYLGJAN FM 98,9 7.00 7-8-9. Hallur Magnússon og Kristín Jónsdótt- ir ásamt talmálsdeild Bylgjunnar. Fréttir sagðar á hálftima fresti milli 7 og 9. 9.00 Fréttir. 9.10 Páll Þorsteinsson með dagbókina á sinum stað. Vínir og vandamenn ki. 9.30. Iþróttafréttir kl. 11. Umsjón: Valtýr Björn. 11.00 Ólafur Már Björnsson með tónlist og uppá- komur. m.a. lukkuhjólið. Hádegisfréttir kl. 12. 14.00 Helgi Rúnar Óskarsson og það nýjasta i tón- listinni. íþróttafréttir kl. 15, Valtýr Björn. 17.00 Siðdegisfréttir. 17.15 Reykjavík siðdegis. Sigursteinn Másson meí málefni líðandi stundar i brennidepli. 18.30 Ágúst Héðinsson á mánudagsvakt. 22.00 Haraldur Gislason. Rólegu óskalögin á sinurr stað. 2.00 Freymóður T. Sigurðsson á næturvappinu. Fréttir á klukkutima fresti kl. 10, 12, 14 og 16. EFFEMM FM 95,7 7.30 Til i tuskið. Jón Axel Ólafsson. Fréttir, upplýs- ingar og fróðleikur. 7.45 Út um gluggann. Farið yfir veðurskeyti veður- stofunnar. 8.00 Fréttayfirlit. Gluggað i morgunblöðin. 8.15 Stjörnuspá dagsins. 8.45 Lögbrotið. 10 stubbar úr þekktum lögum. 9.00 Fréttastofan. 9.20 Kvikmyndagetraun. 9.40 Lögbrotið. Nú er komið að þvi að svara. 9.50 Stjörnuspá. Spáð i stjörnurnar. 10.00 Fréttir. Morgunfréttayfirlit. 10.05 Anna Björk Birgisdóttir. Seinni hálfleiku morgunútvarps. 10.30 Kaupmaðurinn á hominu. Skemmtiþættii Gríniðjunnar. 10.45 Óskastundin. 11.00 Leikur dagsins. 11.30 Úrslit. Áhugasamir hlustendur hringi i hljóð- stofu FM. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.15 Komdu i Ijós. Heppnir hlustendur hreppa Ijósakort. 13.00 Sigurður Ragnarsson með á nótunum oc miðlar upplýsingum. 14.00 Fréttir. 14.15 Simað til mömmu. 14.30 Uppákoma dagsins. Hvað gerist? 1: Hvaða félag? ■■■ Yfírskrift þáttarins 1 O 00 í dagsins önn er að -*-*-* þessu sinni Hvaða félag er það? Tekin verða til athugunar ýmis félög og sam- tök og forvitnast um starfsemi þeirra. Fjallað verður um Skot- félag Reykjavíkur, æfinga- svæði félagsins heimsótt og spjallað við nokkrar skyttur. Umsjónarmaður þáttarins er Pétur Eggertz. 15.30 Spilun eða bilun. 16.00 Fréttir. 16.05 Hvað stendur til? l'var Guðmundsson. 16.45 Gullmolidagsins. Rykiðdustaðafgömlulagi. 17.00 Afmæliskveðjur. ívar sendir út kveðjur. 17.30 Kaupmaðurinn á horninu. Hlölli i Hlöllabúð lætur móðan mása. 18.00 Forsíður.heimsblaðanha. 18.30 „Kikt i bió." ívar upplýsir hlustendur um það hvaða myndir.eru til sýninga i borginni. 19.00 Kvölddagskrá hefst. 19.00 Breski og bandaríski listinn. VatgeirVilhjálms- son kynnir. 22.00 Klemens Arnarson er viljugur að leika óska- lóg þeirra sem hringja inn. ÚTVARPRÓT FM 106,8 9.00 Fjör við fóninn. Bl. morguntónlist. Umsjón: Kristján. 12.00 Framhaldssagan. Gunnar Helgason les drengjasöguna Jón miðskipsmaður. 12.30 Tónlist. 13.00 Tónlist. Tekið fyrir country. blues eða eldra efni úr plötusafni Lárusar Óskars. 14.00 Þreyfingar. Umsj.: Hermann Hjartarsson. 15.00 Tilraun. Grammmúsíkin. Umsjón: Sara Stef- ánsdóttir. 17.30 Fréttir frá Sovét. 18.00 Elds er þörf, Þáttur i umsjón vinstri sósial- ista. E. 19.00 Skeggrót. Umsjón: Bragi & Þorgeir. 21.00 Heimsljós. Kristileg tónlist umsjón: Ágúst Magnússon. 22.00 Kiddi i Geisla. Þungarokk m. fróðlegu ívafi. 24.00 Útgeislun. Valið eíni frá hl|ómplötuverslun Geisla. STJARNAN FM 102/104 7.00 Dýragarðurinn. Sigurður Helgi Hlöðversson. 10.00 Snorri Sturluson. Gauksleikurinn og íþrótta- fréttir. 13.00 Hörður Arnarsson. Kvikmyndagetraun og iþróttafréttir kl. 16.00. Afmæliskveðjur milli kl, 13.30-14.00. 17.00 Á bakinu með Bjarna. Milli kl. 17 og 18 er leikin ný tónlist. Milli ki. 18 og 19 er síminn opinn og hlustendur geta hringt inn og sagt skoðun sina á málefnum dagsins. Umsjón: Bjarni Haukur Þórsson. 19.00 Darri Ólason. Rokktónlist. 22.00 Ástarjátningin. Umsjón: Kristófer Helgason. 1.00 Björn Sigurðsson. Næturvakt. Stöð 2: Fötin skapa manninn ■■■■ „Der Letzte Mann“ OQ 50 heitir mynd Fjalakatt- “O “‘ arins í kvöld. Það er Emil Jannings sem fer með hlut- verk hótelvarðar sem er afskap- lega stoltur af starfi sínu en þó einkum fallega einkennisbúningn- um sínum. Leikstjóri er F.W. Murnau. Myndin sem er frá árinu 1924 er svart/hvít. VíOskiptavinir athugiO! BRÚNÁS TEKUR MIÐ AF SUMRI OG SÓLSKINI. ENGIN FRAMLEIÐSLA Á INNRÉTTINGUM FRÁ 15. JÚLÍTIL 15.ÁGÚST VEGNA SUMARLEYFA. MEÐ SUMARKVEÐJU, BRÚNÁS. INNRÉTTINGAR ÁRMÚLA 17A, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR: 91-84585, 91-84461. MIÐÁS 11, 700 EG!LSSTAÐIR,-SÍMAR: 97-11480. < O) •O eftir Elínu Pálmadóttur Vatn ei leiður vökvi Dýrðarinnar land er þetta á sól- björtum sumardegi. Reiðskjótinn er Dagfari, sem ber mann í býtið á sunnudagsmorgni norður yfir heiðar. Sömu leið og riðið var norður í Skagafjörð á síðasta Landsmót hestamanna, þá sitj- andi á hvítum fáki mínum, sem nú er fallinn. Nú ber fákurinn mann uppi í háloftunum, enda sjóndeildarhringurinn víðari. Ekki skýhnoðri á himni eða mistur frá jörðu. Hver lína teiknuð skörp í klettabrík og dalverpi í Esjunni, fönnunum í Skarðsheiðinni, dölum Borgarfjarðar og hrauntungunni sem teygir sig niður í byggðina. Jöklarnir með fannhvítar bungur, Okið, Langjökull og Eiríksjökull, fjær Hofsjökull og Vatnajökull rennur saman við himininn. Öll vötnin á Arnarvatnsheiði glampa og endurkasta upp til okkar tærri birtu morgunsins, jörðin varla vöknuð og ekki farin að anda móðu. Gimsteinar í kórónu lands- ins. Hugsa sér allt þetta vatn sem við eigum, í heiðavötnunum og bundið í geimum jöklanna. Ekki eru allar þjóðir þvílíkir lukkunnar pamfílar. Einn víetnamski flóttamaður- inn, sem var einmitt að koma um þetta leyti til landsins, hrökk illi- íega við þegar hann sá nýja landið sitt. Engin tré, hvernig væri hægt að lifa í landi án skógar? Hvernig er hægt að lifa í landi án vatns og vatnsbirgða í jökium? segjum við. 1 þetta sinn er líka lent á hlýlegum flugvelli milli vatna, ekki berir melar eins og víðast. I Skagafírði svífur maður niður yfir grænt votlendi og sér fuglalífið í kring meðan Dagfari rennir sér inn á flugbrautina. Engu ómjúk- legar en töltararnir mínir þrír, sem báru mig svo mjúklega yfir heiðarnar norður fyrir fáum árum. Það mátti heyra á Japana, sem ég hitti og sem aldrei fyrr hafði komið til Islands á sólríkum sum- ardegi, að nú skildi hann að það væru einmitt slíkir dýrðardagar sem gera íslendingum fært að þreyja þorrann og góuna í landi sínu. Sagði það ekki með þessum orðum, til þess eru Japanir alltof kurteist fólk. Verður að ráða í meininguna af fínlegum blæbrigð- um framsétningarinnar. Vatnið sem glitraði á í sólinni á heiðunum og jökulsköllunum sígur niður í dalbotnana og í ánum til hafs. Það kemur niður í Blöndudalinn og brunar brátt gegnum orkuvélarnar við fremstu bæi í dalnum. Þarna við túnjaðar- inn á Eiðsstöðum blasir við mér gamla smalalandið mitt á Bolla- stöðum, þar sem maður á æskuá- rum var síleitandi að hrossum og kúm á stöllum í brattri hlíðinni eða smalaði að vorinu til rúnings og rak á Fjall. Tók ekki í mál að koma heim fyrr en eftir Stafns- rétt á haustin. Lúxus borgar- barnsins að fá að flengjast um heiðar á hestbaki. Bollastaðir, sem voru stórbýli meðan fjárjarðirnar voru og hétu, áttu land langt fram í heiði. Þá þegar búið að girða þar þtjú myndarleg hólf. Brött lilíðin hjá Eiðsstöðum og staljarn- ir niður að Blöndu, þarna langt niðri í dalbotninum, veita nú hina eftirsóttu fallhæð. Frá Eiðsstöð- um sýnist mér túnið á Bollastöð- um handan árinnar svo bratt að hættuspil hafi verið að aka þar heyvélum, sem er sjónhverfing. Þannig sýndist okkur að mundi ástatt hjá þeim á Eiðsstöðum á sínum tíma. En fyndust ekki hrossin, var alltaf hægt að hringj^ ► yfír til þeirra. Við þeim blasti öll hlíðin. En rafmagnið er svosem ekki að koma fyrst nú frammi í þessum dal. Fyrir hálfri öld var búið að virkja bæjarlækinn á Bollastöðum á leið hans niður í Blöndu. Nóg rafmagn á þeim bæ - og kostaði ekkert. í fallega, þurra torfbæn- um var því eldhús með rafmagn- seldavél og rafmagnsofnar til að hita. En Unnur frænka mín Pét- ursdóttir hélt jafnframt við hlóð- areldhúsinu gamla, þar sem brauðin voru að seyðast alla nótt- ina við taðeld og hangikjötið hékk uppi. Kostaði heldur ekki stórar fjárfestingar og afborganir af lán- um. Nú er þessi stóri, fallegi bær horfínn. Komið hús, sem ég sé nú handan árinnar hátt í hlíðinni. Vegna Bollastaðabæjarins með fallegu snydduhleðslunum hefir mér aldrei þótt við hæfí að kalla gömlu bæina torfkofa. Kofar voru að vísu víða, þar sem hverjum kofanum var hrúgað utan á annan eftir því sem þörf kallaði á hrúta- kofa, smiðju o.s.frv. Þessvegna þykir mér Seðlabankahúsið nýja í Reykjavík alltaf svo þjóðlegt. Þar sér maður nýttan þennán gamla stíl, þar sem hver bygging- in kemur utan á aðra - nú úr grásteini utan á svarta kjarna- bygginguna. Ætli það sé ekki bara þjóðlegasti byggingarstíllinn okkar? Minningar fljúga gegn um hug- ann þessa örskotsstund sem stigið er út úr rútubílnum við túnjaðar- inn á Eiðsstöðum í Blöndudal, þegar prúðbúið lið kemur innan úr iðrum fjallsins, sem vatnið af heiðunum á brátt að streyma um. Vatn er til margra hluta nytsam- legt. Greinilega orðum aukið það sem segir í viðlagi sniðugu vísunn ar, sem sungin var í rútubílum: Vatn er leiður vðkvi, sem að varast ber. í viskíblandi drekkandi í neyð það er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.