Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.07.1990, Blaðsíða 23
 ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Sparisjóðsstjóri í blaðinu í dag auglýsir stjórn Sparisjóðs Súðavíkur eftir sparisjóðsstjóra. Umsóknarfrestur er til 16. júlí næstkom- andi. Nánari upplýsingar er að fá hjá Guðmundi Kjartans- syni, löggiltum endurskoðendum, ísafirði Kennarar Auglýst er eftir kennurum við skóla víða um land. Meðal skólanna eru Grenivíkurskóli, Grunnskólinn í Bolung- arvík, Egilstaðaskóli, Gagnfræðaskólinn á Selfossi, Grunnskóli Tálknafjarðar auk þess sem fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra auglýsir eftir kennurum við eina níu skóla. Ríkisútvarpið Ríkisútvarpið auglýsir í blaðinu í dag eftir umsækjendum um þijár stöður hjá fyrirtækinu. Um er að ræða umsjónar- mann morgunútvarps, ritstjóra miðdegisútvarps og rit- stjóra síðdegisútvarps. Umsóknarfrestur er til 25. þessa mánaðar. Nánari upplýsingar veitir dagskrárstjóri Rásar eitt. Landsbankinn Landsbankinn auglýsir lausar til umsóknar þijár stjórnun- arstöður hjá fyrirtækinu sem verða til vegna þess að fjár- málasvið bankans verður lagt niður í núverandi mynd en í stað þess verða til tvær deildir, annars vegar fjárreiðu- deild og hins vegar rekstrar—, bókhalds— og áætlana- deild. Um er að ræða stöður forstöðumanna þessara tveggja deilda auk stöðu forstöðumanns byggingadeildar. Tölvufyrirtæki Sameind auglýsir í blaðinu í dag eftir Ijölda starfsmanna vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins. Flest störfin tengj- ast þjónustu við kaupendur IBM PS/2 tölva og sölu þeirra. Umsóknarfrestur er til 15. júlí næstkomandi. Fiskvinnsla I blaðinu í dag er auglýst tii sölu hlutur í fiskvinnslufyrir- tæki í Kodiak, Alaska. Tekið er fram að leitað sé að meðeigendum að einni af stærstu fiskvinnslustöðvum á Kodiakeyju í Alaska, Bandaríkjunum. Eigendurnir eru tilbúnir til að selja fyrirtækið að hluta eða öllu leyti. Útboð Allmörg útboð eru auglýst í blaðinu í dag. Meðal annars má nefna að hafnarstjórn Eskifjarðar óskar eftir tilboðum í að steypa þekju á hluta af innra hafnarsvæði neðan hafnarvogar á Eskifirði. Þá óskar Þörungaverksmiðjan eftir tilboðum í landflutninga á þörungamjöli, Vegagerð- in óskar eftir tilboðum í vinnu við Djúpveg um Kálfanes- flóa í Steingrímsfirði. Kársnes óskar eftir tilboðum í vinnu við húsbyggingu að Hafnarbraut 2, Kópavogi og Inn- kaupastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir tilboðum í nokkur verk. SMÁAUGl ÝSINGAR Ferðalög Ferðafélag íslands og Útivist auglýsa margar ferðir í blaðinu í dag. Meðal annars má nefna ferðir í Þórsmörk, Marardal, Hornvík, Hesteyri, Strandir, Þjórsárdal, Að- alvík og Náttfaravíkur svo að eitthvað sé nefnt. Morgunbladið/Börkur Nýja afgreiðsluliúsnæðið hjá Flugtaki. Innfellda myndin er af Birgi Ágústssyni, einum af eigendum Flugtaks. Flugtak með stór- aukinn flugflota Flytja þúsund ferðamenn milli lands og Eyja FLUGTAK hefur flutt farþega- og leiguflugsaf- greiðslu sína í nýtt húsnæði á Reykjavíkurflug- velli austan við skýli 1 en Flugskóli Flugtaks verður áfram til húsa í Gamla flugturninum. Flugtak er nú með 5 vélar í leiguflugi, 5-15 sæta og flugskólinn hefur 6 eins hreyfils vélar, tveggja sæta allar nema ein sem er íjögurra sæta. Birgir Agústsson einn af eigendum Flug- taks sagði í samtali við Morgunblaðið að mikið væri að gera hjá fyrirtækinu, bæði í leiguflug- inu og flugkennslunni, en sem dæmi um Ieigu- flugið nefndi hann að Flugtak myndi í sam- vinnu við Pál Helgason og Val Andersen í Vestmannaeyjum flytja um 1.000 ferðamenn milli lands og Eyja í sumar. Flugtak, sem Höldur sf. og Bíla- leiga Akureyrar eiga, byrjaði flugrekstur fyrir ári með 2 níu far- þegavélar, eina fimm farþega vél og skrúfuþotu fyrir sex farþega, en sú flugvél er eins konar milli- landavél fyrirtækisins og getur flogið á alla helstu velli Evrópu. Að sögn Birgis er hún talsvert not- uð til dæmis í flug með varahluti og einnig með menn á fundi. Mest af farþegaflutningum Flugtaks eru þó ferðamenn, en einnig flytja þeir mikið af íþróttahópum. Nýlega bættust tvær 15 sæta flugvélar í flota Flugtaks, tveggja sæta Beec- hcraft með hverfihreyflum, hrað- fleygar vélar sem geta lent á flest- um völlum innanlands, en 15 sæta vélarnar eru sérstaklega búnar til vöruflutninga. Flugskóli Flugtaks býður fólki í kynningarflug ef það hyggst læra flug, en talsvert er um það að einka- flugmenn haldi áfram í atvinnuflug. Skólinn er dagskóli í verklegu, en þriggja mánaða kvöldskóli er fyrir bóklegt einkaflugpróf. 20 flug- stundir þarf í sólópróf, 60-70 í einkaflug og 200 stundir í atvinnu- flugpróf. Flugskólinn býður upp á þjálfun m.a. í flughermi sem er dæmigerður fyrir tveggja hreyfla flugvélar og er það liður í almennri kennslu flugskólans allt til atvinnu- prófs. Búðardalur: Fegrunarátak í bænum Búðardalur íbúar Búðardals hafa tekið höndum saman um að fegra bæinn. Mikil vinna hefúr verið lögð í að steypa gangstétt- arkanta og garðar teknir i gegn. Þá hefur verið gert átak i gróðursetningu plantna víðsvegar um sýsluna. Atvinnuástand er gott í Búðardal. Verk- takafélagið Tak hefur nokkur um svif yfir sumartímann og ekkeit atvinnu- leysi er á staðnum. Veðrið hefur leikið við heimamenn í sumar og víða er hafinn slátt- ur. Kristjana Seyðisgörður: Ekkert at- vinnuleysi SeyðisQörður Á SEYÐISFIRDI er nóg að gera og ekkert atvinnuleysi þr’att fyr- ir að frystihúsið sé ekki starf- rækt. Fjöldi fólks á öllum aldri starfar hjá bænum, aðallega við að fegra umhverfið, enda er nóg að gera í þeim málum eflir skriðufollin á síðasta ári. Bæjarstórnin á Seyðisfirði hefur undanfarin fjögur ár veitt skólafólki og öðrum atvinnu yfir sumartímann við ýmis störf. Vinnan er aðallega fólgin ’i fegrun um- hverfisins og hefur folk n’og að gera við að hreinsa eftir skriðufoll- in siðastliðið ár, en nú er verið að leggja lokahönd á það mikla verk. Ekkert atvinnuleysi er í bænum og fá allir vinnu sem eftir því leita. Ferðamannastraumur er alltaT mikill í bænum í kringum ferðir Norrænu og síðasta fimmtudag stigu á land á Seyðisfirði 900 ferða- menn. Þeir stoppa þó flestir stutt i bænum við komuna, það er frekar þegar þeir eru að fara úr landi að þeir stoppi einhverja daga á Seyðis- firði. Verið er að vinna af því af fullum krafti að koma frystihúsi Seyðis- fjarðar aftur af stað. Uppboð er nýbúið og vonast er til þess að vinna hefjist aftur i frystihúsinu með haustinu. Garðar Rúnar Húsavík: Mikið byggt á Húsavík Húsavík SÆMILEGAR horfur eru í at- vinnumáluin á Húsavik. Mikill uppgangur er í byggingariðnað- inum, en minna að gera i fiskiðn- aði þessa stundina. I frystihúsinu hafa fallið niður vinnudagar vegna aflaleysis, en bæjaryfir- völd hafa líkt og undanfarin ár séð skólafólki fyrir sumarvinnu. 'C' Byggingariðnaður stendur í miklum blóma á Húsavík. Bæði eru framkvæmdir við opinberar stofnanir og íbúðarhúsnæði. Það er verið að byggja við skólann og eins er heilsugæslustöð í byggingu. Þá er verið að vinna i verkamanna- og leiguíbúðum. Ekki hefur aflast vel á liúsavik undanfarið og er það aðallega þorskurinn sem lætur standa á sér. Lítið fiskast innanfjarðar og hafa fallið niður vinnudagar í frystihús- inu vegna aflaleysis. Rækjuvinnsla hefur þó verið mikil. Heimabátar hafa veitt vel og mikið hefur verið keypt af rússneskum skipum. Veður hefur verið heldur leiðin- legt undanfarið og ferðamenn þess vegna ekki eins margir og síðasta sumar. Gisti- og veitingastaðir finna fyrir minni viðskiptum, en von er ’a að úr því rætist. ^ fréttaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.