Morgunblaðið - 08.07.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.07.1990, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JULI 1990 12 ^ÍlbkÍNUM ■f ■ OVISSUNA vinnslustöðvanna sú og samdi'áttur- inn í afla slíkur, að vinnsluvirðið hefur ekki aukist. Útflutningsgrein- amar eru því ekki í neitt betri stöðu en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir. Þær eru í einhverri þeirri stöðu, sem menn vildu sætta sig við; að reyna að leggjast við stjóra og krafsa okkur út úr þessu gífurlega skulda- feni.“ Bíta á jaxlinn og borga skuldir Einar Oddur tekur skýrt til orða um hvernig nýta eigi bættar að- stæður: „Það er ekkert annað fyrir okkur íslendinga að gera, en reyna að bíta á jaxlinn og borga skuldir. Ekkert annað. Og ég veit að það verður rosalega erfitt. En við álít- um, og það er djúp sannfæring okkar, að ísland sé á mjög hættu- legri stöðu gagnvart skuldum við útlönd. Því miður hef ég ástæðu til að ætla, að allt of margir aðilar í þjóðfélaginu geri sér ekki grein fyr- ir því. I ár erum við að borga 15 þúsund milljónir í vexti af lánum okkar við útlönd. Bara í vexti, og upphæðin verður mun hærri á næsta ári. Við erum ennþá að safna skuldum erlendis og þar gengur ríkið fýrir eins og vanalega. Þótt aukningin sé minni en áður, eru skuldirnar að aukast. Ef við getum stöðvað skuldasöfnunina, þá eigum við möguleika á að lífskjör geti far- ið smám saman batnandi. Það er nefnilega mesta hagsmunamál íslensks atvinnurekstrar, að geta bætt kjör launþega. Ef það sama gerist á næsta áratug eins og á þessum, að við stöndum í stað á‘ meðan allar aðrar þjóðir Vestur- Evrópu geta bætt sín kjör, þá erum við í svo skelfilegri stöðu um næstu aldamót, að ég get ekki til þess hugsað." „Ég hygg að það sé nokkuð góð sátt um, að sá bati sem nú gengur yfir þurfi að nýtast með tvennum hætti,“ segirÁsmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands. „Með því að treysta stöðu sjávarút- vegsins, sem á nú að baki mjög alvarleg erfiðleikaár. Ég hef m.a. lýst því yfir, að það eigi að gerast með því að safna í sjóði, sem búi sjávarútvegi stöðu til þess að taka áföllum í framtíðinni. Að sama skapi hygg ég að það sé samstaða um, að nýta beri þann bata sem virðist framundan til að bæta stöðu almennings í landinu. í öllu þessu samhengi skiptir mjög miklu máli, að tekið verði við batanum þannig að hann raski ekki efnahagslegu umhverfi og stefni okkur ekki í aukna verðbólgu og ólgu, sem myndi aftur grafa undan hinni já- kvæðu þróun.“ Almennt eru viðmælendur Morg- unblaðsins þeirrar skoðunar, að efnahagsbatann eigi að nýta til að greiða niður skuldir. Koma þurfi í veg fyrir að uppsveiflan valdi þenslu. Þannig þurfi að draga úr erlendum lántökum og útiloka að eyðsla aukist. Hér snúa mál mjög að ríkisvaldinu, sem virðist til margra ára hafa búið við sjálfvirka aukningu útgjalda. Vilhjálmur Eg- ilsson, hagfræðingur, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands, segir miklu skipta hvernig til tekst í þeim efnum. „Og að ljár- festingarlánasjóðirnir og Lands- virkjun fari i meiri mæli inn á inn- lenda fjármagnsmarkaði. Þá tel ég að opna þurfi fjármagninu nýja leið út úr landinu, þannig að íslendingar geti farið að lána erlendum aðilum peninga og fjárfest erlendis. Það myndi létta á hagkerfinu í væntan- legri uppsveiflu,“ segir Vilhjálmur. Einar Oddur tekur einnig undir þetLa sjónarmið og segirópnun fjár- magnsmarkaðarins mikinn öryggis- ventil. „Það verður að nota peninga- magnið og vextina, alveg á sama hátt og línudansari notar jafnvægis- listina. Það gera allar þjóðir sem horfa í alvöru á þessa hluti.“ En hann segir jafnframt að vinnuveit- endur hafi mjög illan bifur á því, hvernig fjárlög verða fyrir árið 1991. Hann segir mestu hættuna felast í því, að ríkið geti ekki ham- ið sig. „Ég hef ástæðu til að ætla, að ef ekki verður tekið á þeim málum af meiri alvöru en hingað til, þá muni ríkisfjármálin stefna okkur öllum í voða. Þetta virðist vera botnlaust díki. Eins og menn séu orðnir dofnir fyrir þessu. Og sveitarfélögin eru engir eftirbátar ríkisins. Heildareyðsla þeirra hefur vaxið óhugnanlega á síðasta ára- tug. Raunaukning tekna sveitarfé- laganna er um 14% á síðasta ára- tug, á sama tíma og útgjöld þeirra jukust um 18%, á föstu verðlagi umfram vöxt þjóðartekna. Ríkið virðist því ekki komast með tærnar þar sem sveitarfélögin hafa hæl- ana.“ Umdeild endurlífgun V erðj öfhunarsjóðs Síðastliðið vor var Verðjöfnunar- sjóður sjávarútvegsins endurlífgað- ur. Hann hét áður Verðjöfnunar- sjóður fiskiðnaðarins og var stofn- aður með lögum eftir hrun síldar- stofnsins á tíma Viðreisnarstjórnar- innar, árið 1969. Hugmyndin með Verðjöfnunarsjóði var upphaflega að draga úr áhril'um verðsveiflna á íslenskt efnahagslíf. En eins og með önnur hagstjórnartæki, veldur hver á heldur. Með tímanum var haldið um sjóðinn af lítilli virðingu og kom hann tómur út úr góðærinu. Með endurlífguninni telja menn ýmsa vankanta hafa verið sniðna af og að nú verði ekki lengur hægt að misnota hann, eins og stundum hefur verið sagt. Nú eru einfaldar reglur um viðmiðunarverð síðustu 5 árin, og inngreiðslur bundnar við hvem framleiðanda. En eins og allt- af eru skoðanir skiptar um ágæti þessa fyrirkomulags. „Verðjöfnun- arsjóður er ekkert lausnarorð," seg- ir Éinar Oddur. „Við höfum marg- sinnis bent á, að sú eina verðjöfnun sem skiptir máli, sé sú að menn verði ábyrgir gerða sinna. Þetta var allt vel hugsað hjá Viðreisninni á sínum tíma. Allt satt og rétt, nema hvað dæmið gekk ekki nema í tvö ár. Svo kom Lúðvík og rústin ein. Þetta er kannski eitt dæmið um Sovét-ísland, um að hafa alltaf vit fyrir öðrum.“ Þorvaldur Gylfason, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskól- ans, er sannfærður um ágæti Verð- jöfnunarsjóðs, sem hagstjórnartæk- is. „Öll verktæki má nota bæði til góðs og ills. Menn hafa farið illa með Verðjöfnunarsjóðinn fram að þessu, en það segir ekkert um að hann sé vont tæki. Ein ástæðan fyrir því hve stjómvöldum hefur tekist illa að hemja verðbólguna í gegnum árin, er sú að þau og hags- munasamtökin hafa ekki nýtt sjóð- inn með ábyrgum og hagkvæmum hætti. Kjarni málsins er sá, að í góðæri eiga menn að leggja í þenn- an sjóð og í hallæri eiga þeir að taka út úr honum. Einstök fram- kvæmdaatriði skipta minna máli.“ Á ársfundi Seðlabankans í vor benti Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, á, að einkennt hefur tvö und- anfarin samdráttarár að þróun þjóðarútgjalda hefur fýlgt sam- drætti þjóðartekna fastar eftir en venja hefur verið hér á landi við svipaðar aðstæður. Kom þetta þeg- ar fram á árinu 1988, en þó enn betur á síðasta ári, en þá drógust þjóðarútgjöld saman um 7,6%, sem var 2,4% umfram lækkun þjóðar- tekna. Tókst því að draga úr við- skiptahalla þrátt fyrir minnkandi framleiðslu. Mestu munaði um 8% lækkun einkaneyslu á árinu, en hún átti rætur að rekja bæði til lækk- andi kaupmáttar atvinnutekna og lægra atvinnustigs. Auk þess benti Jóhannes á, að svo virtist sem góð ávöxtun og ótryggara efnahags- ástand hefði leitt til aukins sparnað- ar heimilanna. Ekki var um jafn- góða aðlögun að ræða hjá ríkinu, þótt aukið aðhald kæmi vissulega fram í samneyslunni. Hún jókst á síðasta ári um 1 prósent, sem er minnsta aukning um nokkurra ára skeið, en síðustu 10 árin hefur hún vaxið um nálægt 5% á ári án tiliits til hagvaxtar. IVI u I K ©TDK. TRAUSTAR, DUGANDi KASSETTUR Betri hljómgæði Gæðakassetta sem gefur meiri og skýrari hljóm. Venjuleg (Normal) stilling. T-O* P* P 1 STJÓRNIN - EITT LAG ENN 2 ÚR MYND - PRETTY W0MAN 3 MAD0NNA - BREATHLESS 4 RISAEÐLAN - FAME & F0SSILES 5 ÝMSIR - ÍSLENSK ALÞÝÐULÖG 6 JEAN MICHAEL JARRE - WAITING F0R... 7 UB 40 - LABOUR 0F L0VE 2 8 JEFF HEALEY - HELL TO PAY 9 BARNALEIKIR 2 - (KASSETTA) 10 SINEAD O'CONNOR -1 D0 N0T WANT 11 ALANNAH MYLES - SA 12 ISLANDICA - RAMMISLENSK 13 JOE COCKER - LIVE 14 GARY M00RE - STILL G0T THE BLUES 15 VAYA C0N DI0S - NIGHT 0WL 16 CREEPS - BLUE T0MAT0 17 TALK TALK - GREATEST HITS 18 H0TH0USE FL0WERS - H0ME 19 JEFF LYNNE - ARMCHAIR THEATRE 20 LENNY KRAVITZ - LET LOVE RULE ÝMSIR - BANDALÖG 2 Úrval íslenskra poppara fiytja iög á safnplötu sumarsins BANDALÖGUM 2. Þeirra á meðal Bubbi, Sálin, Ný Donsk, Todmobile, Karl Öivarsson.Loðin Rotta, og Skeggið hans afa. Aukalög á diski eru, Mezzoforte - High Season og Hjálparsveitin - Neitum að vera með. Madonna - l'm Breathless Hér sýnir Madonna á sér stórskemmtilega hlið. Inniheldur lög á borð við Vogue, Hanky Panky, Cry Baby, Sooner or later ofl. ofl. ASTEC CAMERA - STRAY JEFF LYNNE - ARMCHAIR THEATRE Fyrri störl hans í gegnum árin eru meðmæli með þessarí fyrstu sólóplötu snillingsins. Þarna er að finna Every UW® Thing og Lilt Me Up oll. GREIFARNIR BLAUTIR DRAUMAR ÚTGÁFA20 JÚLÍ Nú getst þér kostur á að eignast öll bestu lög Greifanna og fjögur ný á einni og sömu plötunni. í nýjulögunum er það léttleikinn og kýmnin sem ráða ríkjum sem fyrr [ tagasmlðum Greilanna. Sumarsveil allra íslendinga. NEW KIDS 0N THE BLOCK - STEP BY STEP ■ Það er ekkert sem lær stöðvað álramhalUandi siguríör þeirra um heiminn. Skotheld plata. upptuU al stórsmellum. Crying Scene .. gefurforsmekkinn af þessari frábæru plötu. ALANNAH MYLES S T E I N A R M Ú S í K Hún er að slá í gegn svo um munar þessi kanadíska söngkona með lögum eins og Love Is og Still Got This Thing að ógleymdu Black Velvet. AUSTURSTRÆTI 22 • RAUÐARÁRSTÍG 16 - PÓSTKÖFUSÍMAR 11620 - 28316 hljómplötuverslanir STRANDGÖTU 37 HFJ. ■ EIÐISTORGI ■ ÁFABAKKA 14 MJÓDD - GLÆSIBÆ - LAUGAVEGI 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.