Morgunblaðið - 14.07.1990, Page 1

Morgunblaðið - 14.07.1990, Page 1
56 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 158. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 14. JULI 1990 Rúmenía: Mestu mótmæli síðan í desember Reuter Frelsinu fegin Albönsk fjölskylda frelsinu fegin á flugvellinum í Aþenu i gær. Um fimm þúsund Albanir sem hafst hafa við í sendiráðum erlendra ríkja í Albaniu fengu loks að fara úr landi i gærmorgun. Fyrst var farið með þá til Brindisi á Ítalíu og þaðan lá leiðin víða um Evrópu. g., ^ jg Flokksþingi sovéskra kommúnista lokið: Gorbatsjov lætur þung orð falla um klofhingshópinn Moskvu. Ileuter. ÖRLAGARÍKU flokksþingi sovéskra kommúnista lauk í gær með ræðu Míkhaíls Gorbatsjovs aðalritara og því að sunginn var Intern- ationalinn. Gorbatsjov sagði ljóst að vonir þeirra sem vildu ganga af flokknum dauðuin hefðu brugðist. í viðtali við bandarísku sjón- varpsstöðina CBS í gær sagðist hann fyrirlíta þá sem yfirgefið hefðu flokkinn á þinginu. Þar átti hann við Borís Jeltsín, forseta Rúss- lands, og um hundrað aðra róttæka umbótasinna. í gær bættust borgarstjórar Leníngrad og Moskvu í hóp þeirra sem hafa klofið sig úr flokknum. Reuter Nýkjörið Stjórnmálaráð sovéska kommúnistafiokksins syngur Int- ernationalinn undir iok 28. flokksþingsins. Búkarest. Ileuter. TUGÞÚSUNDIR manna söfiiuð- ust saman fyrir utan sljórnar- byggingar í Búkarest í gær í mestu mótmælum sem orðið hafa í Rúmeníu frá þvi í desemberbylt- ingunni gegn Nicolae Ceausescu. Stúdentar kröfðust þess að leið- toga þeirra, Marian Munteanu, yrði sleppt af fangelsissjúkrahúsi þar sem hann heftir sætt illri að- búð. „Mannréttindi ættu að vera jafn mikils virt í Rúmeníu og annars stað- Bandaríkin: Vaxtalækkun talin möguleg Washington, London. Reuter. ALAN Greenspan, banka- stjóri bandaríska seðlabank- ans, segir að nauðsynlegt geti reynst að auka peninga- framboð á næstunni. Ástæð- an sé sú stefha viðskipta- bankanna að draga úr lán- veitingum auk þess sem þeir hafi hækkað vexti; aðgerðir bankanna geti valdið sam- drætti sem efnahagur fands- ins megi ekki við. Ummæli Greenspans ollu nokkurri lækkun Bandaríkjadollara á alþjóðamörkuðum. Yfirlýsing Greenspans var mjög varfærnislega orðuð en olli samt verulegu uppnámi á verðbréfa- og gjaldeyrismörk- uðum. Bankastjórinn sagði stefnu viðskiptabankanna í reynd valda svipuðum áhrifum og aðhaldsaðgerðir af hálfu seðlabankans. Því gæti þurft að stuðla að vaxtalækkun með því að auka peningaframboð. Seðlabankinn hefur haft strangt taumhald á peninga- framboði síðan í desember er vextir voru lækkaðir um 0,25%, í 8,25%. Stjórn bankans telur vaxtalækkun að jafnaði auka hættuna á verðbólgu sem er nú með minnsta móti í Bandaríkjunum. ar í siðmenntuðum löndum," sagði Mihai Gheorghiu, varaforseti stúd- entasambands Búkarest-háskóla. Þúsundir miðaldra fólks og foreldra með börn sameinuðust göngu stúd- entanna og tóku undir kröfuna um frelsi til handa Munteanu. Honum var misþyrmt af námumönnum und- ir stjórn fyrrum liðsmanns Securit- ate, hinnar alræmdu öryggislögreglu Ceausescus, í síðasta mánuði er brot- in voru á bak aftur mótmæli gegn stjórn Ions Iliescus forseta og Þjóð- frelsisráðsins. Munteanu er gefið að sök að hafa stofnað til óeirða. Þátttakendur í göngunni báru blóm og myndii' af Munteanu. Þeir hrópuðu „Frelsi, frelsi!“ og „Niður með kommúnismann!" Margir héldu á borðum þar sem lýst var sakleysi stúdenta er handteknir voru fyrir meint pólitískt ofbeldi í síðasta mán- uði. Á einum borðanum stóð: „Betra er að vera dauður en kommúnisti." Victor Stanculescu varnarmála- ráðherra Rúmeníu, sagði í gær að fyrrum starfsmenn Securitate yrðu ráðnir til að gegna störfum í nýrri óeirðalögreglu og nýrri leyniþjón- ustu. Stanculescu sagði þó að ein- ungis „góðir og gegnir borgarar" yrðu valdir til starfans. „Þeir sem reiknuðu með því að þetta yrði síðasta flokksþingið og að þeir stæðu yfir moldum komm- únistaflokksins höfðu rangt fyrir sér,“ sagði Gorbatsjov í lokaávarpi sínu við dynjandi lófatak. „Komm- únistaflokkur Sovétríkjanna lifir um ókomna framtíð .. Þingstörfum lauk með því að kosin var miðstjórn flokksins. Að sögn fréttaskýrenda urðu miðju- menn í flokknum sem styðja Gorb- atsjov þar í meirihluta. Um leið og þinginu hafði lokið með því að sung- inn var Internationalinn kom mið- stjórnin saman og lagði blessun sína yfir nýtt stjórnmálaráð. í viðtali við bandarísku sjón- varpsstöðina CBS sagði Gorbatsjov að hann hefði búist við úrsögn Borís Jeltsíns en harmaði hana engu að síður. „Ég held að þetta hafi verið rökrétt afleiðing stjórnmálastefnu hans. Mér finnst að hvorki honum né okkur hafi orðið ágengt með þessu.“ Hann sagðist einnig „fyr- irlíta þá sem yfirgefa flokkinn nú og leita hælis annars staðar“. Gavríl Popov, borgarstjóri Moskvu, og Anatolíj Sobtsjak, borg- arstjóri Leníngrad, gáfu út sameig- inlega yfirlýsingu í gær þar sem þeir segja að á þinginu hafi komið í ljós að flokkurinn sé gjörsamlega ófær um að bjóða landsmönnum upp á áætlun um hvernig megi Prentsmiðja Morgunblaðsins stefna að nýju þjóðfélagi. Jegor Lígatsjov leiðtogi harðlínu- manna í flokknum sem beið lægri hlut í kosningum til embættis vara- aðalritara fyrr í vikunni sagði við fréttamenn í gær að hann hygðist hverfa til heimabæjar síns í Síberíu til þess að skrifa endurminningar sínar. Sjá frétt á bls. 16. Afsagnar Ridleys krafist London. Reuter. FJÖLDI breskra stjórnmálamanna krafðist þess í gær að Nichol- as Ridley iðnaðar- og verslunarráðherra í bresku ríkisstjórninni segði af sér. Tilefhið er viðtal sem birtist í vikunni í tímaritinu Spectator þar sem Ridley segir m.a. að Þjóðveijar ætli sér að ná yfirráðum í Evrópu og Frakkar séu eins og kjölturakkar þeirra. Ridley var staddur í Búdapest þegar timaritið kom út og baðst hann þegar formlega afsökunai á ummælunum í viðtalinu. Hann var væntanlegur heim til Bret- lands í gær og var jafnvel búist við að hann segði af sér nú um helgina. Ridley er þekktur fyrii' flest annað en að fara dult með skoð- anir sínar og hefur löngum staðið styrr um hann. Hann er hins veg- ar náinn samstarfsmaður Marg- aret Thatcher forsætisráðherra og er talið að hún sé nú í nokkr- um vanda vegna þessa máls. Sjá fréttir á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.