Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990 Kempurá landsmóti Morgunblaðið/Ámi Sæberg TUTTUGASTA landsmót ungmennafélaganna var sett í Mosfellssveit í gærkvöldi. Sérstakir heiðursgestir voru keppendur frá því á lands- móti UMFÍ fyrir hálfri öld, í Haukadal 1940, og eru kempurnar á myndinni hér að ofan. Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, og Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, fluttu ávörp við upphaf mótsins. Fríða Rún Þórðardóttir talaði fyrir hönd íþróttamanna og Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, setti mótið. Hópur úr UMSK og danskir gestir sýndu fimleika og þau Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson, Magnús Þór Sigmundsson og Diddú, Sigrún Hjálmtýsdótt- ir, sungu. Svipuð staða í ráðning'um kennara og undanfarin ár Elliðaárbrekkan er fiirðu brött, segir Guðmundur Ingi Leifsson, fræðslustjóri Norðurlandskjördæmis vestra SVO virðist sem svipað gangi að ráða kennara til kennslustarfa næsta vetur og undanfarin ár víða um land. Enn á eftir að ráða í talsvert margar kennarastöður og það eru einkum stöður íþrótta- kennara og sérkennara sem erfiðlega gengur að ráða í. Nú er lítið spurt um þessar stöður, samkvæmt upplýsingum sem. Morgunblaðið fékk hjá nokkrum fræðslustjóraembættum og ekki búist við að ráðn- ingarnar taki kipp fyrr en eftir 10. ágúst. Hjá fræðsluskrifstofu Vestur- iands fengust þær upplýsingar að í marga skóla hefði gengið vel að ráða kennara, en í öðrum síður. Stöður við sex skóla yrðu auglýstar um helgina. Það vantaði einkum fólk í stöður íþróttakennara, tón- menntakennara og til sérkennslu. Ráðningarnar tækju kipp í lok skólatímans á vorin, síðan róaðist þetta og tæki ekki kipp aftur fyrr en eftir verslunarmannahelgi. Und- anfarin ár hefðu kennarar með rétt- indi verið á bilinu 75-78%, og þetta hlutfall virtist heldur fara lækk- andi. Umsóknir fólks sem ekki hefði full réttindi væru þegar famar að berast. Margrét Guðjónsdóttir á fræðslu- skrifstofu Reykjanesumdæmis sagði að það hefði gengið vel að manna stöður á höfuðborgarsvæð- inu og í Mosfellssveit, á Kjalarnesi og í Kjós, en treglegar hefði gengið að manna stöður á Suðurnesjum og þar væru ennþá lausar stöður í flestum skólanna, en misjafnlega margar. Hún sagði að það gengi alltaf erfiðlega að fá tónmennta- kennara og eins væri oft erfitt að fá kennara til að kenna ákveðnar greinar á eldri stigum. Á fræðsluskrifstofu Austurlands fengust þær upplýsingar að það gengi mjög svipað og undanfarin ár að ráða kennara, en fleiri með full réttindi sæktu nú um en áður. Það væri ekki mjög margar stöður sem væri óráðið í og upp í þær yrði fyllt með leiðbeinendum ef rétt- indafólk fengist ekki. Það væri helst hörgull á íþróttakennumm. Guðmundur Ingi Leifsson, fræðsfUstjóri í Norðurlandskjör- dæmi vestra sagði að það hefði verið afar lítil hreyfíng í ráðningar- málum kennara á þessu sumri og minni nú en áður ef eitthvað væri, en hreyfing kæmist ef til vill á þetta þegar búið væri að ganga frá ráðn- ingarmálum áhöfuðborgarsvæðinu. Það væri óvanalega seint á ferðinni vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Hann sagði að það vantaði kennara nokkuð víða og það væri óvanalegt að það vantaði nú kenn- ara við skólana á Blönduósi, á Sauð- árkróki og á Siglufírði. 3-4 stöður væru lausar í hverjum skóla. Rétt- indafólk sækti ekki um þó ýmis fríðindi væm í boði í mörgum tilfell- um, húsnæðisstyrkur, flutnings- styrkur og jafnvel beinar yfírborg- anir, en „Elliðaárbrekkan er furðu brött". Hann sagði að um 30% kennslu í umdæminu kæmi í hlut leiðbeinenda vegna þess að rétt- indafólk fengist ekki. Borgarráð: Akvörðun um synjun láns verði breytt BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sinum í gær að beina þeim tilmæl- um til Húsnæðisstjórnar og Bygg- ingarsjóðs ríkisins að þessir aðilar endurskoði þá ákvörðun sína að veita borginni ekki lán til bygg- ingar íbúða íyrir aldraða við Lind- argötu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, borgarráðsmaður og formað- ur skipulagsneíhdar Reykjavíkur, segir að í svari Húsnæðisstjórnar við umsókn borgarinnar um lán sé gengið út frá að eingöngu eigi að byggja söluíbúðir, en stað- reyndin sé sú að sótt hafi verið um lán til að byggja annars vegar söluíbúðir og hins vegar leigu- og hlutdeildaríbúðir. í samþykkt borgarráðs, sem borin var upp af minnihlutaflokkunum í borgarstjórn, er skorað á Húsnæðis- stjórn að lána tii leiguíbúða og hlut- deildaríbúða, sem byggja eigi. Með hlutdeildaríbúð er átt við íbúð, sem íbúi geti keypt hlut í, en greitt leigu fyrir þann hluta, sem áfram er í eigu borgarinnar. Tillögu minnihlutans, um að ákveðið verði nákvæmlega hversu margar íbúðir af hverri teg- und eigi að byggja, var vísað til bygg- ingarnefndar aldraðra. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði að umsókn borgarinnar um lán, sem lögð hefði verið fram fyrir sjö mánuð- um, hefði gengið út á að í húsinu yrðu bæði söluíbúðir og hlutdeildar- og leiguíbúðir, en sú skipting hefði ekki verið ákveðin endanlega. Svar Húsnæðismálastjórnar, um að ekki yrði lánað til söluíbúða, væri því út í hött. Jóhanna Sigurðardóttir hefur sagt að borgin geti einfaldlega farið þá leið að ijármagna íbúðabyggingarnar með húsbréfaskiptum. Vilhjálmur segir þetta síðbúinn útúrsnúning. „I fýrsta lagi sóttum við um lán til leiguíbúða og í öðru lagi hefur í mörg ár verið lánað til byggingar söluíbúða fyrir aldraða. Það hafði engin athugasemd komið frá ráð- herra eða húsnæðismálastjórn um að ekki yrði lánað til söluíbúða,“ sagði Vilhjálmur. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Kristján og Snorri ganga frá lúðuaflanum í kör og isa vel yfir. Lúðulöndun í Ejrjum Vestmannaeyjum. TRILLUR frá Vestmannaeyjum sem gert hafa út á lúðulínu hafa aflað þokkalega í sumar. Aflinn hefur oft og tíðum verið ágætur og líflegt á bryggjunni þegar honum hefur verið landað. Það var verið að landa aflanum sem er annars skipstjóri á loðnu- úr Sigurpáli VE fyrir skömmu skipinu Gígju VE, og félagi hans, þegar Morgunblaðsmenn áttu leið Kristján. Þeir ísuðu lúðuna í kör um bryggjurnar í Eyjum. Aflinn á bryggjunni en síðan var hún var ágætur og mennirnir tveir flutt í gám á eríendan markað, sem á bátnum eru höfðu í nógu þar sem hátt verð er yfirleitt að snúast við löndunina. Þeir eru greitt fyrir físk þennan. tveir á Sigurpáli, Snorri Gestsson, Grímur Hugmyndir um álver á Árskógsströnd: Heimamenn skilja ekki að þorpið þurfi að víkja - segir Sveinn Jónsson oddviti SVEINN Jónsson, oddviti Árskógsstrandarhrepps, segir að heima- mönnum komi á óvart það álit, sem fram kemur í minnisblöðum iðnaðarráöuneytisins, að þorpið Litli-Árskógur þurfi sennilega að víkja, verði álveri fundinn staður á lóð í grenndinni, sem koma þyk- ir til greina í staðarvalsathugpinum. Sveinn segir að heimamenn séu flestir jákvæðir gagnvart álveri, og telji að með nútímamengunar- vörnum verði mengun ekki það mikil, að flytja þurfi þorpið. Að sögn Sveins hefur það ekki komið fram í viðtölum ráðuneytis- manna og sérfræðinga við heima- menn á Árskógsströnd að hugsan- lega þyrfti að flytja þorpið vegna mengunar frá nýju álveri. Það hefðu þeir fyrst séð í blöðunum. „Við skilj- um þetta ekki,“ sagði Sveinn. Hann sagðist meðal annars hafa skoðað aðstæður við álver í Bandaríkjun- um, þar sem byggð væri nálægt álveri, og einnig væri byggð, þar á meðal skóli, á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði mjög stutt frá álverinu þar. „Við teljum að verið sé að búa til það vandamál, að flytja þurfi fólkið í burtu. Fólkið sjálft er já- kvætt og við höfum ekki talið að það verði byggt álver með þeirri mengunarhættu að fólki stafí hætta af,“ sagði Sveinn. „Við gerum ráð fyrir því að hvar sem álver verður reist, hvort það verður á Keilisnesi eða hér, verði það bezta gert í mengunarvörnum, sem völ er á.“ Hann sagði að vissulega heyrðust efasemdaraddir í byggðarlaginu um að landbúnaðarhérað eins og Eyja- fjörður væri rétti staðurinn fyrir álver. Hann sagði að ef til vill væri Eyjafjörður betur settur en ýmis önnur svæði, þar sem jarðvegur væri basískur og þyldi betur flúor en súr jarðvegur. „Ég tel að við getum framleitt landbúnaðai-vörur í Eyjafirði í miklum mæli þótt á örfáum jörðum þyrfti kannski að leggja niður hefðbundinn búskap," sagði hann. Sveinn sagði að enn hefðu menn ekki velt fyrir sér í alvöru hvaða afstöðu þeir tækju, éf kostirnir væru annars vegar að fá ekkert álver, og hins vegar að fá álverið en þurfa að flytja þorpið. „Við erum ennþá svo langt frá því að hér komi álver, að menn hafa ekki velt því upp. Við sjáum ekki endilega sam- hengi í því,“ sagði hann. EM unglinga í golfí: Island vann Austurríki ÍSLAND sigraði Austurríki í gær með fjórum vinningum gegn þrem- ur á Evrópumóti unglinga í golfi, sem nú stendur yfir á Grafarholt- svellinum. ísland mætir Vestur-Þjóðveijum í dag. íslenzka liðið, sem skipað er piltum 18 ára og yngri, mun keppa um 9.-12. sætið, og hefur liðið aldrei fyrr náð jafii góðum árangri á Evrópumóti. I fjórleik í gær unnu Sturla Omarsson og Kjartan Gunnarsson andstæðinga sína 3-2 en Júlíus Hallgrímsson og Örn Arnarson töp- uðu 0-1. í einliðaleik vann ísland þrjá leiki. Sturla Ómarsson vann 2-1, Júlíus Hallgrímsson 2-1 og Hjalti Nielsen 1-0. Örn Arnarson tapaði 0-1 og Ástráður Sigurðsson tapaði 4-6. Skotland, írland, Spánn og Eng- land keppa um fyrsta sætið í mót- inu. I dag mætir Skotland írlandi og England mætir Spáni. Keppnin hefst klukkan 8. Síðasta umferðin vcrður leikin á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.