Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 3 Umferðarráð: Færri slasast al- varlega en í fyrra SAMKVÆMT skýrslum Um- ferðarráðs hafa 34% færri slas- ast alvarlega í umferðarsfysum íyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í íyrra. 82 eru taldir hafa slasast alvarlega á þessu ári en þeir voru 125 fyrri hluta ársins 1989. Þá kemur fram í frétt frá Umferðan-áði að tals- vert hærra hlutfall þeirra sem lent hafa í umferðarslysum hef- ur notað bílbelti en í fyrra og telur Umferðarráð þá þróun geta skýrt það að áverkar verði ekki eins alvarlegir og ella. Heildai’fjöldi þeirra sem Um- ferðarráð hefur upplýsingar um að hafi slasast er nokkru minni en á sama tíma í fyrra; 356 í 229 slysum en í fyrra höfðu 362 slas- ast. Hins vegar hefur 22 ung- mennum fleira á aldrinum 17-20 ára slasast í umferðinni nú en í fyrra. Færri börn og aldraðir hafa slasast en í fyrra. 13 hafa látist í 9 umferðarslys- um á árinu en á sama tíma í fyrra höfðu 12 látist í 10 slysum. Sex hafa látist í slysum í Arnessýslu og fjórir í Húnavatnssýslum. 20 ölvaðir ökumenn hafa átt aðild að umferðarslysum í ár, sam- kvæmt upplýsingum Umferðar- ráðs. Sjávarútvegs- ráðherra Nor- egs í heimsókn SVEIN Munkejord, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, er væntanlegur hingað til lands í opinbera heim- sókn á morgun í boði Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráð- lierra. í för með ráðherranum verður kona hans, frú Ase Munkejord og þrír embættismenn. Sendinefndin kemur til landsins sunnudag 15. júlí, en hinni opinberu heimsókn lýkur þriðjudaginn 17. júlí. Ráðherrarnir munu á fundum sínum ræða ýmis mál er varða sam- skipti þjóðanna og sameiginleg hags- munamál þeirra á sviði sjávarútvegs. Norski ráðherrann mun heim- sækja fiskvinnslufyrirtæki á höfuð- borgarsvæðinu og fara í kynnisferðir m.a. til Vestmannaeyja og Þing\'alla. Hafskipsmál: Páll Amór í stað Jónatans Dómsmálaráðherra hefiir skipað Pál Arnór Pálsson hæsta- réttarlögmann til að gegna störf- um ríkissaksóknara í málum er tengjast gjaldþroti Hafskips. Jafnframt hefur Jónatan Þór- mundsson prófessor verið leystur frá starfi þessu að eigin ósk. Páll Arnór Pálsson var annar aðstoðarmanna Jónatans við undir- búning Hafskipsmálsins og rekstur þess fyrir sakadómi. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að engin ákvörðun hefði verið tekin um fram- hald málsins enda hefðu gögn ekki borist úr sakadómi. Frá þeim tíma er gögn berast hefur ákæruvaldið þriggja mánaða frest til að taka afstöðu til þess hvort dómi saka- dóms verði áfrýjað. Máli McGoverns vísað til menntamálaráðherra MÁLI bandaríska fornleifafræðingsins Thomas McGovern var vísað til menntamálaráðuneytisins á löngum fundi Fornleifanefnd- ar, sem haldinn vár í gær. Þá var samþykkt tillaga Þórs Magnús- sonar þjóðminjavarðar, um að ítreka fyrri afgreiðslu nefndarinn- ar, þar sem McGovern var veitt leyfi til rannsókna á dýrabeinum á Ströndum. Einnig var samþykkt að fela formanni nefndarinn- ar, Sveinbirni Reynissyni að skrifa undir leyfið. Tillöguna samþykktu Þór Lára Baldvinsdóttir sagnfræðing- Magnússon þjóðminjavörður, Margrét Hallgrímsdóttir borgar- minjavörður og Guðmundur Ól- afsson, deildarstjóri fornleifa- deildar Þjóðminjasafnsins. Á móti voru formaður nefndarinnar, Sveinbjörn Rafnsson, og Inga ar. „Formaður sagði að hann hefði þegar útskýrt að hann teldi sig ekki geta samþykkt þetta leyfi og þá var samþykkt að vísa mál- inu til úrskurðar ráðuneytis,“ seg- ir Guðmundur Ólafsson. í fyrra sinn sem mál McGo- verns fór fyrir fornleifanefnd, vísaði formaður hennar því til Þjóðminjaráðs. Það neitaði McGovern um leyfi til að grafa upp bein á Ströndum, þar sem hann uppfyllti ekki þau skilyrði nefndarinnar að þeir, sem fáist við íslenskar fornminjar, verði að kunna góð skil á íslenskri menn- ingarsögu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, náðist hvorki í Sveinbjörn Reynis- son, Ingu Láru Baldvinsdóttur né menntamálaráðherra. Tel að við séum ein- ungis peð í valdatafli - segir Thomas McGovern fornleifafræðingur „ÉG VEIT ekki hvað er að gerast, það eina sem mér dettur í hug er að við séum peð í valdatafli um hver stjórni fornleifarannsókn- um hérlendis. Áð menn hafi raunverulega ekkert á móti starfi okkar en noti það til að ná sér niður á þeim sem mest hafa unn- ið með okkur.“ Svo farast bandaríska fornleifafræðingnum Thom- as McGovern orð, en honum hefur sem kunngt er verið neitað um heimild til fornleifarannsókna í Arnarneshreppi á Ströndum þar sem hann sé útlendingur og kunni því ekki nægileg skil á íslenskri menningarsögu. Thomas McGovern hefur sér- hæft sig í rannsóknum á beinum og hefur meðal annars rannsakað bein úr uppgreftrinum í Viðey og Stóru-Borg. Hann starfar við Hunter College í New York en fornleifadeild skólans hefur sér- hæft sig í rannsóknum á norður- hveli jarðar, þ. á m. Islandi. Auk rannsóknai’vinnunnar starfar McGovern við kennslu. Rannsóknarhópur hans saman- stendur af náttúrufræðingum, sagnfræðingum og jarðfræðing- um auk fornleifafræðinga, sem koma frá Bretlandi, Bandaríkjun- um, Danmörku, Grikklandi, Kanada og íslandi. McGovern vinnur með styrk frá Banda- ríkjunum, sem hann segist hafa herjað út enda sé hreint ekki auð- velt að verða sér úti um rannsókn- arstyrki þar. En ekki megi gleyma þeim stuðningj sem hann hafi fengið hérlendis, bæði hvað varði vinnuaðstöðu og upplýsingar. Hluti hópsins er nú í Árnarnes- hreppi við þær athuganir sem leyfðar eru; myndatöku og skrán- ingu á því sem sjáanlegt er. „Við hróflum ekki við neinu,“ segir McGovern. „Ætlun okkar var að athuga dýrabein en þeim er hrein- lega að skola á haf út og fáum við ekki leyfi fljótlega, verður mikið af þvi, sem við ætluðum að rannsaka, horfið og þar með er úti um rannsóknir okkar.“ McGovern hefur margoft komið hingað til Tands, í fyrsta sinn 1974 Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég hef ekki mætt öðru en vel- vilja hérlendis þar til nú, að mér er neitað um leyfi til rann- sókna,“ segir Thomas McGo- vern. og er hann hér í 15. sinn. Hann segist ekki hafa mætt öðru en velvilja hérlendis þar til í sumar, að honum voru meinaðar rann- sóknir. „Við komum hingað í byij- un júní og höfðum sótt um leyfi áður. Rétt fyrir komuna höfðum við af því spurnir að vandkvæði hefðu skotið upp kollinum og tók- um því með okkur aukaupplýsing- ar sem við afhentum fornleifa- nefnd við komuna. En svo heyrð- um við ekkert meira fyrr en 18. júní, þegar okkur var synjað um leyfi og . formaður nefndarinnar vildi ekkert við okkur tala.“ McGovern segir formann forn- leifanefndar vilja að hópurinn hætti öllu samstarfi við íslenska vísindamenn og að öllum beinum, sem McGovern hefur rannsakað erlendis, verði skilað í haust. „Við höfum ætíð talið beinin íslenska eign og ástæða þess að við geym- um þau er sú að við vorum beðn- ir um það þar sem við ættum eft- ir að rannsaka þau til fulls og að hérlendis væri ekki geymslu- pláss.“ McGovern segir allan sinn tíma hérlendis hafa farið í að leita að- stoðar, svo hópur hans megi helja rannsóknir. Honum hafi því hvorki unnist tími til að undirbúa sig sem skyldi né ræða við íslenska vísindamenn vegna at- hugunar á vegum National Sci- ence-nefndarinnar í Bandaríkjun- um sem er í bígerð. „Sendiráð Bandaríkjanna, Danmerkur og Bretlands fylgjast vel með þessu máli og við höfum einnig haft samband við menntamálaráðu- nejdið nær daglega. „Fái ég ekki leyfið á allra næstu dögum, er mér ekki mögulegt að rannska bein á Ströndum. Dýr- mætur tími hefur farið til spillis. Verði mér neitað um leyfið, mun ég starfa að rannsóknunum í Við- ey. Ég mun reyna að nýta styrk- inn eins og kostur er. Ég vil að síðustu lýsa hrifningu minni á landinu og samstarfinu við íslenska fornleifafræðinga, sem ég tel standa mjög framarlega í sínu fagi. En ég hef áhyggjur af framtíð greinarinnar ef mál mitt er aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal.“ íslendingar valdir í alþjóð- lega keppni jassleikara KVARTETT Sigurðar Flosasonar tekur þátt í alþjóðlegri samkeppni ungra jassleikara í Overijse í Belgíu 8.-9. september næstkomandi. Það er Alþjóða jassleikarasambandið, IJF, sem stendur fyrir samkeppninni og er hún árlegur viðburður. Alls sóttu 90 hljómsveitir fi’á 20 löndum um þátttökurétt að þessu sinni en aðeins tíu sveitir komust alla leið, þar á meðal Kvartett Sigurðar Flosasonar. Sá háttur er hafður á að hljóm- sveitirnar sem sóttu um þátttöku í samkeppninni sendu inn segulbönd með tónlist sinni og dómnefnd valdi úr tíu sveitir sem boðin var þátttaka. „Eg átti alls ekki von á þessu,“ sagði Sigurður Flosason saxafónleik- ari, en auk hans skipa sveitina Kjart- an Valdimarsson píanóleikari, Þórður Högnason bassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari. Kvartett- inn sendi inn fjögur frumsamin verk, tvö eftir Sigurð og önnur tvö eftir Kjartan. „Orðstír keppninnar hefur aukist með hveiju ári og margar af þekkt- ust jasssveitum Dana hafa t.il að mynda fyrst vakið athygli á sér með góðri frammistöðu í keppninni. Má þar nefna hljómsveitina Page one og kvintett trompetleikarans Jens Wint- hers. Þó við hreppum engin verðlaun þá tel ég þetta vera mjög stórt skref fyrir íslenska jasstónlist," sagði Sig- urður. Jasskeppninni verða gerð skil í belgíska ríkissjónvarpinu og útvarp- inu og há peningaverðlaun eru í boði fyrir þær hljómsveitir sem hreppa efstu sætin. Auk þess verður gefinn út hljómdiskur með fjórum bestu sveitunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.