Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 4

Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Barði kemur með Bjart til hafhar í Neskaupstað. Neskaupstaður: Alvarleg bilun í Bjarti NK Neskaupstað. ALVARLEG vélarbilun varð í skuttogaranum Bjarti 10. júlí sl. er skipið var að veiðum í Lóns- bugt. Stimpilstöng í vél skipsins brotnaði og gekk út í gegn um blokk vélarinnar. Skuttogarinn Barði sem var í höfn hér, fór Bjarti til aðstoðar og dró skipið til hafnar. Aætlað er að Bjartur verði í allt að tvo mán- uði frá veiðum vegna þessa óhapps. - Agúst Málshöfðun FIN vegna túlkunar kjarasamninga: Ráðherrar bera vitni fyrir Félagsdómi í næstu viku Ríkið gerir kröfti um að málinu verði vísað firá RÁÐHERRAR munu koma fyrir Félagsdóm til skýrslutöku á þriðju- daginn kemur, þegar fyrir verður tekin málshöfðun Félags íslenskra náttúrufræðinga á hendur fjármálaráðherra vegna túlkunar kjara- samnings aðila frá því í fyrravor. Þetta kom fram í dómnum í gær, þegar ríkislögmaður lagði fram greinargerð sína fyrir hönd stefhda, fjármálaráðherra, en í greinargerðinni er meðal annars gerð krafa um að málinu verði vísað frá dómi. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, munu koma fyrir dóminn og einnig Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, en það er þó ekki fullvíst, þar sem hann kann að vera f fríi á þessum tíma. Þá mun stefnandi kalla Björn Birgi Siguijónsson, framkvæmda- stjóra Bandalags háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna, og Pál Hall- dórsson, formann samtakanna, en ríkislögmaður mun kalla auk fram- angreindra Þorstein Geirsson, ráðuneytisstjóra dómsmálaráðu- neytisins, Guðríði Þorsteinsdóttur, starfsmannastjóra Ríkisspítalanna, en þau eru bæði í samninganefnd ríkisins, og ef til vill Þorkel Helga- son, prófessor, en hann var í ráð- herranefndinni, sem fjallaði um samningana þegar þeir voru gerðir, til ráðuneytis. Fram kom að Björn Helgason, saksóknari, hefur vikið sæti og einnig varamaður hans, Erla Jóns- dóttir, hæstaréttamtari. í þeirra stað hefur Sigurður Reynir Péturs- son, hæstaréttarlögmaður, verið skipaður í dóminn. Frávísunarkrafa embættis ríkis- lögmanns byggist á því að gerðar- dómur samkvæmt 9. grein samn- ingsins eigi að úrskurða í ágrein- ingi um hvernig eigi að standa að framkvæmd launabreytinga án þess að það hafi áhrif á launakerf- ið í landinu, en á því ákvæði í 1. grein samningsins byggði ríkið frestun sína á framkvæmd samn- ingsins. Skipulagsbreytingar á Stöð 2: Páll ábyrgur fyr- VEÐURHORFUR í DAG, 1 4. JÚLÍ YFIRLIT I GÆR: Lægðaovæði yfir sunr þokast norðaustur. Hæð er yfir Brettandsi í veðri, eínkum þá norðanlands. anverðu Grænlandshafi syjum. Áfram verður hlýt SPÁ: Suð- og suðaustan stinningskaldi suðvestaniands en gola eða kaldi annars staðar. Talsverð rigninf um landið sunnan- og staðar alveg þurrt í innsveitum. Miit í veð lands. ri og hlýjast norðaustan- 1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFURÁ SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Horfur á sunnudag. Frem- ur hæg suðaustanátt með rigningu um allt sunnanvert landið en þurrt norðan til. Horfur á mánudag: Hæg sunnanátt og skúrir sunn- an til á landinu báða dagana en víða um eða yfir 20 stig á landinu norðanverðu. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r -J 0 Hrtastig: 10 gráður á Celsíus Y Skúrir — Þoka = Þokumóða * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ’, ’ Súld OO Mistur —j~ Skafrenningur R Þrumuveður * r.,a w> > 1 VEÐUR y kl. 12:00 / WA gæt hiti UM HEIM að ísl. tíma veður Akureyri !MS alskýjað Reykjavik 10 rigning Bergen n ts skýjað Kaupmannahöf 17 skjgað Narséarssuaq 16 skýjað Nuuk 10 skýjað Osló 19 iéttskýjað Stokkhólmur illl hálfskýjað Þórshöfn 12 skýjað Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Barcelona 25 heiðskírt Berfín 18 skýjað Chicago 16 skýjað Feneyjar 27 heiðskírt Franklgrt 28 léttskýjað Glasgow 15 alskýjað Hamborg 15 skýjað LasPelmas 24 léttskýjað London 26 iéttskýjað Los Angeles 23 léttskýjað Uíxemborg 27 téttskýjað Madrid 31 mistur Mafaga 27 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Montreai 16 iéttskýjað NewYork 16 aiskýjeð Orlando 23 skýjað Parts 28 heiðsk/rt Róm 27 heiðskírt Vín 26 iéttskýjað Washington 18 rigning Winntpeg 13 heiðskírt ir allri dagskrá Sigurveig Jónsdóttir tekur við fréttastjórn PÁLL Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, mun næsta hálfa árið gegna starfi franikvænidastjóra framleiðslusviðs Stöðvar 2. Samkvæmt nýju skipuriti fyrirtækisins, sem tók gildi á fimmtudag, er hann sem slíkur ábyrgur fyrir öllu dagskrárefhi og tæknimálum Stöðvarinnar og undir hann heyra jafiit fréttadeild, dagskrárdeild og þjónustu- deild. Sigurveig Jónsdóttir aðstoðarfréttastjóri tekur við starfi Páls á fréttadeild, Hannes Jóhannsson, yfirmaður tæknisviðs, verður yfir- maður þjónustudeildar, sem hefur með málefni drelfikerfis, tækni- og sviðsmyndadeildar að gera, og Jónas R. Jónsson, yfirmaður dag- skrársviðs, sem hafði með erlent efhi að gera, verður settur yfir nýja dagskrárdeild, þar sem innlend og erlend dagskrá verður undir einum hatti. Nýja skipuritið gerir ekki ráð fyrir Birni Björnssyni, yfirmanni dagskrárgerðarsviðs, sem annast hefur innlenda dagskrárgerð, í hópi helstu stjórnenda á framleiðslusviði og er staða hans innan Stöðvar 2 óráðin, að sögn Páls Magnússonar. Páll sagði það búa að baki þess- um breytingum að mikilvægt þyki að allt efni sem birtist á skjánum, fréttir, innlent sem erlent dagskrár- efni og tæknimál, heyri undir einn stjórnanda, sem beri ábyrgð gagn- vart sjónvarpsstjóra. Með því móti verði hægt að ná fram aukinni hagræðingu með samnýtingu á tækjakosti og vinnuafli. Alls óljóst sé hvort breytingarnar leiði til upp- sagna. Páll sagðist hafa tekið að sér að koma þessum breytingum í framkvæmd og móta hið nýja skipulag en kvaðst ákveðinn í að snúa aftur til starfa á fréttadeild eftir 6 mánuði. Hann kvaðst áfram mundu lesa fréttir um það bil þrisv- ar í viku og sjá um umræðuþætti. Páil staðfesti einnig að gert sé ráð fyrir að samþykkt verði á hlut- hafafundi íslenska utvarpsfélags- ins á mánudag að sameina, frá og með næstu viku, rekstur útvarps- stöðvanna Bylgjunnar og Stjörn- unnar rekstri Stöðvarinnar. Hann sagði þetta meðal annars hafa í för með sér að fréttastofur Stöðvar 2 og Bylgjunnar verði sameinaðar þannig að fréttastofa Stöðvar 2 annist með auknum mannafla einn- ig fréttaþjónustu á Bylgjunni. Spurningu um hvort þetta hefði í för með sér að helstu atriði frétt- atíma Stöðvar 2 yrðu áður lesin í fréttum á Bylgjunni svaraði Páll neitandi og sagði einhvers konar deildarskiptingu fréttastofunnar í undirbúningi. Breskur ferða- maður með stol- ið greiðslukort BRESKUR ferðamaður var liand- tekinn fyrir að versla með stolnu greiðslukorti á indverskum veit- ingastað í Reykjavik í fyrradag. Starfsfólki veitingahússins þótti kort það sem maðurinn framvísaði til greiðslu fyrir veittan viðurgjörn- ing gamalt og snjáð og hafði sam- band við greiðslukortafyrirtæki sem hringdi til útlandatll að athuga hvort kortið væri gilt. í ljós kom að því hafði veirð stolið. Ferðamaðurinn var handtekinn af lögreglunni og færður yfirheyrslu. Vatnsskortur í Skafitafelli STARFSFÓLK þjóðgarðsins í Skaftafelli lauk í gær við að leggja um eins kílómeters vatnslögn úr Eystrilæk og í þjónustumiðstöð staðarins. Vatnsþurrð hafði orðið til þess að skammta varð vatn í þrjá daga á svæðinu en með vatnslögninni er nú nægilegt vatn í þjónustumiðstöð og á tjaldsvæðinu í Skaftafelli. Var vatn tekið af tjaldstæðum, en hægt var að fara í sturtu að morgni en ekkert, vatn var þar að hafa eftir hádegi. Að sögn Stefáns Benediktssonar, þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli, hefur vart komið deigur dropi úr lofti þar síðan um miðjan maí. „Við tökum grunnvatn úr Skeiðarársandinum. Þurrkarnir og 50% aukning ferða- mannastraums hingað hefur orðið til þess að það hefur iækkað um tvo metra í brunninum. Það hefur aðeins rignt í dag en það dugir engan veg- inn til að grunnvatn hækki. Við feng- um því piaströr frá Reykjalundi og leiddum úr Eystrilæk í Skaftafelli en fallhæð hans er um 60 metrar. Þetta tók okkur tvo daga og var mikið verk en því er nú lokið og óhætt að láta af vatnsskömmtun, Sem hafði staðið í þijá daga,“ sagði Stefán.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.