Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 Eru þeir að fá 'ann Einn einstakl- ingur greinst með alnæmis- smit á árinu EINN nýr einstaklingur heftir greinst með HIV smit á Islandi á þessu ári. Jafnframt hefur einn greinst með alnæmij sem er loka- stig sjúkdómsins. A árinu hafa tveir einstaklingar hér á landi látist af völdum alnæmis. í frétt frá landlæknisembættinu segir, að alls hafi 55 einstaklingar á landinu greinst með smit af völd- um HIV. Þar af hafi 14 greinst með alnæmi, lokastig sjúkdómsins og 7 séu nú látnir. Samanlagt ný- gengi sjúkdómsins á landinu sé því 5,6 á hveija 100.000 íbúa. Fram kemur, að hommar og tvíkynhneigðir eru fjölmennastir í hópi þeirra sem smitast hafa, eða 37. Fíkniefnaneytendur eru 8, gagnkynhneigðir 4 og blóðþegar 4. Auk þess er einn hinna smituðu bæði hommi og fíkniefnaneytandi og orsakir fyrir smiti annars ein- staklings eru óþekktar. Alls hafa smitast 47 karlmenn og 8 konur. Flestir þeirra eru á aldrinum 20 til 40 ára. 21 punda úr Laxá í Kjós „Það eru komnir rétt rúmlega 300 fiskar úr ánni og í morguft kom sá stærsti, 21 punds fiskur úr Hökl- unum. Hollið sem hætti var með tæpa 40 laxa. Þetta er engin neyð, en þó allmiklu minna en í fyrra og hitteðfyrra enda varla annars að vænta þar sem áin hefur verið hríðminnkandi og er nú orðin mjög vatnslítil,“ sagði Árni Baldursson í samtali við Morgunblaðið á fimmtu- dag. Hann gat þess einnig, að spáð væri úrhelli á næstu sólarhringum og væri því von til þess að úr veið- inni rættist, enda væri fiskur í sjón- um fyrir utan sem biði vatnavaxta. Smákippur í Álftá Lítil veiði hefur verið í Álftá á Mýrum enn sem komið er, enda áin orðin að læk í þurrkunum. Regnið í vikunni gerði lítið gagn, jörðin gleypti vætuna í sig og skilaði engu til árinnar. Þó voru komnir 17 lax- ar á land um miðja vikuna og fyrstu þrjá daga vikunnar veiddust 10 þessara laxa, nokkrir laxar tróðu sér upp á stórstreyminu þrátt fyrir vatnsleysið og veiðin glæddist að- eins. Laxar sem fyrir voru liggja eins og steinrunnir utan í steinum í botni. Það er lax víða, en lítið magn. Allt er þetta smár fiskur, 3 Finnskt skólaskip væntanlegt FINNSKT skólaskip er væntan- legt til Reykjavíkur frá Bretlandi um þessa helgi, en á skipinu eru ellefu unglingar á aldrinum 16-18 ára ásamt stýrimanni og skip- stjóra. Skipið, sem 16,5 metra langt seglskip, er í eigu Landssambands siglingafélaga í Finnlandi. Skipt verður um áhöfn á skipinu hér á landi, en ný áhöfn kemur með flugi frá Finnlandi. Ungmennum í íslenskum siglingaklúbbum verður sýnt skipið á mánudags- og mið- vikudagskvöld í næstu viku, en héð- an fer það 19. júli áleiðis til Bret- lands. SPARISJÓÐIRNIR fyrir þig og þína til 6 pund, en stærstu fiskarnir 12,5, 9 og 7 pund. Flugan hefur gefið betur allra síðustu daga. Stóra-Laxá nokkuð lífleg Stóra-Laxá hefur verið betri heldur en nokkur þorði að vona, þar eru nú komnir um 70 laxar á land, rúmlega 30 stykki af efsta svæðinu, um 20 af neðstu svæðun- um tveim og 20 fiskar af miðsvæð- inu. Þá hefur talsvert veiðst af vænni bleikju á neðsta svæðinu. „Þetta er nokkuð líflegt og menn sjá talsvert af laxi, síðast eina 17 rosafiska í Hólmahylnum á efsta svæðinu,“ sagði Friðrik D. Stefáns- son hjá SVFR. Hér og þar Friðrik hjá SVFR sagði veiðina ganga bærilega í Norðurá, síðasta vikuholl hefði tekið 113 laxa, en laxinn tæki grannt og illa og marg- ir hefðu sloppið. „Það er mikill lax í ánni, m.a. milli 600 og 700 fyrir ofan Glanna samkvæmt teljara og menn hafa séð talsvert af smálaxi neðarlega í ánni. Ef vatnið eykst í ánni ætti veiðin að taka verulega við sér,“ sagði Friðrik. Hann sagði einnig viðunandi veiði í Soginu, síðustu tölur þaðan hefði hann frá 7. júlí, þá voru komnir 16 laxar úr Alviðru, 7 úr Ásgarði, einn úr Bíldsfelli og einn eða enginn úr Syðri-Brú. Þetta er ekki óeðlilegt í Soginu sem er síðsumarsá. Nýlega voru komnir 8 laxar á land úr Hvítá ' eystri fyrir landi Snæfoksstaða og nú munu komnir um 130 laxar úr Rangánum samkvæmt upplýsing- um Lúðvíks Gizurarsonar landeig- anda á þeim slóðum. Er það met og þó obbinn af veiðitímanum enn eftir. Megnið hefur veiðst í Ytri- Rangá, en hefur glæðst að undan- förnu í eystri ánni. Flestir laxanna til þessa voru stórir, tveggja ára fiskur úr sjó, en Lúðvík sagði að síðustu daga hefðu veiðst talsvert margir gríðarsællegir 6-7 punda fiskar sem væru komnir eftir eitt ár í sjó. Stigafstigi settu marki með Fyrir þá sem stig af stigi, en ákveðið, keppa að settu marki, með pví td. að leggja eitthvað fyrir mánaðarlega, er Trompbókin einn besti sparnaðarkostur sem völ er á. Tmmpbók Sparisjóðirnir hafa ávallt að leiðarljósi að hags- munir viðskiptavinanna og sparisjóðanna fari saman. Trompbókin er ávöxtur pessarar stefnu. Trompbókin er óbundin og jafnan opin til úttektar. Hægt er að fara með hana í hvaða sparisjóð á landinu sem er og leggja inn eða út eftir þörfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.