Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.07.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 Englandsferð Úr einkagarði Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir Þriðjudaginn 19. júní sl. lagði hópur á vegum Garðyrkjufélags íslands af stað í viku garðaskoð- unarferð til Suður-Englands. Flogið var til London þar sem rúta beið og var hún næstu 5 daga farartæki hópsins. Keyrt var sem leið lá til Guildford í Surrey, þar var dvalist fyrstu þijár næt- urnar, tvær næstu var gist í Roy- al Tunbridge Wells í Kent og síðustu tvær í London. Ætla ég að segja í nokkrum orðum frá fyrsta deginum. Fyrsti garðurinn, sem skoðaður var, var Wisley- garðurinn, garður hins konung- lega enska garðyrkjufélags. Hann er feikistór um 96 ha. Georg F. Wilson, mikill áhugamaður um garðrækt og gjaldkeri félagsins, keypti hluta þessa svæðis 1878, síðar fékk félagið svæðið að gjöf. í Wisley er rekin mikil tilrauna- og kennslustarfsemi. Garðurinn er mjög margbreytilegur og er skipt niður í mörg svæði, s.s. ávaxtagarð, lynggarð, matjurta- garð, rósagarð, vatnagarða, gróð- urhús með fjallaplöntum og eins fyrir • suðrænar tegundir að ógleymdum steinhæðasvæðunum. Þarna eru líka sjnágarðar, þar sem sýndar eru hugmyndir að heimilisgörðum fyrir ijölskylduna á hinum ýmsu stigum. Barnafjöl- skyldan getur séð hvernig hún getur skipulagt sinn garð, einnig hvernig má hafa garðinn þegai' gömlu hjónin eru orðin ein, „uppa- garður", þar sem mest er sígrænt og sem minnst fyrirhöfn, því lítill tími er fyrir garðvinnuna, garður fyrir fatlaða þar sem öll beð eru upphækkuð þannig að þægilegt er að vinna við þau og breiðar götur fyrir hjólastóla, ilmgarður o.fl. Ræktunarstjóri fyrir fjölæru garðblómin tók á moti okkur og fór með okkur um svæðið og út- skýrði og benti á ýmislegt athygl- isvert. M.a. kom fram hjá honum og reyndar alls staðar þar sem við komum hversu mikið tjón hefði verið í stórviðrunum í vetur, mátti sjá auð svæði þar sem áður höfðu verið stór tré sem höfðu eyðilagst eða fallið og var búið að ijar- lægja. Og vorannir höfðu þess vegna verið miklar. A tilrauna- svæðunum voru t.d. stór flæmi með stjúpum og riddarasporum og var verið að bera saman ýmsa eiginleika þeirra, ég nefni þetta vegna þess að okkur þótti heldur glæsilegt að sjá heilu breiðurnar svo fallega litar. í rósagarðinum var m.a. sýningargarður þar sem verið var að kynna nýjar rósir og þar voru einnig sýnd allskonar litaafbrigði bæði á blómum og blöðum. Wisley-garðurinn er heils árs garður og er sama á hvaða árstíma farið er, alltaf er eitthvað sem gleður augað, á vorin heilu hlíðarnar þaktar laukblómum, lyngrósir og ávaxtatré og haustin fagra haustliti tijánna. Ritari enska steinhæðakiúbbsins kom nú til móts við okkur í Wisley og vorum við í hans umsjá það sem eftir var dags. Þarna var okkur boðið að skoða fjóra einkagarða. Ekki er hægt að lýsa með fáum orðum því sem fyrir augu bar. Hver garðurinn öðrum fallegri og húsbændurnir afar elskulegir. M.a. vorum við boðin velkomin á einum staðnum með kampavíni og öðrum staðnum með tebolla og kökusneið. Hvernig stóð á því að allur karlpeningurinn var allt í einu kominn á gluggann í bílskúrnum (og ein konan heyrðist segja: „Ég læt bara sem ég þekki þá ekki“)? Jú, fyrir innan var gamall vel haldinn og bónaður kappakstursbíll sem húsbóndinn átti og stóð til að keppa á ein- hvem næstu daga. Hann hleypti þeim góðfúslega inn í helgidóm- inn, stoltur eins og hani yfir áhuga karlanna. Þarna var miirið krunk- að í beð og potta. Garðarnir voru afskaplega ólíkir, en alls staðar sama natnin. Falleg steinhæða- beð, tjarnir með gullfiskum, stór blómabeð, gróðurhús og uppeldis- reitir, tré af öllum stærðum, gerð- um og lituin, gul, rauð, græn og blá. Þar var leyst greiðlega úr öllum spurningum og borið sam- an. Skyldi þetta lifa hjá okkur, kannski í garðskála. Jú, jú, þetta er komið upp af fræi, ég ætti að reyna. Það var hamingjusamur hópur sem keyrði heim á leið að kvöldi. Búinn að skoða glæsilegan almenningsgarð og sjá fjóra einkagarða sem hver og einn fékk hjartað til að slá hraðar. Ein úr hópnum. í I I I Gott skrifstofuhúsnæði óskast til kaups í borginni fyrir traust sameignarfélag með 40 ára starf- semi að baki. Margt kemur lil greina. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00 nk. föstudag, 20. þ.m., merkt: „Rétt eign - 9954“ Til söiu í Hafnarfirði Lækjarkinn: Mjög fallegt og vandað steinhús, alls 188 fm og 26 fm bílskúr. Tvær íbúðir. Allt í mjög góðu ástandi. Eftirstóttur staður. Langeyrarvegur: Timburhús, hæð, kjallari og ris, alls 80 fm. 4ra herb. íbúð. Tvöfalt gler. Nýleg utanhúss- klæðning. Góð einangrun. Verð 4,8-5 miilj. Austurgata: Nýstandsett timburhús, tvær hæðir, 108 fm. 5 herb., stórt eldhús og vandað baðherb. Ölsugata: Stein- og timburhús, tvær hæðir og kjallari, alls 170 fm. Tvær íbúðir. Opið í dag Árni Gunnlaugsson hrl., frá kl. 12-17 Austurgötu 10, sími 50764. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL, löggiltur fasteignasali Á fasteignmarkaðinn eru að koma til sölu m.a. eigna: Úrvals íbúð - útsýni 5 herb. nýl. íb. við Rekagranda á 4. hæð og í risi um 120 fm. Innr. og tæki af bestu gerð. Sv. Glæsil. útsýni. Bílhýsi. Gott lán. í þríbýlishúsi í Þingholtunum Neðri hæð 3ja herb. 88,5 fm nettó. Sérinng. Sérhíti. Endurbyggingu næstum lokið. Geymsla í kj. Húsnæðisl. kr. 1,8 millj. Þakhæð við Sólheima Góð 4ra herb. íb. í fjórbhúsi 92 fm nettó. Nýl. gler og póstar. Sér- hiti, svalir, sér þvottahús. Útsýni. Laus fjótl. í Suðurhlíðum Kópavogs 5 herb. sérfb. á hæð og rishæð 146,6 fm í tvíbhúsi við Hlíðarveg. Mikið endurnýjuð. Allt sér. Nýl. stór bflsk. 40 fm. Glæsil. lóð með qróðurskála. Útsýni. Sanngjarnt verð. Laus eftir samkomtil. gróðurskála. Útsýni. Sanngjarnt1 Sérhæð við Melabraut Við nýja vistgötu á Seltjarnarnesi 4ra herb. 106 fm nettó. Allt sér. 3 svefnherb., ræktuð lóð. Þríbhús. Skuldlaus eign. í þríbýlishúsi við Digranesveg Stór og góð 2ja herb. jarðhæð 64 fm. Sérhiti, sérinng. Nýl. gler og póstar. Nýr sólskáli. Nýl. parket. Stór ræktuð lóð. Gott verð. í Hafnarfirði óskast 4ra herb. íb. fyrir duglegan sjómann á góðu aflaskipi. Lítið eínbýli kem- ur til greina. Skipti mögul. á 2ja herb. íb. í borginni með frábæru útsýni. Lækir - Teigar - nágrenni Tii sölu 3ja herb. rúmgóð kj.íb. upp við Dalbraut. Sérinng., sérhiti, nýtt gler. Skipti æskileg á 4-5 herb. íb. á nágrenninu. Opiðídagkl. 10-16 Mikiil fjöldi fjársterkra kaupenda. ALMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Umsjónarmaður Gísli Jónsson Forstöðumaður íslenskrar málstöðvar, próf. Baldur Jóns- son, sendir mér svofellt bréf sem ég þakka honum kærlega: „Gísli minn blessaður. Eg var að lesa síðasta þáttinn þinn um íslenskt mál (544. þátt), sem birtist í Morgunblaðinu í dag, og þakka fyrir hann eins og alla hina. Þú minnist á enska orðið frustration, af því að einn af lesendum þáttarins óskar eft- ir góðri þýðingu á því. Hann segir sig hafa heyrt orðið fötrun og í framhaldi af því spyrðu hvaðan það sé komið. í Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfræði, sem Orðanefnd Kennaraháskóla íslands hefir tekið saman og Islensk málnefnd gaf út í ritröð sinni 1986, er að finna sögnina fatra (e. frustr- ate) og hvorugkynsorðið fatur (e. frustration), einnig samsetta orðið faturþol (e. frustration tolerance). Orðið fatur hefir tvær merkingar. Undirstöðu- merkingin er „það sem hindrar marksækna athöfn". Hin síðari er „leiði eða ergi, sem sprettur af fatri 1 eða af mistökum og ósigri“, eins og þetta er orðað í bókinni. Af nafnorðinu fatur er svo mynduð sögnin fatra, sem merkir að „valda fatri“. Hver sá sem lært hefir sögn- ina fatra er vís til að mynda af henni nafnorðið fotrun (um ,,frustration“). Þannig er það eflaust til komið. Hitt er svo annað mál að e.t.v. er ekki bein þörf fyrir það ef upphafsorðið í þessari fjölskyldu, fatur, er haft um „frustration“. Þannig mun Orðanefnd Kennaraháskólans hafa liíið á málið, því að orðið fötrun er ekki í safni hennar, heldur einungis fatur. Orðaskrá úr uppeldis- og sálarfræði var fyrst gefin út 1979, fjölrituð sem handrit. Orð- in fatur og sögnin fatra voru þá þegar komin þar á blað. En þessi oi'ð eru ekki nýyrði. Eins og sjá má t.d. í orðabók Fritzn- ers (undir fatr) kemur það fyrir í fornu máli (Morkinskinnu og Flateyjarbók) og í sömu heim- ildum sögnin fatra (eða fatr- ast). Fritzner þýðir nafnorðið með „Ophold, Hindring“ og sögnina með „opholde, hindre“. Orðanefnd Kennaraháskólans gerði því ekki annað en grípa til orða sem fyrir voru í málinu. Látum þetta duga að sinni. Bestu kveðjur." Baldur Jónsson sendi mér líka Nordisk miljonytt (nr. 1 júní 1990), og þar fór í verra sem síðar mun sagt verða. Þá kemur Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum, annar kafli, sbr. .síðasta þátt: „Mörg önnur staða- og bæja- heiti mætti nefna, þar sem ýmist er sagt í eða á. Um mörg þeirra gildir sama regla og nes, stað- hættir ráða. Þar má nefna t.d. Brekku. Við segjum í Brekku í Svarfaðardal, Eyjafirði og í Auð- brekku í Hörgárdal,,1 en t.d. á Brekku í Fljótsdal.j Eyfirsku bæirnir stamia í brekkunni, en Brekka í Fljótsdal uppi á henni. Sama er að segja um Hól-Hóla, t.d á Sólborgarhóli, en í Græn- hól eða Þinghól í Kræklingahlíð, á Hólum í Hjaltadal og á Reyk- hólum, en 1 í Hólum í Öxpadal, Eyjafirði, Reykjadal og Hóium í Hornafirði. Ef bærinn stendur uppi á hólnum eða hólaþyrpjng- unni, erum við á Hólum eða Hól(i), en standi hann undir eða utan í hólnum, segjum við í Hólum-Hól(i). 546. þáttur aði, t.d. Ekkjufell, einnig á Suð- urlandi, við Faxaflóa og í Dala- sýslu. Dæmi: Skriðufell, Mosfell, Meðalfell og Staðarfell. Þó er sagt í Sandfelli í Öræfum og í Tungufelli Árnessýslu. Síðan segja Skagfirðingar á Mælifelli og Felli í Sléttuhlíð. Þá eru nöfnin: -fjörður, -höfn, -vík og -vogur. Þar sem um ein- staka bæi er að ræða, er sagt í: Sveinn alþingismaður í Firði í Mjóafirði, í Höfn í Siglufirði, í Leirhöfn, Strandhöfn, Skjald- arvík, Húsavík (prestssetrið), Húsavík eystra, Vogi í Dala- sýslu. Eina undantekningin frá þessari málvenju er á Rauðuvík á Árskógsströnd. Þegar um þétt- býlisstaði er að ræða, er venjan að segja á t.d. öllum fjörðum nema Hafnarfirði og Grundar- firði, öllum höfnum frá Raufar- öfn og Þórshöfn að Höfn í ornafirði, en í Þorlákshöfn; öllum víkum frá Hólmavík aust- iUr og suður um til Breiðdalsvík- mr, eftir það eru þéttbýlisstaðirn- ir í vík vestur og norður um til Bolungavíkur og Súðavíkur, en svo segja mexm á Djúpavogi.“ Miklu betur kann ég við sam- íjetninguna ungbarn heldur en ,iungabarn“. Ekki segjum við *u ngalaml) heldur unglamb, ekki tölum við um ‘ungafuglinn, neldur ungfuglinn, og ung- hæna er svo reyndar allt annað en ungahæna. Hins vegar get ég ekki fundið þessari reglu stað í næstu nöfn- um. Ymist er sagt í eða á um bæina Fell og Fjall. Engir bæir standa uppi á felli eða fjalli, sem þeir eru kenndir við, og ég veit ekki hvort á-bæirnir kunni yfir- leitt að standa hærra en í-bæirn- ir. En hér virðist í og á Felli málvenjan fylgja landshlutum. í Eyjafirði og Suður-Þingeyjar- sýslu eru eingöngu í-fell, en á-fell hins vegar á Fljótsdalshér- Hlymrekur handan kvað: Ég er jámgrýtisfrú Jóka Óla, og ég fyririít kvenblókaskóla; ég slæst berhent við róna, ég reyki Kóróna, og drekk rommið mitt án coca cola. Auk þess vek ég athygli á gagnmerkum nafnaskýringum Jóns Hilmars Magnússonar rit- stjóra á Akureyri í Norðurljós- inu. ► I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.