Morgunblaðið - 14.07.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990
11
NISSAN línan synd í sínu besta skarti
stað álitlegs hagnaðar svo aðeins
er spurning um tíma hvenær miklu
meiri niðurskurður verður óumflýj-
anlegur.
Önnur mistökin voru að reyna
ekki að ná sættum í félaginu og
opna það svo almenningur gæti
keypt í því hlutabréf. Slíkt hefði
ekki aðeins aukið geysilega tiltrú
og áhuga á félaginu, heldur hefði
þetta getað orðið til þess að leysa
fjárhagsvandann til frambúðar.
Þriðju mistökin voru tvíþætt. I
fyrsta lagi að skrifa ekki undir
samning eldri hluthafa við Sýnar
hf., en úr því það fórst fyrir, að
standa þá ekki svo stórmannlega
að sameiningunni að hún gengi upp
í stað þess að glutra henni niður á
elleftu stundu eins og gert var.
Fjórðu mistökin voru að missa
Goða og Pál Baldvin út úr fyrirtæk-
inu með þeim afleiðingum að á ör-
skömmum tíma náði Sýn hf. undir-
tökum í efniskaupum, hálfu ári
áður en útsendingar áttu að hefj-
ast. Fyrir bragðið átti Stöð 2 ekki
annarra kosta völ er sameinast Sýn.
Fimmtu mistökin voru að klúðra
markaðssetningunni með þeim af-
leiðingum m.a. að Stöð 2 hefur tap-
að yfir 100 milljónum króna í
brúttóauglýsingatekjum á fyrstu 6
mánuðum ársins, helming þeirrar
upphæðar sem Reykjavíkurborg
átti að ábyrgjast fyrir stöðina!!!
Sjöttu mistökin voru stuðla ekki
að sáttum og góðum almennings-
tengslum með því að sætta deilur
milli hluthafa innbyrðis og skapa
fyrirtækinu jákvæða ímynd út á
við. Fyrir bragðið er ímyndin í rúst
og fyrirtækið á alls staðar í vök að
veijast, jafnt hjá auglýsendum sem
áskrifendum.
Þar við bætist aragrúi smærri
mistaka eins og læsingin góða sem
mistókst og gerði ekki annað en
tryggja endanlega að Morgunblaðið
og Ríkissjónvarpið hafa nú endur-
heimt fyrri auglýsingatekjur og
Stöð 2 er hætt að vera ógnun við
þá á auglýsingamarkaðnum.
Sjöunda klúðrið: Ábyrgð
Reykjavíkurborgar
Margir hafa velt fyrir sér hvort
það hafi verið rétt hjá stöðinni að
sækja um ábyrgð til Reykjavíkur-
borgar að upphæð -200 milljónir
króna. Persónulega er ég þeirrar
skoðunar að þessi aðgerð hafi ein-
faldlega verið með öllu óþörf.
Það sem skipti þess í stað megin-
máli var að sameiningin tækist.
Með henni var hlutafé Stöðvar 2
orðið yfir 800 milljónir. króna og
því þöif fyrir frekara lánsfé úr sög-
unni. En stjórnendur Stöðvar 2
ákváðu að klúðra frekar sameining-
unni en gefa eftir í samningum.
Hvers vegna? Vegna þess að
þeir urðu að láta Sýn hf. fá annað-
hvort stjórnarformennskuna eða
forstjórastöðuna í sinn hlut, en
hvorki Þorvarður né Jóhann J. voru
tilbúnir að standa upp úr stólum
sínum . .. jafnvel ekki þótt það
myndi bjarga fyrirtækinu.
Má því segja að þaulseta þessara
manna við stjórnvölinn hafi verið
ein sú dýrkeyptasta í viðskiptasögu
landsins og kunni að ríða fyrirtæk-
inu að fullu. í stað þess að bjóða
Sýn hf. strax í upphafi að velja
annað hvort- embættið var málið
þæft uns allt sprakk í loft upp.
Abyrgð Reykjavíkurborgar átti
að bjarga dæminu og gera þessa
sameiningu óþarfa. En blessuðum
Stöð 2
eftirJón Óttar
Ragnarsson
Fátt hefur verið sérkennilegra
en að fylgjast með tilburðum nokk-
urra kaupsýslumanna hér í borg
með skólastjóra í broddi fylkingar
reyna að reka opinberan fjölmiðil.
Gildir það jafnt hvort heldur boð-
skapurinn er ætlaður almenningi,
öðrum hluthöfum eða starfsfólki,
ávallt svífur yfir vötnum svo ótrúleg
seinheppni að ógerningur er að vita
hvort maður á að hlæja eða gráta
andspænis þessum hrakfallabálk-
um.
Persónulega hefi ég lúmskt gam-
an af þessu ruglaða liði sem einn
daginn geislar af þakklæti yfir
gripnum sem það keypti fyrir slikk
og hinn daginn fær móðursýkisköst
af mannvonsku og heift yfir að
hafa „keypt köttinn í sekknum".
Að sjá þá höggva Stöð 2 í spað
er auðvitað hrikaleg sorgarsaga, en
um leið óneitanlega spaugilegt þeg-
ar þeir kalla sig bjargvætti fyrir-
tækisins og annað í þeim dúr og
reigja sig í heilagri vandlætingu.
Með sljórnarfund í heinni
Sérstaklega eru blaðamanna-
fundirnir þeirra forvitnilegir. Að
þessu sinni var tilefnið að agnúast
út í íslandsbanka eina ferðina enn,
út af gömlu máli; skuldasöfnun
1989 reyndist meiri en gert var ráð
fyrir (ég myndi hafa meiri áhyggjur
af árinu 1990).
Meira að segja sjónvarpsstjórinn
er byijaður með „leiðara" þrátt fyr-
ir stóryrtar yfirlýsingar fyrir fáein-
um mánuðum að hann ætlaði ekki
— öfugt við hinn gerspillta fyrir-
rennara hans — að vera andlit á
skjánum! Kynnti hann framtakið
með lúðraþyt sem „nýjung" á ljós-
vakamarkaðnum.
Næsta „bomb'a" var að gagnrýna
opinberlega skuldabréf okkar félag-
anna í þeirri von að knýja fram
afslátt. Voru þessi plögg þó líklega
það fyrsta sem þeir ráku augun í
þegar þeir skoðuðu reikninga fé-
lagsins áður en þeir keyptu Stöð 2
um áramótin á spottprís.
Þessi bréf voru einfaldlega lausn
á vandamáli sem kemur upp í öllum
félögum — og nú þegar er komið
upp meðal nýju hluthafanna — þar
sem ábyrgðir upp á nokkur hundruð
milljónir króna hvíla á fáum herðum
sem hætta aleigunni fyrir rekstur-
inn.
Nýju hluthafarnir samþykktu
nýlega á fundi að þeir ætluðu fram-
vegis að taka sér ríflega veðleigu
af hverri krónu sem þeir lána félag-
inu. Þar að auki hafa þeir skenkt
sér rausnarleg stjórnarlaun og
þóknun fyrir yfirvinnu stjórnar-
manna þegar álag keyrir um þver-
bak.
Stjórnendur í vanda
Vandamál stjórnar og stjórnenda
Stöðvar 2 hafa því miður ekkert
með skuldabréf eldri hluthafa að
gera. Þeir ættu þvert á móti að
vera þakklátir fyrir að í kaupunum
tókst ekki að uppfæra gengi á
hlutabréfum eldri hluthafa þannig
að þeir fengu fyrirtækið fyrir ölm-
usuverð.
Þvert á móti stafa þessi vanda-
mál af því að hinir nýju hluthafar
hafa gert a.m.k. 6 stórmistök á
ferli sem spannar aðeins hálft ár.
Er ekki annað að sjá en þessi mis-
tök samanlagt séu þess eðlis að þau
geti hæglega riðið fyrirtækinu að
fullu þegar til lengri tíma er litið.
Fyrir þessi mistök og ýmis
smærri berst fyrirtækið í bökkum
vegna heimatilbúinnar kreppu.
Hvort því tekst að lifa hana af er
undir ýmsu komið. En lítum aðeins
á árangurinn af þeim sérkennilega
stjórnunarstíl sem félagið hefur til-
einkað sér á síðustu 6 mánuðum.
Fyrstu mistökin voru að halda
ekki uppsögnum 25 starfsmanna
frá 1. des. sl. til streitu, þótt sárt
væri auðvitað. Fyrir bragðið er fyr-
irtækið rekið með builandi tapi í
Jón Ottar Ragnarsson
„Margir hafa velt fyrir
sér hvort það hafi verið
rétt hjá stöðinni að
sækja um ábyrgð til
Reykjavíkurborgar að
upphæð 200 milljónir
króna. Persónulega er
ég þeirrar skoðunar að
þessi aðgerð hafi ein-
faldlega verið með öllu
óþörf.“
körlunum tókst að klúðra henni eins
og öðru: Eru nú liðnir yfir þrír
mánuðir frá því að það tók að kvis-
ast innan Stöðvar 2 að miklir pen-
ingar væru væntanlegir í júní.
Fyrir meira en mánuði tóku þess-
ir kvittir á sig fastari mynd. Stöðin
átti von á fé frá borginni! Ekki
veit ég hvernig borgarráð tók þess-
um ótímabæra orðrómi eða hvað fór
þarna á milli, en hefði ég setið í
þessu mæta ráði hefði ég sagt:
„Trúnaður er lágmarkskrafa,
herramenn. Farið í rass og rófu!“
Enda þótt ég hafi verið óvenju-
lega lítt tengdur fyrirtækinu undan-
farna mánuði, aðeins verið vara-
maður á fáeinum fundum, var ég
fjórum sinnum búinn að heyra um
þetta mál frá fjórum mismunandi
aðilum, hálfum mánuði áður en
málið var tekið fyrir hjá Borgarráði!
Lokarorð
Persónulega hefi ég ekki hug-
mynd um hvort „uppljóstrun“ um
skuldabréf okkar þremenninganna
á blaðamannafundi markaði upp-
hafið að nýrri aðför að okkur eldri
hluthöfum, enda erfitt að vita hvað
fram fer í heilabúum nýrra meiri-
hlutaeigenda Stöðvar 2.
Hitt er sólarklárt að þeir hafa
engin skotfæri til að gera aðför að
einum eða neinum og mega halda
lystilega á spöðunum til þess að
losa fyrirtækið úr því kviksyndi sem
þeir hafa komið því í. Persónulega
vona ég að þeim takist það þótt
bjartsýnin fari þverrandi.
Staðreyndin er hins vegar sú að
eftir aðeins 6 mánaða útivist er
orðið æði fátt í rekstrí þessa fyrir-
tækis sem ekki þarfnast endurskoð-
unar við. Það er því augljóst að
sápan á Stöð 2 er ekki í rénum,
þótt löðrið þynnist jafnt og þétt
jafnvel frá degi til dags.
Eiga hér augljóslega við huggun-
arorð Jóns Hreggviðssonar í ís-
landsklukkunni við samfanga sinn
í Þrælakistunni á Bessastöðum þeg-
ar hann heyrði hann rekja þá rauna-
sögu er hann reyndi að töfra til sín
kvenmannssbelg með svartagaldri,
en þá reyndist karlmaður í bólinu
hjá henni....Já, þú verður ábyggi-
lega brenndur."
Höfundur er fyrrverandi
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
NISSAN^atroljr^urbo, á verði sem fær keppinautana til að...
NISSAN 200 SX, alvörusportbíll með 170 alvöruhestöfl.
NISSAN Sunny, fjölskyldubíll með sál og sportlegar hliðar.
Sýnum allar gerðir af þessum skemmtilega bíl.
NISSAN Micra,lítill og sætur með 4ra strokka vél og mjúkur í akstri.
NISSAN Maxima, flaggskip sem gagnrýnendur segja að gerist
ekki betra.
NISSAN Pathfinder/Terrano, V.6. 3ja og 4ra dyra lúxusjeppar.
NISSAN Proirie 4WD, útlit og tækni framtíðarinnar.
NISSAN Sunny von 1.3, sem færir þér virðisaukann beint í vasann.
Sýnum margt, margt fleira
enda í sumarskapi■
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2,
sími 67-4000
klandri
í