Morgunblaðið - 14.07.1990, Síða 14

Morgunblaðið - 14.07.1990, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990 Tíðni kransæðastíflu lækkar á íslandi: Arangur af breyttu mataræði og minni reykingum fólks TÍÐNI kransæðastíílu á íslandi hefur farið umtalsvert lækkandi á þessum áratug, að því er fram kemur í rannsókn á vegum Hjai'ta- verndar og sagt er frá í nýút- komnu riti samtakanna. Rann- sóknin nær til áranna 1981-86 og er hluti alþjóðlegrar rannsóknar á orsökum og útbreiðslu sjúk- dómsins sem Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin hefur umsjón með. Sam- kvæmt niðurstöðum hennar fer heildartíðni kransæðastíflu lækk- andi, sem og dánartíðni af völdum hennar og tíðni nýrra tilfella. mui g unuiciuiu/ r .r o Erlendir fulltrúar á ráðstefnu Flugmálastjórnar ásamt fulltrúum Flugmálastjórnar. Neðri röð f.v: Tre- vor Paine, Tony Welch, Pétur Einarsson flugmálastjóri og Ed Adelson. Efri röð: Peter Wood, Walter Gribben, R. Bebie, Graham Lake, Guðmundur Matthíasson, Þorgeir Pálsson, Haukur Hauksson og Leif- ur Hákonarson. _________________ Fjölmenn ráðstefiia Flug’málastj órnar um íramtí ðarþ r ó n n í flugumferðarþjónustu: Gervihnattatækni og sjálfvirkni í stað núverandi flarskiptakerfa FLUGMÁLASTJÓRN hélt Ijölmervna ráðstefnu um framtíðarþróun í íjarskipta-, leiðsögu- og flugumferðarstjórnkeríúm í Reykjavík sl. þriðjudag, 10. júlí. Erindi fluttu átta erlendir og innlendir sérfræðing- ar.“ Þátttakendur voru yfir 100, þar á meðal voru innlendir fulltrúar frá. samgönguráðuneytinu, flugráði, Flugmálastjórn, Veðurstofu Is- lands, Landhelgisgæslunni, Háskóla Islands, Flugleiðum, Flugfélagi Norðurlands, Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Félagi flugumferðar- stjóra, Innkaupastofnun ríkisins, Flugmálafélagi Islands, Verkfræðinga- félagi íslands o.fl. Ráðstefnan hófst með ávarpi Pét- urs Einarssonar flugmálastjóra, en erindi fluttu Tony Welch, ráðgjafi Flugmálastjórnar í ratsjártækni, Tre- vor Paine, framkvæmdastjóri end- urnýjunar alls flugumferðarþjón- ustukerfis Kanada, Peter Wood, framkvæmdastjóri flugdeildar gervi- hnattafyrirtækisins INMARSAT, Ed Adelson og Walter Gribben, fulltrúar bandaríska fj arskiptafyrirtækisins ARINC, Graham Lake og R. Bebie, fulltrúar evrópska fjarskiptafyrir- tækisins SITA og Guðmundur Matt- híasson, framkvæmdastjóri flugum- ferðarþjónustu Flugmálastjóraar, en hann er jafnframt formaður alþjóð- legs verkefnishóps um þróun flugum- ferðarþjónustu á Norður-Atlantshafi. Að framsöguerindum loknum fóru fram pallborðsumræður sem dr. Þor- geir Pálsson, ráðgjafi Flugmála- stjórnar, stýrði. Fundarstjóri ráð- stefnunnar var Haukur Hauksson, varaflugmálastjóri, og fundarritari var Leifur Hákonarson, forstöðu- maður tölvudeildar Flugmálastjórn- ar. Umræður á ráðstefnunni snerust um byltinguna sem verður á næstu árum í ijarskiptum, flugleiðsögu og flugumferðarstjórn. Aðalefni ráð- stefnunnar fjallaði um það hvernig gervihnattatækni og sjálfvirkni munu verða tekin í notkun á næsta áratug og koma í stað núverandi ijar- skiptakerfa upp úr nk. aldamótum. Nú þegar hafa þjóðir við Norður-Atl- antshaf gert með sér samkomulag um langtímaáætlun til að byggja sínar flugumferðarstjórnarmiðstöðv- ar í samræmi við þessa þróun. Meðan á ráðstefnunni stóð gátu þátttakendur fylgst með flugi flug- vélar frá flugfélaginu Sabena, sem var á leið frá Brussel til New York, en vélin sendi frá sér staðarákvarð- anir og fleiri upplýsingar í stafrænu formi með reglulegu millibili beint inn á tölvu í ráðstefnusalnum. Not- aði flugvélin til þess gervihnattasam- band þar sem tölvustreymi í stafrænu formi kemur í..stað tals, en notkun þessa fyrirkomulags mun verða æ víðtækara á næstu árum. Þessi fjar- skipti fóru fram í gegnum fjarskipta- net fyrirtækisins SITA, sem er al- hliða ijarskiptaþjónustufyrirtæki í eigu fjölmargra flugfélaga, en ísland tengdist þessu ijarskiptaneti form- lega þennan dag. Það er almenn niðurstaða ráð- stefnunnar að ísland mundi áfram gegna mikilvægu þjónustuhlutverki FUK3MM-ASTJÖRN Hér sést umferð flugvéla til vesturs um íslenska flugumferðarsvæðið á venjulegum sumardegi. Hringirnir sýna hvernig ratsjártæki á ís- landi og í Færeyjum, sem tengd eru Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík, fylgjast með umferð flugvéla á Norður-Atlantshafi. Um 35% þeirra flugvéla, sem fljúga yfir Norður-Atlantshaf, njóta þjón- ustu frá Flugstjórnarmiðstöðinni hér. við alþjópaflugið á Norður-Atlants- hafi, en ísland yrði að fylgja þróun- inni eftir, m.a. með byggingu nýrrar flugstjórnarmiðstöðvar. Kostnaður vegna mannvirkja og þjónustu vegna alþjóðaflugsins er greiddur af alþjóð- legu fé. Þess má geta að alþjóðaflug- málastofnunin (ICAO) greiðir ís- Um Heimssýningiina í Sevilla ATHUGASEMD frá Útflutningsráði íslands vegna ummæla Svavars Gestssonar menntamálaráðherra um Heimssýninguna I Sevilla á Spáni 1992. í viðtali við Svavar Gestsson, menntamálaráðherra í Morgunblað- inu á fimmtudag talar hann um út- færslu á hugmynd Guðmundar Jóns- sonar arkitekts á sýningarskála, sem kosta muni um 250 milljónir króna. Hér er ekki rétt með farið. Höfundur þeirrar tillögu um sýn- ingarskála, sem valin var, er Guð- mundur Jónsson arkitekt og áætlað- ur kostnaður við það hús er um 120 milljónir króna. Heimssýningin í Sevilla á Spáni byijar í apríl 1992 og mun standa fram í október sama ár, þ.e. í um 6 mánuði. Ráðgert er að um 40 milljónir gesta skoði sýninguna. Ef gert er ráð fyrir að um 10% þeirra gesta heimsæki íslenska sýningarsvæðið eru það 4 milljónir gesta á 6 mánuð- um, en það jafngildir um 22 þúsund gestum á dag að meðaltali, eða um 30 gestum á mínútu. Islenska sýningarsvæðið er gegnt því bandaríska, svo að gera má ráð fyrir að athygli manna beinist mjög að þessu svæði. Gert er ráð fyrir að í ísienska sýningarskálanum verði lítil veitingabúð, þar sem íslensk matvæli og drykkjarvöi-ur verði á boðstóium. Einnig verslun, þar sem seidir verða minjagripir, ýmsar íslen- skar vörur aðrar og matvæli í gjaf- aumbúðum. Skálinn er þannig hann- aður, að hann er sýning í sjálfu sér, veggir eru úr áli, hann minnir á eld- fjali, og hallandi þakið er glerlista- verk, þar sem skráð er saga þjóðar- innar. Innandyra er leitast við að koma á framfæri, á einfaldan en táknræn- an hátt, menningu okkar og lífs- háttum, okkar aðal atvinnugreinum, orkulindum, óspilltri náttúru og hreinu lofti. Lögð er áhersla á hið ómengaða umhverfi sem íslenski fiskurinn kemur úr. Gert er ráð fyr- ir íslensku starfsfólki í skálanum þessa 6 mánuði. Hver þjóð fær svo- kallaðan þjóðardag og beinist þá öll athyglin að viðkomandi þjóð. Þennan þjóðardag standa viðkomandi þjóð til boða glæsileg tónleikahús, óperu- hús og leikhús, sem Spánveijar hafa byggt á svæðinu. Þar gefst tæki- færi til að halda tónleika, sýna óper- ur, balletsýningar, eða hvað það helst sem viðkomandi þjóð kýs að kynna af sínum verkum og lista- fólki. Þá er gert ráð fyrir að viðkom- andi þjóðhöfðingi heimsæki sýning- una þann dag. Kostnaður við undirbúning, rekst- ur sýningarskálans í 6 mánuði, auk Upplýsingum er safnað um öll kransæðastíflutiifelli fólks á aldrin- um 25-74 ára. Árið 1981 þegar rann- sóknin hófst var heildartíðni krans- æðastíflu um 750 á landinu öllu, en var komin niður í um 580 á árinu 1986. Tíðni nýrra tilfella var 1981 um 500, en var 1986 rétt rúm 400 og um 330 dóu af völdum kransæð- astíflu 1981 samanborið við rétt rúm 200 árið 1986. Búið er að safna gögnum um árið 1987 einnig, en ekki er búið að vinna úr þeim. Guðmundur Þorgeirsson, læknir, sem er formaður rannsóknastjórnar Hjartaverndar, segir að þessi fækkun tilfella sé tölfræðilega marktæk og það sé ekki ástæða til að ætla annað en framhald verði á þessari þróun. Hann sagði að margt benti til þess að neysla á harðri dýrafitu færi minnkandi, enda hefði kólester- olmagn í blóði farið lækkandi hér- lendis. Þá færu reykingar minnkandi bæði samkvæmt gögnum Hjartar- verndar og ekki síður samkvæmt könnunum á reykingavenjum ungs fólks. í þriðja lagi væri greinilegt að of hár blóðþrýstingur væri oftar greindur en áður, auk þess sem hann væri meðhöndlaður af meiri kunnáttu nú en var í upphafi þessara rann- sókna fyrir tveimur áratugum. „Þannig hafa allir þessir sterkustu áhættuþættir lagast og þróunin stefnir í rétta átt. Nokkur ár tekur að það skili þeim árangri að sjúkdó- matíðni lækki, en það virðist vera að koma fram núna. í öðru lagi hef- ur meðferðin á kransæðasjúklingum batnað og þess vegna hefur dánar- tíðnin einnig lækkað,“ sagði Guð- mundur. Hann sagði að reykingar væru mjög sterkur áhrifaþáttur á krans- æðastíflu og með því einu að hætta að reykja minnkuðu menn hættuna verulega strax vegna þess að rann- sóknir sýndu að nikótínið sjálft hefði veruleg áhrif á samloðun blóðflagna og stíflumyndun, fyrir utan það að stuðla að æðakölkun. Konur væru sér á báti hvað snerti hættuna á kransæðastíflu. Þær virtust hafa ein- hveija náttúrulega vörn gegn þessum sjúkdómi og hættan væru hverfandi ef þær reyktu ekki. Það væru hins vegar sjöfaldar líkur til þess að þær dæju af kransæðastíflu ef þær reyktu meira en 25 sígarettur á dag, saman- borið við þær sem ekki reyktu. lenskum stofnununum, m.a. Flug- málastjórn, Pósti og síma og Veður- stofu íslands, fyrir um 100 störf sem unnin eru hérlendis vegna þjónustu við alþjóðaflugið. Það er ljóst að það eru miklir hagsmunir fyrir ísland að halda þessum samningi um alþjóða- fiugþjónustuna. _ ýmis kynningarkostnaðar, er áætl- aður um 120 milijónir, þannig að heildarkostnaður er áætlaður um 250 milljónir. Gert er ráð fyrir að selja sýningarskálann að sýningu lokinni, einnig að bjóða út rekstur veitingabúðar og versiunar, þannig að þegar upp er staðið dreifist kostn- aður á fleiri hendur. Vænta'má, að þarna gefist gott tækifæri tii að kynna íslenskar fiskafurðir á svæði sem nú þegar er mikilvægt markaðs- svæði fyrir okkur íslendinga og sam- keppnin er mjög hörð. Á markað Evrópubandalagsins fara um 60% af okkar útflutningsvörum. Ef vel er á málum haldið má gera ráð fyr- ir auknum ferðamannastraumi hing- að til lands í kjölfar sýningarinnar. Að lokum er vert að geta þess, að sýningin er haldin árið 1992, á sameiningarári Evrópu, þegar sam- eiginlegur markaður Evrópu verður að raunveruieika. Jóhanna við málverkið „Flug" Sýnir í Skaftafelli í dag, laugardaginn, 14. júlí klukkan 15, hefst sýning á málverkum og grafíkmynd- um í veitingasal þjónustumið- stöðvarinnar í Skaftafelli. Jóhanna Bogadóttir sýnir þar um 18-20 myndir sem unn- ar eru á sl. tveim árum. Grafík- myndirnar eru flestar unnar með blandaðri tækni, nokkurs konar einþrykk. Sýningin mun standa til 15. ágúst og verður opin á opnunartíma veitingasal- anns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.