Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990
Austur-Þýskaland:
Leiða kauphækkanir
til fj öldagj aldþrota?
Austur-Bcrlín. Reuter.
STARFSMENN í málmiðnaði í Austur-Þýskalandi sömdu í gær um
miklar kauphækkanir og atvinnutryggingu, en talið er að hvort
tveggja kunni að tefja umbætur og draga úr skilvirkni í þessari
starfsgrein. Formaður vestur-þýska vinnuveitendasambandsins sagði
að samningar af þessu tagi kynnu að minnka áhuga v-þýskra iðnfyr-
irtækja á að fjárfesta í a-þýskum fyrirtækjum. Vestur-þýsk stofnun
sem fylgist með hagþróun sagði að 20% kauphækkanir myndu leiða
til skjóts gjaldþrots austur-þýskra fyrirtækja.
NY STAÐA I SOVESKUM STJORNMALUM
Til þess að afstýra verkfalli 1,7
milljóna starfsmanna í málmiðnaði
var samið við samtök þeirra um
22,7% hækkun sem er afturvirk til
1. júlí og auk þess 5% hækkun í
október. Jafnframt var samið um
að engum starfsmanni yrði sagt upp
fyrir 1. júlí á næsta ári. Á móti
kemur að samið var um styttingu
vinnuvikunnar úr 43 stundum í 40.
Verður kauphækkunin því ekki eins
mikil og prósentuhækkunin kann
að gefa til kynna.
I fyrradag náðu samtök um
200.000 starfsmanna í efnaiðnaði
samningum um 35% kauphækkun
en þeir höfðu hótað verkfalli til
þess að knýja á um launahækkun.
Menn sem málum eru kunnugir í
A-Þýskalandi telja að þarlend iðn-
fyrirtæki hafi ekki bolmagn til að
standa undir kauphækkun af þessu
tagi. Þá berast fréttir um að fjöldi
fyrirtækja, sem nú semur um launa-
hækkun, geti ekki einu sinni greitt
þau laun sem í gildi voru á réttum
tíma.
Eftir hækkunina verða mánaðar-
laun verkamanna í málmverum
1.400 mörk (um 50.000 ÍSK) að
meðaltali í október eða rúmlega
helmingi minni en vestur-þýskra
starfsbræðra þeirra.
Tugþúsundir verslunarmanna
efndu tii mótmæla við þinghúsið í
Austur-Berlín í gær og kröfðust
trygginga gegn uppsögnum er
verslunarkeðjur í eigu ríkisins yrðu
leystar upp og seldar einkaaðilum.
Gert var hlé á störfum þingsins
meðan Lothar de Maiziere forsætis-
ráðherra ræddi við fulltrúa fólksins.
Hét hann því að það mundi njóta
forgangs til að kaupa verslanir þeg-
ar þær yrðu til sölu. Sagði hann
ótta við atvinnuleysi ástæðulausan
því engin starfsgrein önnur ætti
eftir að vaxa og eflast jafn mikið
og verslunin á næstu árum.
Talsmaður ríkisstofnunar sem
fer með landbúnaðarmál sagði í gær
að fjöldi samyrkjubúa væri hættur
að greiða starfsfólki laun vegna
fjárskorts. De Maiziere sagði á þingi
að fjárþröng í landbúnaði væri mik-
il þar sem stofnanir ríkisins brygð-
ust seint við beiðnum þeirra um
peningafyrirgreiðslu. Beiðnir
margra samvinnu- og samyrkjubúa
þættu grunsamlega háar og því
hefði þótt ástæða til að kanna ræki-
lega hver raunveruleg fjárþörf væri
áður en lán yrðu veitt.
Wœ„. „ Borís Jeltsín
l“isstsa?s«j
jatsjeslav Shostakovskíj
Lei*t09^ýöræöisvettvanas
UMBÓTASINNAR HARÐLÍNUMENN
Míkhaíl Gorbatsjov Jegor Lígatsjov 19
Forseti Sovétríkjanna í stjórnmálaráöinu
og aðalritari flokksins ívan Polozkov V
Alexander Jakovlev Leiötogi rússneska v
Félagi í stjórnmálaráöinu kommúnistaflokksins 1
og hallur undir Gorbatsjov Vettvangur marxista
Edúard Shevardnadze Leiötogar ókunnir
Utanríkisráðherra og stuön- Vladímír Tjúlkín
ingsmaður Gorbatsjovs Frumkvæöisráö
Lance Bell REUTER Leningrad
ROTTÆKIR
UMBÓTA-
SINNAR
SKILA
FLOKKS-
SKÍRTEINUM
SÍNUM
Klofiiingnr sovéskra kommúnista:
Harðlmumenn hafa enn
valdaþræði í höndum sér
Gorbatsjov fordæmir klofiiingsmenn Lýðræðisvettvangs
Moskvu. Reuter, Daily Telegraph.
Umbótasinnarnir, sem hafa sagt skilið við sovéska kommúnista-
flokkinn, eru flestir félagar í Lýðræðisvettvangi sem varð til í mars
sl. Þá birtust í flokksmálgagninu Prövdu róttækar kröfúr í nafni
samtakanna: Afiiema skyldi forréttindi flokksfélaga, brjóta niður
skrifræðisvaldið og senda „marxískar kreddur" veg allrar veraldar.
Míkhaíl S. Gorbatsjov forseti réðst í gær á klofhingsmenn í samtali
við bandarísku CBS-sjónvarpsstöðina. „Ég fyrirlít þá sem hverfa á
braut núna og leita skjóls annars staðar,“ sagði forsetinn.
Samtökin Lýðræðisvettvangur
voru stofnuð eftir fundi í 162
flokksfélögum í rúmlega hundrað
borgum og fengu fljótlega stuðning
um allt landið. Höfundur ávarpsins
í Prövdu, Vjatsjeslav Shostakovskíj,
er stjómandi hugmyndafræðiskóla
kommúnistaflokksins í Moskvu en
verður nú, eins og fleiri klofnings-
menn, að leita sér að nýju starfi.
Hann segist óttast að fasismi verði
ofan á í Sovétríkjunum vegna vöru-
skortsins og pólitíska umrótsins.
„Ástandið er ekki ólíkt því sem var
í Þýskalandi 1933,“ segir hann.
Shostakovskíj telur þó að frjáis
samtök námumanna, sem enn eru
í burðarliðnum, og kirkjan geti orð-
ið valdamikil öfl í samfélaginu.
Lýðræðisvettvangur geti á hinn
bóginn orðið kjarninn í nýjum flokki
stjórnarandstæðinga en þess beri
að gæta að allt stjórnmálalíf í
landinu sé vanþróað vegna 70 ára
kommúnistaalræðis.
Einn leiðtoga vettvangsins,
Vladímír Lysenko, segist telja að
ný fylking lýðræðisafla geti þegar
í haust sameinast um kröfur um
samsteypustjóm og jafnframt að
kosningum verði flýtt. Helstu flokk-
amir sem sameinast gætu Lýðræð-
isvettvangi eru Sósíaldemókratar,
Frjálsir demókratar og Lýðræðis-
flokkur Rússlands, undir forystu
Níkolajs Travkíns. Klofningur er í
síðasttalda flokknum, sem jafn-
framt er öflugastur, vegna valda-
baráttu Travkíns og Garrís
Kasparovs, heimsmeistara í skák.
Að sögn Lysenkos eiga allir flokk-
arnir það sameiginlegt að þeir vilja
koma á frjálsu markaðskerfi og
bijóta einveldi kommúnista á bak
aftur.
Igor Tsjúbajs, sem rekinn var úr
kommúnistaflokknum fyrir tveim
mánuðum vegna opinskárrar gagn-
rýni, efast um að margir flokksfé-
lagar muni strax ganga úr honum,
þótt ýmsar skoðanakannanir sýni
mikið fylgi við Lýðræðisvettvang
meðal flokksfélaga. „AUir sem taka
slíkt skref verða að velta fyrir sér
áhrifunum á starfið, launin, fjöl-
skyldulífið, menntun barnanna,"
segir hann. Gamla flokksvélin hefur
ennþá töglin og hagldirnar í þessum
málum, ræður kjörum manna.
5.000 albanskir flótta-
menn yfirgefa land
Þessi mynd var nýlega tekin undan strönd Noregs og sýnir nýtt sovéskt orrustuskip af Sovremenníj-gerð
á leið norður með Noregsströnd til Kóla-skagans. Fyrir eru sex skip af sömu gerð í sovéska Norðurflot-
anum.
Umsvif sovéska flotans valda foiystu-
mönnum NATO-landa áhyggjum
MIKILVÆGI herflota eykst um leið og fækkað er í hersveitum á landi
í Evrópu og meira treyst á liðsauka, segir Manfred Wörner, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, í vikuritinu Jane’s Defence
Weekly. Blaðið vitnar einnig til hins nýja yfirmanns Atlantshafsher-
stjórnar NATO, Leon A. Edney, sem segir, að vernd siglingaleiða sé
nauðsynleg jafht vegna hernaðarþarfa og kaupsiglinga.
Sendiráðum lokað í Tirana meðan
hreinsað verður til á lóðum þeirra
Brindisi, Róm, Bonn. Reuter.
í ritinu er birt viðtal við Carlisle
Trost flotaforingja, sem hefur nýlega
látið af störfum sem æðsti yfirmaður
bandaríska flotans. Hann segir, að
bardagageta sovéska flotans sé meiri
nú en hún var fyrir tveimur árum
og hún verði líklega enn meiri eftir
tvö ár. Hann segist ekki treysta sov-
éska flotanum og telur að yfirmaður
hans treysti ekki heldur yfirstjóm
bandaríska flotans.
Þá er skýrt frá því í þessu sama
hefti af Jane’s Defence Weekly, að
vestur-þýski flotinn ætli að efla styrk
sinn á Norðursjó og leggja meiri
áherslu á æfíngar þar en áður. U.
Weisser foringi í þýska flotanum
segir, að taka verði mið af því, hve
Sovétmenn leggja mikið kapp á að
endumýja Norðurflotann á Kóla-
skaga og efla getu sína til land-
gönguaðgerða auk þess sem þeir séu
að taka ný stór herskip í notkun.
Þá styrki þeir einnig afl sitt til loft-
hernaðar og loftvama, svo sem með
því að koma fyrir Backfíre-sprengju-
þotum á Kóla-skaga. Weisser bendir
einnig á, að Sovétmenn eignist á
næstunni raunveruleg flugmóður-
skip.
Þýski flotaforinginn segir, að
vegna þessa verði þýski Norðursjáv-
arflotinn að geta stöðvað sókn so-
vésks herafla á Atlantshafí og Norð-
usjó. Hann verði að geta fundið
óvinaskip sem komist inn á svæðið
og snúist gegn þeim. Þá verði þýski
flotinn að geta tryggt öryggi flutn-
ingaskipa með því að vemda sigling-
arleiðir og hreinsa tundurdufi.
UM 5.000 albanskir flóttamenn
komu með feijum til Ítalíu í gær-
morgun, en þeir höfðu hafst við á
lóðum sendiráða þriggja vest-
rænna ríkja í Tirana, höfuðborg
Albaníu, frá því í síðustu viku.
Sendiráðunum hefur verið lokað
meðan hreinsað verður til á lóðum
þeirra en þar mun mjög óhrjálegt
um að litast.
Háttsettur embættismaður í ut-
anríkisráðuneytinu í Róm sagði að
vestur-þýsk stjórnvöld hefðu lagt til
að ítalir, Frakkar og Vestur-Þjóð-
veijar lokuðu sendiráðum sínum í
Tirana til þess að koma í veg fyrir
nýjan straum flóttamanna þangað.
Ríkin greinir á um leiðir að þessu
markmiði, en hugsanlegt er að þau
minnki umsvif sendiráðanna. Til að
byrja með verða þau lokuð vegna
hreinsunarstarfa á lóðum sendiráð-
anna. Hefur vestur-þýska stjórnin
kallað mestan hluta sendiráðsmanna
heim til læknisskoðunar.
Flóttafólkið var flutt til skips í
skjóli náttmyrkurs í fyrrinótt til þess
að komist yrði hjá því að fleiri reyndu
að slást í hópinn, en fregnir hermdu
að hundruð manna sem ekki hefðu
verið í sendiráðunum hefði tekist að
komast um borð í feijurnar, sem
fluttu flóttamennina til Italíu. Þang-
að sigldu tvær ferjur með rúmlega
2.000 flóttamenn hvor og ein feija
setti stefnuna á Marseille í Frakkl-
andi með 545 Albani sem flýðu inn
á lóð franska sendiráðsins í Tirana.
Mikill hluti flóttamannanna sem
siglt var með til Italíu höfðu hafst
við í vestur-þýska sendiráðinu í Tir-
ana. Fóru þeir um borð í sérstakar
járnbrautarlestir í ítölsku hafnar-
borginni Brindisi og þaðan lá leiðin
tii Vestur-Þýskalands.
Wörner
heimsældr
Sovétríkin
Moskvu. Reuter.
MANFRED Wörner, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), kom í gær til
Moskvu og er þetta í fyrsta sinn
sem æðsti maður bandalagsins
kemur til Sovétrikjanna i opinbera
heimsókn. Wörner mun ræða við
Míkhafl Gorbatsjov forseta og
Edúard Shevardnadze utanríkis-
ráðherra í dag, laugardag.
Framkvæmdastjórinn verður fjóra
daga í Sovétríkjunum. Fyrr í vikunni
sagðist hann vilja nota heimsóknina
til að sannfæra leiðtoga Sovétmanna
um að Atlantshafsbandalagið og ríki
þess, þ.á m. væntanlegt sameinað
Þýskaland, væru á engan hátt hættu-
leg Sovétríkjunum. Þannig hyggst
hann leggja áherslu á friðaryfirlýs-
ingu leiðtogafundar NATO í London
í síðustu viku.